Morgunblaðið - 08.02.1974, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1974
| ÍÞRÓTTAFRETTIB MOBCIBLABSIHS
Auðveldur gigur KR
yfir slöku liði HSK
Guðjón Erlendsson markvörður Fram átti mjög góðan leik gegn Þór og þarna bindur hann enda á
hraðaupphlaup þeirra.
Fallið blasir við Þór
eftir tapleik gegn Fram
LEIKUR KR og HSK var einhver
allra leiðinlegasti leikur, sem
frain hefur farið í 1. deild hingað
til. IISK-menn léku sinn lang-
lélegasta leik til þessa og KR-ing
ar smituðust. Ltmgi vel var um
hreina leiklevsu að ræða, en þeir
fáu skemmtilegu kaflar, sem
koinu, voru KR-inga. Mikið var
um rangar sendingar og enn oftar
syndu leikinenn, hvernig h;egt er
að brenna af undir körfunni, þótt
mun auðveldara sé að skora en
hitt.
FH
AÐALFUNDUR FH verður hald-
inn n.k. laugardag í fundarsal
Rafha. Venjuleg aðalfundarstörf.
Badmintonmót
unglinga
Badmintondeild KR gengst
fyrir opnu unglingamóti í bad-
minton í KR-húsinu laugardaginn
16. febrúar n.k. og hefst mótið kl.
13.00. Keppt verður i einliðaleik
sem hér segir: 1 flokki drengja
14 —16 ára, sveina 12—14 ára og
pilta og meyja, 12 ára og yngri.
Leikið verður með plastboltum.
Þa'tttaka tilkynnist til Reynis Þor-
steinssonar, sími 38177 eða 82398,
fyrir 13. febr. n.k.
Breytingar
á bikarglímu
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar varðandi Bikarglímu ís-
lands 1974 frá því fyrri fréttatil-
kynning GLl var birt. Akveðið
hefur verið að Bikargliman 1974
fari fram laugardaginn 23. febrú-
ar nk. og verður glímt í tveimur
flokkum. Annars vegar þeir, sem
eru 20 ára og eldri, og hins vegar
unglingar og drengir. Keppnin
fer fram í leikfimisal Voga-
skölans og hefst klukkan 14. Þátt-
tökutilkynningar þurfa að berast
mótanefnd GLÍ, pósthólf 997,
Reykjavík, fyrir 12. febrúar nk.
Með þessari tilkynningu aftur-
kallast þvi tilkynning um bikar-
glímu fullorðinna þann 16.
febrúar og bikarglimu unglinga
og drengja þann 17. mar/. nk.
Víðavangshlaup
í Kópavogi
VÍÐAVANGSHLAUP fyrir börn
og unglinga í Kópavogi ferfram á
vegum frjálsíþróttadeildar
Breiðabliks á sunnudaginn kem-
ur og hefst klukkan 14.00 við
íþróttahús Kópavogsskóla. Keppt
verður i fjórum aldursflokkuin og
er þetta fyrsta hlaup vetrarins af
þremur. Bikar verður gefinn fyrir
bezta samanlagðan árangur í
hverjum flokki og verðlaunask/ol
veitt þeim beztu i hverju hlaupi.
Sigur KR var aldrei i hættu í
þessum leik, HSK hélt að vísu í
við þá fyrstu mín. leiksins, en
eins og liðið lék, gat aldrei komið
til mála, að um keppni yrði að
ræða. KR-ingar beittu 1-2-2 í vörn-
inni, en IISK b.vrjaði með maður
gegn manni. Voru KR-ingar í tals-
verðum vandræðum með að finna
leiðina í körfuna til að byrja með,
en þegar það lagáðist tóku þeir
forustuna og höfðu yfir í hálfleik,
39:22. HSK náði aldrei að ógna
KR-sigri eftir þetta, enda leikur
liðsins ekki til að hrópa húrra
fyrir. Það var ekki fyrr en undir
lok leiksins, þegar KR lék nær
eingöngu með skiptamönnum, að
HSK tókst að laga stöðuna dálítið
sér í hag, en lokatölur urðu 78:64.
Þar með hafa KR-ingar tekið for-
ustuna í mótinu, og eina liðið, sem
kemur til með að veita þeim
keppni um íslandsmeistaratitil-
inn, er Valur, að mínu áliti. —
Gunnar Gunnarsson og Kolbeinn
Pálsson voru beztu menn KR í
leiknum, Gunnar með sinn bezta
leik í langan tíma, og unun var að
sjá sendingar hans í leiknum.
Bjarni átti góða kafla, eða þar til
úthaldið þraut. — Þeir Bírkir
Þorkelsson og Þröstur Guðmunds-
son voru beztu menn HSK. —
Gunnar skoraði mest fyrir KR, 14
stig, Bjarni 13, og Guttormur 12.
— Fyi'ii' HSKskoraði Birkir mest,
eða 18 stig, og Þröstur 15.
gk.
FRAMARAR voru ekki í neinum
vandræðum með Þór í 1. deildar-
keppni íslandsmótsins í hand-
knattleik, er liðin mættust í
Laugardalshöllinni í fyrrakvöld.
Urslit leiksins urðu 27:20 fyrir
Fram, sem hafði lengst af góða
forystu, sjö mörk i hálfleik og
mest átta mörk snemma I seinni
hálfleik. Eftir þennan leik virðist
sem lið Þórs sé dæmt til þess að
falla niður f 2. deild. enda stendur
það hinum 1. deildar liðunum
nokkuð að baki og hefur yfir
minni breidd að ráða en þau.
Leikurinn í fyrrakvöld var
heldur slakur, þegar á heildina er
litið. Það sem helzt er frásagnar-
vert er frábær frammistaða
þriggja leikmanna Framliðsins,
þeirra Axels Axelssonar, Björg-
vins Björgvinssonar og Guðjóns
Erlendssonar. Þessir leikmenn
báru af öðrum á vellinum og það
voru þeir, sem skópu sigur Fram-
ara. Axel og Björvin gerðu hvor
um sig 11 mörk, eða samtals 22 af
27 mörkum Framara, og Guðjón
Erlendsson varði hvað eftirannað
meistaralega í markinu. Þannig
varði hann t.d. fjögur vítaköst Ak-
ureyringanna og nokkrum sinn-
um eftir hraðaupphlaup þeirra.
Hefur Guðjón átt mjög jafna og
góða leiki með Framliðinu að
undanförnu og rifið sig upp úr
þeirri lægð, sem hann virtist vera
kominn i á tímabíli.
Annars er mjög erfitt að fella
dóm yfir Framliðinu eftir leik
þennan. Til þess var hann of til-
viljanakenndur og vörn andstæð-
inganr.a of slök. Eitt er þó óhætt
að fullyrða. Þeir félagar Axel og
Björgvin hafa aldrei verið betri,
og mikið má vera ef Axel Axels-
son er ekki mesta skyttan í ís-
lenzka handknattleiknum um
þessar mundir. Axel var með
prýðilega skotanýtingu í leiknum
og mörg marka hans stórfalleg.
Þá má heldur ekki gleyma því, að
hann átti góðan hlut í sumum
mörkunum hans Björgvins, er
hann sendi inn á línuna. Akureyr-
ingar gerðu tilraun til þess að
taka Axel úr umferð, en sú gæzla
var oftast heldur slök, og ef Axel
tókst að rífa sig úr henni, skoraði
hann oftast mörk.
Akureyringarnir voru heldur
óheppnir í þessum leik, en ekki
má þó gleyma því, að oft er
skammt milli klaufaskaps og
óheppni. Hefðu þeir skorað úr
þeim vítaköstum, sem þeir fengu
dæmd, hefði Fram unnið leikinn
með aðeins einu marki. En víta-
köstin voru ekki vel framkvæmd
og tilviljun virtist ráða því, hvert
knötturinn fór úr þeim. Vörn
liðsins er einnig heldur slök, og
lét Björgvin piata sig oft illa, auk
þess hafði vörnin hvergi nærri
nógar gætur á Axel. Sígtryggur
Guðlaugsson var bezti maður
liðsins í þessum leik, hann getur
skotið að utan, og einnig er hann
drjúgur við að brjótast í gegn inn
á línuna. Þá átti Þorbjörn mjög
fallegt skot og mörk í þessum
leik, en hann er nokkuð þungur
og ógnar yfirleitt ekki nógu
mikið.
1 STUTTU MALI:
Laugardalshöll 6. febrúar íslands-
mótið 1. deild.
ÚRSLIT: FRAM — ÞÓR 27—20
(12—7).
Mfn. Fram Þór
2. Axel 1K)
4 Axel (v) 2.-0
5. 2:1 Benedikt
7. Björgvin 3:1
9. 3:2 Sigtryggur
9. Björgvin 4:2
11. 4:3 Sigtryggur (v)
11. Ingólfur (v) 53
14. Björgvin 6:3
17. Axel (v) 7:3
18. Axel 83
22. Axel 9:3
22. 9:4 Þorbjörn
23. Axel 10:4
24. 10:5 Sigtrvggur
25. 10:6 Þorbjörn
26. Björgvin 11:6
28. 11:7 Sigtryggur
29. Björgvin 12:7
Ilálf leikur
31. Axel 13:7
32. Björgvin 14:7
33. 14:8 Þorbjörn
33. Arnar 15:8
36. 15:9 Sigtryggur
37. Stefán 16:9
40. Björgvin 17:9
41. 17:10 Þorbjörn
43. Björgvin 18:10
43. 18:11 Arni (v)
44. Björgvin 19:11
45. 19:12 Sigtryggur
45. 19:13 Ami
46. 19:14 Benedikt
47. Axel 20:14
48. 20:15
49. 20:16 Þorbjörn
51. 20:17 Arni
52. Axel 21:17
53. Axel 22:17
54. Björgvin 23:17
56. 23:18 Sigtryggur
56. Ingólfur 24:18
57. 24:19 Þorbjörn
57. Hannes 25:19
59. Axel 26:19
60. 26:20 Sigtryggur
60. Björgvin 27:20
Mörk Fram: Axel Axelsson 11,
Björgvin Björgvinsson 11,
Ingólfur Öskarsson 2, Hannes
Leifsson 1, Arnar Guðlaugsson 1.
Mörk Þórs: Sigtryggur Guð-
laugsson 8, Þorbjörn Jensson 7,
Árni Gunnarsson 3, Benedikt
Guðmundsson 2.
Brottvísanir af velli: Pétur Jó-
hannesson, Fram, í 2 mín.
Misheppnuð vftaköst: Guðjón
Erlendsson varði vítakast frá
Aðalsteini Sigurgeirssyni á 2.
mín. og á 16. frá Sigtryggi Guð-
laugssyni á 13. mín. og á 34. mín.,
Sigtryggur gerði vítakast ógilt á
9. mín. og Benedikt Guðmundsson
skaut yfir úr vítakasti á 42. mfn.
Dómarar: Öli Olsen og Björn
Kristjánsson og dæmdu þeir yfir-
leitt vel.
— stjl.
LIÐ FRAM: Guðjón Erlendsson 4, Ingólfur Óskarsson 2,
Björgvin Björgvinsson 4, Stefán Þórðarson 1, Sigurbergur Sig-
steinsson 1, Arnar Guðlaugsson 2, Andrés Bridde 2, Pétur
Jóhannesson 1, Árni Sverrisson 1, Hannes Leifsson 1, Axel
Axelsson 4, Þorgeir Pálsson 1.
LIÐ ÞÓRS: Tryggvi Gunnarsson 2, Aðalsteinn Sigurgeirsson
2, Gunnar Gunnarsson 1, Ólafur Sverrisson 1, Arni Gunnarsson
1, Þorbjörn Jensson 2, Sigtryggur Guðlaugsson 3, Benedikt
Guðmundsson 2.