Morgunblaðið - 02.03.1975, Side 1

Morgunblaðið - 02.03.1975, Side 1
48 SIÐUR 49. tbl. 62. árg. Óvíst um örlög Lorenz V-Berlín 1. marz Keuter — AP YFIRVÖLD í V-Berlín létu í morgun laus þau Ettore Canella og Gerhard Jagdman, sem setið höfðu f fangelsi frá þvf í nóvemb- er sl. fyrir að hafa tekið þátt í ólöglegum mótmælaaðgerðum, en ræningjarnir, sem hafa borgar- stjóraefnið Peter Lorenz á sínu valdi höfðu krafizt þess að þau yrðu látin laus ásamt 6 stjórn- leysingjum úr Baader- Meinhofhreyfingunni í skiptum fyrir Lorenz. Yfirvöld höfðu ekki tekið ákvörðun um það hvort orð- ið yrði við þeirri kröfu, er Mbl. fór í prentun I gær. Kosningar til borgarstjórnar í V-Berlín fara fram í dag, sunnudag og er Lorenz talinn koma til greina sem sigurvegari í þeim. Ræðismaður- inn myrtur Cordoba 1. marz Reuter BANDARlSKI ræðismaðurinn f Cordoba f Argentínu, John Patrick Egan, fannst myrtur í gær. Skæruliðar f Montoneros- hreyfingunni rændu honum á fimmtudag og kröfðust þess, að yfirvöld í Argentínu slepptu 6 skæruliðum, sem nýlega voru handteknir. Var bandarfska sendiráðinu tilkynnt í gærkvöldi, að stjórnvöld myndu ekki verða við kröfum skæruliðanna, enda hefðu þau ekki umrædda sex- menninga í haldi. Mun Egan hafa verið tekinn af lífi skömmu síðar og var dagblaði í Cordoba til- kynnt hvar lfk hans Væri að finna. Hann hafði verið skotinn einu sinni á milli augnanna og var lfkið sveipað fána skæruliða- hreyfingarinnar. Hjá likinu fannst miði, sem skrifað var á: „Áfram til sigurs hgrshöfðingi minn.“ Var þar átt við Juan Peron hinn látna forseta landsins, en skæruliðarnir telja sig einu sönnu stuðningsmenn Perons og berjast gegn stjórn ekkju hans, Mariu Peron. HFTIVtATIIRIÍIN ATÓMSPRENGJA? Washington, 1. mars — Reuter. TVlTUGUR bandariskur háskóla- stúdent hefur búið til frumstæða en nothæfa kjarnorkusprengju, að því er sumir sérfræðingar telja. Þetta kemur fram í nýrri sjónvarpsmynd, sem sýnd verður i Bandaríkjunum 9. mars. Sjón- varpsstöðin, Public Broadcasting Service hafði skorað á stúdentinn að reyna að smíða slíka sprengju til að komast að því hvort sú kenning hefði við rök að styðjast, að unnt væri að búa til heimatil- búna kjarnorkusprengju einungis á grundvelli þeirra upplýsinga sem birtar hafa verið um þessi efni, m.a. með tilliti til þeirra möguleika sem slík sprengja gæti veitt hermdarverkasamtökum. Framhald á bls. 47. SUNNUDAGUR 2. MARZ 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm. Hvaða borgarhluta sýnir myndin? — Þessi mynd var tekin úr lofti af ákveðnum borgarhluta í' Reykjavík að kvöldi til. Geta lesendur áttað sig á því hvaða götur og hverfi myndin sýnir? Brátt verður allt líf í hafinu á heljarþröm — segir Thor Heyerdahl □ „MIKIÐ ríður á því að sett verði lög, sem komi f veg fyrir mengun heimshafanna. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að sjórinn er á stöðugri hreyfingu og lýtur ekki lögsögu nokkurs ríkis. Mengun sem á upptök sín á einum stað kann að dreifast um heimshöfin öll. Sjórinn er sameign alls mannkyns. Við er- um í þann veginn að eyðileggja hann með mengun. Því þörfn- umst við alþjóðlegrar stofnun- ar sem getur gripið til skyn- samlegra aðgerða og komið í veg fyrir það að við drepum svif hafsins og allt líf þess.“ Q Þetta segir hinn heimskunni norski vfsindamaður Thor Hey- erdahl f samtali f Dagbladet nýlega. Heyerdahl ætlar að fara á hafréttarráðstefnuna f Genf f vor til að reyna að hafa áhrif á afstöðu stjórnmála- mannana til hafréttarmála. „Aðalatriðið er, að Sameinuðu þjóðirnar fái ákveð- inn hluta i efnahagslögsögunni. Hún má ekki verða einka- lögsaga einnar þjóðar upp á 200 mílur. S.Þ. ættu að fá 20% af afrakstrinum af hafsbotninum milli 12 og 200 milna. Þetta S.Þ.-gjald ber að miða við þjóðartekjur á hvern íbúa við- komandi strandrikis, þannig að land eins og t.d. Indland fái að halda tiltölulega meiru af tekj- um sínum af hafinu undan ströndum þess en t.d. Bandarík- in.“ „Hér er um að ræða auðlindir eins og oliu, gas og málma úr hafsbotni. Hins vegar er eðli- legt,“ segir Heyerdahl, „að strandríkin fái rétt til að stjórna fiskveiðum innan 200 mílna markanna til að koma i veg fyrir að mikilvægir fisk- stofnar verði éyðilagðir á með- an beðið er eftir alþjóðlegu samkomulagi.“ Og i þessu sam- bandi, leggur Heyerdahl áherzlu á greinarmuninn milli landgrunnsins og sjávarins yfir þvi. Hann segir það jafnvon- laust að ætla að setja lög um eða afmarka slika vatnsmassá á landakorti og að ætla að koma lögum yfir skýin á himninum. Vatnið sjálft sé á stöðugri hringferð um hnöttinn, og þvi verði að gilda aðrar reglur um fiskveiðar en um málma eða olíu hafsbotnsins. Heyerdahl segir að þótt erfitt kunni að reynast að finna hljómgrunn fyrir slik sjónar- mið í Genf, þá sé ljóst að eitt- hvað verði að gera áður en heimshöfin verði fullkomlega eyðilögð. „Eins og ég sagði í Caracas: Hér sitja pólitikusarn- ir og reyna að koma sér saman um skiptingu eplis, um leið og þeir láta eplið sjálft rotna. Við vitum allir í dag, að hafinu eru takmörk sett. Það er langtum minna en menn héldu á miðöld- um. Mönnunum fjölgar ofboðs- lega ört. Við höfum fundið upp ýmiss konar efni sem ekki leysast upp og klofna þegar þau koma út í hafið. Hvort um er að tefla 20 ár eða 50 ár skiptir litlu máli. Alla vega er öruggt að við getum ekki haldið áfram að nota hafið sem ruslatunnu. Ef við gerum það, töpum við þeim eggjahvítuefnum sem við þörfnumst úr fiskinum, og við munum einnig eyðileggja mik- inn hluta þess súrefnis sem við þurfum til öndunar og fram- leitt er af svifi sjávarins." Trúi ekki á heimskreppu - segir dr. Karl Kla- sen, forseti Bundes- bank í V-Þýzkalandi DR. KARL Klasen, forseti aðal- banka Vestur-Þýzkalands, Bundesbank, sagði I viðtali við bandaríska vikuritið Newsweek fyrir skömmu, að hann væri þeirrar skoðunar, að heims- kreppa væri ekki yfirvofandi, og kvaðst telja að það kæmi I Ijós með næsta hausti. Dr. Klasen sagði, að milliríkja- viðskipti væru enn geysimikil og sú staðreynd, að verðbólga væri á undanhaldi i mörgum löndum yrði mörgum fyrirtækjum hvöt til framkvæmda og yki líkurnar á lánveitingum til langs tíma með lægri vöxtum. Enn sagði hann að væri mjög mikil eftirspurn eftir Framhald á bls. 47.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.