Morgunblaðið - 02.03.1975, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1975
DAGBÖK
1 dag er 2. marz, sem er 3. sunnudagur i föstu og Jónsmessa Hólabiskups á
föstu.
Árdegisflóð í Reykjavík er kl. 10.06, sfðdegisflóð kl. 22.33.
Treystið Drottni æ og ætíð því að Drottinn, Drottinn er eilfft bjarg. Því að
hann niðurlægir þá, sem byggja á hæðum; háreistu borginni steypir hann
niður, hann steypir henni til jarðar og leggur hana f duftið. Fætur troða hana
niður, fætur fátækra, iljar umkomulausra. Vegur hins réttláta er sléttur, götu
hins réttláta ryður þú. (Jesaja 26. 4—7).
I dag halda færeyskar konur basar á handunnum munum, heimabökuðum
kökum og öðrum eigulegum varningi í færeyska sjómannaheimilinu við Skúla-
götu. Eins og áður hefur verið sagt frá er nú unnið að undirbúningi byggingar nýs
sjómannaheimilis rétt neðan vió Sjómannaskólann. Allur ágóði af basarnum í dag
rennur til byggingarinnar.
Á myndinni er Justa Mortensen með hluta munanna, sem seldir verð á
basarnum.
FRÉTTIR
| KHOSSGÁTA
Láréít: 2. beita 5. ólíkir 7. leit 6.
mannsnafn 10. skammstöfun 11.
hrafnar 13. ósamstæðir 16. blaðra
15. komastyfir 16. hvílt 17. hress.
Lóðrétt: 1. pokann 3. óvægnar 4.
brakaði 6. merkja 7. kofa 9. ósam-
stæðir 12. leyfist
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1. gabb 6. sál 8. ás 10. kaun
12. skikinn 14. tóri 15. DA 16. PN
17 raunir
Lóðrétt: 2. ás 3. bakkinn 4. blái 5.
kastar 7. annar 9. skó 11. und 13.
irpu.
Blöð -og tímarit
Verzlunarskólablaðið, 41. árg.,
er komið út. Blaðið er glæsilegt að
vanda, 96 síður, prentað í Ingólfs-
prenti. I blaðinu er m.a. efnis,
ávarp Vilhjálms Hjálmarssonar
menntamálaráðherra, ávarp
Hallfríðar Bjarnadóttur, sem er
ritstjóri blaðsins, ágrip af 70 ára
sögu skólans eftir Vilhjálm Þ.
Gíslason, mörg viðtöl við fyrr-
verandi nemendur skólans, auk
greina eftir fyrrverandi og nú-
verandi nemendur. Blaðið er
prýtt fjölda mynda.
Febrúarhefti Asgarðs, blaðs
B.S.R.B. er komið út.
Af efni má nefna ávarp á
kvennaári, grein um greiðslu yfir-
vinnu í veikindum, grein eftir
Guðmund Inga Sigurðsson hrl.,
sem nefnist Kistulagning starfs-
öryggis og viðtal við Guðna í
Sunnu um orlofsferðir. Auk þess
eru í blaðinu ýmsar félagsfréttir.
Frew, 2. tbl. 71. árg. er komið
út. Foifystugrein Jónasar Jónsson-
ar ritstjóra nefnist Vanmat á
landbúnaði og sóun á verðmætum
jarðarinnar. Þá er i blaðinu grein
um alþjóðlegu matvælaráðstefn-
una í Róm á síðasta ári, viðtal við
Eystein Sigurðsson á Arnarvatni
um vetrarrúning sauðfjár, auk
annars efnis. Barnablaðið er ný-
komið út. I því er að vanda kristi-
legt efni við hæfi barna og
unglinga.
Meðai efnis í 1. tbl. Sjómanna-
blaðsins Vikings er viðtal við
Eggert Gíslason, skipstjóra á
Gísla Arna, um sildveiðar í
Norðursjó, grein um landhelgis-^
mál eftir Pétur Guðjónsson, af-
mælisgrein um Guðfinn Þor-
björnsson vélstjóra 75 ára, grein
eftir Valdimar Guðmundsson
skipstjóra, er nefnist „Stýri-
mannaskóli á Þingeyri fyrir 40
árum“, félagsmálaopna, greinar
um kjaramál, fitumælingar í fiski
o.fl.
I nýútkomnum Verzlunar-
tíðindum, málgagni Kaupmanna-
samtaka Islands, birtist erindi,
sem Magnús Erlendsson flutti á
grænmetis- og ávaxtanámskeiði
samtakanna nýlega, sagt frá nýj-
um verzlunum, auk félagsfrétta
og minningargreinar um Kristens
Sigurðsson, kaupmann í Hafnar-
firði.
Félag austfirzkra kvenna
haldur skemmtifund mánudaginn
3. marz. Spilaó verður bingó.
Dansk kvindeklub spiller
selskabsviskt i Nordens hus
tirsdag d. 4. marts kl. 20.30.
Kvenfélag Lágafellssóknar
heldur fund mánudaginn 3. marz
að Brúarlandi kl. 20,30. Rauð-
sokkar kynna starfsemi sína á
fundinum.
Svölurnar
Svölurnar, félag fyrrverandi og
núverandi flugfreyja, heldur
fund að Hagamel 4 mánudags-
kvöld kl. 20.30. Gestur fundarins
verður Guðmundur Einarsson,
forseti Sálarrannsóknarfélags ís-
lands.
PEIMMAVIMIR |
Kanada
Mark Stanley
Box 358 Milk River
Alberta
Canada
Vill skrifast á við 11—13 ára
dreng, sem hefur áhuga á íþrótt-
um og lestri góðra bóka. Safnar
mynt o.fl.
Israel
Erella Berman
Ben-Jehuda 181
Tel-Aviv
Israel
Hún er 29 ára sem vill komast í
bréfasamband við jafnaldra sinn.
Ástralfa
John Osman
I Military Hospital
Jeronga
Lbl 4104
Australia
Hann er 20 ára hermaður og
vinnur 1 herspítala. Áhugamál
hans eru kvikmyndir og tónlist.
Hann langar til að skrifast á við
jafnaldra sinn.
Irland
Adrian O’Brien
II Cypress Lawn
Templeogue
Dublin 6 íreland
Vill skrífast á við stúlku, 17—18
ára. Hefur áhuga á fjarskíptum
og frímerkjasöfnun.
Sérðu nokkuð til hans, góða? Hann er orðinn 1 0 sekúndum á eftir áætlun.
ást er
Wo
. ... að hugsa vel
um sig
og sína
TM Reg. U 5 Pot Off.—All rightv res.-rved
1975 by los Angeles Times
| BRIPGE ~|
Hér fer á eftir spil frá leik milli
Spánar og Noregs í Evrópumóti
fyrir nokkrum árum.
Norður
S. A-10-7-3
H. K-D-9-4
T. 6
L. Á-K-4-2
Vestur Austur
S. —
H. 10-7
T. A-D-G-9-4
L. D-G-10-7-6-5
S. 6-4-2
H. A-6-5-2
T. 10-8-7-5-3
L. 9
Suður.
S. K-D-G-9-8-5
H. G-8-3
T. K-2
Við annað borðið sátu Spán-
verjarnir N.—S. og þar gengu
sagnir þannig:
Vestur. Norður. Austur. Suður.
1T. D. 2 S. D.
3 L. 3 S. 5 T. 5 S.
Ekki er hægt að neita því, að
2ja spaða sögn austurs er óvenju-
leg og byggist væntanlega á því að
hann á góðan stuðning í tígli og
getur alltaf sagt 3 tígla, verði
spaða-sögnin dobluð. Sagnhafi
fékk 11 slagi og vann spilið.
Við hitt borðið sátu Spán-
verjarnir A.—V. og þar gengu
sagnir þannig:
Vestur. Norður. Austur. Suður
p. 1 L. P 1 H.
A G. 3 L. P. 3 S.
P. 4 S. 5 T. 5 S.
6 T D. Allir pass.
Hér voru A.—V. ákveðnari í
sögnum en andstæðingar með
sömu spil við hitt borðið. Loka-
sögnin hefur vafalaust verið
hugsuð sem „fórnarsögn“, það fór
þó á annan veg, því sagnhafi vann
spilið og fyrir spilið fengu Spán-
verjarnir samtals 17 stig.
Vikuna 21.—27. febrú-
ar er kvöld-, helgar- og
næturvarzla apóteka í
Reykjavík í Háaleitis-
apóteki, en auk þess er
Vesturbæjarapótek opiö
til kl. 22 alla daga vakt-
vikunnar netna sunnu-
dag.
Merkið kettina
Vegna þess hve alltaf er
mikið um að kettir tapist frá
heimilum sfnum, viljum við
enn einu sinni hvetja kattaeig-
endur til að merkja ketti sína.
Áríðandi er, að einungis séu
notaðar sérstakar kattahálsól-
ar, sem eru þannig útbúnar, að
þær eiga ekki að geta verið
köttunum hættulegar. Við ól-
ina á svo að festa litla plötu
með ágröfnu heimilisfangi og
sfmanúmeri eigandans. Einnig
fást samanskrúfaðir plasthólk-
ar, sem f er miði með nauðsyri-
legum upplýsingum.
(Frá Sambandi dýraverndun-
arfélaga íslands).