Morgunblaðið - 02.03.1975, Page 20

Morgunblaðið - 02.03.1975, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1975 Þ' ng.-. spjall Efnahagsvandinn, sem sett hef- ur slagsíðu á þjóðarskútuna, hef- ur undanfarið leitt huga flestra tslendinga að málefnum útgérðar ug fiskvinnslu f landinu. Sjóða- kerfi sjávarútvegsins hefur af því tilefni verið mjög á milli tanna almennings, án þess þó að kerfið hafi verið brotið til mergjar eða útskýrt svo nokkru nemi. Þegar skyggnst er í tfttræddan stuðning við sjávarútveginn, kemur í Ijós, að fjármagn það, sem veitt er til útvegsins, er að meginhluta til frá honum sjálfum komið með einum eða öðrum hætti, tekjutil- færsla milli einstakra greina f veiðum og vinnslu sjávarafurða. Ilér á eftir verður lauslega reynt að skýra tilurð og vegferð þess fjármagns, sem sjóðakerfi sjávar- útvegsins spannar, þó stiklað verði á stóru og viðfangsefninu hvergi nærri gerð tæmandi skil. Ekki er fjallað um sjóði fisk- vinnslunnar. 3. Bátar yfir 100 lestir: Sjóður- inn greiði staðaliðgjald, skv. ákvörðun Iðgjaldanefndar, að frádregnum 6% v. hafnarlegu endurgreiðslu. Auk þess 94% af aukaiðgjaldi vegna loðnuveiða. 4. Bátar undir 100 lestum: Sjóðurinn greiði 94% iðgjalda. 5. Bráðafúatrygging: Sjóðurinn greiði 77% iðgjalda. Skilyrði og takmarkanir ið- gjaldagreiðslna: A) Framangreint er miðað við, að skip hafi fullt úthald, 270 daga. Sé úthald skemmra, lækkar greiðsla hlutfailslega. B) Ekki skal telja með í úthaldi grásleppuveiðar. Ekki skal heldur telja með í úthaldi tímabil, sem bátur er til viðgerðar. C) Þrátt fyrir framangreindar reglur skal greiðsla ekki vera hærri en 10% af aflaverðmæti viðkomandi skips á árinu að greiðslu f Stofnfjársjóð meðtal- inni. Við ákvörðun aflaverðmætis Sjóðakerfi sjávarútvegs: Þessi lánaða mynd Storm-Petersen fellur e.t.v. ekki nægilega að efni þessarar frásagnar. Hún ýkir eilítið þá „sjálfshjálp" sem sjóðakerfi sjávarútvegsins spannar. Engu að sfður segir hún sfna sögu og er íhugunarefni. Útflutningsgjöld á sjávaraf- urðir til stuðnings sjávarútvegi Útflutningsgjöld af íslenzkum sjávarafurðum Með lögum nr. 1 frá árinu 1966 eru upptekin sérstök útfiutnings- gjöld af sjávarafurðum. Gjöld þessi, sem ríkissjóður innheimtir, eru ýmist reiknuð af magni eða verðmæti útflutningsafurða. Gjöld þessi hafa allar götur frá þvi þau voru upp tekin runnið með einum eða öðrum hætti til stuðnings útgerð- og fiskvinnslu, eftir ákvörðun Alþingis hverju sinni, sem fram hefur komið í breytingum á umræddum lögum. Samkvæmt lögum nr. 19 frá ár- inu 1973 runnu útflutningsgjöld af sjávarafurðum til eftirtalinna kostnaðarliða (fremri dálkur). Með lögum um ráðstafanir f sjávarútvegi frá því í desember sl. var ráðstöfun þessara tekna lítil- Iega breytt (aftari dálkur): 1. Til greiðslu vátryggingar- iðgjalda fiskiskipa, skv. nánari ákvörðun sjávarútvegs- ráðuneytis .....85,0%—87,8% 2. Til Fiskveiðasjóðs Islands ..........9.4%—7.5% 3. Til Fiskimála- sjóðs ............2,5%—2.0% 4. Til smíði haf- og fiski- rannsóknarskips ..1,5%—1,2% 5. Til bygginga í þágu rannsóknarstofnana sjávar- útvegsins ........0,6%—0,5% 6. Til Landssambands ísl. útvegsmanna ......0,5%—0,5% 7. Til samtaka sjómanna .........0,5%—0.5% Meginhluti þessarar skatt- heimtu af útfluttum sjávar- afurðum, eða nær 88%, fer þvf til greiðslu á vátryggingariðgjöldum fiskiskipa. Verður nú gerð grein fyrir með hvaða hætti þær greiðslur eiga sér stað. TryggingarsjóÖur fiskiskipa Reglur um greiðslur iðgjalda fiskiskipa úr Tryggingarsjóði voru á sl. ári sem hér segir: 1. Síðutogarar, minni gerð: Sjóðurinn greiðir iðgjaldió, skv. ákvörðun Iðgjaldanefndar, að frá- dregnum 6%, en að viðbættum kr. 250.000.00. 2. Síðutogarar, stærri gerð: Sjóðurinn greiðir 94% þeirra iðgjalda, sem Iðgjaldanefnd ákveóur, að frádregnum 6% vegna áætlaðra hafnarleguendur- greiðslu. skal fara eftir gögnum Stofnfjár- sjóðs fiskiskipa og miða við það aflaverðmæti sem greitt er af til Stofnfjársjóðs. Reglur þessar eru skv. ákvörð- un Sjávarútvegsráðuneytisins, dags. 2. maf 1974. Þeim hefur ekki verið breytt að öðru Ieyti en því, að 11. növember 1974 var ákvæði í C-lið hér að framan hækkað úr 10 í 15%. Hvort þær breytast fyrir árið 1975 skal hér ósagt látið. Sjálfsábyrgð skipseigenda og refsiiðgjöld Sjálfsábyrgð skipseigenda í hverju tjóni á yfirstandandi ári (1975): Bátar 100—199 lestir... 85.000 Bátar200—299 lestir . . .. 100.000 Bátar 300 lestir og stærri 115.000. Skuttogarar að 700 brl. 130.000 Aðrir togarar ........ 200.000 Refsiiðgjöld eru á skipum með slæma tjónareynslu. Tryggingar- sjóður tekur engan þátt í greiðslu þeirra. Refsiiðgjöldin árið 1975 eru allt að 400.000.- kr. á skip. Refsiiðgjöldin eru i heild um 5% af iðgjöldum allra bátanna, en lægra hlutfall á togaraflotanum. Aflatryggingarsjóður. Aflatryggingarsjóður (lög nr. 80/1971) hefur það hlutverk, að bæta aflahluti skips og áhafnar, þegar almennan aflabrest ber að höndum. Sjóðurinn skiptist í þrjár deildir: bátadeild, togara- deild og jöfnunardeild. Reglugerð um starfsemi sjóðsins skal stað- festa af ráðherra að fengnu sam- þykki: Alþýðusambands Islands, Félags ísl. botnvörpuskipa- eiganda, Fiskifélags íslands, LÍÚ og Sjómannasambands íslands. Sjóðsstjórn er skipuð að tiinefn- ingu greindra aðila. Megintil- gangur sjóðsins er að tryggja skil á ákveðnum lágmarkslaunum, er aflabrestur verður. Sjóðurinn var stofnaður með ákveðnu stofnfjárframlagi, er ríkissjóður greiðir. Megintekjur sjóðsins eru 1.25% gjald af út- flutningsverðmæti sjávarafurða hverju sinni (fob-verðmæti). Ríkissjóður greiðir á móti sem svarar fjórðungi gjalds þessa. Lög og reglugerð ákveða nánar um forsendur og fyrirkomulag greiðslna úr sjóðnum, sem í aðal- atriðum byggist á aflamagni skips miðað við meðalveiðimagn. Olíusjóður fiskiskipa. Sjóður þessi er stofnsettur með lögum um ráðstafanir í sjávarút- vegi í desember á sl. ári. Tilgang- ur sjóðsins er að greiða niður brennsluolíu til íslenzkra fiski- skipa, skv. reglum er sjávarút- vegsráðuneytið setur. Tekjur sjóðsins eru sérstök út- flutningsgjöld á framleiðslu- afurðir i sjávarútvegi: 1. 4% af fob-verði útfluttra sjávarafurða, annarra en salt- fisks, skreiðar, lagmetis og þeirra afurða, sem koma frá hvalveiðum, selveiðum og hrognkelsaveiðum. 2. 5.5% útflutningsgjald af fob- verði útflutnings saltfisks og skreiðar. Fyrir síðustu olíuverðshækkun greiddi útgerðin kr. 8.20 og olíu- sjóðurinn kr. 9.00 af verði hvers olíulítra er útgerðin notaði. Eftir hækkunina hefur útgerðin greitt kr. 11.70 og olíusjóðurinn kr. 9.00. Hvort oliusjóðurinn tekur á sig hluta hækkunar hefur enn ekki verið tekin ákvörðun um. Stofnf jársjóður fiskiskipa. Stofnfjársjóður fiskiskipa (deild við Fiskveiðasjóð) var stofnaður með lögum nr. 58/1968. Um hann fjalla og lög nr. 79 frá sama ári. Stofnfé sjóðsins var framlag úr rikissjóði að fjárhæð 124 m.kr. Samkvæmt ákvæðum laga um ráðstafanir í sjávarútvegi frá því í desember á sl. ári skal fiskkaupandi eða fiskmóttakandi í landi greiða til Stofnfjársjóðs 15% af aflaverðmæti. Þegar fiski- skip landar afla erlendis skal það greiða 21% heildarsöluverðmætis til sjóðsins. — Stofnfjársjóðsgjöld skulu leggjast inn á reikning þess skips hjá Stofnfjársjóði, sem afl- að hefur þess hráefnis, sem gjald- ið er greitt af. Meginhlutverk Stofnfjársjóðs er að koma inn í myndina við skil á stofnfjárkostnaði fiskiskipá, fyrst og fremst með því að greiða afborganir og vexti af lánum þeim, sem veitt hafa verið úr Fiskveiðasjóði og tryggð eru með veði í skipunum. Aörir sjódir. Enn eru ótaldir tveir sjóðir, er gegna veigamiklu hlutverki í þágu sjávarútvegsins, en hlutverk þeirra spannar hvorttveggja mál- efni útgerðar og fiskvinnslu. Fiskveiðasjóður er stofnlánasjóð- ur, m.a. til nýframkvæmda á sviði veiða og vinnslu. Hann lýtur sér- stakri stjórn, er i umsjá Útvegs- bankans og heyrir undir Sjávarút- vegsráðuneytið. Ríkissjóður ábyrgist allar skuldbindingar hans gagnvart innlendum aðilum. — Fiskimálasjóður lýtur þing- kjörinni stjórn. Hann veitir við- bótarlán vegna nýframkvæmda i útgerð og fiskvinnslu. Haf- rannsóknir, rannsóknir á fiski- göngum og fiskstofnum, tilraunir i veiðum og með veiðarfæri, hag- ræðing í rekstri fyrirtækja I sjávarútvegi og markaðsleit og könnun eru meðal viðfangsefna, er heyra undir hans lánasvið. Greinarkorn þetta átti ein- vörðungu að fjalla um sérsjóði útgerðar og verður þvi ekki farið lengra út í þessa samsjóði veiða og vinnslu, enda umfangsmeira verkefni en rúmast innan ramma Haccorar frácnanar Með lögum um ráðstafanir I sjávarútvegi, er sett voru í desem- ber sl., var gengishagnaði, vegna gengislækkunar þá, ráðstafað sem hér segir: 1. Til að greiða hluta gengistaps vegna erlendra skulda eigenda fiskiskipa 600 m. kr. — Sjávarútvegsráðuneytinu var og heimilað að verja 400 m. kr. til lánveitinga í sjávarútvegi til 2—3 ára til að bæta lausafjárstöðu fyrirtækja. 2. Öafturkræft fram- lag til bátaflotans til að mæta rekstrarerfiðleikum þess árs 250 m. kr. 3. Óafturkræft framlag til skuttogara vegna rekstrarerfið- leika 230 m. kr. 4. Til Verðjöfn- unarsjóðs fiskiðnaðarins, vegna fiskmjöls annars en loðnúmjöls, 50 m. kr. 5. Til að verðbæta lif- eyrisgreiðslur aldraðra sjómanna 15 m. kr. 6. Til orlofshúsa sjó- mannasamtakanna 11 m. kr. Gengishagnaður, vegna nýrrar gengislækkunar, verður lagður inn á sérsjóð hjá Seðlabankanum og verður ráðstafað með sérstakri löggjöf. Með hliðsjón af fyrri ráðstöfun við svipaðar aðstæður og nú má ætla, að ráðstöfun gengishagnað- ar nú verði í tengslum við fyrir- hugaðar hliðarráðstafanir i efna- hagsmálum þjóðarinnar og erfiða rekstrarstöðu útgerðarinnar í landinu. sf. REIÐSKÓLINN VESTRA GELDINGAHOLTI Páskavikan 26.—31. marz. Námskeið fyrir unglinga (14 ára og eldri). Hlýðnisæfingar, útreiðar og kvöld- vökur. Tímabilið apríl-maí Tvo eða fleiri daga að vild. Kennsla eða upprifj- un fyrir áhugafólk um hestamennsku. Börn og unglingar Námskeið fyrir börn og unglinga hefjast í endaðan maí. Allar nánari upplýsingar að Vestra Geldinga- holti og hjá FERDASKRIFSTOFAN URVAL Eimskipafélagshúsinu simi 26900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.