Morgunblaðið - 02.03.1975, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1975
fólk — fólk — fólk — fólk
14 af 23 nemendum skólans á Klúku, en hinir voru heima við þegar
við komum í heimsókn.
Texti:
Arni Johnsen
siranda-
l
„Það eru
orðnir fleiri
hundará
bæjunum
Sveinn skólastjóri gantast
við hundinn.
en börn
rr
Hún gaf sér tíma fyrir dulið bros frá sauma-
skapnum.
Gf^
- M^
A KLUKU í Bjarnarfiröi er
glæsilegt skólahús með heima-
vist, íþróttasal og sundlaug. Þar
stunda nyrstu íbúar Strand-
anna af yngri kynslóðinni nám
við góðan aðbúnað og það
kemur manni sem ekki þekkir
til skemmtilega á óvart að vera
kominn norður Strandir og sjá
allt í einu hin glæsilegu skóla-
mannvirki blasa við í þessum
nyrstu sveitum. Við röbbuðum
um þetta yfir iskaldri mjólk og
sjóðheitum ástarpungum í eld-
húsi skólastjórahjónanna
Sveins Kristinssonar og Gunn-
varar Björnsdóttur, en þau eru
kennarar skólans.
„Ég tel,“ sagði Sveinn, „að
þessi skóli hafi verið byggður
hér fyrst og fremst fyrir harð-
fylgi og ákveóni Matthíasar
Bjarnasonar alþingismanns.
Þótt margir hafi ef til vill lagt
hönd á plóginn, á Matthías
heiðurinn."
„Hvað nema mörg börn hér?“
„Ég er hér með 23 börn, en í
söfnuðinum er alltaf að fækka.
Ég kom hingað 1972 og var
fyrst með 30 nemendur, en þeir
eru svo daufir við þetta karl-
arnir, það er víst svo mikið að
gera í tuðinu. En í heild
stendur þetta dálítið illa af sér
hér í sveitinni, fólkinu fækkar.
Unga fólkið er nefnilega hætt
að eiga börn, nema 1—2, svona
til þess að hafa þau með. Það
eru orðnir fleiri hundar á bæj-
unum en börn.
Hér í skólanum eru 7—14 ára
gömul börn, öll skólaskyldan.
Við kennum tvö hér, konan mín
og ég og konan er íþróttakenn-
ari að auki og svo sér móðir mín
um mötuneytið, svo þetta er
hálfgert heimilisfyrirtæki.
Við höfum sæmilega aðstöðu
hérna, öll venjuleg kennslu-
tæki og húsið er nýtt. 1 heima-
vist höfum við 8—9 nemendur,
en kennslan fer þannig fram að
fyrir áramót er kennt tvær
vikur i senn en eftir áramót eru
þau öll 23 svona eitthvað fram-
eftir. Það fer eftir því hvað
karlarnir verða þolinmóðir að
biða eftir því að fá krakkana til
vinnu heima vió. Þessi langa
skólaskylda er stórvandamál til
sveita. F'lestir skólar til sveita