Morgunblaðið - 21.05.1975, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAl 1975
19
Bayi hljóp míluna
TANZANlUMAÐURINN Filbert
Bay náði langþráðu takmarki á
laugardaginn, er hann setti
heimsmet í míluhlaupi á móti
sem fram fór i Kingston, höfuó-
borg Jamicaeyjarinnar í Kariba-
hafinu. Hljóp Bay á 3:51,0 mín.,
og bætti þar meó met Bandaríkja-
mannsins Jim Ryun um 1/10 úr
sekúndu. Annar í hlaupinu varð
Marty Liquori frá Bandaríkjun-
um á 3:52,2 mín., og Eamon
Coghlan frá Irlandi varð þriðji á
3:53,3 mfn.
.Bayi, sem er 21 árs að aldri, tók
þegar forystuna í hlaupinu í
Kingston, en Liguori og Coghlan
fylgdu honum sem skuggar. Hrað-
inn var gífurlegur allt frá byrjun,
svo sem bezt sézt af því að þeir
hlupu fyrsta hringinn á 56,9 sek.,
og 800 metrana á 1:56,6 mín.
Þegar siðasti hringurinn hófst
náði Bayi loks að hrista þá félaga
af sér, en aldrei þó svo að um
munaði, svo sem á tfmum þeirra
sést.
Frábær árangur náðist í mörg-
um öðrum greinum á mótinu í
Kingston. Steve Williams, Banda-
ríkjunum, einn af heimsmethöf-
unum í 100 metra hlaupi, sigraði i
sinni grein á 10,0 sek., og i 200
metra hlaupinu bar hann einnig
sigur úr býtum, hljóp á 19,9 sek.
og var því aðeins 1/10 úr sekúndu
frá heimsmetinu. Þar varð Jama-
icabúinn Donald Quarrie í öðru
sæti á 20,2 sek. Sigurvegari i 110
metra grindahlaupi varð Charles
Foster, Bandaríkjunum, sem
hljóp á 13,5 sek. Modupi Osbikaya
frá Nígeríu sigraði i 100 metra
grindahlaupi kvenna á 14,0 sek.,
Maureen Crowley frá Kanada
sigraði i 800 metra hlaupi kvenna
á 2:06,3 mín., Mark Belger,
Bandarikjunum, sigraði i 800
metra hlaupi karla á 1:47,1 mín.,
Mike Sands, Bahamaeyjum,
Treflar með
félagalitum
ÞAÐ vakti athygli f ieik Akranes
og KR I 1. deildar keppninni í
knattspyrnu að þar var gengið um
meðal áhorfenda og boðnir til
sölu treflar með litum félaganna
sem voru að keppa. Voru það
félagar f Félagi einstæðra
foreldra sem voru þarna á ferð.
— Við fengum ágætar undir-
tektir, sagði Jóhanna Kristjóns-
dóttir, formaður félagsins er
Morgunblaðið hafði samband við
hana í gær. — Það er fjáröflunar-
ÞRtB. bræður léku með lidi tBV gegn Vfkingi á laugardaginn. Mun slfkt ekki hafa gerst a.m.k. ekki f 1. deild sfðan Felixbræðurnir Hörður,
Bjarni og Gunnar léku saman f liði KR hér fyrr á árum. Bræðurnir eru frá vinstri talið Sveinn, Ársæll og Karl Sveinssynir. Faðir þeirra var
kunnur golfmaður f eina tíð. Sveinn heitinn Ársælsson. Ljósm.'sS.
0U Rjehm kastaöi 78,50 mefra
köstin lengri en heimsmetið
Vestur-Þjóðverjinn Karl-Heinz
Riehm setti glæsilegt heimsmet f
sleggjukasti á móti sem fram fór í
Rehlingen á sun'nudaginn. öll
köst hans I keppninni voru gild,
og öll voru betri en gamla
heimsmetið, sem Sovétmaður-
inn Aleksey Spiridonov setti s.I.
sumar, en það var 76,66 metrar.
Riehm, sem er 23 ára íþrótta-
kennari, byrjaði á því að þeyta
sleggjunni 76,70 metra á mótinu í
Rehlingen. I annarri umferð kast-
aði hann 77,56 metra og í þriðju
á 3:51,0!
sigraði í 400 metra hlaupi karla'á
45,3 sek., Marjorie Bailey, Kan-
ada, sigraði í 200 metra hlaupi
kvenna á 23,4 sek., Lorna Forde
frá Barbados-eyjum sigraði í 400
metra hlaupi kvenna á 53,3 sek.
Eftir methlaupið sagðist Bayi
aldrei hafa stefnt að þvi að setja
heimsmet í þessu hlaupi, aðeins
að vinna. — En ég vissi strax og
hlaupinu var lokið, að þetta
myndi verða mettími, sagði Bayi,
sem einnig á heimsmetið í 1500
metra hlaupi: 3:32,2 mín., sett á
siðasta ári.
nefnd félagsins sem stendur fyrir
þessu, og er ætlunin að ágóðinn
renni í styrktarsjóð félagsins. Við
ætlum okkur að selja trefla á
ieikjum 1. deildar liðanna í sumar
og eru þeir með litum félaganna.
Einnig hafa nokkur 2. deildar
félög sýnt áhuga á að fá slíka
trefla, og munum við verða við
óskum þeirra.
Þetta framtak félagsins er mjög
lofsvert og verður vonandi til
þess að auka á stemmningu á
áhorfendapöllum í framtíðinni,
en oft hefur verið um það talað að
íslenzkir áhorfendur séu heldur
daufir í dálkinn og geri lítið til
þess að hjálpa „sínum mönnum“ í
leikjum.
umferð 77,10 metra. I fjórðu um-
ferð kom svo sannkallað risakast:
78,50 metrar, og í síðustu umferð-
inni kastaði Riehm 77,20 metra.
Eftir keppnina á sunnudaginn
sagði Riehm, að árangur þessi
væri afrakstur gífurlegra æfinga
hjá sér s.l. vetur. Arangurinn
hefði ekki komið sér á óvart, þar
Nú er unnið að því að komast að
niðurstöðu um landslið í golfi og
mun það taka þátt i Evrópu-
meistaramóti í golfi, sem frani fer
á Irlandi í júní. I þessu augnamiði
var haldið svokallað viðmiðunar-
mót um hvítasunnuna. Eins og
nafngiftin bendir til, var ætlunin
að.hafa árangur keppenda fremur
til hliðsjónar en að hann réði al-
gerlega úrslitum. Þetta var 72
holu keppni samtals; fyrri 36
leiknar á Hómsvelli i Leiru og
seinni 36 á Hvaleyrarvelli. Urslit
urðu sem hér segir.
A Hólmsvelli:
1. Þorbjorn Kjærbo 78+74 = 152 högg
2. Björgvin Þorsteinsson 82 + 78 = 160 högg
3. Sigurdur Thorarensen 79+82 = ltíl högg
Á Hvaleyrarvelli:
1. Sigurður Thorarensen 77+77 = 154 högg
2. Kinar Guðnason 78+77 = 155 högg
3. —I. Þorbjörn Kjærbo 78+8« = 158 högg
3.—4. óskar Sæniundsson 79+79 = 158 högg
Eftir 72 holu keppni var röð
keppenda þannig.
1. Þorbjörn Kjærbo 31« högg
2. Sigurður Thorarensen 315 högg
3. Finar Gudnason 32« högg
4. Álli Árason 325 högg
5. óskar Sæmundsson 329 högg
sem hann hefðl kastað svo langt
og lengra á æfingum. — Þetta
heimsmet er mér ekkert lokatak-
mark, sagði hann, — heldur þvert
á móti upphaf að fleiri metum hjá
mér. Aðalkeppikeflið er auðvitað
sigur á Olympíuleikunum 1976,
og gæti farið svo að ég þyrfti að
kasta 80 metra til þess að hljóta
þar gullið, og það ætti ég að geta.
Á laugardag og sunnudag fór
fram árlegt hvitásunnumót hjá
Golfklúbbnum Keili á Hvaleyri.
Þar sem gróður hefur verið
óvenjulega seinn i vor, eru vetrar-
flatir enn í notkun og hefur það
óhjákvæmilega nokkur áhrif á
árangur. Sumarflatir verða
væntanlega teknar í notkun í
Þotukeppni F.I, sem fram fer
um næstu helgi. Urslit án forgjaf-
ar urðu þannig:
1. Sigurður Héöinsson 75+79 = 154 högg
2. Ægir Ármannsson 77+79 = 15tí liögg
3. Ágúst Svavarsson 74+83H 157 liögg
Sömu menn röðuðu sér einnig i
efstu sætin, þegar forgjöf er með
talin, en þá varð röðin þannig:
1. Ægir Ármannsson 134 högg ncttó.
2. Siguróur lléóinsson 138 liögg ncttó.
3. Ágúst Svavarsson 139 högg nottó
Agústannar
tR-ingarnir Sigfús Jónsson og Ágúst As-
geirsson tóku þátt ( háskólamcistaramóti
Englandssem fram fór f Birmingham nú
um helgina. Keppti Ágúst þar ( 3«««
metra hindrunarhlaupi og Sigfús i 5«0«
metra hlaupL
Agúst varó annar í 3««0 metra hindr-
unarhlaupinu á9:28,2 niin., sem er þriðji
bezti árangurinn sem hann hefur náó í
þessari grein. — Ég er ekki óánægóur
með þetta. sagði Agúst. — formið er
lélegt ennþá og ekkert farið að smella
saman hjá manni.
Sigurvegari i 3000 metra hindrunar-
hlaupinu varð lan Gilmour frá Birming-
ham á 9:13,4 mín., en hann átti bezt í
fyrra 8:44,0 min. I þessari grein.
Sigfús fann sig heldur ekki í 500«
metra hlaupinu. og mun ekki hafa geng-
ið heill til skógar. líann hljóp á 15:2«,«
mín. og varð tfundi í hlaupinu. Sigur-
vegari varð R. Smedley sem hljóp á
14:08,0 min. Þetta er fyrsta keppni Sig-
fúsar á braut i ár.
1 deildar leikirnir þrlr sem fóru fram um hvltasunnuhelgina voru ekki auðugir af mörkum. i Kaplakrikavellinum I HafnarfirSi og sýnir hún knöttinn hafna I Frammarkinu eftir skalla
aSeins einum þeirra var skorað — eitt mark. Mynd þessa tók Friðþjófur Helgason á Leifs Helgasonar, FH-ings.