Morgunblaðið - 21.05.1975, Qupperneq 34
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAl 1975
Var flöskuskevt-
ið grátt gaman?
Moskvu. 19. mai. Heuter.
TALSMAÐUR sovczka sjávarút-
vegsráðuneytisins sagði f dag að
Yfir 60% Breta
vilja EBE-aðild
London, 19. maí. Heuter.
SAMKVÆMT niðurstöðum
skoðanakannana í Bretlandi.
sem birtar voru um helgina
vilja 64% Breta vera áfram i
Efnahagsbandalagi Evrópu, en
24% vilja fara úr því. Það var
Louis Harrisstofnunin sem
gekkst fyrir greindri könnun
og var hún birt á sunnudag.
Gallupstofnunin gerði könnun
um svipað leyti og voru hlut-
föll stuðningsmanna EBE þá
60% ámóti 29%.
Virðist ljóst að ae fleiri
Bretar hallast að því að réttara
sé að vera i EBE, en í Gallup-
könnun fyrr í þessum mánuði
vildu 57% vera I EBE en 33%
að Bretar segðu sig úr banda-
laginu.
sovézk stjórnvöld ættu ekki skýr-
ingu á flöskuskeyti því sem rak
við Morlai á Frakklandsströnd á
laugardag. 1 flöskunni var miði á
rússnesku og sagt vera frá skipi
sem væri að sökkva í Atlantshafi
og var miðinn dagsettur í febrúar
og gefið upp númer skipsins.
Sagði þar að öll von væri úti fyrir
skipið, því að allir björgunar-
bátar hefðu skolazt útbyrðis. Sér-
stakt merki var undir skeytinu
scm mun vera dulmál og sagði
talsmaðurinn að það væri rétt
skrifað I hvívetna og væri ein-
kennisstafir stórs frystitogara.
Aftur á móti hefðu engar fregnir
borizt um að slíkt skip væri I
hafsnauð né hefði nokkurn tfma
verið saknað á þessum slóðum.
Sagði talsmaður sjávarútvegs-
ráðuneytisins að ráðuneytið
myndi hafa samband við frönsk
stjórnvöld til að kanna skeytið
nákvæmlega, en eins og málin
horfðu við nú virtist sem einhver
hefði fundið hvöt hjá sér, svo
óviðfelldið sem það væri, til að
hafa þetta í frammi sem spaug.
Myndin var tekin þegar Gerald
Ford Bandaríkjaforseti sagði
nánustu ráðgjöfum sínum um
utanríkis- og öryggismál frá því
að tekist hefði að ná skipinu
„Mayaguez" og áhöfn þess
heilli á húfi úr höndum Kam-
bodlumanna. Fyrir miðju er
Ilenry Kissinger utanrfkisráð-
herra og síðan koma ráðgjafar
forsetans, Brent Scowcroft,
Robert McFarland og Donafd
Rumsfield. Er léttir og gfeði
augljós áandlitum aflra.
• •
Oldungadeildin vill
aflétta banni á Tyrki
Flokkur Bhuttos sigr-
aði í Azad-Kashmir
Mu/affarabad, Kashimir
20. maf Reuler.
STJORNARFLOKKUR Pakist-
ans, undir forystu Ali Bhuttos,
vann um heigina mikinn sigur f
þcim hluta Kashimir sem Pakist-
an ræður og bentu líkur til að
flokkurinn fengi hreinan meiri-
hluta á þingi héraðsins eða 22
sæti af 42. Nýja héraðsstjórnin
mun verða undir forystu Abdul
Hamid Khans, sem er leiðtogi
PPP-flokksins f Kashmir.
Hpmid var forseti Kashmir á
árunum 1963—1968, en verður
samkvæmt nýrri stjórnarskrá for-
sætisráðherra.
Forseti var endurkjörinn þriðja
sinni Mohammad Ibrahim. Hann
hét því I kosningabaráttunni að
halda áfram baráttu fyrir frelsi
þess hluta sem er undir yfirráð-
um Indverja. Hann sagðist
múndu freista þess að byggja upp
Amin hót-
ar Tanzaníu
London 20. maí. Heuter.
IDI Amin, forseti Uganda, hefur
hótað því að tortíma Tanzaníu
ef stjórnvöld þar reyna að
koma f veg fyrir að fundur Ein-
ingarsamtaka Afrfkurfkja verði f
Kampala, höfuðborg Uganda, í
júlfmánuði. Sagði Amin í hvass-
yrtri orðsendingu, að Julius
Nyerere forseti Tanzanfu beitti
hinum mestu bolabrögðum til að
koma í veg fyrir að fundurinn
yrði haldinn I Uganda. Myndi Ug-
anda ekki sætta sig við slíkt og
fara heldur með her á hendur
Tanzanfu en þola það.
fyrirmyndar lýðræðisríki í Azad
Kashmir — eins og þessi hluti
héraðsins er nefndur til að hvetja
múhameðstrúarmenn handan
vopnahléslínunnar til að rísa upp
gegn indverskum drottnurum sín-
um. Aftur á móti kvaðst hann
ekki vilja gera neitt það, sem gæti
stefnt friði í þessum heimshluta í
voða og gæti valdið því að Pakist-
an drægist inn í átök við Indverja
nú. Hann kvaðst lfta svo á að það
sem gerðist milli Kashmirhérað-
anna tveggja væri þeirra mál og
ætti ekki að þurfa að blanda Ind-
verjum og Pakistönum í það mál.
Washington 20. mai. NTB. Reuter
BANDARlSKA öldungadeildin
samþykkti f dag að afiétta
vopnasölubanni til Tyrklands,
sem hefur staðið f þrjá mánuði.
Málið fer nú til fulltrúadeildar
þingsins. Samþykktin mun
hafa átt að styrkja samningaað-
stöðu Henry Kissingers utan-
rfkisráðherra, þegar hann ræð-
ir við tyrkneska og grfska leið-
toga á morgun, miðvikudag.
Vopnasölubannið verður ekki
formlega fellt úr gildi fyrr en
fulltrúadeildin hefur einnig
samþykkt það.
Naumur meirihluti öldunga-
deildarþingmanna samþykkti
þetta eða 42 en 39 voru á móti.
Engan veginn er talið öruggt að
fulltrúadeildin fáist til að sam-
þykkja að hefja hergagnasölu
aftur til Tyrklands, og hefur
öllu meiri andstaða verið þar
en í öldungadeildinni.
FRETTIR
N-Kórea hyggur
ekki á innrás
— segir Kim II Sung
I tilefni kvennaárs:
Kvenmaður kleif
Mount Everest
Tókíó, 19. maí. Heuter.
FORSETI Norður-Kóreu, Kim II
Sung, hefur sagt, að Norður-
Kórea hafi engar áætlanir á
prjónunum um að senda herlið
inn f Suður-Kóreu. Skýrði
japanskt blað frá þessu og sagði
að forsetinn hcfði skýrt japönsk-
um gesti í höfuðborginni frá
þessu. Hann sagði að Norður-
Kórear hefðu nóg að gera við að
vinna að eflingu hrísgrjónarækt-
ar í landinu og hefðu engin efni á
þvf að senda lið f suðurátt. Haft
var og eftir honum að neyðar-
ástand það sem hefði vcrið fýst
yfir í Suður-Kóreu benti til að
þeir hefðu í huga yfirgang gagn-
vart norðurhluta iandsins. Myndu
Norður-Kórear þó hvergi æðrast.
Það var í fyrri viku að Park
Chung-hee, forseti Suður-Kóreu,
ákvað að setja ný lög i landinu,
þar sem bönnuð er hvers konar
andstaða við ríkjandi stjórn og
sagði hann þessar ráðstafanir
nauðsynlegar vegna vaxandi
hættu á íhlutun úr norðri vegna
þróunar mála í Indókína og falls
Kambodíu og Suður-Víetnams í
hendur kommúnista.
Katmandu, 19. maí. Reuter.
HÁLFFERTUG japönsk hús-
freyja hefur kvenna fyrst komizt
upp á tind Mount Everest, hæsta
fjall heims. Utanríkisráðuneytið f
Nepal greindi frá þvf um helgina
að konan sem heitir Junko Tabei
og er frá Tókfó og fylgdarmaður
hennar hafi komizt upp á tindinn
þann 16. maí s.l. Tabei er að-
stoðarfararstjóri f kvennaleið-
angri frá Japan, sem ákvað að
freista þess að komast upp á tind
fjallsins.
Hæsti tindur fjallsins er 8.848
m og lagði Junko Tabei og
fylgdarmaður hennar upp frá
Sovézki rithöfundurinn
Marchenko látinn?
Moskvu, 20. maí. AP
EIGINKONA sovézka rithöf-
undarins Anatoly Marchenko
hefur skýrt vestrænum frétta-
mönnum frá þvf að hún hafi
ekki fengið neinar fregnir af
eiginmanni sínum síðan 12.
aprfl og hún óttist að hann hafi
dáið eftir fangt hungurverkfall
sem hann gerði.
Larisa Marchenko sagði að
hún hefði heyrt frá manni sín-
um daginn sem hann var send-
ur til útlegðar i Síberiu.
Marchenko skrifaði bók um
fangabúðaveru og var hún gef-
in út á Vesturlöndum, og heitir
„My Testimony". Hann var í
marz sl. dæmdur enn á ný til
fjögurra ára útlegðar eftir að
hann braut reglur fangabúð-
anna sem hann sat í. Hafði
hann verið dæmdur til sex ára
þrælkunarvinnu fyrir að reyna
að flýja frá Sovétríkjunum um
Iran. Síðar var dómur hans
þyngdur um þrjú ár. Kona
hans sagði að hún hefði engin
svör fengið frá stjórnvöldum
um afdrif manns síns.
sjöttu bækistöð leiðangursins sem
var í 8.500 metra hæð. Tuttugu og
tvö ár eru liðin síðan
Nýsjálendingurinn Sír Edmond
Hillary komst fyrstur manna á
tindinn ásamt aðstoðarmanni sín-
um Tensing. Fimm japanskir
karlar hafa komizt á tindinn á
undan frú Tabei, þrir vorið 1970
og tveir til viðbótar haustið 19.73.
Junko Tabei er gift og á þriggja
ára gamla dóttur. Hún er þraut-
reynd fjallgöngukona og var önn-
ur tveggja kvenna sem komst upp
á annan mjög erfiðan tind í
Himalajafjöllum, Annapurna, í
maímánuði fyrir fimm árum.
Kvennaleiðangurinn lagði af
stað frá aðalbækistöðvum sinum
við fjallið — sem voru i 5.300
metra hæð — um miðjan marz-
mánuð og sóttist ferðin seint
framan af, auk þess sem ýmis
óhöpp herjuðu á hópinn. Snjóflóð
féll á búðir leiðangursins í byrjun
maímánaðar og slösuðust þá all-
margar leiðangurskvenna.
60 fórust 1 jámbrautarslysi
Nýju-Delhi 19. maí Reuter.
AÐ MINNSTA kosti sextíu manns
létust og fjöldi manns slasaðist
þegar hraðlest þeyttist I gegnum
vörubíl, hlaðinn fólki, á vegamót-
um f Vestur-Indlandi f gær. Allir
sem létust voru á vörubflnum,
sem var að flytja brúðkaupsgesti
heim úr veizlu, að þvf er taismað-
ur björgunarsveitarinnar skýrði
fréttastofum frá. Meðal þeirra
sem létust voru margar konur og
fjöldi barna. Hraðlestin sem var á
leiðinni Bombay-Madras stöðvað-
ist ekki fyrr en hún var kominn
röskan kílómetra frá áreksturs-
staðnum.
I dag var enn ekki vitað, hvort
þessi tala látinna, sem nefnd er i
upphafi, er alls kostar nákvæm og
voru óstaðfestar fregnir þess efn-
is að fleiri hefðu látizt og margir
hinna slösuðu væru i lifshættu.
Ævisaga Blakes
bönnuð í Sovét
Andersson í Búkarest
Vinarborg 20. maí Reuter.
UTANRÍKISRAÐHERRA Sví-
þjóðar, Sven Andersson, koni til
Búkarest til viðræðna við
rúmanskan starfsbróður sinn,
George Macovescu, um helgina.
Andersson -mun dvelja í Rúmeníu
fram á föstudag.
London, 19. maí. Reuter.
SJALFSÆVISAGA brezka gagn-
njósnarans George Blake, sem
flúði úr brezku fangelsi til Sovét-
rfkjanna, hefur verið bönnuð þar
f landi, að þvf er blaðið Sunday
Express skýrði frá í dag. Blake
sem var starfsmaður í brezka
utanrfkisráðuneytinu var fæddur
í Hollandi og var dæmdur f 42ja
ára fangelsi f Bretlandi árið 1961
fyrir að láta Sovétmönnum f té
brezk leyniskjöl.
Hann slapp úr fangelsinu árið
1966 og skaut síðan upp kollinum
I Sovétríkjunum árið eftir. Sam-
kvæmt heimildum Sunday
Express var bókin skrifuð með
blessun yfirmanna KGB og
„leikur því lítill vafi á að hefði
bókin fengizt útgefin í Sovétríkj-
unum, hefði verið litið svo á, að
hún væri í þágu hagsrhuna
þeirra." Með öllu er óljóst hvers
vegna útgáfa bókarinnar hefur
verió bönnuð í Soétríkjunum.