Morgunblaðið - 07.06.1975, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 07.06.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚNl 1975 5 Astandið í Tékkóslóvakíu: Dubcek örvar til umræðna París, 6. júní. Reuter. ALEXANDER Dubcek, fyrrver- andi leiðtogi tékkneskra komm- únista, reynir nú að fá þvl fram- gengt að stjórnmálaástandið og staðan I þjóðmálum I Tékkósióvakíu verði rædd á ráð- stefnu fulltrúa evrópskra kommúnista sem verður haldin í október. Skýrði talsmaður mann- réttindasamtaka I París frá þessu I dag og sagði að Dubcek hefði látið þessa skoðun í Ijós I sam- hljóða bréfum sem hann hefði sent til leiðtoga ftölsku og austur- þýzku kommúnistaflokkanna, þeirra Enrico Berlinguer og Erich Hönecker. Talsmenn samtaka þessara sem sögðust hafa fengið upplýsingar sínar frá áreiðanlegum heim- ildum í Prag sögðu að Dubcek hefði einnig ritað bréf til Gustavs Husaks, þar sem hann vísar á bug þeirri gagnrýni, sem sá fyrr- nefndi hefur sætt að.undanförnu. Járnbrautarslys í Englandi - amk. 7 létust, tugir slasaðir Nuneaton, Englandi 6. júnf. AP. Reuter. NÆTURHRAÐLEST á leið frá London til Glasgow fór út af tein- unum á 70—80 km hraða með þeim afleiðingum að sjö manns, þar af tvö börn, Iétust og yfir 40 slösuðust. Slysið varð kl. 1.55 sl. nótt og var lestin að nálgast stöðina í Trent Valley við Nuneaton. Eim vagn lestarinnar og tveir fremstu vagnarnir þeyttust út af tein- unum. Flestir farþeganna voru í svefni, þegar slysið varð. Björg- unarsveitir hafa unnið á slys- staðnum allar götur siðan og er óttazt að fleiri kunni að hafa slasazt eða látizt. Ekki var ljóst hversu margir voru með lestinni og voru nefndar tölur frá 90 til 140 manns. Nokkrir farþeganna lokuðust inni i lestarflakinu og tók alllangan tima að ná þeim út. Verða Kýpurviðræð- urnar styttar um dag? Vínarborg, 6. júní. AP — Reuter. LlKUR bentu til að viðræðum fulltrúa grlska og tyrkneska þjóð- arbrotsins á - Kýpur, Glafkos Fyrstu skipin norður Súez Súez, París 6. júní — AP FYRSTA skipalestin norður um Súezskurð eftir opnunina I gær sigtdi hjá borginni Suez I dag og stóð Anwar Sadat, Egyptalandsforseti, á hafnar- bakkanum, ásamt þúsundum fagnandi Egypta, og veifaði til skipanna, sem voru fjögur talsins. Flutningaskipin voru frá Japan, Italíu, Pakistan og Súdan og á undan þeim sigldu tvö írönsk herskip. í París sagði Shimon Peres, varnarmálaráðherra ísraels, að ísraelar væru tilbúnir að reýna „skref-fyrir-skref“ sátta- tilraunir við Egypta, og væru einnig reiðubúnir til að ræða hvar sem er við Sýrlendinga um Gólanhæðirnar með því skilyrði einu að um heildar- lausn verði að ræða. „Við get- um ekki samið „skref- fyrir-skref“ um Gólanhæðir," sagði Peres. Klerfdesar og Rauf Denktash, I Vfnarborg lyki á morgun, laugar- dag, eftir þriggja daga fund I stað fjögurra. Er þetta gert með tilliti til Kleridesar, sem hafði hótað að hætta viðræðum ef Kýpur-Tyrkir héldu fyrirhugaða þjóðar- atkvæðagreiðslu á sunnudag um stjórnarskrá fyrir það rlki sem þeir stofnuðu einhliða á eynni. Denktash hafði hins vegar lýst þvf yfir að atkvæðagreiðslan færi fram eins og ekkert hefði I skofizt. Vióræðunum lauk I dag eftir einn fund, og var annar ákveðinn á morgun. Voru viðræðurnar sagðar hafa verið „vinsamlegar en hreinskilnar" og stóðu þær í tvo klukkutíma. Talið er að horfið hafi verið frá því að halda annan viðræðufund síðar í dag, eins og venja er, til að veita deiluaðilum tóm til að vega og meta stöðuna. Paulo Picasso látinn París 6. júní — AP PAULO Picasso, eina skilgetna barnið sem listmálarinn Pablo Picasso eignaðist, lézt í dag á sjúkrahúsi f París af ótilgreind- um sjúkdómi, 54 ára að aldri. Paulo og ekkja listmálarans voru helztu erfingjar listaverka hans er hann lézt 1973, en Picasso átti þrjú óskilgetin börn. Hins vegar hafa franskir dómstólar komið til móts við óskir þessara þriggja barna málarans um skerf af arfin- um, þrátt fyrir andstöðu Paulo og ekkjunnar. Paulo Picasso lifði í skugga föður síns, var aðstoðar- maður hans og bílstjóri. Fjórir efstir oa inftiir Portoroz, 6. júní — Reuter. HEIMSMEISTARINN I skák, Sovétmaðurinn Anatoly Karpov, gerði jafntefli við þjálfara sinn, Semyon Furman, I fjórðu umferð alþjóðlega Vidmar minningar- skákmótsins I Júgóslavfu I gær. Furman hefur þjálfað Karpov I sex ár og keppnisskákir þeirra hafa allar endað ineð jafntefli. Karpov er efstur á mótinu ásamt Drasko Velimirovic og Svetozar Gligoric frá Júgóslavíu, og Vlastimil Hort frá Tékkóslóvakfu. Þeir eru allir með 3 vinninga. Þá koma Ljubojevic, Mariotti og Ribli með 2H og Fur- man og Parma hafa tvo vinninga. Furman hefur einnig biðskák við Silvano Garcia frá Kúbu og verð- ur hún tefld I dag, en að öðru leyti er dagurinn hvíldadagur. Þátttakendurnir á mótinu í Portoroz urðu harmi slegnir er fréttir bárust um andlát sovézka stórmeistarans Paul Keres, og sagði Karpov m.a. að fráfall hans væri mikill missir fyrir alla skák- menn hej^is. I öllum keppnum um allan heim eru það Fiat bílar, sem raða sér í efstu sætin ^ og nú einnig á fslandi í fyrstu Rally-keppninni Nr. 1 FIAT 128 RALLY Fiat einkaumboð á Islandi Davíð Sigurðsson h.f. Síöumúla 35, símar 38845 — 38888

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.