Morgunblaðið - 05.10.1975, Page 1
4 8 SIÐUR
Harðorðasta yfirlýsing frá brezkum ráðherra:
CROSLAND HÓTAR VEIÐ-
UM INNAN 50 MÍLNA
„Alvarleg tilraun til að stórspilla fyrir
samningum,” segir Matthías Bjarnason
Matthfas Bjarnason
Grimsby 4. október AP — Reuter
A nthony Crosland, umhverfismálaráðherra Bretlands, sagði f
/Vræðu á borgarafundi í kjördæmi sfnu, Grimsby, f morgun, að
brezkir sjómenn ættu skv. alþjóðalögum skýlausan rétt á að veiða upp
að 12 mflum við tslandsstrendur ef ekki verður búið að ganga frá
nýjum fiskveiðisamningi milli Islands og Bretlands fyrir miðjan
nóvember. Ráðherrann lýsti því einnig yfir, að Bretar yrðu og myndu
veiða fyrir innan 50 mílurnar, þeir ættu rétt á sanngjörnum aflakvóta.
Bretar hefðu fullan rétt á að halda áfram veiðum á svæðum, sem hefðu
verið þeirra hefðbundnu mið um 500 ára skeið og fslenzka rfkisstjórn-
in þyrfti ekki að fara f neinar grafgötur um að brezka stjórnin væri
ákveðin f að tryggja brezkum sjómönnum þann rétt.
Morgunblaðið hafði samband
við Matthías Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra og spurði hann álits
á ummælum Croslands. Sjávarút-
vegsráðherra svaraði: „Svo ég
segi alveg eins og er, er ég gátt-
aður á þessum ummælum. Ég fæ
ekki séð að svona umbúðalausar
hótanir séu leiðin til að greiða
fyrir samningum. Ég vísa því al-
gerlega á bug að Bretar eigi hér
einhver hefðbundin mið. Þeir
töldu sig lengi eíga hefðbundinn
rétt til að fiska inni á íslenzkum
fjörðum víða við landið og þeir
hikuðu ekki við að drepa íslend-
inga á sínum tima eða ýta þeim út
af fjörðum. Og flestum er í fersku
minni aðför þeirra að Hannesi
Hafstein og hans aðstoðarmönn-
um á Dýrafirði, þött 80 ár séu
u.þ.b. liðin. Ég hélt að Bretar
væru búnir að fá nóg af slikum
aðgerðum og sömuleiðis tveimur
þorskastriðum, gagnvart þjóð,
sem á allt sitt undir fiskveiðum.
Auk þess hafa Bretar sjálfir
óskað eftir friðsamlegum viðræð-
um og því er það að brezkur ráð-
herra sem lætur sér slíkt um
munn fara, sé þetta allt rétt eftir
honum haft, hefur að minnsta
kosti gert alvarlega tilraun til að
stórspilla fyrir samkomulagi, svo
ekki sé meira sagt.“
Crosland sagði, að jafnvel þótt
samkomulag yrði gert fyrir 13.
nóvember yrði slíkt samkomulag
að tryggja brezkum sjómönnum
veiðar innan 50 mílna lögsögunn-
ar, sem Islendingar hefðu ein-
hliða lýst yfir. Crosland gagn-
rýndi íslenzku ríkisstjórnina fyrir
að hafa ekki byrjað alvarlegar
viðræður um nýtt samkomulag og
sagði að Harold Wilson forsætis-
ráðherra og James Callaghan
utanríkisráðherra hefðu skorað á
Geir Hallgrímsson og Einar
Ágústsson að láta viðræður
hefjast. Síðan sagði ráðherrann:
„Ég vil gera íslenzku ríkisstjórn-
inni tvö atriði ljós, að ef nýtt i
samkomulag verður ekki undirrit-
að fyrir 13. nóvember getur eng-
inn vafi leikið á því skv. alþjóða-
lögum, að brezkir sjómenn eiga
fullan rétt á að veiða alls staðar
við íslandsstrendur upp að 12
Kosningar í
Austurríki
Vín, 4. október. Reuter.
BtJIZT ER við hnffjöfnum úrslit-
um f þingkosningum, sem fara
fram f Austurríki á morgun. Svo
getur farið, að Bruno Kreisky
kanzlari verði að mynda minni-
hlutastjórn jafnaðarmanna eftir
kosningarnar.
Alþjóðleg réttarhöld vegna
skorts á mannréttindum
í Sovétríkjunum
□ -----------------------□
Sjá Reykjavfkurbréf
DAGANA 17.—19. október n.k.
fara fram i þinghúsinu í Kaup-
mannahöfn hinar alþjóðlegu
Sakharov-vitnaleiðslur, sem
kenndar eru við sovézka vis-
indamanninn og andófsmann-
inn Andrei Sakharov. Er hér
um að ræða alþjóðleg réttar-
höld vegna glæpa, sem framdir
hafa verið gegn almennum
mannréttindum i Sovétrfkjun-
um. Fjölmörg vitni verða leidd
fram í réttarhöldum þessum,
þ.á m. mun sovézka Nóbels-
skáldið Alexander Solzhenitsyn
bera vitni, en ekki er vitað enn,
hvort Sakharov fær leyfi til að
fara frá Moskvu til þess að vera
viðstaddur og taka þátt í vitna-
leiðslum þeim, sem kenndar
eru við nafn hans.
Sakharov-vitnaleiðslurnar
fara fram á vegum samtaka út-
laga frá A-Evrópu en fjölmarg-
ir heimsfrægir menn hafa lýst
stuðningi sinum við þau. Má
þar nefna þýzka rithöfundinn
Gúnter Grass, franska leikrita-
skáldið Eugéne Ionesco, Jens
Otto Krag, fyrrv. forsætisráð-
herra Danmerkur, Simon
Wiesenthal, Austurríkis-
manninn, sem hefur leitað naz-
ista frá stríðslokum um heim
allan o.fl. o.fl. Á blaðamanna-
fundi, sem efnt verður til dag-
inn áður en vitnaleiðslurnar
hefjast, verður sýnd kvikmynd,
sem tekin var i sovézkum
vinnuþrælkunarbúðum og
smyglað frá Sovétríkjunum. I
vitnaleiðslunum verður fjallað
um pólitíska og hugmynda-
fræðilega kúgun, trúarlegar
ofsóknir og misnotkun sál-
fræðilegra aðferða, kúgun
minnihlutahópa í Sovét-
ríkjunum o.fl.
Meðal þeirra, sem bera munu
vitni i réttarhöldum þessum,
má nefna: Andrei Sakharov, fái
hann leyfi til að fara frá Sovét-
rikjunum, Alexander Solzhen-
itsyn, Vladimir Maximov, rit-
höfundur, sent rekinn var frá
Sovétríkjunum sl. ár, Andrei
Sinjavski, sem nú er búsettur í
Frakklandi og var í 7 ár i vinnu-
þrælkun í Sovétríkjunum,
Alexander Vardy, rithöfund, er
dvaldi nokkur ár í vinnuþrælk-
unarbúðum, Diinitri Panine,
stærðfræðing, sem dvaldi í 16
ár i fangelsum og vinnuþrælk-
un, Abraham Sifrin, lögfræð-
ing, sem dvaldi í 10 ár í fanga-
búðum, Victor Fainberg, lista-
gagnrýnanda, sem pindur var
og settur á geðveikrahæli. í
Sovétríkjunum, Marina Fain-
berg, sálfræðing, sem starfaði á
þvi geðveikrahæli og bjargaði
lifi Viktors Fainberg með þvi
að 'breyta þeirri lyfjameðferð,
sem hann átti að sæta, o.fl. o.fl.
Meðal þeirra, sem munu
spyrja vitnin, eru: Simon
Wiesenthal, Eugene Ionesco,
Victor Zorza, blaðamaður, o.fl.
o.fl.
Um Sakharov-vitnaleiðslurn-
ar er fjallað í Revkjavíkurbréfi
Morgunblaðsins f dag.
Anthony Crosland
mílum.“ Hann sagði, að því færi
fjarri, að brezka stjórnin væri
ánægð með núgildandi samkomu-
lag, en það hefði verið málamiðl-
unarleið, farin til að tryggja hags-
muni beggja landa og virða óskir
stjórna beggja. Crosland lagði
áherzlu á að nýtt samkomulag
yrði undirritað og það fljótt og að
slíkt samkomulag yrði að tryggja
réttindi brezkra togaraeigenda og
skipstjóra, sem vilja stunda
veiðar á sinum hefðbundu
miðum. „Þessi hefðbundnu mið
eru m.a. innan 50 mílna lögsög-
unnar, sem Islendingar lýstu yfir
einhliða að væru þeirra eigin og
aðeins þeirra fiskimið. Auðvitað
viljum við sanngjarnan og réttlát-
an samning og hann verður að
vera gagnkvæmur að því leyti.
Það er ekkert sanngjarnt við sam-
Framhald á bls. 2.
Eugene Ionesco
Simon Wfesenthal
Vladimir Maximov
Alexander Solzhenitsyn
Andrei Sakharov
Sakharov-vitnaleiðslurnar 17.-19. október: