Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1975
21
— Stuttsíðan
Framhald af bls. 15
Ken Kensey hvarf af sjónar-
sviðinu. Fluttist hljómsveitin
ásamt ýmsum vinum að 710
Ashbury i miðju Haight. En
Haight/Ashbury var alger mið-
punktur hippamenningarinnar
á þessum tíma. Lifði stórfjöl-
skylda Grateful Dead nú ham-
ingjusömu lífi að sagt var. Tók
hljómsveitin að halda konserta
í nágrenni San Francisco, sem i
öllum tilfellum voru opnir fólki
án gréiðslu. Ekki leið þó ^ á
löngu þar til Grateful Dead tók
að ferðast um öll Bandaríkin.
Umboðsmenn urðu tveir úr
fjölskyldunni, þ.e. þeir Rock
Scully og Danny Rifkin. Fjár-
málahæfileikar þeirra voru
miður góðir svo hljómsveitin
var kominn í stórar skuldir eft-
ir 2 ára skeið. Tók það hana því
næstu tvö árin að rifa sig upp
úr þessum skuldum og þá með
aðstoð nýs umboðsmanns að
nafni Mclntyre.
Stöðugt stress i kringum pen-
inga, endalausar erjur við
hljómplötufyrirtækið Warner
Brothers, aukið eftirlit lögregl-
unnar með eiturlyfjum ásamt
löngum og þreytandi hljóm-
leikaferðum orsökuðu ákveðna
sundrung innan Grateful Dead-
fjölskyldunnar. Þetta kom t.d.
mjög greinilega fram í Evrópu-
ferð hljómsveitarinnar, sem
átti sér stað árið 1972. Ferðaðist
stórfjölskyldan þá saman í rút-
um, sem átti að vera tákn
ákveðinnar sameiningar.
Einn af henni ferðaðist þá
ekki í samfylgd hennar, en það
var Pig Pen eða Ron McKern-
an sem þá var all illa haldinn
af lifrarsjúkdómi. Þótti það ein-
faldlega of stressandi fyrir
hann að ferðast með hópnum.
Annars er talið þrátt fyrir allt
að þessi ferð hafi flýtt fyrir
dauða hans í nóvember 1973.
Aðeins einu til einu og hálfu
ári siðar ákvað hljómsveitin svo
að draga sig i hlé frá tónleika-
haldi, vegna þess að þeim þótti
einfaldlega allt þetta tiistand
orðið allt of yfirborðskennt.
Hér með lýkur þvi fyrsta
hluta sögu Grateful Dead. En í
þeim næsta mun svo verða tek-
ið til við að rekja tónlistarferil
eða tónlistarsögu hljómsveitar-
innar. A.J.
Leiðréttingar
Á SlÐASTA sunnudegi áttu sér
stað all leiðinlegar villur í grein
Saltsíldarverð
A fundi yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins í gær, voru
ákveðnar reglur um verð á síld til
heilsöltunar, til viðbótar verð-
ákvörðun nefndarinnar þann 19.
f.m.
Við afhendingu á síld, sem er
heilsöltuð um borð í veiðiskipi
gildir sú regla, að hver tunna, sem
inniheldur 95 kg af heilsaltaðri
síld, reiknast 104 kg af ferskri
síld.
Lágmarksverð á síld til heilsölt-
unar skal vera það sama og
ákveðið var fyrir smærri síld en
32 cm, þ.e. hvert kg kr. 26.00.
Merkjasöludag-
ur SÍBS í dag
ARLEGUR merkjasöludagur
Sambands fslenzkra berkla-
sjúklinga er f dag, sunnudag. Um
leið verður blað sambandsins,
Reykjalundur, selt, en efni þess
er að miklu leyti helgað Vinnu-
heimilinu að Reykjalundi, sem
varð 30 ára á þessu ári. Þá er
kynntur félagsskapur astma- og
ofnæmissjúklinga sem nýlega
gerðist aðili að SlBS.
Stöðugt er unnið að byggingar-
framkvæmdum að Reykjalundi,
þar sem nú er sjúkrarými fyrir
165 sjúklinga. Sambandið rekur
einnig vinnustofu í Reykjavík,
þar sem nú starfa um 35 öryrkjar.
r©
minni um tónlistarkvöldið í
Hamrahlfðarskólanum og Spil-
verk þjóðanna. Þar gefur fyrst á
að líta eftirfarandi setningu:
Framhald þeirrar samkomu er
átti.... I stað orðsins samkomu
átti að koma orðið seinkun.
1 öðru lagi byggist grundvöllur
Spilverksins á tónleikahaldi upp í
kringum lítinn kostnað á tækja-
flutningi. I stað: Grundvöllur
Spilverksins er lftill kostnaður á
tækjaflutningi. Að lokum kom
ákveðin setning þar sem fjallað
var um flutning Spilverksins á
laginu All Hands On Deck nokkuð
brengluð og óvænt inn í textann.
Þetta atriði vil ég sérstaklega leið-
rétta og biðjast velvirðingar á. En
flutningur Spilverksins á þessu
lagi Sigurðar Bjólu þetta ákveðna
kvöld sýndi greinilega hvað það
býr og þá miða ég við útsetningu
Jakobs Magnússonar.
Byggingarfélög — Verktakar
Byggingarlóð rúmir 4000 ferm. er til sölu á
stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hornlóð við mjög fjölfarna umferðaræð. Þeir
sem áhuga hefðu fyrir nánari uppl. sendi nafn
og heimilisfang til Mbl. merkt: Góður staður
5398 fyrir 8. þ.m.
Þessi stórglæsilega
bifreið Mercury Cougar RX — 7 árgerð 1974,
ekin aðeins 18.000 km er til sölu á bílasölu
Guðfinns. Upplýsingar í síma 81 588.
Langi þig
til Kanaríeyja,
þá lestu þetta
Okkur er ekkert að vanbúnaði lengur. Við Auk þess bjóðum við barna- unglinga- og
höfum nú gengið endanlega frá gistingu á hópafslátt frá þessu verði.
Kanaríeyjum fyrir allar okkar ferðir í vetur, og Dvöl á hótelum, íbúðum og smáhýsum, ýmist
þetta er það sem við bjóðum: með eða án fæðis.
VERÐ Á DVÖL í 1 VIKU FRÁ KR. 37.400
VERÐ Á DVÖL í 2 VIKUR FRÁ KR. 42.800
VERÐ Á DVÖL í 3 VIKUR FRÁ KR. 48.200
Nú er um að gera að hafa samband við söhj-
skrifstofur okkar og umboðsmenn eða ferða-
skrifstofur, til þess að fá ýtarlegri upplýsingar
og panta siðan.
loftleidir
islajvds
Fyrstir með skipulagóar sólarferóir i skammdeginu