Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 48
GNIS lAUGAVEGl í78. SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1975 I - Sjö þyrluslys á nokkrum árum: GNA var tryggð fyrir 58 millj. kr. „VIÐ erum þcgar farnir að hugsa um kaup á nýrri þyrlu, en á þess- ari stundu er ekkert hægt að segja um hvaða tegund verður fyrir valinu. Þyrlan GNÁ var tryggð fyrir 360 þús. dollara eða 58 millj. krðna. Hún var af eldri gerð og átti eftir stuttan tíma að fara f stóra skoðun,“ sagði Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgis- gæzlunnar í samtali við Morgun- blaðið f gær. Pétur Sigurðsson sagði, að eftir helgi yrði farið að vinna í málinu af miklum krafti, enda gætu landsmenn ekki verið án stórrar þyrlu, sem oft væri búin að sýna ágæti sitt. Flakið af GNÁ væri nú komið í geymslu og á næstunni kæmu sérfræðingar frá Banda- ríkjunum til að skoða gírinn, sem bilaði, enda þyrfti að skoða þetta nákvæmlega til að fyrirbyggja að svona nokkuð gæti hent sig aftur. Morgunblaðið spurði Pétur, hvort það hefði verið algengt, að Vísitala á spari- merki reiknuð 4 sinnum á ári — segir Gunnar Thorodd- sen félagsmálaráðherra 1 FRAMHALDI af frétt Mbl. í fyrradag um að verðbætur á sparimerkjum hjá Húsnæðis- málastjórn rfkisins væiu.að- eins reiknaðar út einu sinni á ári 1. febrúar og þvf yrðu menn að bfða þar til eftir þann tfma með að leysa sparimerkin sfn út til að fá fullar verð- bætur, hafði Mbl. samband við Gunnar Thoroddsen félags- málaráðherra og spurði hann um þetta mál. Ráðherra sagði: „Þetta hefur verið framkvæmt á þennan hátt, en ég tel að útreikninga eigi að gera á þriggja mánaða fresti eða 4 sinnum á ári og hefur verið ákveðið að þessu verði brevtt f það horf.“ þyrlan hefði unnið fyrir fyrirtæki eða félagasamtök. Pétur sagði, að Landhelgisgæzl- an hefði alla tíð reynt að aðstoða fólk eftir beztu getu, hvort sem væri á sjó eða landi. Nauðsynlegt væri að halda flugmönnum þyrl- unnar í toppþjálfun og með því að taka að sér ýmiskonar verkefni við allskonar aðstæður hefði það tekizt. Svona óhapp hefði alls- staðar getað komið fyrir. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við Skúla Jón Sigurðsson, fulltrúa hjá Flugmálastjórn. Hann sagði, að það sem hefði gerzt við Skálafell lægi hreint fyrir, og nánari athugun á bilun- inni færi ekki fram fyrr en eftir helgi. Aðspurður sagði Skúli, að ekkert samband væri milli þeirra mörgu þyrluslysa, sem orðíð hefðu að undanförnu, en þrjár þyrlur hafa farizt á íslandi á þessu ári. Slysið í Skálafelli stafaði af tæknigalla og allt bendir til að svo hafi einnig verið fyrir stuttu á Fáskrúðsfirði, er Brandley-þyrla Andra Heiðbergs eyðilagðist. Slysið í Hvalfirðinum var hinsvegar að lfkindum af mannlegum mistökum. Sjö þyrluslys hafa orðið á Is- landi á tiltölulega stuttum tfma. Fyrir allmörgum árum fórst bandarfsk þyrla á Skarðsheiði, síðan fórst önnur við Kúagerði og ein undir Eyjafjöllum, og með þessum vélum fórust menn. Þá eyðilagðist hin gamla þyrla Land- helgisgæzlunnar, TF-EIR, á Rjúpnafelli fyrir nokkrum árum. Á þessu ári hafa sfðan farizt þrjár þyrlur, vél Þyrluflugs, sem fórst í Hvalfirði, vél Andra Heiðbergs, sem eyðilagðist á Fáskrúðsfirði, og nú síðast TF-GNÁ. Þá er Morgunblaðinu kunnugt um að alloft hefur komið fyrir, að nauðlenda hefur þurft litlu þyrlunum tveimur, sem Land- helgisgæzlan á, en vélar þeirra hafa viljað brotna. I fyrra munaði mjög Jitlu að önnur litla þyrlan hafnaði í Skjálfandaflóa. Þá var hún að Framhald á bls. 2. — Ljósm.: Sv. Þorm. Sporhundar skátanna. Tfkin Comet er til vinstri, en með hundunum er þjðlfari þeirra, Snorri Magnússon. Báðir hundarnir eru 5 ára. Sjá rammafrétt neðst á sfðunni. Rauðsey með háhyrning í spotta: Allt að átta millj. kr. í 1 boði fyrir háhyrning SlLDVEIÐISKIPIÐ Rauðsey AK 14 fékk háhyrning f nótina f gær- morgun og er Mbl. fór f prentun f gær hafði skipshöfninni tekizt að koma kaðli um sporðinn á háhyrningnum. Lá skipið og beið eftir Frakkanum, sem hingað er kominn til þess að verða sér úti um háhyrning, en hann flaug f gær til Vestmannaeyja og ætlaði með bát út til Rauðseyjar, sem er suður af Mýrartanga. Á þessum slóðum eru 8 síld- veiðiskip og í fyrrakvöld köstuðu skipin að sögn Sve'ins Svein- björnssonar leiðangursstjóra á Árna Friðrikssyni. Síldin var að mestu smásfld í fyrstu, en síðan færðu skipin sig að Skarðsfjöru- vita og þar fannst stærri síld, sem er mjög sæmileg. Kunnugt var 1 sædýrasafninu f Nissa f Frakk- landi er einn háhyrningur, sem nefnist „Clovis“ Stórkostlegt afrek sporhunds: Rakti slóð gamals manns 20 km og fann hann í gjótu TlKIN Comet, sem er sameign hjálparsveita skáta f Hafnar- firði og Reykjavfk, vann í fyrri- nótt það afrek að finna týndan mann, sem auglýst hafði verið eftir. Tfkin fann manninn í gjótu í öskjuhlfð og mun hann, sem er 78 ára, hafa fengið ein- hvers konar aðsvif og var villtur. Maðurinn var fluttur í slysadeild Borgarspftalans og sfðan f Landakotsspftala, þar sem hann liggur nú. Mun maðurinn yera fótbrotinn. Lögreglan lýsti eftir mann- inum í fyrrakvöld. Hann hafði farið að heiman um klukkan 19. Þegar hann var ekki kominn heim um klukkan 23,30, hófst leit og óskaði lögreglan þá eftir sporhundi skátanna. Hóf hundurinn leitina um miðnætti og rakti slóðina frá heimili mannsins í Hlíðunum. Hundur- inn hljöp sem leið lá úr Hlíð- unum yfir Kringlumýrarbraut, um Háaleitishverfi og inn á Grensásveg. Þaðan tók hundur- inn stefnuna I Fossvogshverfi, hljóp um Grundarland og að Borgarsjúkrahúsinu, niður Sléttuveg yfir Kringlumýrar- braut og Hafnarfjarðarveg. Hann hljóp sunnan við kirkju- garðinn og I Nauthólsvík, en er þangað kom breytti hann stefn- unni og hljóp upp Öskjuhlíðina. Þar fann hundurinn manninn í nágrenni hitaveitugeymanna og var hann skorðaður I gjótu eða klettaskorningum. Þegar hundurinn fann manninn var klukkan nærri 02. Maðurinn var meiddur á fæti og mjög miður sín, er hann fannst. Er áætlað að leiðin, sem hundur- inn hljóp, sé um það bil 4ra klukkustunda ganga sé gengið rösklega. Lögreglan var búin að leita á Öskjuhlíð og hafði einskis orðið vör. Varðstjóri lögreglunnar fullyrðii;, að ógerningur hefði verið að finna hinn aldraða mann með öðru móti og hafi hann bjargað manninum frá því að verða úti I öskjuhlíðinni, því að svo var af manninum dregið, að varla hefði honum enzt líf alla nóttina, kaldur og sár. Birgir Dagbjartsson hjá Hjálparsveit skáta I Hafnar- firði sagði, að hundinum hefði tekizt mjög vel upp við leitina. Þetta væri mjög sérstætt dæmi um nytsemi hundsins, því að I leitum áður hefði hundurinn oft og einatt farið út á bryggj- ur, þar sem slóðin hefur endað. Hefur ekki verið unnt að sanna, hvort hundurinn hafi I slíkum tilfellum verið á réttri slóð. Samkvæmt upplýsingum fósturdóttur mannsins, sem týndist, er hann talsvert þungt haldinn í sjúkrahúsinu og kvað hún lækna telja að hann hafi fengið aðsvif á göngunni og villzt. Honum var orðið mjög kalt er hann fannst og í gær var einnig óttazt að hann væri með lungnabólgu. um afla þriggja báta. Hamravík hafði fengið 30 tonn, Jón Garðar 30 tonn og Vörður 50 tonn. Árni Friðriksson var í gær að leita að síld og hafði fundið torfur við Skaftárós, en ekki virtist sfld vera þar fyrir austan. Þó mun síldin vera á nokkuð hraðri leið austur með landi. Einn bátur kastaði í gær við Alviðru, en ekki var kunnugt um afla hans. Ágætis veður var á miðunum í gær. Mikið fé mun vera í boði fyrir lifandi háhyrning og ýmis sædýrasöfn erlendis eru tilbúin að greiða 20—50 þús. dollara fyrir lifandi háhyrning eða 3.3 til 8 millj. ísl. króna. Jón Gunnarsson, forstöðu- maður Sædýrasafnsins í Hafnar- firði sagði í samtali við Morgun- blaðið að þeir hefðu mikinn áhuga á að ná háhyrningi og hafa til sýnis um tíma fyrir almenning. Síðan myndu þeir líklega selja hvalinn hæstbjóðanda og nota það fé, sem í boði væri til að byggja starfsemina betur upp. Þá sagði Jón að sér fyndist nauðsynlegt að náin samvinna yrði höfð um háhyrningsveiðina við Frakkann Roger de La Grandiére, sem staddur væri á landinu I því skyni að veiða háhyrning. Flogið eftir vara- hlut til Glasgow FLUTNINGASKIPIÐ Eldvík varð fyrir óvæntri vélarbilun á föstudag og stöðvaðist. í ljós kom að varahlutur var ekki til hér á landi I skrúfuöxul. Horfið var að þvl ráði að fá flugvél frá Sverri Þóroddssyni til að sækja varahlut- inn til Skotlands og fór vélin frá fyrirtækinu til Glasgow kl. 20.30 á föstudagskvöld og var lent hér aftur um kl. 9 á laugardags- morgun með stykkið þannig að viðgerð gat strax farið fram og skipið haldið áætlun sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.