Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1975 Septembermánuður í Reykjavík: Sá sólríkasti í hálfa öld — en jafnframt sá kaldasti Leikfélag Akureyr- ar, frumsýnir Tangó SEPTEMBERMÁNUÐUR sl. og f fyrra eru tvcir köldustu septem- bermánuðir í Reykjavík frá 1922 og 23. En jafnframf er sept. mán. sl. sðlrfkasti septembermánuður sfðan 1924. Samkvæmt upplýsingum Guð- mundar Þorsteinssonar veður- fræðings var sept. sl. með 5,6 stiga meðalhita, sem er 3 stig undir meðallagi, en svipað hitastig var i sept. sl. ár. Á Akureyri var meðal- hitinn 4,2 stig og hefur ekki orðið jafnt kalt þar í þessum mánuði siðan 1954. Á Höfn var meðalhitinn tveim- ur stigum kaldari en í meðalári, eða 5,8 stig. Á Hveravöllum var hitinn lítið eitt yfir frostmarki, en í Sand- búðum rösklega 1 stig undir frost- marki. Orkoma í Reykjavík var rúm- lega 'á meiri en í meðalári, eða 92 mm, en meira en helmingur þeirr- ar úrkomu féll á 4 sólarhringum. Sólskinsstundir í Reykjavik voru 187 í sept. en í meðalári eru þær 105 stundir og hefur ekki verið jafn sólrikt í sept. í Reykja- vik síðan 1923 I liðlega hálfa öld, eða frá því að mælingar hófust. I DAG efnir Óratórfukór Dóm- kirkjunnar til hljómleika f Fíla- delfíuhúsinu f Reykjavfk. Kórnum til aðstoðar verða hljóð- færaleikarar úr Sinfónfuhljóm- sveit Islands. Á efnisskránni eru tvö verk, Fantasfa f f-moll fyrir strengjasveit eftir Mozart og Requiem f c-moll eftir Cherubini. Hvorugt þessara verka hefur áður verið flutt hér á landi. 1 KVÖLD frumsýnir Leikfélag Akureyrar Tangó eftir Slavomfr Mrozek. Sjónleikurinn var fyrst sýndur hér á landi f Iðnó fyrir tólf árum, en cfnisþráðurinn er f stuttu máli sá, að fjölskylda nokkur telur sig hafa náð því við minningarathöfn um Loðvfk 16. Verkið er samið fyrir karla- raddir eingöngu, og hlaut það svo góðar viðtökur þegar f upphafi, að tónlistarmenn jöfnuðu því við Requiem Mozarts. Konsertmeistari á tónleikunum verður Guðný Guðmundsdóttir. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. takmarki að sigrast á fordómum og skorðum hefðar og lifa frjálsu nútfmalffi með listrænar til- raunir og fyrirhyggjuleysi að leiðarljósi. Artúr, ein aðalpersónan, er ungur maður. Hann er frábitinn þvf að sætta sig við umhverfið eins og það er. Hann vill hafa kjölfestu og reglu í tilverunni og leggur því til atlögu við „frelsis- vítið“. Um þessa viðleitni hans og viðbrögð fjölskyldunnar fjallar svo leikurinn. Leikstjóri er Eyvindur Erlends- son, en leikendur eru Aðalsteinn Bergdal, Júlíus Oddsson, Sigur- veig Jónsdóttir, Gestur E. Jónas- son, Saga Jónsdóttir, Árni Valur Viggósson og Kristjana Jóns- dóttir. Leikmynd hefur Steinþór Sigurðsson gert, en leikinn þýddu Bríet Héðinsdóttir og Þrándur Thoroddsen. Þetta er fyrsta sýning Leik- félags Akureyrar á nýju starfsári. Húsbyggjendur Einangrunar- plast Getum afgreitt einanqrunarplast á Stór- Reykjavikursvæðið með stuttum fyrirvara. Afhending á byggingarstað. HAGKVÆMT VERÐ. GREIÐSLUSKILMÁLAR Borgarplast hf. Borgarnesi sími: 93-7370 Kvöldsimi 93-7355. 100 fermetrar á 3 þúsund kr. TORKOSTLEG VERÐLÆKKUN 10 lítra fötur meö PLASTMÁLNINGU á aðeins kr. 3.000 r unnar flytur kirkjutónlist Innihaldið þekur 100 fermetra Litir: Hvítt — Beinhvitt — Beingult — Margir dökkir litir Allt á kr. 3.000 fatan Grípið tækifærið strax og sparið ykkur stórfé VIKKNIi ii Veggfódur- og mólningadeild Ármúlo 38 - Reykjovík Simor 8-54-66 8 8-54-71 Opið til kl.10 á föstudögum TWYFORDS HREIHÍ.ÆTISTÆKI HAIMDLAUGAR í BORÐ HAIMDLAUGAR Á FÆTI BAÐKÖRSTÁL& POTT FÁANLEG í FIMM LITUM J TWYFORDS-HREINLÆTISTÆKIIM ERU í SÉRFLOKKI. BYGGINGAVÖRUVERZLUN TRYGGVA HANNESSONAR, SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 83290. Látbragðsleikflokk- ur Fialka frumsýnir á þriðjudagskvöld Einsöngvarar með kórnum verða Svala Nielsen, Solveig Björling, Arni Sighvatsson og Hjálmar Kjartansson. Ragnar Björnsson dómorganisti stjórnar, en hann hefur verið stjórnandi kórsins frá upphafi og var aöal- hvatamaður að stofnun hans. Requiem Cherubinis var samið 1815—16 að beiðni Frakkakon- ungs og skyldi verkiö frumflutt Kennsla í rússnesku RÚSSNESKI sendikennarinn við Heimspekideild Háskóla Islands. frú Galina Vladimirova, hefur kvöldnámskeið i rússnesku fyrir almenning í vetur. Væntanlegir nemendur eru beðni að koma til viðtals mánudaginn 6. október kl. 20.15 í VII. kennslustofu. — Crosland Framhald af bls. 1 komulag, sem hefur það í för með sér, að brezkum togurum er lagt og brezkir sjómenn og verkamenn í Hull, Grimsby og Fleetwood missa atvinnu sína á skömmum tíma.“ Síðan sagði ráðherrann: „Brezkir sjómenn verða og munu stunda veiðar innan 50 mílnanna og taka heim réttlátan afla. Ég mun að sjálfsögðu virða vernduðu svæðin, því að brezkir sjómenn hafa mikilla hagsmuna að gæta I að tryggja að fiskstofnar á N- Atlantshafi verói ekki ofveiddir, en brezkir sjómenn eiga skýlaus- an rétt á að veiða á miðum, sem þeir hafa stundað i 500 ár og íslenzka ríkisstjórnin skal ekki fara í neinar grafgötur um að brezka stjórnin er ákveðin I að tryggja þann rétt.“ Morgunblaðið náði sambandi við Anthony Crosland í Grimsby I gær en er spyrja átti hann nánar um ýmis atriði ræðunnar sagðist ráðherrann ekkert frekar hafa um málið að segja á þessu stigi. Ekki alls fyrir löngu hefir það komið fram í fréttum, að Wilson forsætisráðherra, hafi hug á að Crosland verði eftirmaður sinn sem forsætisráðherra Bretlands. HINN heimsfrægi tékkneski lát- bragðsleikflokkur DIVADLO NA ZABRADLl (Leikhúsið á grind- verkinu), sem hingað kemur á vegum Þjöðleikhússins, heldur fyrstu sýningu sína á Stóra svið- inu n.k. þriðjudagskvöld, en alls verða sýningar fimm: Þriðjudags- miðvikudags-, fimmtudags- og föstudagskvöld og síðdegissýning á laugardag. Flokkurinn býður upp á tvær mismunandi sýningar: LEIKI ÁN Sumarsýning- unni 1 Ásgríms- safni að ljúka SUMARSÝNINGIN I Asgríms- safni sem opnuð var 1. júní s.l. er aðeins opin þessa viku. Lýkur henni sunnudaginn 12. október. Safnið verður þá lokað um tíma meðan komið er fyrir haustsýn- ingu þess, en I ráði er að sýna þá vatnslitamyndir eingöngu. Margt gesta kom í Ásgrimssafn á s.l. sumri, og var heimsókn er- lendra gesta með mesta móti. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1,30—4. Aðgangur er ókeypis. — Þyrluslys Framhald af bls. 48 fiytja gashyiki frá einu varðskip- anna. Er hún var nýkomin í loftið, brotnaði vélin, sem knýr hana áfram. Flugmaðurinn, sem var Páll Halldórsson, var nógu fljótur að átta sig. Sleppti hann gashylkj- unum strax og lét þyrluna detta niður á þyrluþilfar varðskipsins, þar sem varðskipsmenn gripu hana, áður en hún féll útbyrðis. ORÐA og ÆFINGAR- UPPGÖTVANIR. I flokknum, sem hingað kemur eru 12 manns, þar af 6 leikarar og dansarar. I hópi þeirra er stofn- andi hópsins, höfundur verka hans, leikstjóri og aðalleikarinn: Ladislav Fialka. Ladislav Fialka hefur farið I árlegar leikferðir með flokk'sinn um 15 ára skeið og þykir flokkur- inn nú meðal fremstu látbragðs- leikflokka heims.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.