Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 3
 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÖBER 1975 3 „Megi fjölbrauta- skótinn verða tifandi og þroskavœnleg menntastofnun ” Ávarp Birgis ísleifs Gunnars- sonar við setningu fjölbrauta- skólans í Breiðholti í gœr Ljösm. Mbl.: Sv. Þorm. Fjölbrautaskólinn við Austurberg. FJÖLBRAUTASKÓLINN við Austurberg í Breiðholti var settur í fyrsta skipti f gær. Við það tækifæri flutti Birgir Isleifur Gunnarsson, borgar- stjóri, ræðu og birtist hún hér á eftir: Hr. menntamálaráðherra, góðir gestir. Sú athöfn, sem hér fer fram í dag, setning fjölbrautaskólans í Breiðholti, er vissulega mikil- vægur áfangi á langri Ieið, sem byrjað var að feta þegar á árinu 1970, og þótt nú sé settur skól- inn, er enn alllangur spölur á leiðarenda. Það var þann 19. febrúar 1970, að samþykkt var tillaga í borgarstjórn, sem upphaflega hafði verið flutt 15. janúar það ár. I tillögunni segir svo: „Borgarstjórn telur, að vaxandi fólksfjöldi í Reykjavík ásamt fjölbreyttari atvinnuháttum og starfsskiptingu geri nauðsyn- legt að hafinn sé undirbún- ingur að endurskipulagningu á framkvæmd og markmiði kennslunnar í skólum borgar- innar, og þó einkum að því er varðar gagnfræðaskóla og námsefni þeirra. Telur borgar- stjórnin því æskilegt, að gerð verði að fengnu samþykki menntamálaráðuneytisins til- raun í einum af skólum borgar- innar með framhaldsskóla, er næði til 19 ára aldurs, þar sem velja mætti um fjölbreytt nám og mismunandi námsbrautir. Markmið slfks skóla væri annars vegar að búa nemendur sem bezt undir að héfja störf í hinum ýmsu greinum atvinnu- lífsins, en miðaði hins vegar að því að veitg þeim nemendum, sem hygðu á frekara nám, nægilegan undirbúning til inn- göngu I háskóla eða aðrar menntastofnanir á háskóla- stigi.“ Siðar voru í tillögunni ákvæði um, hvernig nánar skyldi að máli þessu unnið. Mér finnst rétt, að það komi hér fram nú, þegar svo merkum áfanga I þessu máli er náð, að framsögumaður og frumkvöð- ull þessarar tillögu i borgar- stjórn var Kristján J. Gunnars- son, sem þá var borgarfulltrúi, en nú gegnir starfi fræðslu- stjóra. Undirbúningur að málinu hófst fljótlega eftir samþykkt borgarstjórnar. Sú saga verður ekki rakin hér, en í desember 1971 var samþykkt i borgar- stjórn stofnun skólans, og honum valinn staður í Breið- holtshverfi í Reykjavík, en þá var tiltölulega nýlega hafin uppbygging þess hverfis. Að sjálfsögðu hefur verið höfð mjög náin samvinna við ríkis- valdið um stofnun þessa skóla, fyrst með drögum að samningi milli menntamálaráðuneytisins og Reykjavikurborgar; siðan voru 1973 samþykkt á Alþingi lög um fjölbrautaskóla og á grundvelli þeirra laga staðfest- ur samningur milli rikis og borgar um framhaldsskóla af þessari gerð. Þó að skólinn sé nú hér form- lega settur í fyrsta sinn, hafa mannvirki i tengslum við hann verið fullgerð. Má þar nefna, að íþróttavöllurinn hér skammt frá er hluti af mannvirkjum fjölbrautaskólans og mun að sjálfsögðu koma öllu þessu hverfi til góða, bæði skólanum og íþróttafélaginu. Þá er nýlega hafin bygging sundlaugar við fjölbrautaskólann, sem mun væntanlega, nýtast við almenna sundkennslú hér í hverfinu einnig. Allmargir menn hafa komið við sögu þessa máls frá upphafi og erfitt að nefna nöfn i þvi sambandi. Ég vil þó flytja þakk- ir þeim Kristjáni J. Gunnars- syni, fræðslustjóra, fyrir hans frumkvæði og atbeina i þessu máli, Jónasi B. Jónssyni, fyrrv. fræðslustjóra, sem starfað hefur sem sérstakur ráðunaut- ur við að skipuleggja fjöl- brautaskólann eftir að hann lét af embætti fræðslustjóra, Jóhanni S. Hannessyni, fyrrv. skólameistara, sem á sínum tíma var ráðinn á vegum Fræðsluráðs Reykjavikur til að gera tíllögur að skipulagi og starfsháttum sameinaðs fram- haldsskóla, svo og Guðmundi Sveinssyni, skólameistara við fjölbrautaskólann, sem hefur starfað að skipulagi skólans og annazt aimenn skölastjórastörf. Með setningu fjölbrauta- skólans í Breiðholti hér í dag er komin til framkvæmda hug- myndin um stofnsetningu fjöl- brautaskóla. Skóli þessi er að visu á byrjunarstigi og á vonandi eftir að vaxa og eflast hér í framtiðinni. Hugmyndin um fjölbrautaskóla hefur og orðið til þess, að líklegt er, að þessi skólategund eigi eftir að festa rætur í þjóðlífinu. Alþingi hefur t.d. sett rammalög um fjölbrautaskóla almennt, sem opna öðrum sveitarfélögum en Reykjavík tækifæri til að stofna skóla af þessari gerð. Með stofnun fjölbrautaskóla er hrint i framkvæmd hug- myndum og hugsjónum, sem margir skólamenn hér á landi Jiafa haft um árabil og eiga sér reyndar sumar hverjar upp- runa erlendis frá. Hugmyndir þessar eiga sér margvislegar rætur. Þær byggjast m.a. á nýjum skilningi á menntun, að menntun sé ekki fyrir fáa út- valda, heldur að starfsemi þjóð- félagsins, atvinnulíf þess og starfshættir allir hvíli á þvi, að hæfur maður sé i hverju rúmi. Að ekkert starf í þjóðfélaginu sé svo litils virt, að því þurfi ekki að gegna vel hæfur og þjálfaður og menntaður ein- staklingur. Með stofnsetningu fjöl- brautaskóla er og svarað annarri gagnrýni sem mjög hefur verið höfð uppi á skóla- kerfi okkar til þessa. Því hefur verið haldið fram, að nemendur þurfi mjög snemma á náms- brautinni að gera upp sinn hug um það, hvort þeir hyggi á lang- skólanám eða ekki. Þá örlaga- ríku ákvörðun hafa nemendur þurft að taka á viðkvæmum og erfiðum aldri. Oft hefur sú ákvörðun reynzt röng og af- leiðingar orðið slæmar fyrir viðkomandi nemanda. í fjöl- brautaskólanum er hins vegar gert ráð fyrir því, að á fyrstu árum nemenda þurfi þeir ekki endanlega að ákveða lokatak- markið með námi sínu, heldur geti þeir fært sig milli deilda eða námsbrauta og þannig frestað hinu endanlega vali. þangað til þeir hafi meiri reynslu og þroska. Það nám sem þeir hafi fengið á einni brautinni, eigi þá að geta nýtzt þeim til framgangs á þeirri næstu, sem þeir kjósa að færa sigyfir á. Fjölbrautaskólinn á að geta gefið góð skilyrði til atvinnu- menntunar og á að geta haft áhrif á, að fleiri nemendur velji sér þau viðfangsefni i námi sinu, sem kunni að leiða til beinnar þátttöku i atvinnulíf- inu, en á þvi sviði skortir okkur íslendinga allmikið enn sem komið er. En þótt góðar hugmyndir og hugsjónir liggi að baki stofnun fjölbrautaskóla, ræður þó vafa- laust mestu um framtíð hans, hvernig framkvæmdin verður. Mikil ábyrgð hvílir á stjórnend- um skólans, kennurum hans, nemendum og öðru starfsliði. Ég vil því nú á þessum tíma- mótum óska öllu þvi fólki til hamingju með þennan áfanga og árna þeim heilla í þeirra vandasömu og mikilvægu störfum. Mörg augu munu mæna til fjölbrautaskól- ans I Breiðholti og eftirvænting mun ríkja um það, hvernig til muni takast. Ég er i engum vafa um það, að allir þeir, sem þar koma við sögu, muni gera sitt itrasta til, að fjölbrautaskól- inn megi verða lifandi og þroskavænleg menntastofnun. Ferðaskrifstofan Atiir fara í ferð með ÚTSÝN / London Ódýrar vikuferðir: Verð með vikugistingu og morgunverði Verð frá kr. 38.000.— Október 5 , 12., 18 Nóvember 1 . 15.. 29 Sýningar í Kaupmannahöfn Scandinavian Sport article — Clothing fair 12.-14. okt 23. nóv. — 29 nóv International Exhibition og equipment and machinery for the furniture indurstry Frá 24 nóv—28. nóv 14 feb —20 feb 10th Scandinavian menswear fair. Frá 15 feb — 17.feb. 13 marz—19. marz. 21st Scandinavian fashion week Frá 1 4. marz— 1 7. marz. 23 april—29 april Scandinavian gold & silver fair. Frá 24 —28 april Verð: gisting og morgunver? Glasgow Helgarferðir Verð með gistingu og morgunverði frá kr. 27.500,— Október 10. og 24 Nóvember 7 og 21 ur frá kr. 38.300,- Frá upphafi hefur það verið stefna jwi og takmark Ferðaskrifstofunnar IMdllODI Útsýnar, að tryggja viðskipta- Mnmhaca vinum slnum örugga fyrirgreiðslu * * UdOCJ Dg va|jnn aðbúnað fyrir lægsta Brottför fáanlegt verð. IVleð samvinnu við 1 3 marz SAS flugfélagið og ferðaskrifstofu . .' , * þess Globetrotter, getum við nú 14 daga ferð bo5ið fer5ir ti| AsIu og Austur. f nótt í Afrlku 1 mjög háum gæðaflokki Kaupmannahöfn. fyrirótrúlega lágt verð. i-. . - AUSTURLÖND Jóla- og febrúar ferð til Bankok Brottför 1 9. des og 1 5. feb 7 dagar Bangkok 7 dagar Pattaya 2 dagar Kaupmannahöfn FERÐASKRIFSTOFAN UTSÝN AUSTURSTRÆTI 17 SIMAR 26611 OG 20100 - AMERICAN EXPRESS OG TJÆREBORG EINKAUMB. Á ÍSL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.