Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1975 45 VELVAKAIMOI 0 Látinn fyrir 25 árum Nýlega birtum við bréf frá Breta nokkrum, sem vildi n& sam- bandi við íslenzkan vin sinn, Daníel Sumarliðason. Nú hafa okkur borizt þær upplýsingar, að Daniel hafi látizt 6. júní 1950. Hann var vörubilstjóri og öku- kennari hér i bæ. # Sýning Péturs Friðriks Páll Daníelsson í Hafnar- firði skrifar: ,,Ég vil með þessum línum flytja Pétri Friðriki beztu þakkir fyrir mikla og góða sýningu mál- verka sinna að Kjarvalsstöðum. Hvað minn smekk snértir, þá eru þar fáar myndir, sem ekki væri gaman að eiga, og svo mun fleir- um farið. Sjálfur get ég ekki dregið pensil til sköpunar myndar, þótt mér tækist e.t.v. að draga strik eftir reglustiku eða lita blett á blað í gegnum plötu. Ég ætla mér heldur ekki að gerast neinn skömmtunarmaður á list og segja fólki hvað sé list og hvað ekki, því að ég vil ekki láta segja mér sjálfum fyrir verkum í þvi efni. Einn getur talið list það sem mér finnst ekkert varið í og öfugt. Ég gat ekki verið við opnun sýningar Péturs Friðriks og sá ekki hverjir þar komu. Hins veg- ar las ég í blaðagrein, að þar hefðu fáir listamenn látið sjá sig og var kennt um deilunni út af sýningum á Kjarvalsstöðum. Stundum er deilt hart um ýmsa hluti en aldrei hefur stórmann- legt talizt að fara i fýlu þótt átök séu. En þegar menn eru að eigin áliti orðnir svo stórir í list sinni og egóisminn gagntekið þá svo, að þeir líti allan almenning þeim augum, að hann eigi bljúgur og i auðmýkt að taka við listmolum þeirra, þá er sannarlega stefnt i •myrkviði afturhalds, stöðnunar og getuleysis. Hins vegar hefur það verið svo og verður á meðan frjáls hugsun er við lýði, að enginn verður lista- maður af þvi að hrópa hátt um sjálfan sig, heldur af þeim verkum, sem almenningur, þótt fáfróður sé talinn í listum, getur Iifað sig inn í og notið. Listamat hlýtur ávallt að verða einstaklingsbundið. Þar getur enginn sagt fyrirverkum. Páll Daníelsson." O Athyglisverö kvikmynd Áhugamaður um kvik- myndir skrifar: viðurkenndi hann þá ekki að hann hefði farið í þessa skyndiför til New York og staðha'fði að við- ræðurnar hefðu borið tilætlaðan árangur? Hann gat bara staðhæft að hann hefði fengið Mariettu Shaw til að fallast á að leika f einni einustu kvikmynd ... — Jú, auðvitað hefði honum verið það f lófa lagið, en hann gerði það nú ekki, svaraði Felix. — Þér eigið sem sagt við að þér hafið gabbað hann til að játa á sig morðin? — Nei, eiginlega ekki. Um var að ræða yfirheyrslu. Þér vitið að játning sem er gefin undir slík- um kringumstæðum hefur ekki gildi f rétti. Þér getið bókað að þetta verður engu að sfður tekið trúanlegt. Og nú þegar við vitum hvaða nafn Kroneberg tók sér, verður ekki erfitt að komast að því hvaða bfl hann leigði sér til að koma undan líki Talmeys og hafi bíllinn ekki verið þveginn ræki- lega verður sjálfsagt unnt að finna þar ummerki sem taka af öll tvfmæli. En þetta er allt eðli- legur gangur og sjálfsagður. Ekki satt, Línk? — Jú, svaraði David og sfðan leit hann til Diönu Quain, sem einnig kinkaði kolli... SÖGULOK „Einstöku sinnum kemur fyrir að gerðar eru myndir, sem eru svo nærri raunveruleikanum, venju- legum mannlegum raunveru- leika, að þær vekja enga forvitni. Kvikm.vndir eru um ýmiskonar drauma, drauma um ástir. drauma um ofbeldi, og drauma um hetjulund. Stjörnubíó sýnir aftur á móti ntynd um þessar mundir, sem nefnist Vandamál lífsins, og fjallar um þær harð- neskjulegu staðreyndir, þegar fólk kemst á elliheimilaaldurinn og ýtist til hliðar i því samfélagi, sem það átti þátt i að skapa, og þar sem það lagði fram krafta sína. Það er að vísu búið að ræða þessi mál mikið hérna megin hafsins, og margt hefur verið gert til að létta fólki aldurdóminn. Og vitnað er til þess í myndinni, að svona sé fólk orðið gamalt vegna nýrra læknisdóma. Fólk hverfur því ekki lengur héðan úr kröm- inni, heldur úr skínandi velsæld, margt hvert, þrúgað eftirlaunúm og aðgerðaleysi. Myndin í Stjörnubfói höfðar ekki til drauma áhorfandans. Hún er um staðreyndir, sem hver ein- asti maður, karl sem kona verður að fást við einhverntíma á ævinni. Kunnur leikari og leikstjóri, Melvyn Douglas, fer með aðal- hlutverk ásamt Gene Hackman, sem lífir við mikinn orðstir fyrir leik i æsimyndum. Þeir gera sina hluti vel i myndinni, og á þaþ sinn þátt i þvi að flytja áhorfendum heim sanninn um erfiðleika þess að verða gamall." % Happdrætti Krabbameins- félagsins Jón Oddgeir Jónsson skrif- ar: „Magnús Þórðarson skrifar ný- lega i dálka yðar um vandkvæði þeiiTa, sem kaupa happdrættis- miða ýmissa félaga. Þetta á þó ekki, sem betur fer, við um öll félagshappdrætti. Tökum sem dæmi happdrætti Krabbameinsfé- lagsins. Drætti er aldrei frestað. Daginn eftir (og stundum sam- dægurs) að dregið hefur verið um vinningana hjá borgarfógeta- embættinu eru vinningsnúmer lesin margoft i rikisútvarpinu. Næstu daga eru númerin birt í dagblöðum, annað hvort i fréttum eða auglýsingum. Ef eigendur vinningsnúmeranna gefa sig ekki fram eftir nokkra daga, er hafizt handa að nýju með tilkynningu í útvarpi. Auk þess eru gefnar upplýs- ingar um vinninga allan sólar- hringinn i simsvara félagsins i nokkra mánuði eftir að dregið hefur verið, en félagið hefur, að jafnaði tvö happdradti á ári — vor og haust. Félagið hefur spjaldskrá um alla þá, sem fá happdrættismiða senda heim og er þvi unnt að tilkynna þeim strax um vinninga, svo framarlega sem greiðsla fyrir miðana hefur verið send fyrir þann dag, sem dregið er. í lok greinar sinnar leggur Magnús til að öll félög, sem selja happdradt- ismiða, verði látin birta tilk.vnn- ingar sínar um vinninga og fleira í ákveðnum dálki dagblaða, og.vil ég gjarnan vinna að því að svo verði. Jón Oddgeir Jónsson." HOGNI HREKKVISI Amma? Vissir þú, að kettir voru dýrkaðir í Egyptalandi til forna? Opið í kvöld Kvartett Árna ísleifs leikur HOTEL BORG Modelsamtökin sýna haust- og vetrartískuna á Hótel Sögu í kvöld kl. 21.00 Brynja og Sæmi sýna Jitterbuck Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi til kl. 1. Aðgöngumiðasala við innganginn. eftir kl. 7 Mode/samtökin. KRAKKAR Þaö veröur aftur barnaskemmtun í Háskólabíói núna sunnudaginn 5. október klukkan 1.15 á vegum Foreldrasamtaka barna með sérþarfir. Fyrir ári fengu ekki allir miða sem vildu Nú fá þeir tækifæri. Dregið verður um tíu happdrættisvinninga og kynnir verður ekki Aldinborrinn eins og í fyrra, heldur Mikki refur. Auk þess skemmta skóla- hljómsveit Kópavogs, Ómar Ragnarsson, Bald- ur Brjánsson, nemendur frá Heiðari Ástvalds- syni, Guðrún Ásmundsdóttir, Kjartan Ragnars- son og Soffía Jakobsdóttir, Halli og Laddi o.fl. 53^ SIGGA V/öGÁ 11/LVERAM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.