Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTOBER 1975
Hjónaminning:
Anna Pétursdóttir
09
Magnús Stefánsson
Á morgun verðijr til moldar
borin frá Fossvogskapellu tengda-
móðir mín frú Anna Pétursdóttir
Rauðarárstíg 34,
Mig langar nú að leiðarlokum
að minnast tengdaforeldra minna,
þeirra Magnúsar Stefánssonar, f.
15/5 1892, d. 18/5 1974, og konu
hans Önnu Pétursdóttur f. 26/7
1892, d. 25/9 1975.
J>essi hjón voru dæmigert
íslenzkt alþýðufólk. Þau unnu
hörðwm höndum frá barnæsku til
dauðadags við störf til sjávar og
sveita, komu upp stórum barna-
hópi við knöpp kjör, en með
miklum sóma. Gestrisni og glað-
værð einkenndi heimili þeirra,
enda vinsæl og vinamörg hvar
sem þau bjuggu.
Þau fæddust bæði sama ár aust-
ur í Þykkvabæ, hann að Borg en
hún að Stóra-Rimakoti. Anna var
dóttir hjónanna Péturs Magnús-
sonar og Önnu Benediktsdóttur
og ólst upp i foreldrahúsum,
ásamt Benedikti bróður sínum.
Benedikt var 7 árum yngri en
t
Þökkum mmlega sýnda samúð vegna andláts
ÞURÍÐAR JÚLÍUSDÓTTUR
frá Syðra-Seli.
Vandamenn.
t
Konan mín, móðir okkar. tengdamóðir og amma,
ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Ljósheimum 1 0
verður jarðsungm frá Fossvogskirkju, mánudaginn 6 okt kl 1 3 30
Sæmundur Sigurtryggvason,
börn, tengdabörn og barnabörn
t
Eigmmaður mmn, faðir, tengdafaðir og afi
GUÐMUNDUR F.E. BREIÐDAL,
húsgagnasmíðameistari,
Barmahlíð 40,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 7 október kl
13 30
María Þórðardóttir, Ásta Breiðdal,
Birgir Breiðdal, Ragnhildur Smith,
Guðmundur, Laufey Ásta, Birgir.
t
Þökkum af alhug samúð, einlægan vinarhug og margskonar stuðning
okkur veittan, við andlát og útför sonar okkar og bróður,
EIRÍKS ÁSGRÍMSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við skólasystkinum hans og vinum frá Laugar-
vatni, sem heiðruðu fagurlega minningu hans
Þorbjörg Eiriksdóttir, Ásgrímur Jónsson,
Guðrún Ásgrimsdóttir, Sigurður Benediktsson,
Stefán Ásgrimsson, Sif Knudsen
Konráð Ásgrímsson, Elin Siggeirsdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
EINARS GUÐNASONAR,
bifreiðastjóra,
Sérstakar þakkir viljum við færa Jónasi Guðlaugssyni, rafveitustjóra,
og Albert Krístinssyni, verkstjóra fyrir einstaka vinsemd við hinn látna
svo og öðru samstarfsfólki hans og félögum. Guð blessi ykkur öll.
Laufey Guðnadóttir, Þorsteinn Eyjólfsson,
Benedikt Guðnason, Þuríður Guðjónsdóttir,
SigurðurM. Jóhannsson, Daðey Sveinbjörnsdóttir.
t
Öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns, sonar, föður tengdaföður og tengdasonar
ÁRNA HINRIKSSONAR,
framkvæmdastjóra
Bröttubrekku 5, Kópavogi,
færum við innilegustu þakkir og kveðjur Einkum viljum við færa stjórn
Sjómannadagsráðs og starfsfólki stofnana þess bestu þakkir okkar fyrir
hlýhug og virðingu við minningu hins látna. Fyrir hönd vandamanna
Helga Henrýsdóttir, Anna Árnadóttir, Wagle
Ellen Ingibjörg Árnadóttir, Hörður Svavarsson,
Anna Árnadóttir, Gunnar Hinrik Árnason,
Guðrún Árnadóttir, Helga Dagný Árnadóttir,
Árni ÞórÁrnason, Guðrún Þorsteinsdóttir.
Anna. Hann lézt fyrir tveimur
árum. A þessum árum tóku heil
biigó börn snemma til hendinni
við bústörfin og mun Anna ekki
hafa látið sinn hlut eftir liggja í
þeim efnum. Hún var eftirsóttur
starfskraftur í sveitinni, þegar ár-
in liðu, vegna dugnaðar og sam-
vizkusemi við öll störf, sem henni
voru falin. Ekki tafði skólanámið
aldamótabörnin lengi frá vinnu.
En sú stuttá skólaganga, sem þau
fengu fyrir ferminguna, var vel
nýtt af glöggum unglingum. Anna
hefði vissulega kosið lengri skóla-
göngu, því að hún var kona bók-
hneigð alla sfna tið. En brauðstrit-
ið sat í fyrirrúmi.
Magnús var sonur hjónanna
Stefáns Magnússonar og Sesselju
Magnúsdóttur. Magnús var einn
af tólf börnum þeirra hjóna.
Hann fór f fóstur sjö ára til hjón-
anna Katrínar Kristjánsdóttur og
Jóns Þórðarsonar í Unhól og ólst
þar upp til fermingaraldurs. Eftir
ferminguna fór hann í vinnu-
mennsku að Páls-Nýjabæ. Þar
vann hann við sveitastörf á
sumrum, en fór á vertiðir á vetr-
um suður í Garð eða Þorlákshöfn.
Jafnræði var því með þeim
Magnúsi og önnu hvað snerti
dugnað til allra starfa.
Magnús og Anna voru skóla- og
fermingarsystkini. En þeirra sam-
leið var ekki þar með lokið. Þau
gengu í hjónaband 29. okt. 1916.
Siðan leiddust þau hamingjusöm
gegnum Iifið á hverju sem gekk í
58 ár, eða þar til Magnús lézt 18/5
’74. Anna mun ekki hafa óskað
eftir löngum aðskilnaði við mann
sinn þá fremur en áður á lífs-
Ieiðinni. Svo varð heldur ekki.
Það liðu aðeins sextán mánuðir
þar til hún kvaddi einnig þennan
heim. Og nú ætti ekkert að geta
skilið þau að lengur.
Magnús og Anna leigðu sér jörð
i Þykkvabænum fljótlega eftir að
þau gengu í hjónaband og hófu
búskapinn. Efnin voru lítil og
bústofninn eftir þvi. En þau voru
ung og sterk og staðráðin í því að
standa á eigin fótum í lífinu, þó
að lífsbaráttan væri oft erfið. Eft-
ir fáein ár var jörðin seld, en
ungu hjónin höfðu ekki fé til þess
að festa sér jörðina. Þá fluttust
þau til foreldra Önnu og bjuggu í
sambýli við þau í tvö ár, meðan
þau hugsuðu ráð sitt. Arið 1923
fluttu þau svo búferlum úr
heimabyggð sinni, Þykkvabæn-
um, að Ráðagerði i Vetleifsholts-
hverfi. Þessi ákvörðun þeirra var
áreiðanlega ekki sársaukalaus. I
Ráðagerði bjuggu þau í ellefu ár.
Með dugnaði og árvekni tókst
búskapurinn allvel. Magnús varð
samt oft að afla heimilinú tekna
með því að fara á vertiðir til Vest-
mannaeyja. Arið 1934 fluttust
þau að Vetleifsholti og bjuggu
þar til ársins 1946. Það ár hættu
þau búskap og fluttust suður eins
og svo margir fleiri. Þau festu
kaup á húsinu Sólvöllum á Sel-
tjarnarnesi. Magnús stundaði
ýmis störf í Reykjavík t.d. bygg-
ingarvinnu. Um árabil starfaði
hann hjá Gólfteppagerðinni og
síðast hjá Sveini Egilssyni.
Vinnuferli hans lauk, þegar hann
var orðinn 78 ára, þá farinn að
heilsu og kröftum. Síðustu árin
bjuggu þau hjónin að Rauðarár-
stíg 34, i sambýli við dóttur sína
Þóru. En hún var þeim stoð og
stytta í ellinni.
Magnús og Anna eignuðust átta
börn, sjö dætur og einn son.
Börnin eru öll á lífi og búsett i
Reykjavík og á Scltjarnarnesi.
Auk sinna átta barna ólu þau upp
að nokkru leyti þrjú barnabörn
sín. Heimili þeirra hjóna var þvi
oftast mannmargt. En þau hjón
voru þannig gerð, að aldrei' leið
þeim betur, en þegar gest-
kvæmast var og flest í heimili.
Alltaf var rúm fyrir fleiri gesti,
þótt húsakynnin hefðu ekki verið
stór. Afkomendahópurinn var
orðinn fjölmennur. Börn þeirra 8
hafa eigr.ast 30 börn og barna-
börnin hafa eignazt ellefu.
Hjónin Magnús og Anna skil-
uðu löngu og erfiðu dagsverki, en
jafnframt hamingjurfki dags-
verki, bæði fyrir þau sjálf og
niðja sína.
Ég mun jafnan minnast tengda-
foreldra minna með hlýhug og
þakklæti og er þess fullviss að
þannig muni minning þeirra
geymast í hugum allra, sem
kynntust þeim á lífsleiðinni.
Blessuð sé minning þeirra.
J.Þ.J.
Haukur Kristjáns-
son - Minningarorð
I gær var jarðsunginn frá Húsa-
vikurkirkju Haukur Kristjánsson.
Hann var fæddur 28. febrúar
1956, sonur hjónanna Kristjáns
Arnljótssonar rafveitustjóra og
Gerðar Björnsdóttur.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
HELENU GESTSDÓTTUR.
Böðvar Guðmundsson,
Inga Gestsdóttir,
Ásta Gestsdóttir,
Gústaf Gestsson,
Nína Guðmundsdóttir.
+
Hjartans þakkir til allra er vottuðu samúð við andlát og útför eigin-
manns mins og föður,
SIGURÐAR GUOMUNDSSONAR,
Lokastlg 9.
Sólveig Kristjánsdóttir,
Valtýr Sigurðsson.
+
Útför eiginkonu minnar.
GABRIELU JÓHANNESDÓTTUR,
Bakkavegi 4, Hnlfsdal,
fer fram frá Kapellunni i Hnifsdal þrið,udaginn 7 október kl 14.00.
Jóakim Pálsson.
23. september s.l. barst okkur
sú harmafregn að vinur okkar
hefði látizt aðfararnótt mánudags
22/9 af slysförum.
Þetta var mikið reiðarslag. Það
er erfitt að sætta sig við að svona
ungur og lífsglaður maður skuli
vera tekinn frá okkur á svo svip-
legan hátt.
Haukur var einn hinna rólyndu
manna, sem vaxa við nánari
kynni, hann var tryggur vinum
sínum og ávallt hægt að leita til
hans ef erfiðleikar steðjuðu að.
Seint mun fyllast skarð það er
kom í vinahópinn við fráfall hans.
Ófáar voru þær kvöldstundir er
við sátum að tafli. Haukur var
skákmaður góður og oft sat hann
langtímum saman við að ráða ein-
hverja taflþrautina.
Hann hafði nýlega hafið nám
við rafvirkjun og lífið virtist
brosa við þessum góða dreng. Sár
harmur er nú kveðinn að ástvin-
um hans, aðstandendum og vin-
um.
Við þökkum fyrir að hafa
fengið að kynnast Hauki og vott-
um fjölskyldu hans okkar dýpstu
samúð.
Vinir.
+
Eigmmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
KARL G. PÁLSSON,
Grettisgötu 48, B
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 6. okt. kl.
^ ^ ^ Jóna Guðjónsdóttir,
Ólafur G. Karlsson, Guðrún A. Árnadóttir.
og barnabörn.
+
Móðir min tengdamóðir og
amma okkar,
CLARA
GUÐJÓNSDÓTTIR,
Heiðarlundi 21,
Garðahreppi,
áður Ránargötu 1 5,
sem andaðist 30 sept verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavik, kl 3 siðdegis,
þriðjudaginn 7. október
Halldóra Ólafsdóttir,
Óli Þ. Haraldsson,
Emil Gunnar,
Ólöf Hanna.