Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.10.1975, Blaðsíða 34
■mi 34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1975 Bergljót Halldórsdóttir, Björg Ragnarsdóttir og Lilja Ólafsdóttir. Einarsdóttir, Rádstefna BSRB UM síðustu helgi, dagana 26. til 28. september, var haldin ráðstefna í Munaðar- nesi á vegum Bandalags starfsmanna rtkis og bæja og Alþýðusambands ís- lands Ráðstefnan fjallaði um þátttöku kvenna í atvinnulíf- inu. Þátttakendur voru um 70 manns víðsvegar að af land- inu, flest konur. Flutt voru framsöguerindi um eftirtalin málefni: Anna Sigurðardóttir talaði um stöðu kvenna í atvinnu- lífinu fyrr og nú. Jóhannes Siggeirsson hafði framsögu um atvinnu- þátttöku og launakjör. Haraldur Steinþórsson ræddi um þátttöku kvenna í stéttarfélögum. Helga Sigurjónsdóttir talaði um almenna menntun og starfsmenntun kvenna. Gerður Óskarsdóttir talaði um hefð og fordóma. Adda Bára Sigfúsdóttir hafði fram- sögu um félagslega þjónustu. Guðmundur Sveinsson fjallaði um fullorðinsfræðslu og éndurhæfingu. Jón Sigurðsson hélt erindi, sem hann nefndi „Kvenþjóðin og þjóðar- tekjurnar". í framsöguerindunum kom m.a. fram, að árið 1960 var 21% giftra kvenna virkir þátttakendur í atvinnulífi hér á landi. Siðan hefur orðið „hljóðlát bylting", því að árið 1975 hefur þátttakan aukist í 50%. Árið 1 980 er gert ráð fyrir, að sú tala verði komin upp í 55%, en í 60% árið 1990. (Spá Þjóðhagsstofn- unarinnar). Sé þessi þróun höfð í huga og það framlag, er konur skila í þjóðarbúið, er Ijóst að uppbygging dag- vistunarstofnana hefur verið vanrækt. Þar hefur stöðnun ríkt og enn í dag eru það einungis hinir svokölluðu forgangshópar, sem aðgang fá að þessum stofnunum og þó er eftirspurn þess hóps engan veginn fullnægt. Árið Askorun Þátttakendur í ráð- stefnu A.S.Í. og B.S.R.B. í Munaðar- nesi 26. til 28. sept. 1975, um þátttöku kvenna í atvinnulífi, skora á islenskar konur að taka sér frí frá störf- um á degi Sameinuðu þjóðanna þann 24. okt. n.k. til að sýna fram á hve vinnuframlag kvenna er þjóðfélaginu mikilvægt. Áskorunin var sam- þykkt samhljóða. 1971 gerði Félagsmála- stofnunin skoðanakönnun meðal mæðra 0—10 ára barna i Reykjavík á þörf fyrir dagvistunarrými. Niður- stöður sýndu, að rými skorti fyrir 2950—3600 börn og skiptist þannig: 1/10 hluti dagvöggustofu- rými 1/5 hluti dagheimilarými 2/ 5 hlutar leikskólar 3/10 hlutar skóladagheimili Tölur þessar sýna, að þörfin er brýn. Fram kom, að engin áætl- un hefur verið gerð um upp- byggingu dagvistunar- heimila. Einnig kom fram, að skólinn hefur á engan hátt gegnt því hlutverki að vera börnum athvarf meðan foreldrar eru við vinnu. Þvert á móti hefur sundur- slitin stundaskrá oft valdið meiri bindingu móður heima en nauðsynlegt hefði verið ef áhersla hefði verið lögð á að gera skólatimann sam- felldari og gefa börnum kost á máltíðum í skólunum. Mikið var rætt um hið tvö- falda vinnuálag kvenna og þá hindrun, sem það er kon- um við atvinnuþátttöku. Hlutastörf kvenna leysa síð- ur en svo vanda þeirra við að öðlast jafnstöðu á vinnu- markaði. Auka jafnvel á launamun þar sem hluta- störfin eru verr launuð og veita síður framamöguleika, en 90% allra hlutastarfa eru unnin af konum. B.H. og L.Ó. Punktar • • frá Onnu GRÁGÁS — þingskapa- þáttur: .. Karlmaður 16 vetra gamall skal ráða sjálfur heimilisfangi sínu og eldri. Mær tvítug eða eldri skal og sjálf ráða heimilis- fangi sínu. " Ákvæði er og um að gift vinnukona má ráða sig sjálf í vist, ef maður hennar hefir ekki ráðstafað henni fyrir vissan tíma: „Ef henni þá er ófenginn ‘staður svo að hún viti og er rétt þá að hún taki sér grið þar er hún vill og skal hún þann stað hafa þá 12 mánuði." (Grágas I, bls. 129. Ljós- prentun 1 974) I kirkjuritúalinu frá 1685 segir, að yfirsetukonum skuli greitt sanngjarnlega fyrir ómak sitt, „en fátækum skulu þær hjálpa fyrir guðs sakir." (SJ bls. 33) Búa-lög — Alþingissam- þykkt 13. júní 1722 um lausamenn, vinnuhjú og lausgangara. Þar segir m.a., að ef kona „gjörir karl- mannsverk með slætti, róðri eða torfristu, þá á að meta verk hennar sem áður segir um karlmann til slíkra launa." Verkalýðs- og sjómanna- félagið Bjarmi á Stpkkseyri, sem stofnað var 1904, aug- lýsir fyrsta kauptaxta sinn 8. febrúar 1905. Þar segir m.a., að laun skuli vera frá 1. apríl 20 aurar á klst. fyrir karla og 15 aurar fyrir konur, en frá 1. júlí til 10. sept lægst 30 aurar á klst. fyrir karla og 20 aurar fyrir konur. (Ár og dagar) 29. mars 1961 voru sam- þykkt lög um launajöfnuð kvenna og karla. Launajöfn- uðurinn skylþi framkvæmd- ur í áföngum á 6 árum, 1962—1967. Lögin eru þó án nokkurs ákvæðis um sömu laun fyrir jafnverðmæt störf. Lög nr. 71, 28. nóv. 1919 um laun embættis- manna. Lægst launuðu em- bættismennirnir eru talsíma- konur við bæjarsímann í Reykjavlk og kennari við Málleysingjaskólann. (Kennarinn mun hafa verið kona). (Úr ártalaskrá sem Anna Sigurðardóttir forstöðu- maður kvennasögusafnsins lagði fram á ráðstefnunni) Um jafn- launaráð ÚR lögum um jafnlaunaráð nr. 37, 24. apríl 1 973: 1. gr. „Konum og körlum skulu greidd jöfn laun fyrir jafnverðmæt og að öðru leyti sambærileg störf." 2. gr. „Atvinnurekendum er óheimilt að mismuna starfsfólki eftir kynferði. Gildir þetta ekki aðeins um launagreiðslur heldur um hvers konar greinarmun, úti- lokun eða forréttindi til at- vinnuráðningar og skipunar í starf, Tilunninda og hækk- unar í starfi." Jafnlaunaráð á m.a. að taka við ábendingum um brot á ákvæðum laganna, rannsaka málið af því tilefni og senda að rannsókn lok- inni málskjöl til þeirra aðila, sem málið snertir. (I jafnlaunaráði eru: Guðrún Erlendsdóttir, form., Áslaug Thorlacius, Haraldur Ólafsson, Ólafur Jónsson og Þórunn Valdimarsdóttir) í umræðum á ráðstefn- unni kom fram, að misbrest- ur hefði orðið á að launþega- samtök og stéttarfélög hefðu kynnt félagsmönnum sínum lögin og mörgum væri með öllu ókunnugt um tilvist þeirra. Einnig kom fram, að Jafnlaunaráð hefur aðeins afgreitt 5 mál á þess- um tveim árum. ASI Fæðinga- orlof Tækifæri til heimaveru vecjna barnsburðar. I umræðuhópi um félags- lega þjónustu var m.a. rætt um framkvæmd 3ja mánaða fæðingarorlofs opinberra starfsmanna og talið nauðsynlegt að gera konum í þjónustu ríkisins Ijóst, að þann rétt eiga þær án nokkurra kvaða. Hópurinn lagði áherslu á, að hraða yrði reglugerð um fæðingarorlof kvenna í verkalýðsfélögum og tryggt að konur úr félögunum fengju sæti í nefnd þeirri er semur reglugerðina. Þá taldi hópurinn mjög mikilvægt að bráðabirgðaákvæði laganna um fæðingarorlof, sem sam- þykkt var á Alþingi 1 6. maí 1975, verði að veruleika. í því ákvæði felst að tryggður skuli tekjustofn í því skyni að veita öllum konum á landinu samþærilegt fæðingarorlof. Skoðana- ~ könnun Skoðanakönnun var gerð á því hverjar ráðstefnugestir teldu helstu orsakir fy.rir lítilli þátttöku kvenna í starfi stéttarfélaga Eftirtaldar ástæður töldu flestir veigamestar: 1. Tvöfalt vinnuálag kvenna á vinnustað og heimili 2. Almenn hlédrægni eða minnimáttarkennd kvenna sem stafar af uppeldislegum fordómum og hefðum 3. Getu og hæfni kvenna er fyrirfram vantreyst af félags- mönnum. 4. Skilningsskortur maka, fjölskyldu og vina 5. Forystuhópur karla tor- veldar þátttöku kvenna. 6. Fræðsla um stéttar- málefni er vanrækt. 7. Lögð er verulega meiri áhersla á hagsmuni og stéttarmálefni karla en kvenna. 99 Undir lok ráðstefnunnar var þetta kveðið: Kvennaráðstefna er þarfaþing þar var gaman að masa og lúra. En þegar allt er komið í kring karlana vantar til að skúra. Valborg Bentsdóttir. 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.