Morgunblaðið - 05.10.1975, Page 18

Morgunblaðið - 05.10.1975, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1975 Fátt virðist nú benda til þess að foreldrar Patriciu Hearst fái dótt- ur sína heim á næstunni ef þá nokkurn tfma aftur. Lögreglan í San Francisco, alríkislögreglan FBI og starfsmenn fylkissaksókn- arans f Californfu hafa byggt mál sitt gegn Patty og félögum hennar Harrishjónunum á svo öruggan og nákvæman hátt, að ekkert nema kraftaverk getur bjargað Patty frá þvf að eyða stórum hluta ævinnar bak við lás og slá. Patty sjálf virðist einnig frekar hafa áhuga á að aðstoða ákæruvaldið en verjendurna. Þegar hún var handtekin af FBI-mönnum f út- jaðri San Francisco í sl. mánuði eftir 19'A mánaðar eltingarleik bar hún skammbyssu f veski sfnu og sagði er lögreglumennirnir stóðu skyndilega f dyrunum á íbúðinni, sem hún hafði leigt: „Allt f lagi þið eruð búnir að ná mér, ekki skjóta, ég kem með ykkur.“ Þegar hún síðan var formlega ákærð fyrir rétti tveim- ur klukkustundum síðar sagði Patty skælbrosandi eftir handtökuna. Catharine Hearst í gleði- vímu eftir að hafa hitt Patty. Frá bankaráninu. Patty miðar sjálfvirkum hrfðskotariffli á viðskipta- vini og starfsmenn bankans, sem liggja á gólfinu. Löng og erfiö réffarhölú eru framundan hjá Patty Hearst Leltin að henni kostaði 800 miiijönlr kr. hún við dómarann, er hann spurði hana um atvinnu: „Borgar- skæruliði," og lyfti krepptum hnefa hægri handar svo glampaði á handjárnin. Patty lét sér greini- Iega hlutina f léttu rúmi liggja, þann tfma sem hún var f réttar- salnum, tuggði tyggigúmmí án af- láts og brosti breiðu sigrihrós- andi brosi til viðstaddra. Eftir að hún hafði verð ákærð um bankarán og brot á reglugerð um skotvopn, sem geta haft allt að 25 ára fangelsi í för með sér var Patty flutt í 8 fm. fangaklefa í San Mateofangelsinu, þar sem hún mun væntanlega verða höfð f haldi þar til réttarhöldunum yfir henni lýkur, en þau munu taka langan tfma, þar sem ákæruskjal- ið telur 23 afbrot. Skömmu eftir að hún var komin í fangaklefann féllst hún á að hitta foreldra sína. Frásagnir af þeim fundi eru ekki allar á sama veg. Foreldrar henn- ar sögðu við fréttamenn, að end- urfundirnir hefðu verið dásam- legir, T>au hefðu öll tárast og Patty sagst vilja koma heim. Hins vegar er haft eftir fangavörðum, sem ekki voru langt undan, að Patty hafi verið fremur kuldaleg í viðmóti við foreldra sína og staðið stif er þau föðmuðu hana að sér. Faðir hennar hafi spurt hana hvort hún væri tilbúin til að koma heim og hún svarað kæruleysis- lega: „Hvert annað ætti ég að fara?“ Woodruff dómari, sem úr- skurðaði Patty í gæzluvarðhaldið ákvað að tryggirrg hennar skyldi vera 1 milljón og 50 þúsund dollarar, sem þýðir að þá upphæð yrðu foreldrar hennar að setja sem tryggingu fyrir að fá hana lausa úr fangelsi og myndi sú upphæð tapast ef hún flýði á brott úr borginni, jafnvel þótt hún næð- ist aftur. Tveimur dögum síðar nam dómarinn trygginguna úr gildi, sagðist vilja fá fyrir því örugga vissu sína hvort treysta mætti því að Patty reyndi ekki að hlaupast á brott. Hefur enn ekki verið tekin endanleg ákvörðun f þvi málí, en verður væntanlega gert f næstu viku, er fyrir liggja niðurstöður geðheilbrigðisrann- sóknar, sem dómarinn fyrirskip- aði. „AUÐVALDSSVlN" Ljóst er að faðir Pattys, blaða- kóngurinn Randolph Hearst, var ekki viss um hvort hann ætti að hætta á að setja áðurgreinda upphæð að tryggingu fyrir dóttur sína. Er fréttamenn spurðu hann um það mál sagðist hann halda að að það væri í lagi. Fréttamenn minna á, að er hann hafði skv. kröfu félaga í Symbóniska frelsis- hernum SLA dreift matvælum fyrir 2 milljónir dollara meðal fátækra í Kaliforníu sem lausnar- gjald fyrir Patty fékk hann í hendur segulbandsspólu, þar sem Patty kallaði hann auðvaldssvín og lygara fyrir að halda því fram, að hann hefði áhyggjur af velferð hennar og „hins kúgaða almennings“ og sagði: „Ég hef ákveðið að ganga í lið með SLA og berjast." Hún tók einnig fram, að hún hefði ekki verið pyntuð, heilaþvegin, dáleidd eða gefin lyf og væri ekki á neinn hátt rugluð í ríminu. Með spólunni fylgdi mynd af Patty með sjálfvirkan riffil, sem varð heimsfræg á svip- stundu. Háifum mánuði seinna tók svo Patty þátt i ráninu á Hiberniabankanum í San Francisco og hafði þá tekið sér nafnið Tania og var vopnuð sama sjálfvirka rifflinum. Myndavélar bankans sýndu svo ekki varð um villst, að hér var á ferðinn Patricia Hearst. Fá orð fá lýst örvæntingu fjölskyldunnar og faðir hennar lýsti yfir í blaða- viðtali: „Þetta er hryllilegt, fyrir 60 dögum var hún yndislegt barn, nú eru myndir af henni í vopnuðu bankaráni. Nokkru síðar voru

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.