Morgunblaðið - 05.10.1975, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNt
UR 5. OKTÓBER 1975
19
félk f
fréttum
Harrishjónin staðin að því að
stela tveimur pörum af sokkum í
sportvöruverzlun í Los Angeles
meðan Patty beið fyrir utan f bíl.
Er hún sá hvað var að gerast
skaut hún úr hriðskotariffli á
verzlunarbygginguna til hjálpar
vinum sínum á flóttanum.
„VOPNUÐ OG
STÓRHÆTTULEG“
Þegar hér var komið sögu hættu
bandarísk lögregluyfirvöld leit
sinni að Patty Hearst sem fórnar-
lambi ræningja og hófu leitina að
„bankaræningjanum Taniu (öðru
nafni Patricia) Hearst, hún er
vopnuð og verður að teljast stór-
hættuleg „eins og sagði á lýsingu
FBI á dreifimiðanum með mynd-
um af henni.“
Líklegast geta fáir gert sér í
hugarlund þá martröð, sem
Hearstfjölskyldan hefur gengið í
gegnum undanfarin tæp tvö ár.
Patty, sem var 19 ára, er henni
var rænt, hafði verið hin dæmi-
gerða bandaríska yfirstéttar-
stúlka með lftinn áhuga á þjóð-
félagsmálum almennt. Hún var í
háskóla og heitbundin ungum og
efnilegum manni Steven Andrew
Weed, sem lagði stund á fram-
haldsnám í heimspeki við
Berkeley. Dagana áður en henni
var rænt var hún ásamt móður
sinni og vinkonum önnum kafin
við að velja mynstrið á kínverska
matarstellið, sem hún ætlaði sér
að eignast er hún gengi í hjóna-
bandið. Þessum þætti lífs hennar
lauk skyndilega er þrir félagar úr
SLA drógu hana hálfnakta út úr
íbúð hennar um nóttina 4.
febrúar 1974, eftir að hafa slegið
unnusta hennar í rot, stungu
henni í farangursgeymslu bif-
reiðar og óku á brott með ofsa-
hraða. Þetta var upphafið að ein-
hverjum mesta eltingarleik FBI í
sögu alríkislögreglunnar, elt-
ingarleikur, sem var nær óslitið á
forsíðum heimsblaðanna unz þær
Patty og vinkona hennar af
japönskum ættum, Wendy
Yoshimura, voru handteknar.
SKOTBARDAGINN
I LOS ANGELES
Upphafið að endinum að þvf er
fregnir herma var 17. maí 1974,
aðeins þremur og hálfum mánuði
eftir að Patty var rænt, er lögregl-
an í Los Angeles hafði upp á 6
félögum SLA í húsi í suðurhluta
borgarinnar og felldi þá alla eftir
heiftarlegan skotbafdaga, sem
sjónvarpað var beint um gervöll
Bandaríkin. Húsið brann til
grunna og í rústum þess fundust
brunnar jarðneskar leifar 6 karla
og kvenna. Óttast var í fyrstu að
Patty hefði verið þar, en hún var
ásamt Harrishjónunum og Wendy
í húsi í nokkur hundruð metra
fjarlægð, þar sem þau fylgdust
með bardaganum í sjónvarpi.
Þegar ljóst var að 6 menningarnir
voru látnir lögðu þau hin á flótta
og þá sem einu eftirlifandi félag-
arnir í SLA. Harris fór þá út og
keypti notaða bifreið sem þau óku
i til San Francisco. Eftir nokkra
dvöl þar, voru þau kynnt fyrir
Jack Scott, kunnum ádeilumanni
og fyrrum íþróttamálastjóra við
háskóla f Ohio, sem hafði látið orð
út berast að hann hefði áhuga á
að skrifa bók um SLA. Scott
bauðst síóan til að aka Patty til
austurstrandar Bandarfkjanna,
en Harrfshjónin og Wendy fóru
aðra leið unz þau öll hittust í New
York. Heimildir herma, að Scott
hafi skömmu eftir að hann lagði
af stað boðið Patty að aka henni
hvert sem hún vildi, m.a. heim til
foreldra hennar, en hún af-
þakkaði það og sagði: „Ég vil fara
þangað sem vinir mínir fara“. Eft-
ir nokkra dvöl í New York, þar
sem þau fengu að dvelja í íbúð,
sem var í eigu félaga úr öfga-
hreyfingunni The Weatherman,
sem þekktust var fyrir ofbeldis-
verk sín á árunum eftir 1960,
töldu þau að lögreglan væri kom-
in á sporið og fluttu þá á sveitabæ
í Poconofjöllum í Pennsylvaniu,
sem FBI-menn segja að tekin hafi
verið á leigu í nafni Micki Scott,
eiginkonu Jacks. Þau hjón hafa
alltaf neitað að svara spurningum
FBI, sem ekki hefur haft nægileg-
ar sannanir á reiðum höndum til
að handtaka þau. Hafa hjónin
gert FBI erfitt fyrir með þvi að
hídda blaðamannafundi og skrifa
greinar, þar sem þau sökuðu lög-
regiumenn um að hundelta þau
og áreita.
RAUÐUR VOLKSWAGEN
Þau dvöldust á sveitabænum
allt sumarið, en flúðu aftur
skömmu áður en lögreglan komst
á sporið, en lögreglumenn fundu
þar fingraför, sem sýndu svo ekki
varð um villst hverjir þar hefðu
verið. Frá sveitabænum héldu
fjórmenningarnir eftir ýmsum
krókaleiðum til vesturstrandar-
innar, alltaf einu skrefi á undan
lögreglunni. Það var þó á sveita-
bænum, sem Iögreglan uppgötv-
aði það atriði, sem að lokum
leiddi til handtökunnar einu ári
sfðar. I New York slóst í för með
þeim Kathleen Soliah, sem átti
rauðan Volkswagen og einhvern
veginn náðist númerið á bílnum,
meðan flóttafólkið var á sveita-
bænum. Við nánari eftirgrennsl-
an komst lögreglan að því hjá
fyrri eiganda bílsins, að Soliah
hefði keypt hann og gefið upp
sem heimilisfang póstbox í San
Francisco. Rannsóknir lögregl-
unnar leiddu í ljós, að hún hafði
verið í vinfengi við ýmsa af SLA-
mönnunum. Þessar staðreyndir
Iágu fyrir í septemberbyrjun og
setti þá lögreglan vörð um
umrætt pósthús til að kanna
hverjir ef einhverjir sæktu póst-
inn. Brátt kom í ljós, að sá sem
sótti póstinn fór með hann í tvö
hús, 288 Recita Ave. og 625 Morse
Street. 18. september náðu svo
lögreglumenn Harrishjónunum,
er þau komu út úr húsinu við
Recita Ave, og skömmu seinna
hlupu tveir lögreglumenn upp
stigann upp á efstu hæð hússins
við Morse Street, án þess áð hafa
hugmynd um hvern þar væri að
finna. Þeir bönkuðu á dyrnar og
Wendy Yoshimura kom til dyra.
Annar lögreglumannanna Tom
Padden frá FBI sagði: „Hreyfðu
þig ekki annars skýt ég höfuðið af
herðum þér.“ Inni í búðinni sáu
þeir aðra konu, sem reyndi að
snúa sér undan, en Padden stökk
að henni og tók i öxl hennar og
sneri henni við og horfði framan í
Patty Hearst. Vinkonurnar vís-
uðu lögreglumönnunum á
skammbyssur, sem voru I veskj-
um þeirra og auk þess fundu þeir
4 aðrar skammbyssur, tvær hlaön-
ar haglabyssur, sem hlaupin
höfðu verið söguð af og miklar
skotfærabirgðir.
VÆTTI BUXURNAR
Newsweek segir í frásögn sinni
af handtökunni: „Lögreglumenn-
irnir fóru sér að engu óðslega og
leyfðu Wendy að setja á sig augn-
linsurnar og Patty að finna
gleraugun sín og skipta um bux-
ur, þvf að henni varð svo um er
hún sá lögreglumennina að hún
vætti þær. Patty var kjökrandi, er
lögreglumennirnir leiddu þær
niður stigann. Padden spurði
Patty hvort hún væri ekki fegin
að þessu væri lokið, en hún Ieit
bara á hann án þess að segja orð.
Fyrir utan húsið var múgur og
margmenni, þvf að strax og
Padden sá að hann hafði hand-
F. Lee Bailey foringi
verjendaliðs Hearstfjöl-
skyldunnar.
Húsið við Morse Street,
þar sem Patty og Wendy
bjuggu.
Harrishjónin og Wendv Yoshimura.
Charles Bates, yfirmaður FBI-
skrifstofunnar f San Franeiseo, sem
stjórnaði leitinni að Patty f 19 erfiða
niánuði.
Frá skotbardaganum f Los Angeles f maí 1974.
tekið Patty hringdi hann í yfir-
mann sinn frá FBI í San
Franeisco og sagði: „Við höfum
náð Patriciu Hearst.“ „Vel gert,“
svaraði yfirmaður hans Charles
Bates, 55 ára gamall með 34 ára
starf hjá FBI, en það var hann,
sem stjórnaði leitinni að Patty f
rúma 19 erfiða mánuði og efaðist
aldrei um að hann fyndi Patty að
lokum. Bates sendi fjölda lög-
reglubíla á staðinn í öryggisskyni
og blaðamenn hópuðust að í tuga-
tali. Þegar út kom virtist Patty
hafa jafnað sig, því að hún brosti
sigrihrósandi til ljósmyndaranna
og lyfti krepptum hægri hnefa,
eins og sést á myndunurh, sem
samstundis voru sendar út um
allan heim.
Við frekari rannsókn kom í ljós,
að það varr bróðir Kathleen,
Steven Soliah, sem hafði tekið
fbúðirnar tvær á leigu og var
hann handtekinn daginn eftir og
ákærður fyrir að hafa falið flótta-
fólk.
Þegar FBI-menn settust niður
eftir handtökurnar og nutu óspart
blaðaskrifanna um sig og fóru að
reikna dæmið kom í ljós, að allt að
300 lögreglumenn unnu að
málinu í einu, þeir yfirheyrðu eða
könnuðu hagi 30 þúsund rnanna
og kostnaðurinn fyrir bandaríska
skattgreiðendur er áætlaður um 5
milljónir dollara eða 825 milljónir
ísl. króna. Það finnst FBI-
mönnum þó lágt verð fyrir það
endurvakta traust og virðingu,
sem þeir telja að handtakan muni
hafa í för með sér hjá almenningi.
ARALÖNG RÉTTARHÖLD
En máli Patty Hearst er langt
frá þvf að vera lokið. Nú eru
framundan réttarhöld, sem geta
tekið ár og daga með öllum þeim
áfrýjunarmöguleikum, sem
bandarískt réttarkerfi býður upp
á. Hearst-fjölskyldan hefur ráðið
5 ha>fa og eitilharða lögfræði'nga
til að verja Patty Og er foringi
liðsins F. Lee Bailey, en kunnasti
sakamálalögfræðingur Bandarfkj-
anna, sem m.a. varði og fékk
Medina höfuðsmann sýknaðan af
ákærunni um M.v Lai fjölda-
morðin og varði einnig Boston-
morðingjann De Salvas. Verjend-
urnir hafa frá upphafi lagt
áherzlu á, að ekki verði hjá því
komist f þessu máli, að leggja til
grundvallar, að upphafið að þessu
tímabili í Iffi Patriciu var, er
henni var rænt með ofbeldi að
næturlagi af yfirlýstum bylt-
ingarmönnum, „sem héldu henni
innilokaðri í klæðaskáp í 9 vikur
unz hún var svo niðurbrotin
manneskja, að lifsbjargarviðleitni
hennar knúði hana til að biðja um
inngöngu í hreyfinguna og af-
neita og fordæma foreldra sína til
að þóknast sinum nýju herrum og
taka þátt í vopnuðu bankaráni til
að sanna einlægni sína.“
Þetta eru vissulega sterk rök,
en ákæruvaldið hefur einnig
sterk rök sin megin. Þeir hafá
með höndurn yfirlýsingar á segul-
bandsspólum, þar.sem Patty játar
á sig bankaránið og lýsir bylt-
ingarskoðunum sínum. Það liggur
lfka fyrir að eftir skotbardagann i
Los Angeles gat Patty að vild
ferðast um og henni stóð opin leið
að snúa heim til foreldra sinna.
Spurningin er hvers vegna káus
hún flóttann og ferðast um vel
vopnum búin. Það verður erfitt
að finna svar við þeirri spurn-
ingu, kannski veit það engi.nn
maður, ekki einu sinni Patty.
(New York Tinies, Time,
Newsveek, AP).