Morgunblaðið - 05.10.1975, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTOBER 1975
37
Tvímælalaust á
að virkja Blöndu
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt samhljóða á fundi
hreppsnefndar Höfðahrepps 22.
sept. sl.:
Hreppsnefnd Höfðahrepps
fagnar þeirri yfirlýsingu iðnaðar-
ráðherra á sl. vetri um að næsta
stórvirkjun hérlendis verði á
Norðurlandi vestra, og hvetur til
þess að ákvörðun þar að lútandi
verði tekin fyrir árslok 1975.
Það er skoðun hreppsnefndar
Höfðahrepps, að svo margt hafi
komið fram, sem ótvírætt mæli
með því að Blanda verði virkjuð,
að það eigi tvímælalaust að ráðast
i þá framkvæmd og ítrekar
hreppsnefndin þá skoðun sína, að
brýnt sé að ákvörðun verði tekin
nú innan tíðar og síðan undirbún-
ingi og byggingu orkuvers hraðað
svo sem kostur er.
Þú leggur hreppsnefndin
áherzlu á, að samfara byggingu
stórs orkuvers á Norðurlandi
vestra, þá verði unnið að áætlun
um nýtt eða ný öflug iðnfyrirtæki
á svæðinu, sem nýti þá orku sem
fæst, og á þann hátt stutt að vexti
og viðhaldi þeirra byggða, sem
svo lengi hafa átt við ramman
reip að draga í atvinnumálum, en
nú eygja möguleika verulegs
vaxtar og uppbyggingar.
Opinber há-
skólafyrirlestur
Dr. Gerhard Nickel, prófessor við
háskólann f Stuttgart, flytur opin-
beran fyrirlestur í boði heim-
spekideildar Háskóla Islands
fimmtudaginn 9. október n.k. kl.
17.15 í stofu 201 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og nefnist: Contrastive
Linguistics and Foreign Langu-
age Teaching
öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
Golf
BILL, SEM BYÐUR UPP A NÝJA MÖGULEIKA
Hann er 3.70 m. langur og
1 .60 m. breiður og er því einn
af styttstu og breiðustu bílum í
sínum flokki.
Þó er hann „fullvaxinn" fólksbíll,
reyndar mjög rúmgóður fimm
manna fjölskyldubíll. Farangurs-
rýmið er 350 lítrar, en það er
hægt að stækka um helming
eða í 698 lítra með einu hand-
taki.
Ef þér lítið undir vélarlokið, þá
sjáið þér eina af ástæðunum
fyrir því, að Golfinn er svo stutt-
ur. Vélin er staðsett þversum.
Tvær vélarstærðir er um að
ræða 50 hö og 70 hö. Benzín-
eyðslan er 7—8.9 I. á 100 km.
Golfinn er fáanlegur tveggja
dyra og fjögurra dyra, auk aftur-
hurðar.
Golfinn er mikill bíll
og býður upp á mikla
möguleika.
— og þér munið njóta hans vel.
Sýningarbíll
á staðnum
HEKLA H.F.
LAUGAVEGI 170—172 — SÍMI 21240
Heimsfrægar glervörur, kunnarfyrir lisffenga hönnun
og frumlegt útlit. littala glervörur eru ein
fallegasta tækifærisgjöf, sem hægt er að hugsa sér.
Komið og skoðið úrvalið í verzlun okkar.
HUSGAGNAVERZLUN
KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavegi 13 Reykjavik sími 25870
J vxrt
INNLENT LÁN
RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS
197S 2.FL.
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
Með heimild í lögum nr. 11/ byggingarvísitala, sem Hag-
1975, auk heimilda eldri laga
til þess að gefa út ný spari-
skírteini í stað þeirra, sem
upphaflega voru útgefin og
innleyst hafa verið að við-
bættri verðlagsuppbót, hefur
fjármálaráðherra, f. h. ríkis-
sjóðs, ákveðið útgáfu og sölu
á spariskírteinum ríkissjóðs
1975 — 2. fl., að fjárhæð allt
að 300 millj. kr.
Kjör skírteina eru í aðalatr-
iðum þessi: Meðaltalsvextir
eru um 4% á ári, þau eru lengst
til 18 ára og bundin til 5 ára frá
útgáfu.
Skírteinin eru verðtryggð
og er grunnvísitala þeirra sú
stofan skráir miðað við 1.
nóvember n. k.
Skírteinin eru skattfrjáls og
framtalsfrjáls á sama hátt og
verið hefur. Þau skulu skráð á
nafn.
Skírteinin eru gefin út í
þremur stærðum, 5.000, 10.000
og 50.000 krónum.
Sala skírteinanna hefst 7.
þ. m., og eru þau til sölu hjá
bönkum, bankaútibúum og
innlánsstofnunum um allt land
svo og nokkrum verðbréfa-
sölum í Reykjavík.
Sérprentaðir útboðsskilmál-
ar liggja frammi hjá þessum
aðilum.
Október 1975.
SEÐLABANKI ÍSLANDS