Morgunblaðið - 05.10.1975, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1975
39
Minning:
Karl G. Pálsson
bifreiðarstjóri
Fæddur 18.6. 1903
Dáinn 26.9. 1975.
Smátt og smátt falla greinarnar
af hlyn aldamótastofnsins eftir
því sem árin líða. Nú kveðjum við
vinir og samstarfsfólk Kalla Páls
bifreiðarstjóra hjá Bæjarleiðum
hinztu kveðju, en hann andaðist
eftir stutta sjúkralegu á Landa-
kotsspítalanum eða nánar tiltekið
föstudaginn 26. sept. síðastliðinn.
Hann hafði átt við sjúkdóm að
stríða um margra ára skeið, en
síðustu þrjú árin var hann
óvinnufær, þó ávallt hann hefði
fótavist, sem færði honum þá
ómetanlegu ánægju að geta heim-
sótt, meðal annars starfsfélagana
á Bæjarleiðum og bílaverkstæði
Mjólkursamsölunnar, enda
aufúsugestur þar sem hann kom
og bar með sér hlýja vorblíðu og
einlæga brosmildi sem yljaði
þeim sem aðnjótandi urðu.
Nú er við starfsfélagar Kalla
Páls sjáum á bak okkar góða
félaga, minnumst við hins dags-
farsprúða félaga, bæði í starfi og
leik.
í>ó gat Kalli Páls verið fastur
fyrir, ef um alvarlega hluti var að
ræða, enda lifði hann tímana
tvenna með þeirri kynslóð sem
upplifað hefur stórbrotnar fram-
farir á flestum sviðum þjóðlífsins,
frá fátækt til velmegunar, og mun
vart önnur kynslóð eiga eftir að
upplifa slíkt.
Kalli Páls var fæddur 18. júní
1903 að Lækjarbotnum í Sel-
tjarnarneshreppi, foreldrar hans
voru þau hjónin María Sigurðar-
dóttir og Páll Gestsson bóndi. Þau
eignuðust þrjá syni, Vígmund,
Karl og Einar, auk uppeldissonar,
Aðalsteins Vígmundssonar. Með
foreldrum sínum fluttist Kalli
Páls frá Lækjarbotnum að Eiði,
síðan að Lágafelli í Mosfellssveit,
þar sem hann hóf sinn bifreiðar-
stjóraferil hjá Boga Þórðarsyni.
Frá Lágafelli fluttist hann árið
1920 að Leynimýri í Reykjavík.
Kalli Páls var bæði bifreiðar-
stjóri og bifvélavirki og starfaði
við báðar atvinnugreinarnar
ýmist hjá sjálfum sér eða öðrum.
Eins og áður er getið hóf Kalli
Páls bifreiðaakstur hjá Boga
RAFTORG
Þórðarsyni á Lágafelli, siðan hófu
þeir bræður Kalli og Vigmundur
samstarf um rekstur hálfkassa-
bifreiðar til fólks- og vöruflutn-
inga i Mosfellssveit, Kjalarnesi og
Kjós.
Kalli Páls hóf fyrstur áætlunar-
ferðir fyrir fólksflutninga frá
Reykjavik til Mosfellssveitar,
með rútu sem hafði afgreiðslu á
B.S.R. En síðustu 20 árin ók hann
eigin bifreið frá Bifreiðastöðinni
Bæjarleiðum. Hann starfaði
ennfremur við bifvélavirkjun hjá
Páli Stefánssyni og bílaverkstæði
Mjólkursamsölunnar.
Eftirlifandi kona Páls er Jóna
V. Guðjónsdóttir, sem er borin og
barnfædd Reykvíkingur, og stofn-
uðu þau sitt eigið heimili 1 litla
timburhúsinu á Grettisgötu 48b,
og hafa búið þar alla tíð. Þau hafa
með samstilltu átaki breytt
húsinu, eftir efnum og ástæðum, í
mjög vinalegar og hlýlegar vistar-
verur. Þau hjónin Jóna og Kalli
Páls eignuðust tvö börn, dóttur
sem dó á fyrsta ári og Ölaf Karls-
son tannlækni, sem kvæntur er
Guðrúnu Árnadóttur, þeirra börn
eru Jón Karl, 17 ára, Ingunn, 12
ára, og Valdis, 6 ára, fædd á
giftingardegi ömmu og afa, 19.
nóvember. Sambúð þeirra hjóna
Jónu og Kalla Páls var að þvi er
ég bezt veit með ágætum, enda
Jóna kona til fyrirmyndar eftir
því sem mér hefur komið fyrir
sjónir, af mínum kynnum við
hana. Þau voru samhent um upp-
eldi sonarins, enda þeirra sólar-
geisli, sem aldrei hefur brugðizt
þeirra björtustu vonum, því Óli
Karls er sá persónuleiki sem
trausts þeirra er fyllilega verður.
Eigi má gleyma barnabörnunum,
sem veittu ömmu og afa yl og
ánægju, bæði i litlu vinalegu
íbúðinni á Grettisgötu 48b, svo og
einnig í sumarbústað Öla við
Meðalfellsvatn í Kjós, en þar
dvöldu þau mörgum stundum,
Jóna og Kalli Páls, ásamt fjöl-
skyldu Öla í faðmi fagurra fjalla
sem endurspegluðust í blátæru
Meðalfellsvatni, sannkallaðir
unaðsdagar.
Kalli Páls var mjög áhugasam-
ur um ferðalög og kunni vel að
meta fegurð landsins. Sem dæmi
má nefna að honum héldu engin
bönd og fór hann hringveginn
strax og hann var opnaður og i
sumar fóru þau hjónin Jóna og
Kalli ein síns liðs i vikuferðalag
til Norðurlands eða alla leið til
Svalbarðseyrar, en þar naut hann
kjarks og dugnaðar lífsförunauts
sýns, því svo fársjúkur var hann
að ekki gat hann óstuddur gengið
frá eða til bíls ef út var farið.
Mikill kjarkur það, ekki sízt hjá
Jónu. Rétt eftir þessa ferð fóru
þau hjón með Óla syni sinum og
fjölskyldu í ferð yfir Kjöl og
lánaðist allt vel.
Þessar ferðir urðu Kalla Páls
ógleymanlegar unaðsstundir, sem
vafalaust léttu honum byrðarnar.
Ekki má gleyma í þessum fátæk-
legu skrifum um Kalla Páls
hinum árvissu heimsóknum hans
í Hafravatnsrétt. Hlakkaði hann
alltaf mikið til löngu fyrir fram til
réttanna og að hitta þar gamla
vini og kunningja, ræða við þá og
láta fleyg á milli ganga, að
gömlum og góðum réttasið.
Að leiðarlokum þökkum við
vinir og samstarfsfólk Kalla Páls
samverustundirnar, minningin
um hann mun geymast meðal
okkar um ókomin ár. Við biðjum
honum fararheilla til fyrirheitna
landsins.
Kalli Páls verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík, mánu-
daginn 6. október kl. 13.30.
Jónu eiginkonunni, Óla einka-
syni, konu hans og börnum, svo og
öðrum ættingjum og vinum, færi
ég fyrir mína hönd, starfsfélaga
og vina, innilegar samúðarkveðj-
ur.
Ég þakka Kalla Páls fyrir ein-
læga og fölskvalausa vináttu um
leið og ég óska honum góðrar
heimferðar.
Þorkell Þorkelsson,
Bæjarleiðum.
K.F.U.K. Vindáshlíð
Hlíðarkaffi
verður selt í húsi K.F.U.M. og K. Amtmanns-
stíg 2B í dag, sunnudaginn 5. október, til
ágóða fyrir starfið í Vindáshlíð. Kaffisalan hefst
kl. 3 e.h. Einnig verður Hlíðarsamkoma kl.
20.30 og kaffi á boðstólum á eftir.
Komið og drekkið síðdegis- og kvöldkaffið hjá okkur.
Stjórnin.
íjor
að vetri til
Ef þér eigið leið til höfuðborgarinnar, í verslunarerindum,
í leit að hvíld eða tilbreytingu, þá býður Hótel Esja gott
tækifæri til þessara hluta. Gisting á Hótel Esju er ekki
munaður, heldur miklu fremur sjálfsögð ráðstöfun. Hótel
Esja er í allra leið. Strætisvagnaferðir í miðbæinn á 10
mínútna fresti, svo að segja frá hóteldyrunum. Opinberar
stofnanir, sundlaugarnar og íþróttahöllin í Laugardal,
skemmtistaðir og verslanir eru í nágrenninu, og síðast en
ekki síst: Við bjóðum vildarkjör að vetri til.
Velkomin á Hótel Esju
w
Suðurlandsbraut 2, Sími 82200.