Morgunblaðið - 05.10.1975, Síða 46

Morgunblaðið - 05.10.1975, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1975 46 Með haustinu vaknar að nýju áhugi fólks á kvikmyndum, og þá taka stóru dreififyrirtækin við sér og bjóða betri myndir en á boðstólum hafa verið i hitum sumarsins. „Myndir ársins“ koma flestar upp á yfirborðið i desember- mánuði. Þá er aðsóknin i há- marki, og eins þarf að frum- sýna myndir fyrir áramót til að þær komi til greina við næstu OSCARsverðladnatilnefningu, (í febrúar ár hvert, en verð- launin eru afhent I byrjun april). Flestar OSCARsverð- launamyndirnar hafa einmitt verið jólamyndir dreifihring- anna, þó að öllum líkindum verði ekki svo í vor. Þá má reikna með að hin víðfræga JAWS hreinsi öll verðlaunin, en hún var frumsýnd í sumar. Páskarnir eru einnig mjög ánægjulegur tími fyrir kvik- myndaunnendur. Þá er að- sóknin mjög mikil um allan heim, og þá hafa margar beztu myndir allra tíma fyrst komið fyrir almenningssjónir. Að þessu sinni er Kvik- myndasíðan helguð þeim myndum sem eiga eftir að gleðja erlenda kvikmyndahús- gesti i haust og vetur, og okkur vonandi sem fyrst. Hér verður aðeins drepið á myndir áhuga- verðustu leikstjóranna og Ieik- aranna, — myndir sem flestar eiga eftir að slá í gegn og for- vitnilegt verður að fylgjast með. STÓRMYNDIRNAR 0 George C. Scott, Anne Bancroft, Burgess Meredidth og Roy Thinnes fara með aðal- hlutverkin í nýjustu „stórslysa- mynd“ Universal, THE HINDENBURG. Segir hún í smáatriðum frá þeim atvikum sem urðu þess valdandi að hið risastóra samnefnda loftfar Þjóðverja varð eldi að bráð í New Jersey árið 1937. 0 Malcolm McDowell, sem við munum eftir úr myndunum OH, LUCKY MAN og A CLOCKWORK ORANGE, birt- ist bráðlega á tjaldinu í nýjustu ævintýra- og skylmingamynd Richard Lester, ROYAL FLASH. McDowell fer með hlutverk húsarakapteins, sem er skúrkur hinn mesti og hefur valið sér til fylgilags ekki óvænni menn en þá Alan Bates og Oliver Reed. 0 I myndinni MIDWAY á garpurinn Charlton Heston næstum aleinn í höggi við obb- ann af hinum japanska flota síðari heimsstyrjaldarinnar. Þó að Heston sé til alls vis, þá ku víst koma honum til einhverrar hjálpar þeir garparnir Robert Mitchum, Henry Fonda og Glenn Ford, menn fullharðn- aðir úr fjölda strfðsmynda. • Það kannast sjálfsagt margir við hina sígildu sögubók Kipl- ings, THE MAN WHO WOULD BE KING. Það eru þeir Sean Connery og Michael Caine sem reyna að ná þvi langþráða marki i nýjustu mynd gamla, góða John Huston. 0 Richard Lester er ekki enn búinn að fá leið á hressilegum ævintýramyndum, og húrra fyrir því, þvi að absúrd-fyndni hans nýtur sín hvergi betur. Og sú mynd sem hann er að fást við þessa dagana suður á Spáni lofar aldeilis góðu. Hún nefnist „ROBIN AND MARIAN. Robin er sjálfur Hrói Höttur og ekki leikinn af ómerkari manni en Sean Connery. Hin undurfagra Audrey Hepburn leikur Marian, en þetta er fyrsta hlut- verk leikkonunnar í ein sex, sjö ár, eða allár götur síðan hún krækti í ítalska lækninn sinn. Með önnur stór hlutverk í myndinni fara þeir Nicol Williamson, Richard Harris og Robert Shaw. 0 Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan kvikmyndatakan hófst á fyrstu bandarísk- rússnesku myndinni, sem gerð hefur verið, THE BLUE BIRD. En nú hefir verið ákveðið að frumsýna myndina á næstu páskum, þá sjálfsagt samtímis í Washington og Moskvu. Eliza- beth Taylor, Cicely Tyson, Jane Fonda og Ava Gardner fara með aðalhlutverkin. Synd að hún er ekki frumsýnd á kvennaárinu! 0 Hrossagaukur brezkrar kvikmyndalistar, Ken Russel, vinnur nú af krafti að mynd- inni LIZTOMANIA. Segir hún frá ævi tónskáldsins Lizt. Verð- ur þetta örugglega skemmtilegt framlag sérvitringsins og þeir Roger Daltry (Tommy) og Ringo Starr, sem leikur páfann, fara með aðalhlutverkin. 0 Martin Scorsese (undirrit- aður bíður með óþreyju mynd- ar hans MEAN STREETS, ku vera væntanleg í Austurbæjar- bió) vinnur nú að gerð ann- arrar New York-myndar, TAXI DRIVER. Hún fjallar um leigu- bílstjóra sem gerist Iaunmorð- ingi. Hinn upprénnandi leikari Robert De Niro og Cybill Shep- herd skipa helztu hlutverkín. STJÖRNUSKINIÐ 0 Liza Minelli, hver vann OSCARsverðlaunin í hitteð- fyrra fyrir CABARET, hefur nú snúið sér að kvikmyndaleik aftur, í myndinni LUCKY LADY, sem Stanley Donen leik- stýrir þessa dagana suður i Mexico. Félagar hennar i smyglævintýri þar syðra eru ekki af lakari endanum, Gene Hackman og Burt Reynolds. 0 Charles karlinn Bronson (hélt nýlega uppá fimmtíu og fimm ára afmælið sitt) er nú með þrjár myndir á leiðinni. Ein þeirra fjallar um kreppu- árin þar vestra og heitir að sjálfsögðu HARD TIMES. Hinar eru SHOWDOWN AT BREAKHEART PASS og FROM NOON UNTIL THREE. Báðar ekta vestrar, ekkert spaghetti er nú á borðum hetj- unnar. 0 James Caan á í höggi við þrjá leigumorðingja í nýjustu mynd harðjaxlsins Sam Peckin- pah, THE KILLER ELITE. Hún er sögð vera, hvort sem þið trúið því upp á Peckinpah eða ekki, í Kung Fu stfl! 0 Annar leikstjóri, sem er uppfullur af „machismo", Robert Aldrich, er að Ijúka við mynd um morðmál. Hinn vin- sæli Burt Raynolds fer með aðalhlutverkið. Þeir félagar gerðu myndina THE LONGEST YARD fyrir ári síðan. 0 Gamli meistarinn Hitchcock vinnur nú að gerð myndarinnar FAMILY PLOT. Efnið er ekki ókunnugt gamla manninum, sumsé demantaþjófnaður og mannrán. Með titilhlutverk fara Barbara Harris, Karen Black og Bruce Dern. 0 Francois Truffaut hefur nú lokið við nýjustu mynd sina, THE STORY OF ADELE H. Segir hún frá hinni einmana dóttur Victors Hugo. 0 LACOMBE, LUCIEN var af flestum talin ein bezta mynd síðasta árs, og langbezta mynd Louis Malle, sem nú vinnur að mynd sem á að gerast í framtfð- inni, enda um stríð milli kynj- anna. Það furðulegasta við myndina er þó kannski að Joe Dallesandro, (úr Warholmynd- unum) fer með stærsta hlut- verkið. 0 Hinn frábæri grínisti og gamanleikari Gene Wilder hefur nú lokið við nýjustu mynd sína, SHERLOCK HOLMES SMARTER BROTH- ER, en hún er jafnframt fyrsta myndin sem hann leikstýrir. Hún segir af Sigerson Holmes, sem er vitlaus í öfund út í stóra bróður . .. Madeline Kahn og Marty Feldman leika með kapp- anum. Þið megið örugglega gæta að ykkur, Allen og Brooks! Nýjasta mynd þeirra félaga Sidney Lumet og A1 Pacino (SERPICO, og hvenær er von á henni Friðfinnur) nefnist DOG DAY AFTERNOON. Segir hún frá kynvillingi (Pacino), sem rænir banka til að geta komið kærastanum sfnum í kynbreyt- ingu. Ja sveiattan!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.