Morgunblaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKT0BER 1975
T
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1975
21
Úthalðið brást hjá KA
I æsispcnnandi leik á laugardag sigraði ÍR KA með 21
marki gegn 19. Lengst af leiit út fyrir sigur KA, en á
slðustu mfnútunum brást úthaldið, auk þess sem reynsla
iR-inga tók að segja til sín.
iR-ingarnir skoruðu fyrsta mark leiksins, en KA
jafnaði þegar og komst yfir. Akureyringarnir höfðu
sfðan forystu nær allan leikinn, eða allt þar til sjö mfn.
voru til leiksloka, þegar staðan var 19 mörk gegn 17 KA f
vil, að allt small f baklás og tR-ingar skoruðu fjögur
síðustu mörkin. I leikhléi hafði KA betur, 12 gegn 8.
Það leikur ekki á tveimur tungum að IR og KA eru
meðal sterkari liðanna f deíldinni. Samt er ýmislegt f
leik liðanna sem má betur fara. Það var t.d. eftirtektar-
vert hve vörn IR var lengst af slök. I þeim efnum gætti
þess áhugaleysis sem hefir verið einkcnnandi í leik
iR-inga undanfarin ár og komið f veg fyrir að IR bland-
aði sér f baráttu sterkari handknattleiksiiða á landinu.
iR-ingarnir hafa yfir að ráða mörgum snjöllum skyttum
og þurfa þvf ekki að kvfða hv'að söknarleikinn áhrærir, ef
þeim tekst að útfæra hann hetur.
Leikmenn KA léku þennan leik lengst af skynsamlega.
Ilalldór Rafnsson átti stórlefk, allt þar til um 15 mín.
voru til leiksloka að hann för að gera hverja vitleysuna á
fætur annarri. enda búinn að leika nær allan tfmann af
miklum krafti. Skiptingarnar hjá KA voru sem sagt ekki
í lagi og mistökin þar urðu dýrkevpt að þessu sinni,
kostuðu tvö stig. Þrátt fvrir þetta tap þarf KA-liðið ekki
að örvænta, þvf 2. deildin f ár er með jafnasta móti og
eiga liðin áreiðanlega eftir að re.vta stigin hvert af öðru.
Maður leiksins var Armann Sverrisson KA.
Rómarar voru Gunnar Kjartansson og Grétar
Vilmundarson, og gerðu þeir erfiðum ieik ágæt skil.
Mörk IR: Brynjólfur Markússnn 5 (Iv), Vilhjálmur
Sigurgeirsson 5 (öll vfti), Agúst Svavarsson 4, Gunnlaug-
ur Hjálmarsson 3, Bjarni Hákonarson 2, Guðjón
Marteinsson og Sigurður Svavarsson eitt mark hvor.
Mörk KA: Halldór' Rafnsson 8 (2v), Hörður
Hilmarsson 4, Þorleifur Ananfasson og Armann
Sverrisson 2 hvor, Sigurður Sigurðsson, Jóhann
Einarsson og Hermann Haraldsson eitt mark hver.
SigKG.
Fljúgandi byrjiui IR-inga
Hún er góð byrjunin hjá tR-ingum í 2. deildinni að
þessu sinni. Um helgina léku þeir gegn Akurcyrarfélög-
unum fyrir norðan og sigruðu í báðum leikjunum, úrslit
sem koma nokkuð á óvart þvf Akureyrarfélögin hafa
löngum þótt erfið heim að sækja.
Það kom fljótlega í Ijós að fR-ingarnir voru sterkari
aðilinn á veilinum. Þó tókst þeim ekki að hrista Þórsar-
ana af sér fvrr en nokkuð var liðið á síðari hálfleik, eða
þegar þeir tóku einu skyttu Þórsara, Þorbjörn Jensson,
úr umferð, en hann hafði skorað fimm af átta mörkum
Þórs f fvrri hálfleik. Eftir það var ekki að sökum að
spyrja og ÍR sigraði með 22 mörkum gegn 15, eftir að
staðan var 9 mörk gegn 8 IR f vil f hálfleik.
fR-ingarnir áttu ekki f miklum erfiðleikum með að
verjast Þórsurum þvf sóknarleikurinn var ákaflega
slakur. AHt miðaði að þvf að sóknunum lyki með skotum
frá Þorbirni og þegar hann var tekinn úr umferð hrundi
leikur liðsins með öllu. Með svo einhæfum leik er
Þórsliðið ekki líklegt til að blanda sér í baráttu þeirra
bestu. Þá veikir það liðið og að markvörðurinn, Tr.vggvi
Gunnarsson, er meiddur og getur ekki leikið með á
næstunni.
tR-ingarnir virðast ætla að verða sterkir f vetur, stað-
ráðnir í að endurheimta 1. deildar sætið, sem þeir
giötuðu f fyrra. Áhuginn virðist alia vega vera meiri nú
en f fyrra. Vörnin er höfuðverkur liðsins og batni hún er
ekki fjarri þvf að álykta að iR sigri í deildinni. Alla vega
er byrjunin fljúgandi hjá liðinu.
Maður leiksins var Jens Einarsson, markvörður IR.
Dómarar voru þeir sömu og daginn áður, Gunnar
Kjartansson og Grétar Vilmundarson, og voru heldur
óöruggir f leiknum á sunnudag.
Mörk IR: Brynjðlfur Markússon 6 (Iv), Vilhjálmur
Sigurgeirsson 5 (3v). Ágúst Svavarsson 4 (2v), Bjarni
Hákonarson, Hörður Hákonarson og Gunnlaugur
Hjálmarsson 2 hver, Guðjón Marteinsson og Ulfar
Samúelsson eitt mark hvor.
Mörk Þórs: Þorbjörn Jensson 8, Sigtrvggur Guðlaugs 4
(1 v) Benedikt Guðmundsson 2 og Oskar Gunnarsson eitt
mark. Sigb.G.
Ingi Björgvinsson, einn hinna efnilegu leikmanna KR, skorar þarna í leiknum við Leikni. Hermann Gunnarsson
þjálfari Leiknismanna hefur orðið of seinn að stöðva hann.
Leiknir var KR anðveld bráð
KR-ingar þurftu ekki mikið að hafa fyrir sigri f fyrsta
leik sfnum f 2. deildar keppninni f handknattleik í ár.
Mótherjarnir, Leiknir, voru næsta auðvcldur and-
stæðingur, enda urðu úrslit leiksins í Laugardalshöllinni
á sunnudagskvöldið yfirburðasigur KR-inga, 29—16, eft-
ir að staðan hafði verið 15—9 í hálfleik. Oftast fengu
KR-ingar að vaða gegnum galopna vörn Leiknismanna,
og það var fremur klaufaskapur þeirra en hæfni Leiknis-
manna að mörkin urðu ekki fleiri, en greinilegt er að lið
Leiknis er nú mun slakara en það var t.d. f bikarkeppni
HSl f fyrra, þar sem það komst í undanúrslit. Með meirj
æfingu ætti liðið þó að hressast og varla þarf það að kvíða
falli niður f 3. deild f ár.
Flestir spá þvf að KR-ingar muni berjast á toppnum f 2.
deild í vetur, enda bendir frammistaða liðsins f Reykja-
víkurmótinu til þess að svo verði. Ohugsandi er að segja
nokkuð til um styrkleika liðsins eftir leikinn á sunnu-
dagskvöldið. Til þess var andstæðingurinn of léttur, en
auðséð er þó að Geir Hallsteinsson þjálfari liðsins, hefur
náð að slfpa helztu vankantana af því, og með meiri
rósemi f Jeik getur liðið sjálfsagt gert stóra hluti.
KR-ingar tóku forystu I leiknum á sunnudagskvöld
þegar f upphafi, og juku hana síðan jafnt og þétt. Færin
sem þeir fengu við Leiknismarkið voru oft ævintýralega
góð, og stundum voru tveir—prír menn í dauðafærum.
Beztu leikmenn KR-liðsins f ieiknum voru þeir Símon
Unndórsson sem er skotfastur vel, en helzt til óagaður I
leik sfnum, Hilmar Björnsson, sem átti drjúgan þátt f
spili liðsins, a.m.k. meðan hann var ekki tekinn úr
umferð, og Kristinn Ingason, þar er mjög efniiegur
piltur á ferð.
Leiknisliðið var ákaflega tætingslegt, en með meiri
æfingu ætti þó þetta Jið að geta náð árangri. 1 þvf eru
margir reyndir handknattieiksmenn, sem ættu að vita að
það er ekki nóg að skora mörk — það þarf líka að verjast
mörkum. Beztu menn liðsins f leiknum voru Hafliði
Pétursson, Finnbjörn Finnbjörnsson og Halldór Björns-
son, en ögmundur Kristinsson var einnig frískur framan
af og ógnaði nokkuð.
iMörk KR skoruðu: Sfmon Unndórsson 9 (2 vfti),
Hilmar Björnsson 5 (2 vfti), Kristinn Ingason 4, Þor-
varður Jón Guðmundsson 4, Ingi Steinn Björgvinsson 3,
Björn Blöndal 2, Haukur Guðmundsson 1 og /Evar Sig-
urðsson 1.
Mörk Leiknis skoruðu: Finnbjörn Finnbjörnsson 4,
Hafliði Pétursson 4, Ilermann Gunnarsson 3, Arni
Jóhanncsson 2, Diðrik Olafsson 1 og Ögmundur Kristins-
sonl(víti). —stjl.
Hilmarsson hefur smeygt sér inn á lfnu framhjá Þróttarvörninní, en mistókst svo að skora.
Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
Hart barizt f leik Vals og Hauka. Hörður Sigmarsson hefur sloppið f gegn, en Jóhannes Stefánsson náði á sfðustu stundu að hindra að
hann næði að skjóta.
Þegar Valsmenn Jireytlnst tékst
Hankiim að loka vbmmni og ná jöfnn
Leikur Vals og Hauka f 1. deildar keppni Islandsmótsins f
handknattleik f Laugardalshöllinni á sunnudagskvöld minnti á þá
gömlu og góðu daga er Valur og FH börðust hnffjafnri baráttu um
Islandsmeistaratitilinn; þann tfma er vörn Valsliðsins var kölluð
mulningsvélin og baráttan stóð frá fyrstu mfnútu til sfðasta andar-
taks. Þannig var í leiknum á sunnudagskvöldið, að bæði liðin léku
mjög góða vörn og markverðirnir stóðu fyrir sínu. Það voru heldur
ekki skoruð nema 26 mörk f leiknum og það segir auðvitað sfna
sögu. En þreyttir voru leikmenn þegar flauta dómaranna hljómaði
að leikslokum, og raunar var svo komið í þessum leik, að það var
úthaldið eitt sem skar úr um úrslit hans. Og þar höfðu Haukar
vinninginn. Þegar seinni hálfleikurinn var hálfnaður mátti segja
að þeir væru með tapað tafl. Staðan var orðin 13—9 fyrir Val og
vörn Valsmanna hafði sýnt það í leiknum, að ótrúlegt var að
Haukunum tækist að vinna upp þennan mun. En sú hin mikla
„keyrsla“ sem verið hafði á Valsvörninni f leiknum átti eftir að
koina fram. Leikmennirnir misstu snerpu sína bæði f vörn og
sérstaklega f sókn, og á síðasta andartaki ieiksins tókst Elíasi
Jónasyni að skora jöfnunarmark Haukanna, 13—13.
Þegar á heild þessa lfeiks er litið
verður ekki annað sagt en að
hann hafi verið gífurlega spenn-
andi, og jafnframt vel leikinn.
Bæði þessi lið hafa breytt leikút-
færslu sinni, verulega frá í fyrra
og byggja nú meira upp á liðs-
heild en einstaklingum. Einkum á
þetta þó við um Val, en í fyrra
voru Ólafur H. Jónsson og Gísli
Blöndal aðalmennirnir í öllu sem
Valsmenn voru að gera, og væru
þeir ekki í formi var Valsliðið
ekki upp á marga fiska. Nú er
greinilega miklu meiri breidd í
Valsliðinu, þótt ekki séu skytturn-
ar á borð við þá Ólaf og Gísla.
Liðið reynir að halda uppi mikl-
um hraða í sóknarleiknum og
opna þannig vörn andstæðing-
anna. Það var þvf ekkert smáræð-
isálag á Haukavörnina í þessum
leik, en hún stóð fyrir sínu eins og
í leikjum liðsins við FH og Vfk-
ing. Glæsileg er útkoma Hauk-
anna í þremur fyrstu leikjum
mótsins, sem verið hafa við þau
lið sem álíta má sterkust f 1. deild-
inni.
Valsmenn reyndu ekki að taka
þá Hörð Sigmarsson og Elías
Jónasson úr umferð eins og FH-
ingarnir gerðu með góðum ár-
angri í leiknum í Hafnarfirði á
dögunum, en lögðu hins vegar*
kapp á að stöðva þá i tíma, og þá
sérstaklega Hörð, sem jafnan var
kominn með mann, á sig, þegar
hann reyndi að ógna að vörninni.
Elías fékk hins vegar meira að
leika la.usum ha|a og nýtti það
frelsi mjög vel, bæði lék hann
félaga sína upp og sköraði sjálfur.
falleg og þýðingarmikil mörk,
m.a. jöfnunarmark Haukanna á
siðustu stundu. Hafa það senni-
lega verið mistök hjá Valsmönn-
um að reyna ekki að hefta þá
félaga betur en raun varð á, eink-
um er líða tók á leikinn og Hauk-
arnir fóru að saxa á það forskot
sem Valur hafði aflað sér.
Úthald Haukanna í leik þessum
var aðdáunarvert, enda voru leik-
menn liðsins greinilega ekkert að
spara sig, heldur börðust til síð-
ustu stundar. Var engu líkara en
sumir leikmannanna væru að
koma úr sturtu í leikslok, svo
voru þeir gegnblautir af svita.
Nái Haukar að halda uppi slíkri
baráttu í leikjum sínum eftirleið-
is verða þeir ekki auðveldir við-
fangs f mótinu, en rétt er að minn
ast þess að í fyrra byrjuðu Hauk-
arnir mjög vel f Islandsmótinu, en
duttu síðan mikið niður þegar á
mótið leið.
Valsmenn skoruðu ekkert mark
síðustu 14 mfnútur leiksins á
sunnudagskvöldið, og það jafnvel
þótt þeir fengju dæmt vítakast á
Haukana. Gunnar Björnsson, sem
skorað hafði úr fyrri vítaköstum
Valsmanna í leiknum virtist ekki
þola þá gffurlégu spennu sem orð-
in var f leiknum og skot hans fór
hátt yfir markið. Sennilega;hefði
Hilmar Björnsson ValSþjálfari
leikið sterkari leik í þessari stöðu,
hefði hann teflt fram einhverjum
öðrum leikreyndari leikmanni til
þess að taka þetta vítakast. Var
leiðinlegt fyrir Gunnar að skora
ekki úr vítakasti þessu, þar sem
hann hafði átt mjög góðan leik til
að byrja með, eða fram til þess að
Haukar áttuðu sig á hve hættuleg-
ur leikmaður hann er og gættu
hans sérstaklega vel.
Helztu stjörnur Valsliðsins,
Stefán Gunnarsson og Jón Karls-
son, voru óvenjulega daufir í
þessum leik, sérstaklega þó Jón
sem gerði sig sekan um mistök
oftsinnis. Bætti hann þó fyrir þau
að nokkru með því að skora falleg
mörk. Jón Pétur Jónsson kom
hins vegar með miklum ágætum
frá leiknum og tók ekki áhættu í
aðgerðum sínum. þá átti Jóhann-
es Stefánsson einnig góðan leik í
vörninni, og í markinu stóð Jón
Breiðfjörð Ólafsson sig með mikl-
um ágætum, og varði stundum
mjög erfið skot frá Haukunum.
Það sem fyrst og fremst hefur
breytt Haukunum til hins betra í
vetur, er hversu leikmennirnir
allir eru virkir og hve mikill bar
áttuandi er í liðinu. Bezti maður
liðsins í þessum leik var Elías
Jónassoh, og haldi svo fram sem
horfir verðskuldar sá piltur sann-
arlega að fá að spreyta sig með
íslgnzka landsliðinu.
I STUTTU MÁLI:
Islandsmótið 1. deild
Laugardalshöll 26. október.
ÚRSLIT: Valur — Haukar 13—13
(8—6)
47. 13:11 Inglmar
48. 13:12 Hörður
60. 13:13 Elfas
Gangur leiksins
Mín., Valur Haukar
4. 0:1 Elfas
5. 0:2 Eifas
7. Guðjón 1:2
8. 1:3 Þorgeir
13. Gunirar (v) 2:3
14. Gunnar 3:3
20. Gunnar 4:3
21. Jón P. 5:3
26. 5:4 Hörður (v)
26. Jóhann 6:4
26. Jóhann 7:4
27. 7:5 Jón
28. 7:6 Hörður
30. Stefán 8:6
Hálfleikur
33. JónK. 9:6
35. 9:7 Hörður (v)
36. Jón K. 10:7
38. 10:8 Sigurgeir
39. JónP. 11:8
41. 11:9 Ingimar
42. Gunnar (v) 12:9
44. Jón K. 13:9
45. 13:10 Hörður
— ÞETTA var okkur ákaflega
dýrmætt stig, sagði Bjarni Jóns-
son þjálfari Þróttarliðsins að
loknum leik þess við Fram f 1.
deildar keppni Islandsmótsins 1
handknattleik 1 Laugardalshöll-
inni á sunnudagskvöldið, en þeim
leik lyktaði með jafntefli 12—12.
Bjarni Jónsson lék þennan leik
sárlasinn. Steig beint upp úr rúm-
inu til þess að leika, og var svo
slappur að leik loknum að hann
varla stóð uppi. Áuk lasleikans
fékk svo Bjarni slæmt höfuðhögg
1 leiknum og mun hafa rotast
andartak. — Það er búið að vera
að tala um okkur sem fallkandi-
data f 1. deildinni en ég held að
það stig er við náðum út úr þess-
um leik gefi strákunum aukna
trú á sjálfa sig, og sýni að það sé
óþarfi að bóka okkur strax á botn-
inn sagði Bjarni.
Þótt Bjarni gengi ekki heill til
þessa leiks, var hann Þróttarlið-
inu samt sem áður mikill styrkur.
Hann var með til að byrja með.í
leiknum og kom svo aftur inná,
þegar staðan var 10—6 fyrir
Fram og sigur þeirra virtist blasa
við. Reyndi Bjarni að mætti að
spila félaga sina upp og ógna
Framvörninni, og smátt og smátt
tóku Þróttarar að saxa á forskotið
og áður en yfir lauk, jafna. Jafn-
tefli voru ekki ósanngjörn úrslit í
þessum leik, en handknattleikur-
inn sem liðin buðu uppá var hins
vegar ekki til að hrópa húrra fyr-
ir, a.m.k. ekki sóknarleikurinn.
Varnir beggja liða voru hins veg-
ar lengst af mjög virkar og spil-
uðu oft með ágætum. Auðveldaði
það liðunum mjög mikið vörnina
hvað sóknarleikurinn var lítið
ógnandi og fábrotinn. Hjá Fram-
liðinu snerist allt í kringum
Pálma Pálmason, en hjá Þrótti
var Friðrik Friðriksson sá eini
sem var verulega ógnandi. Á það
örugglega eftir að reynast þessum
liðum þungt í skauti að hafa ekki
yfir fleiri skyttum að ráða.
Sem fyrr greinir virtist svo sem
Fram væri búið að tryggja sér
sigur í leiknum um miðjan seinni
hálfleikinn, er staðan var 10—6.
Höfðu Þróttarar farið heldur
klaufalega að ráði sínu og m.a.
fengið á sig mark er þeir voru eitt
sinn tveimur fleiri inni á vellin-
um, og mistekist að skora á sama
tíma. Var svo í leiknum að ein-
stakir leikmenn Þróttarliðsins
reyndu ekki að skjóta á markið,
jafnvel þótt þeir hefðu færi til
þess. Vörn Þróttarliðsins var hins
vegar mjög hreyfanleg með
Trausta Þorgrímsson sem
bezta mann en þau voru ófá skot-
in sem hann varði með árvekni
sinni í þessum leik. Markvörður
Mörk Vals: Gunnar Björnsson 4,
Jón Karlsson 3, Jón Pétur Jóns-
son 2, Jóhann Ingi Gunnarsson 2,
Guðjón Magnússon 1, Stefán
Gunnarsson 1.
Mörk Hauka: Hörður Sigmarsson
5, Elías Jónasson 3, Ingimar Har-
aldsson 2, Þorgeir Haraldsson 1,
Jón Hauksson 1, Sigurgeir Mart-
einsson 1.
Brottvfsanir af velli: Guðmundur
Haraldsson, Haukum og Hörður
Sigmarsson, Haukum 12 mfn.
Misheppnuð vftaköst: Gunnar
Björnsson, Val skaut yfir úr vfta-
kasti á 54. mfnútu.
EINKUNNAGJÖFIN
LIÐ FRAM- LIÐ VALS:
Guðjón Erlendsson 2 Jón B. Ölafsson 4
Arnar Guðlaugsson 1 Ólafur Benediktsson 1
Andrés Bridde 1 Jóhann Ingi Gunnarsson 2
Jón Árni Rúnarsson 1 Guðjón Magnússon 2
Pétur Jóhannesson 2 Stefán Gunnarsson 2
Kjartan Gfslason 2 Jón Pétur Jónsson 3
Gústaf Björnsson 2 Þorbjörn Guðmundsson 2
Ágúst Þórðarson 1 Gunnar Björnsson 2
Pálmi Pálmason 3 Jóhannes Stefánsson 3
Árni Sverrisson 1 Steindór Gunnarsson 2
Ragnar Hilmarsson 1 Jón Karlsson 2
LIÐ ÞRÖTTAR: LIÐ HAUKA:
Marteinn Árnason 2 Gunnar Einarsson 3
Sveinlaugur Kristjánsson 2 Ingimar Haraldsson 2
Trausti Þorgrfmsson 3 Svavar Geirsson 2
Gunnar Gunnarsson 2 Ólafur Ólafsson 2
Halldór Bragason 1 Jón Hauksson 2
Ársæll Kristjánsson 1 Guðmundur Haraldsson 2
Ulfar Hróarsson 2 Sigurgeir Marteinsson 2
Erling Sigurðsson 1 Hörður Sigmarsson 3
Jóhann Frfmansson 1 Elfas Jónasson 4
Friðrik Friðriksson 2 Þorgeir Haraldsson 2
Bjarni Jónsson 2 Arnór Guðmundsson 2
Kristján Sigmundsson 1 DÓMARAR:
DÖMARAR: KjartanSteinbech og
Karl Jóhannsson og Kristján Örn
Björn Kristjánsson 3 Ingibergsson 2
stóð einnig vel fyrir sinu, og mjög
mikilvægt var er Kristján Sig-
mundsson varamarkvörður kom
inná og varði vítakast frá Pálma
Pálmasyni, er staðan var 10—8
fyrir Fram.
Pálmi Pálmason var eini Fram-
arinn f þessum leik sem var veru-
lega ógnandi, en Kjartan Gíslason
kom nokkuð á óvart í leiknum
með ágætum skotum sem gáfu
mörk. Hins vegar þurfti hann
helzt til mikið rými á vellinum.
Varla er hægt að búast við þvi að
Framliðið komi til með að blanda
sér f baráttu hinna beztu f vetur.
Til þess þurfa a.m.k. að verða
miklar breytingar á liðinu til
batnaðar frá fyrri leikjum. Þær
ættu einnig að geta orðið, er liðið
endurheimtir þá Sigurberg Sig-
steinsson og ef Stefán Þórðarson
byrjar að leika með því, en báðir
þessir leikmenn eru nú frá vegna
meiðsla.
I STUTTU MÁLI:
LaugardalshöII 26. október
Islandsmótið 1. deild.
ÚRSHT: FRAM — ÞRÓTTUR
12—12 (6—5).
Gangur leiksins:
Mfn. Fram Þróttur
1. 0:1 Sveinlaugur
7. Kjartan 1:1
8. 1:2 Friðrik
11. Andrés 2:2
13. Pálmi 3:2
16. Kjartan 4:2
16. 4:3 Gunnar
18. Pálmi (v) 5:3
19. 5:4 Friðrik
27. Gústaf 6:4
28. Hálfleikur 6:5 Friðrik
35. Kjartan 7:5
36. 7:6 Trausti
38. Pálmi 8:6
40. Pálmi (v) 9:6
44. Pálmi 10:6
47. 10:7 Friðrik (v)
52. 10:8 Sveinlaugur
55. 10:9 Bjarni(v)
55. Arnar 11:9
56. 11:10 Sveinlaugur
57. Gústaf 12:10
58. 12:11 Friðrik
60. 12:12 Trausti
Mörk Fram: Pálmi Pálmason 5,
Kjartan Gfslason 3, Gústaf
Björnsson 2, Andrés Bridde 1,
A rnar Guðlaugsson 1.
Mörk Þróttar: Friðrik Friðriks-
son 5, Sveinlaugur Kristjánsson
3, Trausti Þorgrfmsson 2, Gunnar
Gunnarsson 1, Bjarni Jónsson 1.
Brottvfsanir af velli: Andrés
Bridde og Pétur Jóhannesson
Fram f 2 mfn.
Misheppnuð vftaköst: Kristján
Sigmundsson Þrótti varði vfta-
kast Pálma Pálmasonar á 53. mfn.
og Friðrik Friðriksson Þrótti
skaut yfir úr vftakasti á 50. mfn.
— stjl.
R:
Þróttnr náði fyrsta stigi
sínn í leik við slakt Framlið