Morgunblaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÖBER 1975 29 Boðið í hádegisverð á kvennafrídaginn ÞORLAKSHÖFN, 24. okt.: — Góð samstaða er meðal kvenna í Þor- lákshöfn með að Ieggja niður vinnu f dag á degi Sameinuðu þjóðanna 24. okt. Miðvikudaginn 22. okt. var fundur haldinn hér f barna- skólanum. Til hans boðuðu frú Sólveig Davíðsson og frú Margrét Aðalsteinsdóttir. Flutti hin síðar- nefnda ágætt erindi um stöðu konunnar í þjóðfélaginu. A fundinum voru konur hvattar til samstöðu um sfn málefni, og f tilefni kvennafrfdagsins að leggja niður vinnu. Ákveðin var hópferð til Selfoss á fundinn þar og siðan í hópi Selfosskvenna til Reykjavíkur á fundinn á Lækjartorgi. Forráðamönnum Meitils h.f. var með viku fyrirvara tilkynnt um að konur ynnu ekki í frysti- húsi fyrirtækisins á kvennafri- daginn. Við því var að sjálfsögðu ekkert sagt, en hinsvegar var öllum starfsstúlkum frystihússins boðið til hádegisverðar á fridag- inn i matsal fyrirtækisins. Þær verða sóttar heim og þeim skilað aftur svo nægur tími verður fyrir þær að komast á hátiðahöld kvenna í Reykjavik á eftir. Kon- urnar voru að sjálfsögðu mjög þakklátar fyrir þessa hugulsemi og rausn, og til að sýna þakklæti sitt færðu þær forráðamönnum fyrirtækisins og eldhúsliði blóm, en varla þarf að taka svo sjálf- sagðan hlut fram að það er karl- maður, sem annast um steikina hjá Meitli h.f. Útibússtjóri Kaupfélags Árnes- ingaf hér, frú Ingibjörg Guðmundsdóttir, sagði að útibúið yrði að sjálfsögðu lokað þar sem starfslið þess væri svo til allt kon- ur. Einn karlmaður vinnurþar. Simstöðin er lokuð að öðru leyti en því að stöðvarstjórinn, frú Guðbjörg Thorarensen, annast þar neyðarþjónustu. — Ragnheiður. Frá afhendingu augnlækningatækjanna. Lionsklúbbur Patreksfjarð- ar gefur sjónverndartæki 200 mífurnar: Eindreginn stuðningur Ölfushrepps EFTIRFARANDI ályktun sendi hreppsnefnd Ölfushrepps ríkis- stjórn íslands 8. okt. sl.: Hrepps- nefnd Ölfushrepps lýsir yfir eindregnum stuðningi við þá ákvörðun rfkisstjórnar íslands að færa fiskveiðilögsöguna út í 200 sjómilur 15. þ.m. Jafnfrámt telur hreppsnefndin að ekki skuli semja um undanþágu til veiða út- lendinga innan núverandi 50 mílna lögsögu eftir að núgildandi samningur rennur út. LIONSKLÚBBUR Patreksfjarðar hefur nú hafið fjórtánda starfsár sitt, en stofnskrárdagur klúbbsins var 6. okt. ’62. Lionsklúbburinn hefur frá byrjun unnið að margskonar Komið verði á framhalds- menntun lækna á íslandi Tómas Á. Tómasson kosinn formaður Læknafélags Islands DAGANA 4.-6. sept. sl. var haldinn í Domus Medica aðalfund ur Læknafélags Islands. I tengslum við hann var haldið læknaþing og námskeið fyrir héraðs- og heimilislækna. Auk íslenzkra lækna fluttu þrír er- Íendir gestir fyrirlestra á þinginu og námskeiðinu. Þeir voru: Dr. med. Gunnar Lomholt, prófessor i húð- og kynsjúkdómum við háskólann í Tromsö, Noregi, sem flutti erindi um psoriasis eczema og um háskólann i Tromsö, dr. med. Svend Clemmensen, yfir- læknir við Kommunehospitalet í Kaupmannahöfn, sem flutti erindi um meðferð liða- og vöðva- sjúkdóma, og dr. med. Hans W. Rothenborg, yfirlæknir við húð- sjúkdómadeild Gentofte sjúkra- hússins i Danmörku, sem talaði um meðferð húðsjúkdóma. Helzta mál aðalfundar var ffamhaldsmenntun lækna á Is- landi. Árni Kristinsson læknir hafði um skeið unnið að tillögum um það mál og lagt fram á þinginu. Einnig höfðu starfað 5 starfshópar fyrir þingið og fjallað um einstaka þætti framhalds- menntunar og lagt fram tillögur. Á aðalfundi var gerð um það ályktun, sem birt er hér á eftir. Örn Bjarnason læknir flutti erindi á fundinum um atvinnu- horfur yngri lækna á Islandi. Þar kom fram, að um síðustu áramót voru 353 læknar búsettir á landinu. Auk þeirra hafa lækn- ingaleyfi 111, sem eru við bráða- birgðastörf hér eða erlendis og 110 eiga ófengið lækningaleyfi, samtals 574 læknislærðir, þar af 11 útlendingar. Samkvæmt spá Raunvísinda- stofnunar Háskóla íslands mun á árunum 1975—80 útskrifast 271 kandidat. Gert er ráð fyrir, að um 36 læknar falli frá. Samkvæmt því má búast við að í ársbyrjun 1981 verði læknislærðir Islend- ingar 798 að tölu, eða u.þ.b. 1 læknir á hverja 300 íbúa. I lok aðalfundar fór fram stjórnarkjör. Ur stjórn gengu Snorri Páll Snorrason, er verið hafði formaður í 4 ár, og Skúli G. Johnsen, er verið hafði ritari 1 1 ár. Kosnir voru Tómas Á. Jónas- son, formaður, Lúðvík Ólafsson, ritari, og Guðmurtdur Sigurðsson, sem var endurkjörinn gjaldkeri. Fyrir I stjórn voru Guðmundur Jóhannesson, varaformaður og Isleifur Halldórsson, meðstjórn- andi. Hér á eftir fara ályktanir og samþykktir aðalfundar Lækna- félags Isl^pd^ ,,, 1. Aðalfundur Læknafélags Is- lands haldinn í Reykjavík dagana 4.—6. sept. 1975 ályktar, að hið fyrsta verði komið á skipulegri framhaldsmenntun lækna á Is- landi. I því skyni verði búin aðstaða til kennslu og vísinda- starfa við sem flestar heilbrigðis- stofnanir og námsstöður stofn- aðar við sjúkrahús, heilsugæzlu- stöðvar og aðrar heilbrigðisstofn- anir, sem metnar verða hæfar til að taka að sér slíka kennslu f féLags: og heimilislækningum verði komið án tafar. Til að tryggja framgang þessa máls, felur aðalfundurinn stjórninni að hefja hið fyrsta viðræður um málið við læknadeild Háskóla Islands, menntamálaráðuneytið og heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið. 2. Aðalfundurinn beinir þeim til- mælum til Háskóla íslands og heilbrigðisstjórnar, að ekki verði innritaðir fleiri stúdentar í læknadeild en samkvæmt könnun reynist möguleiki að veita við- unandi menntun á þeim stofnun- um, sem standa til boða. 3. Fundurinn beinir þeirri áskor- un til Alþingis og rlkisstjórnar, að yfirstjórn læknadeildar Háskóla íslands og Hjúkrunarskóla Is- lands, sem og annarra þeirra skóla og stofnana, sem eingöngu sjá um menntun heilbrigðisstétta og nú heyra undir menntamála- ráðuneytið, verði flutt undir stjórn heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins. 4. Fundurinn leggur til, að heil- brigðisstjórn í samráði við lækna- samtök semji staðal fyrir nauð- synlega starfsaðstöðu til lækningastarfsemi utan og innan sjúkrahúsa. 5. Fundurinn beinir þeirri áskor- un til Alþingis og rikisstjörnar, að hraðað verði uppbyggingu heilsu- gæzlustöðva og að hámarksbygg- ingartími fari ekki fram úr 2—3 árum. Jafnframt veriði gerð for- gangsröðun á framkvæmdum. 6. Aðalfundurinn skorar á heil- brigðisyfirvöld að hefja hið bráð- asta rekstur svonefndra heilsu- gæzlustöðva á Reykjavikur- svæðinu og bæta þannig heilsu- gæzlu og læknisþjónustu við ibúa þess svæðis. 7. Fundurinn beinir þvi til heil- brigðismálaráðs Reykjavíkur- borgar að gerð verði könnun á heilsufari og högum Reykvíkinga 67 ára og eldri. Slik könnun er nauðsynlegur grundvöllur fyrir stofnanir og þjónustu í þágu aldraðra. Áuk þess gæti slik könn- un orðið upphaf skipulegrar heilsuverndar aldraðra. c, t > 8. Aðalfundurinn leggur til að settar verði í samráði við heilbrigðisráðuneytið ákveðnar starfsreglur fyrir stöðunefnd, sem verði grundvöllur hæfnis- mats og röðunar nefndarinnar. 10. Aðalfundur L.I. felur stjórn félagsins að hafa forgöngu um betri tjáskipti milli læknastéttar- innar og almennings, þannig að skipuð verði nefnd, þar sem kvartanir og önnur vandamál, sem skapast kunna, verði með- höndluð. Þá var vísað til stjórnar Lækna- félags íslands álitsgerð frá Læknafélagi Vestfjarða þar sem lagt er til að skipulögð verði sér- fræðiþjónusta við dreifbýlið með ferðalögum sérfræðinga. mannúðarmálum og haft vakandi auga fyrir þörfum bæjarfélags- ins. Til dæmis hefur klúbburinn gefið læknishéraðinu læki og áhöld, þar má meðal annars nefna fullkomin tannlækningatæki og fl. I júlímánuði siðastliðnum af- henti þáverandi stjórn klúbbsins, sem þannig var skipuð: Helgi Hersveinsson form. Sigurgeir Magnússon ritari og Hilmar Jóns- son gjaldkeri, læknishéraðinu mjög vönduð og fullkomin augn- lækningatæki, sem form. sjúkra- hússstjórnar, Jóhannes Árnason sýslumaður, veitti móttöku ásamt héraðslækni og sjúkrahúslækni þeim Ara Jóhannessyni og Tómasi Zoéga, og augnlækni, Eiríki Bjarnasyni, og fl. Taldi augnlæknirinn tækin vera ein fullkonustu hér á landi. Augnlækningatækin eru að verðmæti um 1,5 milljón króna. Einnig var á árinu keypt kvik- myndasýningarvél, sem gefa á Barna- og miðskóla Patreks- fjarðar, kostaði vélin um 300.000 kr. Lionsklúbbur hefur frá upphafi á hverju ári boðið öldruðum borg- urum hér í einsdags skemmtiferð og haft kaffiveitingar. Þá hefur klúbburinn í félagi við kvenfélagið Sif hér á staðnum boðið eldra fólkinu til kaffisam- sætis nú í nokkur undanfarin ár. Samþykkt frá konum á Fljótsdalshéraði Egilsstöðum 27. okt. Almennur fundur á Fljótsdals- héraði um jafnréttismál, haldinn 24. október 1975 að .iVegaveit- ingum,* vill leggja sérstaka áherzlu á eftirfarandi: 1. að konur um allt Iand haldi áfram ötulli baráttu fyrir jafn- rétti kynjanna á atvinnulegum og uppeldislegum grundvelli. Sér- stök áherzla skal Iögð á fullt launajafnrétti. 2. að mesta jafnréttisatriðið í skattamálum sé að komið verði á sérsköttun hjóna og þar með viðurkennt vinnuframlag hús- mæðra við tekjuöflun heimil- anna. 3. að húsmóðurstarfið verði metið réttlátlega einnig þegar út f atvinnulffið er komið 4. að um leið og allar konur öðlast rétt til fæðingarorlofs verði viðurkenndur réttur foreldra til að skipta þvf með sér. - Margrét. Ódýr feró UIGLASCOW FYRIR Kr. 27.500.- Nú bjóöum viö skemmtilegar helgarferöir til Glasgow fyrir ótrúlega hagstætt verö. Flogiö út til Skotlands á föstudegi, komiö heim aftur á mánudagskvöldi. Flogiö meö Flugleiöum, gist á Hótel Ingram. Öll herbergi meö sturtu eöa baöi, og sjónvarpi. Morgunveröur og kvöldveröur. Verð: Kr. 27.500 fyrir manninn (2ja manna herbergi, er kr. 1.000 aukalega fyrir eins manns herbergi) Brottför. 24 október, 7. og 2 1. nóvember, 5 og 12. des ÚRVALSFERÐIR VIÐ ALLRA HÆFI •fc Flugvallarskattur (kr. 2.500.00) ekki innifalinn í verðinu! FERDASKRIFSTOFAN URVAL Eimskipafélagshusinu simi 26900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.