Morgunblaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKT0BER 1975 5 Afhverjutapa lýðræðissinnar í háskólanum? Úrslit kosninga til hátíðarnefndar 1. desember í Há- skóla fslands leiddu í ljós, að Vaka, félag lýðræðissinn- aðra stúdenta, hlaut aðeins 36% atkvæða, en fyrir ári var atkvæðamagn f sömu kosningum 44%. Kjörsókn var óvenju lítil að þessu sinni, og greiddu atkvæði 818 af 2650, sem voru á kjörskrá, eða einungis tæpt 31%. Morgunblaðið hefur leitað skýringa á þessum úr- slitum hjá Steingrfmi Ara Arasyni, formanni Vöku, og Kjartani Gunnarssyni, sem tekið hefur virkan þátt í stúdentapólitfkinni um nokkurra ára skeið. Stcingrímur Ari Arason, for- maður Vöku, sagði þetta: „Skýringin er fyrst og fremst sú, að lánamálabaráttan bland- aðist inn í þetta. Verðandimenn eru í meirihluta í Stúdentaráði og skipuleggja því aðgerðir í lána- baráttunni. Lítil kjörsókn til hátíðarnefndarkosninganna var eflaust vegna þess að þær féllu alveg í skuggann af lánamálabar- áttunni. Það er eins og nú sé meiri grundvöllur fýrir róttækni innan Háskólans, en eftir þessa útkomu munum við sækja i okkur veðrið og undirbúa kosningar til Stúdentaráðs, sem fram eiga að fara síðla vetrar," sagði Stein- grímur Ari. Hér fer á eftir skýring Kjartans Gunnarssonar: „Morgunblaðið hefur haft sam- band við mig og beðið mig um að fara fáeinum orðum um úrslit 1. des. kosninganna í Háskólanum. Eins og ljóst er af atkvæðatöl- um þá beið Vaka mikið afhroð í þessum kosningum. Vaka hlaut aðeins 36% atkvæða á móti 64% sem Verðandi hlaut. Þetta er lægsta atkvæðahlutfall sem félag ið hefur fengið í 4 ár. En flest atkvæði fékk félagið f 1. des. kosningum 1973, 48,5% og í kosn- ingum til Stúdentaráðs hefur félagið jafnan fengið 43%—45% og hefur kosningaþátttaka þá ver- ið 60%—70% en var nú aðeins um 30% (818 kusu af 2650 á kjör- skrá.) Ekki er unnt að gefa neina einfalda skýringu á þessum úr- slitum en ég ætla að reyna að draga hér fram þá þætti, sem að mínu mati höfðu hvað mest áhrif. I fyrsta lagi er rétt að geta um, að nú stendur yfir mjög erfið kjarabarátta stúdenta. En margt bendir til þess að skerðing á námslánum sé yfirvofandi. Verð- andi og vinstri menn, sem hafa meirihlutann í Stúdentaráði og eru einir í stjórn ráðsins hafa mjög góða aðstöðu til að nota og misnota ráðið að eigin vild. Það gera þeir lfka óspart. Sama er uppi á teningunum í sambandi við kjarabaráttunefnd náms- manna, þar hefur stúdentaráðs- meirihlutinn alfarið neitað Vöku um fulltrúa. Vökumenn hafa þvi enga möguleika á því að fylgjast með og taka þátt í ákvörðunum í kjarabaráttunni sem nú hefur verið flutt úr hagsmunanefnd SHl í hina einlitu kjarabaráttu- nefnd. Þetta notfærðu Verðandimenn sér rækilega í kosningabarátt- unni. Þeir gerðu enga tilraun til að fjalla í baráttunni um þau mál- efni, sem fram voru borin heldur reyndu þeir að fullvissa stúdenta um að þeir einir væru heilshugar í kjarabaráttunni og báru í því skyni út alls konar áróður og gróusögur um afstöðu Vöku til lánamálanna. Vaka hefur hins vegar alltaf haft mjög eindregna og harða af- stöðu í lánamálunum og vildi alls ekki rjúfa þá einingu, sem tekizt hefur að ná meðal stúdenta um flesta þætti lánamálsins með þvi að gera það að kosningamáli nú, er stúdentar þurfa að sækja á brattann. Vinstri-menn hugsuðu aftur á móti ekkert um samstöðuna og hagnýttu sér lánamálabaráttuna til hins ftrasta eins og fyrr sagði. Gleggstu dæmin um það eru, að Stúdentaráð tók ekki þátt í fyrstu aðgerðum kjarabaráttunefnd- arinnar og verkfallsheimild, sem stúdentar höfðu gefið stjórn SHl, var ekki beitt fyrr en 12 dögum eftir að hún var samþykkt, þ.e.a.s. á kosningadaginn sjálfan. Þá var einnig farin kröfuganga og hald inn útifundur. Menn geta sfðan rétt ímyndað sér hvort þetta allt hafi ekki haft hagstæð áhrif fyrir þá, sem-starfa sinna vegna ber f raun skylda til að hafa forystu um þessar aðgerðir og sem tryggðu það mjög vandlega að þeir væru sjálfir og einir í sviðsljósinu. 1 öðru lagi vil ég nefna hina litlu þátttöku í kosningunum. Hún var nú minni en nokkru sinni fyrr síðastliðin 4 ár. Þetta stafar m.a. af augljósu áhugaleysi stúdenta á félagsmálum og or- sakir þess eru fyrst og fremst þær, að þorri stúdenta vill fyrst og fremst stunda nám sitt f friði og ekki hvað sízt nú þegar menn telja sig sjá teikn þess á lofti, að ekki muni allir háskólamenntaðir menn geta gengið að vfsum stöðum og embættum eins og ver- ið hefur. Stúdentar telja því, að góður námsárangur sé hverjum og einum afar nauðsynlegur. Jafnframt þessu aukast líka kröfur skólans og timamörk í námi eru þrengd. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU AKilASIM. \- SI.MINN KR: 22480 I þriðja lagi er rétt að fjalla um eðli kosninga og kosningabaráttu í Háskólanum nú. Á síðustu árum hafa kosningar í H.L tekið á sig æ pólitískari blæ. Baráttan stendur á milli tveggja afla. Verðandi ann- ars vegar og Vöku hins vegar. Verðandi er stjórnað af mar.;- istum, sem hafa fengið til liðs við sig menn, sem telja sig vera svo- kallaða vinstri menn. Vaka er aft- ur á móti samfylking lýðræðis- sinnaðra stúdenta. Verðandi byggir, samkvæmt stefnuskrá sinni, starf sitt á visindalegum sósíalisma, marxismanum. Mál- flutningur Verðandimanna er því allur í sama dúr og einstrengings- legustu kommúnista á fyrstu ára- tugum aldarinnar. Þrátt fyrir þetta tekst þeim að fá til liðs við sig menn, sem alls ekki geta talizt marxistar. Má þar m.a. nefna menn sem gegna trúnaðarstörfum fyrir unga framsóknarmenn. Þessi byltingarbarátta verður enn til þess að hrekja almenna stúdenta frá félagsmálaþátttöku, því baráttuaðferðir vinstri manna eru nú sem fyrr fólgnar í rógi og níði um andstæðingana og eru þeir sem voga sér að andmæla þeim teknir fyrir í kerfisbundn- um persónuofsóknum i Stúdenta- blaðinu og Þjóðviljanum. Barátt- an stendur þvi milli niðurrifs og byltingarafla og okkar hinna, sem viljum varðveita lýðræðið og nú- verandi stjórnskipun Islands i þeirri trú, að það fyrírkomulag gefi þjóðinni mesta og bezta möguleika á menningarlegri og efnahagslegri framþróun. Til enn frekara marks um sannleiksgildi þessara staðhæfinga er rétt að fram komi að á þessum síðasta framboðslista Verðandi voru ein- göngu fulltrúar hinna ýmsu flokks- og félagabrota á yzta jaðri vinstri hreyfingarinnar. Svo sem félagar í Fylkingunni, Kommún- istasamtökunum, marxistarnir leninistarnir (KSML) trotskyist- ar og maoistar. Andlitið, eðlið og hin raunveru- lega forysta er því ódulin nú. Að síðustu vil ég geta um, að vinstri menn hafa nú komið sér upp álit- legum hópi „atvinnu stúdenta", sem eru meira og minna á fullum Iaunum hjá Stúdentaráði árið um kring og vinna að kosningum og kosningaáróðri á skrifstofum Stúdentaráðs. Þessir menn njóta ýmissa fríðinda og krefjast meðal annars nú að þær tímatakmarkan- ir í námi, sem aðrir stúdentar þurfa að fara eftir, nái ekki til þeirra. Af öllu framansögðu er ljóst, að með því að einangra fulltrúa 45% stúdenta frá allri ákvörðunartöku og ýmsum nauðsynlegum upplýs- ingum og koma þannig í veg fyrir að þeir geti í raun sinnt í þeim störfum í SHÍ sem til er ætlazt þá hefur Verðandi tekizt að deyfa svo félagsmálaáhuga lýðræðis- sinnaðra stúdenta að til vandræða horfir. Að þessu hafa þeir unnið markvisst í 3 ár. 1 kosningunum 22. október s.I. kom í ljós að. Verð- andi nýtur a.m.k. fylgis 517 stúd- enta af 2650 sem í skólanum eru. Vaka fékk hins vegar aðeins 284 atkvæði. Að minum dómi njóta þó hugsjónir Vöku stuðn- ings megin þorra stúdenta þar eð þeir eru upp til hópa einstakl- ingar, sem vilja sjálfum sér og þjóð sinni vel og styðja lýðræðis- fyrirkomulag okkar Islendinga. Þessir stúdentar mega ekki þegja lengur og láta það afskiptalaust að öfgahópur yzt til vinstri fari með umboð stúdenta og misnoti það sífellt í pólitískum tilgangi. Stúdentar verða að hnekkja þessu í næstu kosningum, ella er baráttu þeirra og áhrifum stefnt i voða.“ LUpQ öUun+fl^ Mvndataka hafnar AUÐVELT - ÞÆGILEGT. Látiö filmuna í pokann og stingið honum í næsta póstkassa. Við fullvinnum myndirnar á SILKI- pappír og endursendum ásamt nýrri litfilmu beint á heimili yðar. FÆST í NÆSTU BÚÐ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.