Morgunblaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTOBER 1975 7
—r r-' ■ til stn ( verri rekstrar- r mammmm. %
Ótti
Þjóðarsagan geymir
margan lærdóminn, sem í
senn varpar birtu á liðna
sögu ellefu alda og varðar
þann veg, sem við verðum
að ganga mót óvissri fram
tlð. Atök ættanna I land-
inu á Sturlungaöld, þegar
barizt var um stundarvöld
og hagsmuni, meðan
þjóðveldið gliðnaði sund-
ur, minnir um margt á
styrjöld hagsmunahóp-
anna I þjóðfélaginu I dag.
Enginn neitar þeirri
staðreynd að viðskipta-
kjör þjóðarinnar og þjóð-
artekjur hafa versnað
mjög ört. bæði á liðnu og
llðandi ári. Þjóðin hefur
lifað um efni fram og á
erlendri skuldasöfnun. Á
þessum tveimur árum hef-
ur verðbólgan vaxið tvö-
falt örar hér en hjá þvl
Evrópurlki, sem þó er
næst okkur I verðbólgu-
vexti. Orsakir þessa verð-
bólguvaxtar eu bæði inn-
fluttar og heimatilbúnar.
Afleiðingarnar hafa sagt
stöðu atvinnuvega okk-
ar, þó hingað til hafi tek-
izt að koma I veg fyrir
atvinnuleysi, sem er eitt
helzta vandamál flestra
nágrannarlkja okkar. Og
verðbólgan hefur rýrt gildi
gjaldmiðils okkar og
kaupmáttar launa, þann
veg, að á 10 ára timabili
hefur kaupmáttaraukning
launa aðeins orðið einn
tólfti þeirrar krónutölu-
hækkunar, sem knúin hef-
ur verið fram.
Aðhald I rikisfjármálum,
rekstri og fjárfestingu,
sem og samstaða starfs-
hópanna I þjóðfélaginu
um raunhæf úrræði I efna-
hags- og atvinnullfi þjóð-
arinnar, er knýjandi nauð-
syn, sem velferð heildar-
innar og efnahagslegt
sjálfstæði lýðveldisins er
undir komið, bæði I bráð
og lengd. Engu að slður er
blásið að glóðum nýrrar
Sturlungaaldar. Kröfu-
gerðarhópar neita að llta
lengra en til þröngra
stundarhagsmuna. Meðan
hættur hrannast upp á
sviði efnahagsmála okkar
brýnum við vopn hvort á
annað. Engin virðist muna
þau gömlu viðvörunarorð,
sem eiga rlkara erindi til
okkar I dag en nokkru
sinni fyrr: „Litla þjóð, sem
átt I vök að verjast, vertu
ei við sjálfa þig að berj-
ast." Og þó — mitt I
vopnabrýningum kröfu-
gerðarhópaseytlar ótti um
samfélagið. Hann er slður
en svo af ástæðulausu til
orðinn.
Björn Jónsson.
Margt má
betur fara
Enginn vafi er á þvl að
margt I máli kröfugerðar-
manna á við rök að styðj-
ast. Það er sitt hvað að I
þjóðfélaginu. sem hrófla
þarf við og úr að bæta. Og
það er tlmi til kominn að
stokka upp spilin og legg-
ja þau öll af hreinskilni á
borðið.
Sú rlkisstjórn, sem nú
situr að völdum, á við
margan vandann að etja.
Frumvarp að fjárlögum
fyrir komandi ár er með
þeim hætti, að stefnt virð-
ist að raunhæfum og já-
kvæðum aðgerðum I rfkis-
fjármálum. Aðhaldsað-
gerðir, sem stefna að jafn-
vægi I þjóðarbúskapnum,
eru óhjákvæmilegur und-
anfari þess að hægt verði
að hemja þá óðaverð-
bólgu, sem hér hefur geis-
að. Nauðsynlegt er að
sllkum aðgerðum fylgi
einhuga þjóð, sem leggur
innbyrðis átök niður um
stundarsakir. Að þeim ein-
hug getur rlkisstjórnin
bezt stuðlað með sam-
Gylfi Þ. Glslason.
hliða ráðstöfunum I þá
átt, að stinga á ýmsum
þjóðfélagskýlum, að
stuðla að meira réttlæti
og jafnari aðstöðu þjóðfé-
lagsþegnanna.
f umræðu á Alþingi, um
stefnuræðu forsætisráð-
herra, sagði Gylfi Þ. Glsla-
son, helzti talsmaður
stjórnarandstöðunnar,
efnislega: Það getur eng-
inn einn aðili, rlkisstjórnin
ein, eða launþegasamtök-
in ein, -sigrast á ógnvekj-
andi 'efnahagsvanda þjóð-
arinnar. Þar þarf sam-
stöðu þeirra þjóðfélags-
afla allra, sem deila á milli
sln áhrifavaldinu I þjóðfé-
laginu. Þetta er laukrétt
hjá Gylfa. Forseti ASf,
Björn Jónsson, hefur haft
góð orð um samstöðu
launþegasamtaka með
rlkisvaldi I baráttu gegn
orsökum verðbólgunnar.
Vonandi boða þessi orð
vott samstarfsvilja, sem
svo mjög rlður á, að ekki
komi aðeins fram I orði,
heldur reynist fyrir hendi
á borði. Aðeins einhuga
getur þjóðin leyst rjálfa
sig úr viðjum óttans.
Zwaig tekur forystuna
ÞEGAR sá, sem þessar línur
ritar, kom á keppnisstaðinn á
hótel Esju u.þ.b. tiu mínútum
eftir að 5. umferð svæðismóts-
ins hófst sl. sunnudag var hvert
sæti i áhorfendasalnum setið. í
þessari umferð urðu
áhorfendur 2—300, sem er
meira en á nokkurri fyrri um-
ferð. Og áhorfendur fengu svo
sannarlega góða skemmtun
fyrir peningana sína, a.m.k.
þeir sem ekki höfðu meiri
áhuga á barnum en skákinni. I
upphafi voru flestir mest
spenntir fyrir því, hvort
Timman kæmi til leiks. Hann
átti að tefla við Laine og þegar
hálftími var liðinn án þess að
hollenzki stórmeistarinn léti
sjá sig fór menn að gruna að
ekki væri allt með felldu. Og
mínúturnar liðu og ekki kom
Timman. Þegar klukkustund
var liðin úrskurðaði sr.
Lombardy að skákin væri
honum töpuð. Skömmu fyrir kl.
17 tókst svo Ioksins að hafa
uppá Hollendingnum og kom
þá í ljós, að hann hafði haldið
að umferðin ætti að hefjast kl.
17. Varð hann að vonum heldur
hnugginn er hann frétti hið
rétta, en ekki tjáir að deila við
dómarann og vant var að sjá,
hvor tók þetta meira nærri sér
Timman eða Laine.
Friðrik Ólafsson átti í höggi
við forystusauð mótsins, Ribli.
Ribli beitti Grunfeldsvörn og
var ljóst frá upphafi, að hann
hugðist ekki gefa höggstað á
sér. Varðist hann öllum til-
raunum Friðriks af öryggi og
þegar jafntefli var samið eftir
25 leiki var staðan jöfn.
Björn Þorsteinsson tefldi við
stórmeistarann Liberzon, sem
beitti spönskum leik. Skákin
var afar hörð frá upphafi til
enda og fer hún hér á eftir.
Hvftt: V. Liberzon
Svart: Björn Þorsteinsson
Spænskur leikur
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5
— a6, 4. Ba4 Rf6, 5. 0-0 —
Be7, 6. Hel — b5, 7. Bb3 — 0-0,
8. a4 — Bb7, 9. d3 — d6, 10. Bd2
eftir JÓN Þ. ÞÓR
— Rd7, 11. Rc3 — Rc5, 12. Bd5
— b4, 13. Re2 — a5, 14. Be3 —
re6, 15. c3 — bxc3, 16. bxc3 —
Hb8, 17. Hbl — Dd7, 18. d4 —
exd4, 19. cxd4 — Rb4, 20. Bxb7
— Hxb7 21. d5 — Rd8, 22. Rfd4
— g6, 23. Rb5 — c6, 24. dxc6 —
Rdxc6, 25. Bf4 — d5, 26. e5 —
Df5, 27. Bh6 — Hfb8, 28. Hb3
— Dc2, 29. Dxc2 — Rxc2, 30.
Hcl — Rb4, 31. Hbc3 — Rd8,
32. Hc8 — Hxc8, 33. Hxc8 —
Rbc6, 34. g3 — Hb8, 35. Hc7 —
Hb7, 36. Hc8 — Hb8, 37. Hxb8
— Rxb8, 38. Rc7 — Bf8, 39. Bd2
— Rdc6, 40. Rxd5 — Rd7, 41.
Rf6+ — Rxf6, 42. exf6 — Bb4,
43. Kfl — Bxd2, 44. Rxd2 —
Re5, 45. Ke2 — Rd7, 46. Re4 —
Rb6, 47. Rc3 — Rd7, 48. Kd3 —
Re5+ , 49. Kd4 — Rf3+ 50. Kc5
— Rd2, 51. Kb5 — Rb3, 52. Re4
— Kf8, 53. Rc5 — Rd4+, 54.
Kxa5 — Ke8, 55. Kb6 — Kd8,
56. Kb7 og svartur féll átfma.
Þjóðverjinn Ostermayer
hafði hvftt gegn stórmeistaran-
um Jansa, sem beitti Sikileyjar-
vörn. Ostermayer náði sterku
frumkvæði út úr byrjuninni og
virtist vera að fá unnið. tafl
þegar hann fór skyndilega að
leika „engum“ leikjum. Jansa
tókst þá að rétta úr kútnum og
með mjög góðri endataflstækni
hélt hann jafntefli.
Svend Hamann átti í höggi
við Poutiainen og varð skák
þeirra snemma mjög hörð. I
miðtaflinu tókst Hamann að
vinna peð og þegar skákin fór í
bið öðru sinni hafði hann þrjú
sterk frípeð og hrók gegn hróki
riddara og peði andstæðingsins.
Parma beitti Nimzoind-
verskri vörn gegn Murray.
Irinn tefldi miðtaflið ekki af
ftrustu nákvæmni og tókst
Parma að ná frumkvæði. Eftir
að skákin hafði farið í bið
varðist Murray þó af mikilli
hörku og þegar biðleik var
leikið öðru sinni var enn ekki
ljóst hver úrslitin yrðu.
Norðmaðurinn Arne Zwaig
tók forystu í mótinu með þvf að
sigra Belgíumanninn Broeck í
eftirfarandi skák:
Hvftt: A. Zwaig
Svart: Van den Broeck
Hollenzk vörn með skiptum
litum
1. g3— Rf6, 2. Bg2 — d5, 3. f4
— g6, 4. Rf3 — Bg7, 5. 0-0 —
0-0, 6. c3 — Rbd7, 7. a4 — He8,
8. Re5 — c6, 9. a5 — Re4, 10. d4
— Re4, 11. Rd2 — f5, 12. Rdf3
— Rdf6, 13. Be3 — Bd7, 14.
Db3 — b5, 15. axb6 — axb6, 16.
Ha3 — Ha7, 17. Hxa7 — Dxa7,
18. Rel — e6, 19. Rc2 — Bf8.
20. Hal — Dc7, 21. Bxe4 —
fxe4, 22. g4 — Hb8, 23. Rb4 —
Db7, 24. g5 — Re8, 25. Da4 —
Hc8, 26. Da7 — Hc7, 27. Dxb7
— Hxb7, 28. Rbxc6 — Bxc6, 29.
Rxc6 — b5, 30. Ha8 — Rd6, 31.
Kf2 — Rf5, 32. He8 og svartur
gaf.
Staðan i mótinu er nú þessi,
skákafjöldi í sviga: 1. Zwaig4 v.
(5), 2. Ribli 3,5 (4), 3. Liberzon
3,5 (5), 4.—5. Friðrik og
Timman 3 (5), 6.—7. Hamann
og Parma 2,5 v og biðsk. (5), 8.
Jansa 2,5 v. (5), 9. Poutiainen 2
og biðsk. (4). 10. Hartston 2
(4) , 11. Ostermayer 1,5 v (4),
12. Laine 1,5 v. (5), 13. Murray
0,5 v og biðsk. (4). 14.—15.
Björn og van den Broeck 0,5 v.
(5) .
6. umferð verður tefld í dag
og hefst kl. 17. Þá tefla saman
Ostermayer — Parma, Björn —
Murray, Laine — Liberzon, van
den Broeck — Timman, Ribli
— Zwaig, Friðrik — Pouti-
ainen, Hartston — Hamann.
Jansa situr hjá.
Þekkirðu
LANCER !
Honum er vert aö kynnast. Hann fór hringveginn fullhlaðinn s.l.
sumar á 126 lítrum af bensíni = Kr. 7.182. Þó skortir hann
aldrei afl, 97 ha vélin sér um það. Hann er einn fárra sem
sigrað hafa í African-Safari keppninni. Það undrar þig ekki
þegar þú kynnist honum. Lancerinn er fjögurra manna bíll
með styrk stóru bílanna. Hann er frá Mitsubishi í Japan og
verðugur fulltrúi japanskrar vandvirkni í bílaiðnaðinum.
NÚ Á SÉRSTÖKU
KYNNINGARVERÐI
Allt á sama stað Laugavegi 118- Símar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HE
Hinn
margumtalaði
og vinsæli
vekur
athygli é ... .
Það koma ávallt nýjar
vörur í hverri viku á
markaðinn
Ótrúlegt
vöruúrval
á
Látið ekki
happ
úr hendi
sleppa
ATHUGIÐ!
Markaðurinn
stendur aðeii
stuttan tíma