Morgunblaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.10.1975, Blaðsíða 40
u <;i,Ysin(;asímins er: 22480 JRarjjimbTntiií> AL’<;LYSINí;ASIMI\N ER: 22480 JR»r0unbTfltiiÖ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1975 Fiskverðsdeilan leyst: ÓBREYTT FISKVERÐ Frá bladamannafundi Geirs Hallgrfmssonar, forsætisrád- herra f gær er forsætisráð- herra skýrði frá lausn fisk- verðsdeilunnar. Við hlið for- sætisráðherra situr J6n Sigurðsson, forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar. — Sjómönnum tryggðar sömu kjara- bætur og landverkafólki — Verðum að horfast í augu við óbreytt lífskjör á næstunni, segir forsætisráðherra Fiskiskipin, bátar sem togarar, hafa hvert á fætur öðru haldið til veiða á ný, eftir að deilan, sem reis um fiskverðið leystist f fyrrinótt, en velflest fiskiskip landsmanna sigldu í höfn upp úr miðri sfðustu viku, sem kunnugt er, til þess að mótmæla fiskverðinu og krefjast breytinga á sjóðakerfi sjávarútvegsins. Á blaðamannafundi, sem Geir Hallgrfmsson forsætisráðherra efndi til í gær, sagði hann, að þau skipti á upplýsingum milli sjómanna og stjórnvalda, sem fram hefðu farið undanfarna daga, hefðu leitt til þess, að sjómenn féllust á þær skýringar, sem lágu til grundvallar fiskverðsákvörðuninni og tóku gildar ábyrgðaryfirlýsingar rfkisstjórnarinnar um, að þeir mundu fá sömu tekjuhækkun og launþegar f landi fengu hinn 1. októbcr sl. Á blaðamannafundinum var afhent yfirlýsing rfkisstjórnarinnar, sem leiddi til lausnar deilunnar. Helztu atriði yfirlýsingarinnar eru þessi: I Rfkisstjórnin mun láta fara fram athugun á því, hver hafi orðið raunveruleg verðhækk- un þess fiskafla, sem berst á land f október, nóvember og desember. Fulltrúar sjómanna munu fylgjast með þeirri athugun. I Lciði athugun þessi f Ijós. að fiskverðshækkunin hafi, miðað við heildarafla, numið minna en 3'A% mun greidd sérstök uppbót á stórufsa og milliufsa f 1. gæðaflokki, sem leiði til þess, að meðalfisk- verðshækkun fyrir haustafl- Armannsfellsmáhð til Sakadóms á ný RÍKISSAKSÖKNARI hefur vísað Ármannsfellsmálinu svonefnda til Sakadóms Reykjavfkur á nýj- an leik. Sagði Þórður Björnsson ríkissaksóknari við MhI f gær, að hann vildi fá vissa þætti málsins rannsakaða betur. ann nái 3‘A% hækkun, sem við var miðað f ákvörðun yfir- nefndar. 0 Uppbætur úr rfkissjóði á lfnu- fisk f 1. gæðaflokki hækka úr 60 aurum á kfló f 90 aura og uppbætur kaupenda að sama skapi. Útgjöld rfkissjóðs af þessum sökum verða um 3H milljón króna fram að ára- mótum. 0 Stærðarflokkakerfið verður tekið til endurskoðunar um áramót. 0 Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir þvf, að nefnd, sem vinnur að endurskoðun á sjóðakerfi sjávarútvegsins hraði störfum sfnum og skili tillögum fyrir 1. des. eins og að var stefnt. Hér fer á eftir frásögn af blaða- mannafundi Geirs Hallgrfms- sonar forsætisráðherra f gær. Sjá ennfremur yfirlýsingu rfkis- stjórnar í heild á bls. 2 og frásögn af blaðamannafundi sjómanna í gærmorgun á bls. 3 ÍMorgunblað- inu f dag. Framhald á bls. 39 „Samstarfsnefndin og ríkisstjórnin sýndu mikinn skilning á málinu” spjallað við nokkra skipstjóra um samkomuJagið sem náðist í fyrrinótt ÞEGÁR fiskiskipin voru almennt farin úr höfn f gær, hafði Morgunblaðið samband við nokkra togaraskipstjóra og spurði þá hvernig þeim litist á samkomulagið, sem náðst hefði milli samstarfsnefndar sjómanna og rfkisstjórnar- innar, og fara samtölin hér á eftir. Tryggvi Gunnarsson, skip- stjóri á Brettingi frá Vopna- firði, sagði: „Ég er fjarskalega ánægður með að vera kominn af stað aftur. Báðir aðilar, þ.e. samstarfsnefndín og ríkis- stjórnin, hafa sýnt mikinn skilning á málinu með því að hleypa ekki hörku í það, og fyrir það eitt eiga þessir aðilar að fá þakklæti. Þetta mál hefði getað þróazt á annan veg, og þá er ekki að vita hverjar afleið- ingarnar hefðu orðið.“ Jóhann Símonarson skip- stjóri á Bessa: „Það er alltaf gott að vera kominn á sjóinn aftur, en ein- hvern veginn er það þannig að manni finnst málið ekki vera leyst. Mér finnst það ekki leyst fyrr en maður sér hver árangurinn verður við næstu áramót. Hitt er ágætt að komið er nú samkomulag um að skoða þessi mál frá grunni. Kannski er það sízt okkar hér á þessum minni skuttogurum að kvarta undan kaupum og kjörum. En þetta er allt eitt allsherjarmál fyrir allan flotann, sem út í var farið. Ég held að það sé nauð- synlegt að allur almenningur viti, hvað er að gerast í þessum málum. Þegar sjómaðurinn er að semja við útgerðina, þá er útgerðin og fiskvinnslan oft og tíðum sami aðilinn. T.d. hér á Vestfjörðum er útgerðarmaður- inn sami aðilinn og fisk- vinnslan eða þá hann á aðild að fiskverkun. Því á sjómaðurinn undir högg að sækja hjá tveim- ur aðilum — sami aðilinn situr báðum megin við borðið. Ut- gerðarmaðurinn ætti í raun að standa með sjómanninum í verðákvörðun, en þegar hann á lfka fiskverkun, þá getur hann ekki annað en,verið á móti. Hins vegar er gott að þessi deila skuli hafa leystst — það hefði aldrei þurft að koma til hennar. Jóhann sagði að þeir væru nú á Halanum með fyrsta halið og væri ekki að vita hvernig fiskfríið væri. Enginn væri bú- inn enn með fyrsta hal, en hann sagði að veður væri gott og fiskfrí hlyti að vera gott, þar sem miðin hefðu hvílzt í þennan tíma, sem róðrastöðv- unin hefði gilt. Sverrir Valdimarsson, skip- stjóri á Kaldbak, sagði: „Við erum ánægðir með að lausn hafi fengizt á þessu deilu- máli. Við fólum nefndinni að sjá um málin og hefur hún úr- skurðarvald til þess að ganga frá okkar málum. Annars held ég að málið hafi lítið verið rætt Framhald á bis. 39 Háhyrningur í Hornafirði: Sædýrasafnið vill fá hann Höfn í Hornafirði, 28. okt. HAFNARNESIÐ RE 300 kom til Hafnar um kl. 8 í kvöld með lif- andi háhyrning um borð, en háhyrningurinn kom f reknetin í morgun þegar þeir voru að draga þau skammt frá HroIIaugseyjum. Skipstjórinn á Hafnarnesinu, Þorvaldur Ottósson, hafði sam- band við vélbátinn Sigurvon, en þar um borð er Frakkinn Du La Grandaier sem hefur verið hér til að reyna að fanga háhyrninga. Honum þótti háhyrningurinn nokkuð stór, en fór samt að reyna við að koma undir hann hengi- rúmi sem þeir höfðu meðferðis á Sigurvoninni, en það rifnaði. Hætti Frakkinn tilraunum við að reyna að ná hvalnum um borð í Sigurvon, en þá slógu Hafnarnes- menn kaðli á sporð háhyrningsins og hífðu hann um borð f Hafnar- nes. Var þá mjög áf háhyrningn- Framhald á bls. 28 Tvennt fórst í bíl- slysi í Vatnsfirði ÞAÐ hörmulega slys var f Vatns- firði á Barðaströnd s.l. sunnu- dagskvöld, að Bronco-jeppi úr Reykjavík valt ofan f Vatnsdalsá og lézt tvennt sem var f bifreið- inni, Svavar Helgason, 44 ára, til heimilis að Fornuströnd 5 á Seltjarnarnesi og Þórhildur Jónasdóttir, 29 ára, til heimilis að Markaflöt 41 f Garðahreppi. Þau láta bæði eftir sig maka og börn. Að sögn Páls Ágústssonar fréttaritara Mbl. á Patreksfirði voru þau Svavar og Þórhildur f erindum Sambands fslenzkra barnakennara, en Svavar var framkvæmdastjóri sambandsins og Þórhildur í stjórn þess. Höfðu þau verið á fundum með vest- firzkum kennurum um helgina og voru á heimleið þegar slysið varð. Þau voru á bílaleigubíl úr Reykja- vík og ók Svavar. Frá Patreksfirði fóru þau um klukkan 19 og var förinni heitið í Bjarkarlund en þar ætluðu þau Svavar og Þór- hildur að gista um nóttina. Það var ekki fyrr en f gærmorgun að i Ijós kom hvað gerst hafði, en þá kom brúarvinnuflokkur að Vatns- dalsá og sáu menn i flokknum bflinn á hvolfi í ánni. Hefur billinn oltið ofan í ána að norðan- verðu, rétt við brúna, en beygja er að brúnni á þessum stað. Virð- ist sem bílinn hafi lent á hvolfi í ánni, en fallið er 3—4 metrar. Er talið að slysið hafi gerst um klukkan 20. Strax voru gerðar Framhald á bls. 39 Þórhildur Jónasdóttir. Svavar Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.