Morgunblaðið - 23.11.1975, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÖVEMBER 1975
Stuttsfðan er f umsjón Ásmundar Jóns-
sonar og Baldurs J. Baidurssonar.
Spilverk Þjóðanna heitir ein merkis söngsveit er getið hefur
sér töluverðan orðstfr á þessu ári. Söngsveit þessi hefur nú Iátið
frá sér fara sína fyrstu stóru plötu, og hefur hún verið rómuð
mjög.
Stuttsfðan heimsótti Va aðstan.'Ienda Spilverksins, þ.e. þá Egil
Ólafsson (E), Sigurð Bjólu Garðarsson (B) og Valgeir Guðjóns-
son fyrir nokkru til að forvitnast um þeirra mál. Auk þeirra
lagði umboðsmaður þeirra, Steinar Berg (S) orð f belg. Fjórði
aðstandandi Spilverksins, Sigrún „Diddú“ Hjálmtýsdóttir, var
þó ekki viðstödd er rabb þetta, er hér fei á eftir, fór fram.
UPPHAFIÐ
St: Ilvernig væri að byrja á þvf að
rekja sögu Spilverksins f stórum
dráttum?
V: Spilverkið átti upptök sín, eins
og allt þetta í skólanum, í menntó.
Byrjaði á því, að ég og Ragnar
þessi Daníelsson vorum að syngja
saman. Við gerðum þetta af og til
fyrir tónlistarkvöld, en ekkert af
því efni, sem við fluttum var
frumsamið. Við sungum Simon og
Garkfunkel og þess háttar og svo
ameríska „folk-músik“. Síðan
ákváðum við að fara að gera eitt-
hvað með frumsömdu efni. Spil-
uðum við þá þrjú lög og notuðum
fiðlu og selló. Þetta mun hafa
verið í kringum 1970. Þá sungum
við Raggi ásamt Gylfa
(—Kristinssyni úr Rifsberja) og
stelpurnar Systa og Sigga léku á
fiðlu og selló. Þannig lékum við
við vorum á sviðinu var borið inn
til okkar vin f kaffikönnu, alveg
stanslaust því í öllu taugafuminu
urðu menn þyrstari og þyrstari.
V: Spilverkið var lengi að ná sér
eftir þetta.
IMYND
SPILVERKSINS
V: Sá misskilningur hefur ríkt
hjá fólki að það heldur að við
séum einhverjir grínistar, sem er
alls ekki tilfellið. Við höfum
aldrei sagt einn einasta brandara.
E: Fólk ætti að hugsa sig um
þrisvar til fjórum sinnum, áður
en það hlær.
V: Við erum farnir að finna,
þegar við spilum, að fólk er farið
að búast við einhverju mjög
S<gf°n
undir nafninu „Söngsveitin
Hazzansmjör“. Á næsta ári var
Egill með og þá var Jakob (Jakob
Magnússon) einnig með. Hét
þetta þá „Árni Villa og félagar"
eftir Árna Vilhjálmssyni, „júr-
ista“ og fyrrverandi brunaliðs-
manni, sem nú býr í Safamýrinni
og er einn af trúnaðarmönnum
Spilverksins. Þá voru spiluð lögin
„Eyjólfur Konráð" og „Hjalti
Sveins“, og var þetta allt á is-
lenzku á þessum árum. Síðan kom
„Egils" og það voru ég, Egill, Arni
og stelpurnar Helga Þórarins og
Systa. Þar á eftir kom svo Spil-
verk þjóðanna, sem hefur verið
eftir að við vorum hættir f skól-
anum.
St: Voru Stuðmenn strax tengdir
Spilverksmönnum?
V: Stuðmenn voru allt annar
hlutur.
St: En það voru sömu mennirnir,
sem komu þarna fyrir.
V: Já, reyndar, en það er bara af
þvi að við vorum vinir.
B: Fyrsta Spilverkið var svo
stofnað seinni hluta árs 1973 með
Siggu og Systu á fiðlu og selló,
sem iéku með okkur tvisvar.
St: Hvers vegna hættu þessar
stelpur?
B: Þetta var svo mikið mál með
þær. Það þurfti að skrifa allt fyrir
þær og þetta var svo þungt í
vöfum.
V: Fyrsta skiptið, sem þessi
hljómsveit lék, var á 6. reglulegu
tónleikum Tónlistarfélags MH,
haustið 1973, og var það mjög
eftirminnilegt.
E: Við vorum búnir að æfa helvíti
vel, en svo fór allt í vitleysu út af
fyllerii.
V: Já, það var alveg æðislegt. Við
ætluðum bara að hita okkur upp
og verða léttmjúkir, en það varð
svo meira.
E: Það fór út í það að við urðum
alveg dauðadrukknir og meðan
miklu. Við vorum t.d. auglýstir
hið frábæra, frumlega og fjöl-
hæfa Spilverk þjóðanna á tónleik-
um í Verslunarskólanum fyrir
nokkru.
St: Við urðum varir við það, að
margt af þessu fólki þarna f
Versló virtist aldrei hafa heyrt í
ykkur.
S: Nei, aldrei! Megnið af þessu
fólki virtist ekki hafa heyrt í Spil-
verkinu áður. Það kom þarna með j
pappaglös og djúsaði sig og fór j
síðan á ball, í partí eða eitthvað.
St: Jú, maður varð var við mikinn
umgang.
S: Þetta kom greinilega fram,
þegar Valgeir sagði, að þeir ætl-
uðu að taka lag um vín. En við það
fögnuðu margir ákaft.
E: Ég gæti trúað því, að það væri
ekki skemmtilegt að sitja undir
mörgum þessara Iaga fullur.
SpUverk þ
þiöðanna
TÓNLISTIN
— PLATAN
St: Já, það er margt af þessu
nokkuð rólegt.
E: Maður á þessum aldri, fullur,
er svo upptrekktur. Hann vill
helzt fara að brjóta glugga. —
Fara á skemmtistað og vera með
konur í fanginu og fá meira vfn.
V: Þegar menn eru drukknir þá
held ég, að þeim gangi betur að
lifa sig inn í stemningu.
B: Það fer nú eftir því hvað þeir
eru drukknir og á hvaða lfnu þeir
eru.
E: Mér datt í hug þessi 'dæmigerði
Verzlunarskólanemandi, sem fer
á fyllirí um helgar.
B: Er hann nokkuð öðruvísi en
aðrir. — En aftur það sem kom
lang mest á óvart á þessum marg-
umtöluðu tónleikum í Verzló var
kurrinn, sem fór um salinn, þegar
lagið Six Pens Only var kynnt. Þú
sagðir, Valgeir, að þetta væri
ádeila á auðvaldsþjóðfélagið. En
við það fór mikill kurr um salinn.
Spilv: Jæja, svo þeir eru kommar.
Helvítis kommar.
St: Ætlið þið að fara að spila
meira opinberlega f framtfðinni?
E: Við getum eiginlega ekki
spilað mikið oftar.
V: Ekki opinberlega, en við ætl-
um að fara meira f skólana.
E: Líka það, að mjög erfitt er að
vera stöðugt að breyta lagavali, þó
við eigum nóg af lögum. Við erum
ekki orðnir ánægðir með lögin
fyrr en við erum búnir að spila
þau talsvert oft opinberlega. Það
þarf sem sagt að fínpússa þau.
V: Við getum búið til markað,
sem aldrei hefur verið búinn til
áður, sem eru skólar. 1 skólum
eru tugþúsundir. Það hefur aldrei
komið fram slík hljómsveit sem
þessi hér á íslandi. Svonalagað
hefur aldrei staðið undir sér.
S: Það hafa ýmsir reynt að koma
fram sem skemmtikraftar á böll-
um, eins og Change og Júdas. Þeir
gátu það ekki. Þeir þurftu að fara
út í brennivínshúsarútínuna
aftur.