Morgunblaðið - 23.11.1975, Blaðsíða 31
MÖRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÖVEMBER 1975
31
„Wiesenthal var flugmaður nasista”
Bruno Kreisky, kanslari Austurrlkis, hefur nú beðiS þing landsins um aS
létta þinghelgi hans um tlma til að gera honum kleift að bera vitni I
meiðyrðamáli sem nasistaveiðimaðurinn frægi,
Simon Wiesenthal, hefur höfðað á hendur
honum. Wiesenthal er sem kunnugt er I forstöðu
fyrir rannsóknarskrifstofu sem kannar glæpi nas-
ista gagnvart gyðingum I heimsstyrjöldinni
siðari. Nú hafa þau undur og stórmerki gerzt að »iesentnal hefur
sjálfur verið sakaður um að hafa verið sendimaður nasista. A blaða-
mannafundi nýlega ítrekaði Kreisky enn þessar ásakanir slnar. „Min
skoðun i málinu var og er sú að Wiesenthal var sendimaður þeirra,"
sagði hann. Um það hvers vegna hann hefði skipað sér i forystu fyrir
baráttunni gegn Wiesenthal sagði kanslarinn að hann sem gyðingur
vildi ekki láta saka sig um gyðingafjandskap, en slíkar aðdróttanir
munu hafa komið frá Wiesenthal.
20.000 myrtir í Bandaríkjunum 1974
Glæpamenn myrtu meir en 20,000 manns og stálu meir en 2,6
milljarða dollara verðmætum á síðasta ári, að því er fram kom I
ársskýrslu bandarisku alríkislögreglunnar, FBI, um glæpi árið 1974
sem birt var fyrir helgina. Þessar geigvænlegu tölur þýða að aukning
glæpa í Bandaríkjunum nam 18% þetta ár. Þýfi glæpamannanna var að
verðmæti meir en árleg fjárveiting til alls dómskerfis landsins og tvöfalt
meir en það kostar að reka Chicagoborg I eitt ár. Mjög stór hluti
þessara glæpa var framinn af unglingum og um helmingur allra þeirra
sem handteknir voru fyrir innbrot, ökutækjastuld og íkveikjur voru
táningar. Ofbeldismestu glæpirnir, — morð, nauðganir og llkamsárásir
-— voru ekki meir en hálf milljón þeirra tíu milljóna glæpa sem skráðir
voru þetta ár. Edward Levi dómsmálaráðherra sagði um þessar niður-
stöður FBI-skýrslunnar: „Ef takast á að komast fyrir þetta óskaplega
vandamál þarf samræmt andsvar allra þátta dómskerfis landsins og
allra samfélagsþegna". í skýrslunni kom fram að hættan á því að verða
fórnarlamb einhverra þessara glæpa hefur aukizt um 32% frá árinu
1969. Frammistaða löggæzlunnar við að koma upp um glæpina hefur
verið svo til óbreytt síðustu fimm ár, og árið 1974 leiddi aðeins einn af
hverjum fimm glæpum til handtöku.
Að verða fyrir skriðdreka
Stundum fara svakalegustu umferðarslys furðulega vel. Dæmi um
þetta er ævintýri sextluogfimm ára svissneskrar konu I bænum Oobel
nýlega. Blessuð konan var að tölta með reiðhjólið sitt I mesta sak'—:
eftir gangstétt I bænum einn
huggulegan morgun er 50 tonna
skriðdreki af Centuriongerð sem
tilheyrði svissneska hernum
kemur skröltandi eftir götunni. Og
auðvitað þurfti svo véldreki þessi
að renna til á sleipri götunni og
fljúga uppá gangstétt og yfir gömlu konuna. Það dæmalausa var að
skelkaðir skriðdrekamenn drógu konuna með aðeins smávægilega
skeinu, — að vlsu Ifka sklthrædda —, undan drekanum. Hins vegar er
hjólið hennar nú pönnukaka og jakkinn hennar væri hentugur fyrir
nektardansmey.
Minni háttar Watergatehneyksli
Um sfðustu helgi kom út i London hjá sambandi brezkra yfirkennara
skýrsla eftir einn yfirkennarann þar sem kemur fram að talsverður
fjötdi skozkra skólabarna hiera sfmtöl og samtöl kennara sinna. Hinn
háþróaði hlustunarútbúnaður tæknialdar hefur sumsé ekki farið fram
hjá blessuðum börnunum. Þessir ungu Watergate-menn hafa, sam-
kvæmt skýrslu þessari, fest kaup á njósnatækjum sem ekki kosta meir
en fjögur pund og geta hlerað samtöl f nokkur hundruð feta fjarlægð.
Einn drengurinn var gripinn vegna þess hve hann hafði ferðaútvarpið
sitt hátt og þá kom f Ijós að f tækinu var hlerunartæki sem stillt var inn
á samtöl f vinnuherbergi umsjónarkennara hans. Og einnig var slmi
skólastjórans hleraður. Þá má geta þess að kennari einn sem hafði grun
um að ekki væri allt með felldu rakti slóð hennar upp á háaloft
heimavistarinnar og kom þar að blessuðum börnunum ! fullum gangi
með herlega bfósýningu þar sem eingöngu voru sýndar klámmyndir.
Ojáojamm. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Og þetta er ungt og
leikur sér. Og allt það.
Kíf í Kiev
Það eins og týndist í fréttaflóðinu, en átta hundruð afríkanskir
námsmenn í Kiev í Sovétríkjunum fóru fyrir skemmstu í viku verkfall,
eftir að tékknesk skólasystir þeirra, sem hafði gengið að eiga
heimspekistúdent frá Nígeríu, var tekin til bæna af yfirvöldum, gert
að hætta námi og skikkuð heim til Tékkóslóvakfu. Afrfkumönnunum
fannst þetta bera keim af kynþáttafordómum og héldu mótmælum
sínum til streitu uns yfirvöld gáfu sig og hétu þvf að leyfa eiginkon-
unni að njóta hvortveggja: skólavistar og maka.
Sitt lítið af hverju
Það eru vfðar herferðir gegn reykingum en hér á landi. í Bretlandi mun
vera ein slfk um þessar mundir og f sfðustu viku kaus landssamband
„andreykingamanna" Karl
Bretaprins „andreykingamann
ársins" fyrir að hafa bannað
reykingar f opinberum máls-
verði þangað til eftirrétturinn
var fram borinn . . . British
Airways hafa f hyggju að bjóða
viðskiptavinum sfnum ódýran
og óvenjulegan ferðamögu-
leika á næsta ári, — þ.e. að gefa fólki um heim allan kost á að skipta
við fólk f öðru landi á heimilum sfnum, þannig að t.d. brezk fjölskylda
lánar afrfskri fjölskyldu bústað sinn f sumarleyfinu og öfugt . . .
Jacqueline Onassis er að verða kvikmyndastjarna. Hún mun leika norn
f kvikmyndinni „Flugnafrúin" að sögn leikstjóra myndarinnar, ítalans
Pier Carpi, ásamt Terence Stamp og Jean Seberg.
Vetrarþjónusta
CHEVROLET BUICK VAUXHALL OPEL
I
OlL
FilTfl
1. Mótorþvottur
2. Hreinsun á rafgeyma-
samböndum.
3. Mæling á rafgeymi og
hleðslu
4. Skipt um loftsíu
5. Skipt um bensínsíu í
blöndungi
6. Skipt um platinur.
7. Skipt um kerti
8. Ath. viftureim
9. Stillt kúling.
10. Þrýstiprófað kælikerfi.
Verð m/sölusk.:
4 cyl. kr. 8.652,
6 cyl. kr. 9.651,
8 cyl. 10.248.
11. Mælt frostþol
12. Mótorstilling
13. Yfirfara öll Ijós og stillt
aðalljós.
14. Hemlar reyndir
15. Stýrisbúnaður skoðað-
ur.
16. Ath. rúðuþurrkur og
. . sprautur.
Innifalið í verðinu:
Kerti, platinur, loft- og
bensinsía og vinna.
GM
SAMBANDIÐ VÉLADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
HÖFÐABAKKA 9. Simar: Verkst.: 85539 Verzl: 84245-84710
Wz .
eg ekkt
Fyrsta sendingin
af hinum bráðfallegu
rýateppum
seldist upp í hvelli.
Fleiri sendingar eru
á leiðinni til afgreiðslu
fyrir jól.