Morgunblaðið - 18.12.1975, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.12.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1975 19 Bœkurnar frá Almenna bókafélaginu Bjarni Benediktsson: Land og lýðveldi bindi BJARNi BENEDIKTSSON LAND OG LÝÐVELDI ratóría Óratóría 74 Með þessu bindi er lokið merku ritgerðasafni, sem ugglaust verður mönnum því dýrmætara, sem lengra líður, bæði sem einstakt heimildarrit og verðug minning um einn ágæt- asta son íslands á þessari öld. Verð m/sölusk. kr. 3.360.— Öll þrjú bindin m/sölusk. kr. 5.520.— Guðmundur Daníelsson: - SAGA ÚR SJÚKRAHÚSI HILTGUNT ZASSENHAUS IVIENN OG ■urar AHRlFARlK OG HCIUANOI FRASÓGN UM FORNFVSI OG MEWUtUNO UNGRAR STUUKU I SIOUSTU HEIMSSTYRJÖU). Saga úr sjúkrahúsi með skopteikn- ingum Halldórs Péturssonar. Höfundur bregður skoplegu Ijósi á harðvítugt og tvísýnt stríð upp á líf og dauða við menn og máttarvöld, og hvernig honum tekst að lifa af heila þjóðhátíð tvennar kosningar og tvo holskurði á einu og sama sumr- inu. Verð m/sölusk. kr. 2.640.— Guðmundur Hagalín: Segið nú amen, séra Pétur Nýstárleg og áhrifamikil skáldsaga um hvernig mannleg náttúra, fjár- hyggja og kynhvöt búa mönnum örlög. Aðalpersóna sögunnar hin glæsilega og geðríka Herborg Bjarnadóttir er einhver eftirminnilegasta kvenlýsing Hagallns. Verð m/sölusk. kr. 2.640.— Kristmann Guðmundsson: Stjömuskipið geimferðasaga. Vísindaskáldskapur hefur rutt sér mjög til rúms á bókmenntasviðinu og hlotið almennar vinsældir. Þessi nýja saga er spennandi og ákaflega fjör- lega rituð um lífið á hinum ólíkustu stöðum í himingeimnum. Verð m/sölusk. kr. 2.400.— Hiltgunt Zassenhaus Menn og múrar Þýðandi Tómas Guðmundsson Heillandi frásögn um fórnfýsi og hetjulund ungrar stúlku í síðustu heimsstyrjöld. Hún var kölluð engill fanganna og hér rekur hún minn- ingar sínar frá þessum örlagaríku árum, sem hverjum lesanda hljóta að verða ógleymanlegar. Verð m/sölusk. kr. 2.640.— Jóhanna Þráinsdóttir: Jóhanna Þráinsdóttir Útrás Njósnarl nasista (þjónustu breta Macdondd Mooney Hindenburgslysið Utrás Útrás er fyrsta frumsamda bók höfundar, en áður hefur hún birt smásögur t tímaritum. Skáldsagan Útrás er raunsæ og hispurslaus lýsing á lífi ungrar ekkju, sem missir mann sinn af slysförum, eftir hjónaband, sem byggzt hefur á gagnkvæmri blekkingu. í beyskju sinni og ráðleysi varpar hún sér út í hringiðu skemmtanalifsins og kemst þá í kynni við ýmsar dekkri hliðar lifsins, fyrst hér heima og síðan í Bandaríkjunum. Sagan er gáskafull og bráðskemmtileg en um leið umbúðalaus lýsing, sem ber í senn svip af þjóðfélagsádeilu, ástarsögu pg djörf- um bókmenntum. Verð m/sölusk. 2.520.— Jorge Luis Borges: Suðrið Smásagnasafn, valið og þýtt hefur Guðbergur Bergsson. Sögurnar eru sprottnar úr suðuramerískum jarð- vegi en eiga erindi við fólk hvar í heiminum sem er. Borges er I hópi virtustu skálda sem nú eru uppi og mikill aðdáandi forníslenzkra bók- mennta. Verð m/sölusk. kr. 2.280.— Dusko Popov: Njósnari nasista í þjónustu breta Bókin lýsir einstæðum njósnaferli höfundar. Þjóðverjar töldu hann fær- asta njósnara sinn en I reynd njósn- aði hann fyrir breta og lifði í stöðugri lífshættu. Hann varaði við árásinni á Pearl Harbor löngu áður en hún var gerð en FBI trúði honum ekki. Popov var mikill gleðimaður og fullyrt er, að hann sé fyrirmyndin af James Bond. Verð m/sölusk. kr. 2.280.— Michael Mooney: Hindenburgslysið Hindenburgloftfarið var tákn um mátt og megin nasismans — þar til sprengingin mikla varð 6. maí 1937 við Lakehurst í Bandaríkjunum og Hindenburg brann til ösku og 36 manns fórust í augsýn hjálparvana áhorfenda. Hvað gerðist? Var það skemmdar- verk. Þessum spurningum og mörg- um fleiri svarar þessi spennandi bók. Verð m/sölusk. kr. 2.280.— ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ Austurstræti 18~Bolholti 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.