Morgunblaðið - 10.02.1976, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1976
Tröppugangur
Víkingur vann Ármann 21:17
Viggó Sigurðsson átti góðan leik með Vfkingum f fvrrakvöld og hefur þarna sloppið framlijá llerði
Kristinssyni.
LEIKUR Víkings og
Ármanns í 1. deildinni á
sunnudagskvöldið ein-
kenndist fyrst og fremst
af þeim miklu sveiflum
sem var á frammi-
stöðu liðanna í leikn-
um. Þannig skoruðu Vík-
ingar t.d. sjö mörk í röð
í lok leiksins. 1 millitíðinni
höfðu Ármenningar hins
vegar fimm sinnum sent
knöttinn í mark Víkinga
án þess að þeir röndóttu
svöruðu fyrir sig. Vík-
ingarnir voru áberandi
betri aðilinn í þessum leik
og vann liðið verðskuldað,
en þó aðeins 21:17.
Víkingsliðið er óútreiknanlegt,
en vissulega gætu Víkingarnir
tekið upp á því að vinna Vals-
menn í leik þessara liða, sem get-
ur skorið úr um það hverjir verða
Islandsmeistarar. Víkingarnir
verða þó að leika af meira öryggi f
þeim leik til að sigra og þá má
markvarzla Rósmundar ekki vera
verri en hún var í þessum leik.
Um Sigurgeir er ekki lengur að
ræða í marki Víkinga í vetur því
hann meiddist i 11 a í leik í skóla-
móti (!) á sunnudaginn, var skor-
inn upp í gær og sinar sem höfðu
slitnað settar saman að nýju.
Nákvæmlega eins meiðsli og hann
varð fyrir i útimótinu i haust og
gerðu það að verkum að hann gat
ekki leikið með í upphafi Islands-
mótsins, nema hvað það er hinn
fóturinn, sem núna háir.
Það var ekki sérlega glæsilegur
handknattleikur, sem Ármann og
Víkingar buðu upp á i þessum
leik. Einkum var varnarleikurinn
slakur, en markvarzla liðanna,
hins vegar með skárra móti, á
henni var þó tröppugangur eins
og öðru i þessum leik. Leikurinn
var í jafnvægi framan af. Liðin
skiptust á um forystuna, en það
var Ármann, sem leiddi þegar 18
minútur voru liðnar, 6:4. Þá kom
stórgóður kafli Víkinganna, þeir
léku þá eins og þeir gera bezt og
skoruðu 7 mörk án þess að
Ármenningar svöruðu. I leikhléi
var staðan 12:7 og eftir þennan
góða kafla áttu fáir von á því að
Ármenningar næðu að jafna
leikinn aftur.
Það fór þá á annan veg og þeir
gerðu 7 mörk gegn 1 á fyrstu
mínútum seinni hálfleiksins —
voru skyndilega komnir yfir
14:13. Vikingarnir tóku þó fljót-
lega við sér aftur og komust nú
yfir 20:16 með mjög góðum kafla.
Úrslitin urðu siðan 21:17 og voru
þau eftir atvikum sanngjörn.
Ungu mennirnir Þorbergur
Aðalsteinsson og Ölafur Jónsson
Iéku stórt hlutverk í þessum leik
og stóðu sig báðir vel. Stefán
Halldórsson og Viggó Sigurðsson
voru þó beztu menn liðsins í
leiknum að þessu sinni ásamt Rós-
mundi markverði. Páll Björgvins-
son var eitthvað miður sín í leikn-
um — gerði aðeins eitt mark —,
en hans var reyndar mjög vel
gætt.
Hjá Ármanni var það einnig
einn ungu mannanna sem átti
hvað beztan leik, Gunnar Trausta-
son. Aldursforsetinn Hörður
Kristinsson, stóð sig mjög vel í
hvíldist nær ekkert í leikn-
um, var veggur í vörninni og
skoraði 4 mörk. Vilberg Sig-
tryggsson sýndi gamla takta I
leiknum, en á enn langt í land til
að ná sinni fyrri getu og snerpu.
Ármenningar eru i fallhættu í 1.
deildinni, en einhvern veginn
hefur maður það á tilfinningunni
að liðið sé heilsteyptara og sterk-
ara en lið Gróttu, sem hlotið hefur
einu stigi minna.
— áij.
Framarar burstuðu
Þróttara í 1. deildinni á
sunnudaginn. Munurinn
varð átta mörk, 29:21 sigur
Framara. Eins og sést á
úrslitunum þá var mikið
skorað f leiknum, enda var
varnarleikur liðanna
ömurlega lélegur og sömu-
leiðis markvarzlan, en
sóknarleikurinn var liðun-
um frekar auðveldur þar
sem varnirnar — sérstak-
lega Þróttara — voru ekki
marga fiska virði.
Pálmi Pálmason og Hannes
Leifsson voru í miklum ham í
þessúm leik. Pálmi gerði 11 mörk,
en Hannes 8 og lék sá síðarnefndi
sennilega sinn bezta leik á
keppnistímabilinu. Stjörnur
Þróttar, — Friðrik og Bjarni,
voru hins vegar langt frá sínu
bezta og kann það að hafa gert
útslagið í þessum leik.
Leikurinn var jafn framan af,
Fram hafði þó yfirleitt forystuna,
en fyrir klaufaskap var hún
aðeins þrjú mörk í leikhléi, en
fyrir klaufaskap var hún aðeins
þrjú mörk í leikhléi, 13:10. Seinni
hálfleikurinn var svo auðveldur
fyrir Fram, sem náði þá að sýna á
MARKAREGN
Fram vann Þrótt 29:21
(Ijósin. KA.V 1
Pétur Jóhannsson átti mjög góðan leik með Fram gegn Þrótti og skorar þarna eitt fjögurra marka sinua.
köflum sínar beztu hliðar. Munur-
inn jókst og var mestur í lokin
átta mörk, 29:21.
Framarar eiga eins og Vikingar
nokkra möguleika á að hljóta Is-
iandsmeistaratitilinn, en ýmislegt
þarf að fara þeim í hag í leikjum
annarra liða í mótinu. Þróttarar
eru hins vegar endanlega von-
lausir um verðlaunasæti, en geta
reyndar vel við unað að árangur-
inn sem þeir hafa náð í vetur er
betri en búizt hafði verið við
fyrirfram.
Beztu menn Fram í leiknum við
Þrótt auk Hannesar og Pálma
voru þeir Pétur Jóhannesson og
Sigurbergur Sigsteinsson, sem
báðir börðust mjög vel í leiknum
og skoruðu auk þess fleiri mörk,
en þeir hafa gert í leikjum sínum
að undanförnu.
Af Þrótturum er helzt ástæða
til að hrósa Birni Vilhjálmssyni
og Sveinlaugi Kristjánssyni, en
einhvern veginn var Þróttarliðið
ekki eins gott að þessu sinni og
það var meðan liðið halaði inn
þau stig sem endanlega forðaði
því úr botnbaráttunni og kom
þeim í möguleika á meistaratitli.
Ef til vill hafa Þróttarar slakað á,
eftir að séð var að þeir yrðu uppi,
leikgleðin er ekki eins mikil og
þá.
—áij.
I sliillu máli
Islandsmólió 1. deild. Laugardalshöll 8.
febrúar: Víkingur — Ármann 21:17 (12:7)
GANGUR LEIKSINS:
MlN VlKINGUR
2. Ólafur
2.
4.
6. vSlefán (v)
8. Páll
9.
12.
31.
32.
34.
35.
35.
40.
41.
42.
48.
vST.
1:0
1:1
1:2
2:2
3:2
3:3
3:4
3:5
Armann
liördur K. (v)
Jens
Jens
Vilberg
50 Magnús 16:16
52. Stefán 17:16
53. VÍRgó 18:16
57. Skarphóóinn 19:16
58. Þorbergur 20:16
58. 20:17 Jens
60. Sigfús 21:17
MÖRK VlKINGS: Stefán líalldórsson 4. Þor-
bergur Aðalsteinsson 4, Viggó Sigurósson 4,
Magnús Guómundsson 2, Skarphóðinn
Óskarsson 2, Ólafur Jónsson 2, Páll
Björgvinsson 1, Jón Sigurósson 1, Sigfús
Guðmundsson 1.
MÖRK ARMANNvS: Hörður Kristinsson 4.
Jens Jensson 4, Gunnar Traustason 3,
Vilberg Sigtryggsson 2, Jón Astvaldsson 2,
Bjöm Jóhannesson 1. Iförður flarðarson 1
Þorbergur 4:5 Islandsmótið 1. deild.
4:6 Hörður II. Laugardalshöll 8.
Magnús 5:6 febrúar, Fram —
vSkarphéðinn 6:6 Þróttur 29:21 (13:10)
Viggó 7:6 Gangur leiksins:
Viggó 8:6 Mín. Fram 1. Þróttur
Viggó 9:6 3. Pálml 0:1 Halldór
Ólafur Cf/vfán 10:6 4. 1:2 Sveinlaugur
atei an 11:6 4. Sigurbergur 2:2
11:7 Gunnar 5. 2:3 Halldór
Jón 12:7 7. Hannes 3:3
KHLÉ 8. Hannes 4:3
12:8 Vilberg 10. 4:4 Friðrik
12:9 liörður Kr. (v) 11. Hannes 5:4
vStefán (v) 13:9 13. Pálmi 6:4
13:10 Jón 15. 6:5 Friðrik
13:11 Gunnar 17. Pálmi (v) 7:5
13:12 Gunnar 18. Pétur 8:5
13:13 Jens 22 8:6 Friðrik
13:14 HörðurK. 23. Pétur 9:6
Þorbergur 14:14 24. Pálmi 10:6
14:15 HörðurK. 24. 10:7 Friðrik
Þorbergur 15:15 24. Andrés 11:7
15:16 Jón 27. Pálmi (v) 12:7
12:8 Jóhann
13:8
13:9 Jóhann
13:10 Jóhann
14:10
15:10
16:10
16:11 Gunnar
17:11
18:11
18:12 Halidór
19:12
20:12
20:13 Björn
20:14 Gunnar
20:15 Björn
21:15
21:16 Fríðrik
22:16
22:17 Björn
23:17
23:18 Sveinlaugui
24:18
24:19 Bjarni
25:19
25:20 Björn
26:20
26:21 Bjarni
27:21
28:21
29:21
MÖRK FRAM: Pálmi Pálmason 11, Hanr
Leifsson 8, Sigurhergur Sigsteinsson 4, Pét
Jóhannesson 4, Andrés Bridde og Gúst
Bjömsson 1 hvor.
MÖRK ÞRÓTTAR: Friðrik Friðriksson
Björn Vilhjálmsson 4, Jóhann F'rfmannssi
3, Halldór Braga.on 3, Sveinlaug
Kristjánsson, Gunnar Gunnarsson og Bjai
Jónsson 2 hver.
28.
28. Hannes
28.
30.
LEIKHLF
31. Sigurbergur
34. Sigurbergur
34. Pálmi
35.
36. Sigurbergur
36. Hannes
37.
39. Pétur
39. Gústaf
40.
42.
42.
43. Pálmi (v)
44.
46. Hannes
46.
48. Pálmí
51.
55. Pálmi
56.
56. Pálmi
57.
57. Pálmi
57.
59. Pétur
59. Hannes
60. Hannes
Einkunnagiönn
VlKINGUR:
Rósmundur Jónsson 3, Stefán Halldórsson 3, Sigfús Guðmunds-
son 2, Skarphéðinn Óskarsson 1, Magnús Guðmundsson 2, Erlend-
ur Ilermannsson 1, Páll Björgvinsson 2, Þorbergur Áðalsteinsson
2, Ólafur Jónsson 2, Viggó Sigurðsson 3 og Jón Sigurðsson I.
ARMANN:
Ragnar Gunnarsson 2, Vilberg Sigtrvggsson 2, Björn Jóhannes-
son 2, Grétar Arnason 1, Pétur Ingólfsson 1, Hörður llarðarson 2,
Jón Ástvaldsson 1, Jens Jonsson 2, Hörður Kristinsson 3, Gunnar
Traustason 3 og Skafti Harðarson 2.
DÓMARAR: Sigurður Hannesson og Gunnar Gunnarsson 2.
FRAM:
Guðjón Erlendsson 1, Jón Sigurðsson 1, Pálmi Pálmason 3,
Árnar Guðlaugsson 2, Pétur Jóhannesson 3, Gústaf Björnsson 1,
Andrés Bridde 1, Magnús Sígurðsson 1, Arni Sverrisson I, Pálmi
Pálmason 3, Hannes Leifsson 3, Birgir Jóhannesson 1.
ÞRÓTTUR:
Kristján Sigmundsson 1, Marteinn Arnason 1, Bjarni Jónsson
1, Sveinlaugur Kristjánsson 2, Gunnar Gunnarsson 2, Friðrik
Friðriksson 2, Halldór Bragason 2, Erling Sigurðsson 1, Jóhann
Frfmannsson 2, Kristján Guðlaugsson 1, Konráð Jónsson 1, Björn
Vilhjálmsson 3.
DÓMARAR:
Hannes Þ. Sigurðsson og Karl Jóhannsson 4.