Morgunblaðið - 10.02.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRUAR 1976
29
félk í
fréttum
+ Fljótt á litið virðist nú lítill vafi leika á þvf, hvoru kyninu hún heyrir til, skiðakonan til hægn a
myndinni. En þeir láta sér ekki duga minna en vísindalega sönnun f þeim efnum á Olympíuleikunum.
Allar konur meðal keppenda verða að gangast undir kynprófun, svo að alit sé á hreinu.
+ Lukkutröll fagna olvmpfueldinum: Lukkutröll 12. vetrar-
olympíuleikanna, sem settir voru f Innsbruck 4. febrúar, voru f
broddi fylkingar, er fjölmenn skrúðganga marseraði f áttina til
Bergisel-leikvangsins, þar sem fagnað var komu blvsberans með
olympfueldinn. ^ _ /*~W •
i tafli
BO BB & BO
ÞETTA ER EÍNUM 0F
r LANGT GENGIÐ BÖ'1
0 o (<La
TAmSTÖNGLAR ERU NOTAÐÍÍÍ
EFT)R*SVÍKJA51EÍK EN EKKI
UPPHÍTAÐ 5ÚP0G0TL
FRÁ ’l GÆR
t
ws_
o
3D3-IO-T-S
^iGMOMD ■
+ Brunhilde Heyman’s gerði
sér það til dundurs f tómstund-
um að skrifa einmana þýskum
hermönnum vftt og breitt um
Þýzkaland. Margir þeirra urðu
yfir sig ástfangnir af stúlk-
unni og a.m.k. 17 þeirra sendu
henni peninga, svo að hún gæti
heimsótt þá. Brunhilde færðist
undan og afsakaði sig með þvf
að hún þyrfti að annast veika
systur sfna heima f Bremen,
en peningunum hélt hún eftir.
En að þvf kom að hún fékk
heimsókn nokkurra af bréfa-
vinunum, sem þá komust að
þvf sér til sárrar hrellingar, að
þeirra heittelskaða var tfu ára
göoiul telpuhnáta og mynd-
irnar sem hún hafði sent þeim
og öðrmn bréfavinum sfnum
meðal hermannanna voru af
eldri systur hennar. Er upp
komst um tiltæki stúlkunnar
hafði faðir hennar snarlega
endaskipti á dóttur sinni og
rassskellti hana á beran boss-
ann f viðurvist illa svikinna
vonbiðla hennar.
T.r ***..* .-W*> *,
eftir Jón Þ. Þór
Svæðismótið á Hótel Esju og
svæðismótið í Bulgaríu, þar
sem Guðmundur Sigurjónsson
er meðal Þátttakenda hafa
vakið mikla athygli hér á landi.
Um þessar mundir eru svæðis-
mót tefld víða um heim og hafa
því allmargir skákmeistarar
tryggt sér réttindi til þátttöku í
millisvæðamóti nú þegar. Þeg-
ar þetta'er ritað er ekki enn séð
fyrir endann á mótunum hér og
í Búlgariu, en þessir menn hafa
þegar unnið þátttökurétt í
millisvæðamóti: Frá Sovétríkj-
unum: Savon, Beljavsky,
Zeskovsky og Gulko. Frá
Bandarikjunum: Brown og
Rogoff, frá V. — Asíu Harandi
(Iran), frá svæði nr. 2 í Evrópu
Sosonko (Holland) og Diaz del
Corrall (Spánn). I síðasttalda
mótinu voru þátttakendur að-
eins átta, þar sem Austur —
Evrópumennirnir hættu við
þátttöku, vildu með þvi mót-
mæla pólitízku óréttlæti
Francos. Hvað athafnir Francos
koma FIDE við get ég þó ekki
skilið, en FIDE heldur svæða-
mótið, en ekki einstök skáksam-
bönd. Þá er keppni nýlokið á
svæði nr. 7, sem er Mið —
Ameríka. Þar var fyrirkomulag
með nokkuð öðru sniði en ann-
ars staðar. Þátttökulöndin
fengu að senda keppendur í
hlutfalli við meðlimafjölda
skáksambanda sinna. Tekið var
fram, að minnstu löndin mættu
senda einn þátttakanda, þótt
skáksamböndin væru mjög fá-
menn. Þau lönd, sem áttu þátt-
tökurétt á svæðamótinu voru
17, en keppendur urðu 26, þar
af 4 frá Kúpu, en i skáksam-
bandi Kúpu eru meðlimir
310.000. Keppnin fór fram í
Santo Domingo í Dóminíkanska
lýðveldinu og var keppendum
skipt í tvo 13 manna riðla og
komst sigurvegarinn úr hvor-
um riðli áfram í millisvæðamót.
Sigurvegarar urðu þeir O.
Campos frá Kólumbíu og J.
Diaz frá Kúbu og bætast þeir
þannig við áðurtalda menn.
Auk þessara eiga svo eftirtald-
ir stórmeistararrétt til þátttöku
í millisvæðamóti án þess að
tefla í svæðamótum: Spassky,
Petrosjan, Polugajevsky,
Byrne, Mecking, Larsen, Húbn-
er, Hort, Tal og Portisch.
Fyrirkomulag svæðamötanna
verður að teljast afar hæpið.
Þeim er auðvitað ætlað að gefa
mönnum úr öllum heimsalfum
tækifæri og er það ekki nema
gott. Gallinn er sá, að með
þessu kerfi er meira tillit tekið
til íbúafjölda svæðanna en
skákstyrkleika. Af þessu leiðir
að frá svæði 7 koma tveir titil-
lausir menn, sem hafa enga
möguleika á að komast úr milli-
svæðamóti. Frá svæði nr. 1, sem
teflt er hér í Reykjavík, hljóta
hins vegar a.m.k. fjórir stór-
meistarar, sem allir hefðu góða
möguleika í millisvæðamóti, að
falla út. Þetta getur ekki gengið
lengur, einhverju verður að
breyta. Um langan aldur guldu
Rússar þess að þeir voru beztir,
nú gjalda aðrir búsetu sinnar.
Lítum nú eina skák frá
svæðamóti nr. 7. Taflmennsk-
una geta menn svo borið saman
við skákir frá svæðamótum i
Evrópu.
Ilvftt: O. Cstro (Kólumbfa)
Svart: Campos (Mexíkó)
Frönsk vörn
1. e4 — e6, 2. d3 — d5, 3. Rd2 —
Rf6, 4. Rgf3 — Be7, 5. g3 —
O—O, 6. Bg2 — c5, 7. 0—0 —
Rc6, 8. e5 — Rd7, 9. Hel — b5,
10. Rfl — a5, 11. h4 — b4, 12.
Bf4 — Ba6, 13. Re3 — a4, 14. a3
— bxa3, 15. bxa3 — Rd4, 16.
Hbl — Hc8, 17. c4 — Rb6, 18.
cxd5 — Rxd5, 19. Rxd5 — exd5,
20. Rxd4 — cxd4, 21. e6 — fxe6,
22. Hxe6 — Hf6, 23. He5 —
Bxa3, 24. Dxa4 — Bd6, 25. Hxd5
— Df8, 26. Dxa og svartur gaf.
Alúðarfyllstu þakkir sendi ég öllum þeim, sem á
margvíslegan hátt heiðruðu mig á áttræðis-
afmæ/i mínu 29. jan. s/. Innileg kveðja til ykkar
allra.
Úlfar Karlsson.