Morgunblaðið - 30.03.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIOJUDAGUR 30. MARZ 1976.
MORGUNBLAÐINU hefur hurizl
yfirlvsing frá réttargæzlu-
Hilmar Þórarinsson
ÞAÐ SLYS varð á grásleppu-
miðum út af Garðahverfi á Álfta-
nesi milli klukkan 8 og 9 í gær-
morgun, að maður féll útbyrðis af
trillu sinni og drukknaði. Hann
hét Hilmar Þórarinsson, Suður-
vangi 12, Hafnarfirði. Hilmar
heitinn var fæddur 21. marz, og
þvf nýlega orðinn 46 ára gamall.
Hann var ókvæntur og barnlaus
og bjó hjá öldruðum foreldrum.
Hilmar lagði af stað á trillu
sinni úr Hafnarfjarðarhöfn kl. 7 í
AÐ ÞVl er áætlað er mun vísitala
framfærslukostnaðar hafa
hækkað um 30 til 33 stig við slð-
ustu verðlagshækkanir og mun
hún þá vera á bilinu milli 537 og
342 stig. Rauða strikið, sem um
var getið I samningunum og sett
er við tímamörkin 1. júní, er 557
stig, en þar sem hækkun vegna
áfengis og tóhaks og vinnuliðar í
búvöruverði á ekki að mælast í
mönnum þriggja manna, sem nú
sitja I gæzluvarðhaldi vegnaGeir-
finnsmálsins. F'er vfirlysing
þeirra í heild hér á eftir:
Við undirritaðir, réttargæzlu-
menn þriggja manna, sem nú sitja
í gæzluvarðhaldi, grunaðir um að
vera valdir að hvarfi Geirfinns
Einarssonar, sem talið er að
horfið hafi í Keflavík, þann 19.
nóv. 1974, teljum óhjákvæmilegt
að koma á framfæri athugasemd-
um við frásögn rannsóknar-
lögreglunnar af rannsókn máls-
ins, á biaðamannafundi í gær,
eins og hún hefir birzt í fjöl-
miðlum i gær og í dag.
Við ásökum rannsóknarlögregl-
una fyrir það að hafa á nefndum
blaðamannafundi færst undan að
svara hver hafi verið viðbrögð
hinna grunuðu manna, er þeim
var kynnt frásögn hinna þriggja
ógæfuungmenna um aðild þeirra
Framhald á bls. 39
gærmorgun. Var hann einn á
trillunni, sem er rúmlega eitt
tonn að stærð. Fleiri bátar voru
að vitja um net á þessum slóðum I
gærmorgun og um klukkan 9
urðu menn á þeim varir við að
trilla Hilmars var mannlaus. Fóru
tvær trillur þegar á staðinn og
eftir skamma leit fannst lík
Hilmars á floti. Báturinn var
sleipur af snjó og hefur getum
verið að því leitt að Hilmar
heitinn hafi runnið til og fallið
útbyrðis.
framfærsluvfsitölunni, sem
mælir verðlagsuppbót, hefur
mark rauða striksins hækkað um
6 til 7 stig, þannig að það er nú
raunar um 564 til 565 stig. Sést af
þessu að enn er langt I rauða
strikið. Þegar I dag er komin um
6 til 7% hækkun á framfærslu-
vísitöluna, vegna verðhækkana
undanfarna daga.
Alþýðusamband Islands skýrði
TVEIR efstu menn á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Vestmannaevj-
um hafa óskað eftir því að bæjar-
stjórn Vestmannaeyja leysi þá
frá störfum sem bæjarfulltrúa
vegna ágreinings við tvo aðra
bæjarf ulltrúa S j álfstæðisflokks-
ins I bæjarstjórninni. Eru þetta
Einar Haukur Eirlksson, forseti
bæjarstjórnar, og Sigurður Jóns-
son bæjarfulltrúi. Mun næsti
bæjarstjórnarfundur, sem hald-
inn verður bráðlega, taka afstöðu
til þessarar óskar bæjarfulltrú-
anna.
Einar Haukur Eiriksson sagði í
frá því í samþykkt, sem það gerði
f fyrradag, að verðhækkanir
hefðu verið mun hærri undan-
farna daga en ráð hefði verið
fyrir gert í spám Þjóðhagsstofn-
unar um framvindu verðlagsþró-
unar. Mbl. spurði Ólaf Davíðsson,
hagfræðing hjá Þjóðhagsstofnun
um þetta.
Hann sagði, að þetta væri rétt
að því er varðar sumar þær hækk-
viðtali við Mbl. í gær, að hann
vildi það eitt um málið segja á
þessu stigi, að innan bæjarstjórn-
ar flokks Sjálfstæðisflokksins
væri sá skoðanamunur eða
ágreiningur að samkvæmt mati
hans og Sigurðar Jónssonar væri
ekki unnt að una því lengur og
því segðu þeir sig úr bæjarstjórn-
inni. Ekki vildi Einar Haukur
segja að Sjálfstæðisflokkurinn í
Vestmannaeyjum væri að klofna
— aðeins væri skoðanaágreining-
ur milli þessara fjögurra fulltrúa
flokksins og skiptust menn í tvo
hópa, tveir gegn tveimur.
anir sem þegar hefðu orðið eða
gætu orðið á næstunni. Kvað
hann þær geta orðið eitthvað
meiri en gert hefði verið ráð
fyrir. Þó sagði hann að áætlanir
Þjóðhagsstofnunar væru ekki
allar unnar þannig að áætlað
hefði verið verð á hverri einustu
vöru eða hverri tegund þjónustu.
Slíkt kvað hann ekki gilda nema
Framhald á bls. 39
Fréttin ósönn
— segir kona Geirfinns
VEGNA skrifa Dagblaðsins á
laugardaginn, um að eiginkona
Geirfinns Einarssonar hafi látið
fjarlægja bruggtæki frá heimili
þeirra daginn eftir a<> Geirfinnur
hvarf, hefur Guðný Sigurðar-
dóttir, eiginkona Geirfinns, haft
samband við blaðið, og beðið það
að koma á framfæri að þessi frá-
sögn Dagblaðsins sé rakalaus
ósannindi. Morgunblaðið hafði
vegna þessa samband við Hauk
Guðmundsson rannsóknar-
lögreglumann og spurðist fyrir
um skrif þessi og staðfesti hann
að enginn fótur væri fyrir þessum
söguburði.
Fannst lát-
mn í tjoru
við Sandgerði
TVÆR litlar stúlkur, sem slð-
degis á laugardag voru að leik I
fjörunni við Sandgerði, gengu
fram á Ifk þarna f fjörunni. Var
lögreglunni gert viðvart. Reynd-
ist Ifkið vera af Linnet Gfslasyni
vörubifreiðarstjóra, til heimilis
að Norðurgötu 21, Sandgerði.
Linnet heitinn var fæddur 7.
Framhald á bls. 39
Linnet Gfslason
A fundi fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Vestmannaeyjum
biðu þeir tveir, Einar Haukur og
Sigurður ósigur. Einar Haukur
sagði: „Við litum svo á að niður-
staða fulltrúaráðsfundarins hefði
orðið okkur í óhag.“ Hann kvað
málin myndu skýrast og myndi
hann þá skýra málið í meiri smá-
atriðið en hann vildi nú gera.
Hann kvað þetta mál alls ekki í
sambandi við mál Sigfinns Sig-
urðssonar, sem var bæjarstjóri í
Eyjum.
Stefán Runólfsson, sem er einh
varamanna Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn Vestmannaeyja og
taka mun við aðalsæti, ef fulltrú-
arnir tveir fá lausn, sagðist á
þessu stigi ekki vilja tjá sig um
málið. Sagðist hann fyrst vildu sjá
hver framvinda mála yrði. Innan
bæjarstjórnarflokksins kvað
hann vera átök um ákveðið mál-
efni, sem jafnvel myndi skýrast á
morgun og fyrr sagðist hann ekki
vilja ræða málin. Hann neitaði
því að Sjálfstæðisflokkurinn í
Eyjum væri að klofna — aðeins
væri ágreiningur um viss atriði.
Sagðist Stefán ekki telja að full-
trúarnir tveir myndu kljúfa
flokkinn og stofna nýjan flokk.
Hann kvað ágreininginn ekki um
stórvægileg mál og kannski ekki
ástæðu til að vera að hlaupa frá
þeim á þessu stigi. „Það var bara
ekki búið að leysa þessi mál,“
sagði Stefán. Hinn varamaðurinn.
Framhald á bls. 39
Vilja betri veg yfir
Holtavörðuheiði
Flutningabílum lagt fyrir framan Alþingishúsið
Bflstjórar, sem aka vöruflutn-
ingabflum milli Norðurlands og
Suðurlands gengu I gær á fund
samgönguráðherra I Alþingishús-
inu og afhentu honum þar kröfu-
bréf um bættan veg yfir Holta-
vörðuheiði, en heiðina telja bfl-
stjórarnir versta kaflann af öllum
hringveginum. Til áréttingar
máli sfnu lögðu bflstjórarnir bfl-
um sfnum fyrir framan alþingis-
húsið og komst enginn eftir
Kirkjustræti nema gangandi
meðan á fundi bflstjóra og ráð-
herra stóð. Nokkrir þingmenn
tóku það óstinnt upp, að hflstjór-
arnir skyldu leggja bflum sfnum
á þessum stað, en aðrir ömuðust
ekkert við þvf.
Halldór E. Sigurðsson sam-
gönguráðherra tók við bréfi bíl-
stjóranna. Sagðist hann hafa
áhuga og samúð með málstað
þeirra og skyldi gera allt hvað
hann gæti, — en peningar yrðu
líka að vera fyrir hendi. Morgun-
blaðið ræddi við Kristján Vagns-
son, en hann er einn bílstjóranna.
Sagðist hann vera úr Reykjavík,
en ekið flutningabíl milli Suður-
og Norðurlands síðast liðin 10 ár.
„Þessar aðgerðir okkar voru
gerðar í þeim tilgangi og vekja
athygli á því ófremdarástandi
sem vegurinn yfir Holtavörðu-
heiði er í,“ sagði Kristján, „á
þessum slóðum hafa vegirnir
ekkert verið endurbyggðir að
heitið getur í fjölda ára. Þeir eru
illa uppbyggðir og á hverju ári er
ekið í þá ofaníburði með miklum
tilkostnaði, en alltaf sækir í sama
farið.“
„Það sem við viljum er að fá
uppbyggðan veg, sem yrði snjó-
léttur og við vonumst til að fá
eitthvað af þeim 300 milj. króna
sem nú er verið að bjóða út til
Framhald á bls. 39
Geirfinnsmálið:
Réttargæzlumenn ásaka
rannsóknarlögregluna
Seltjarnarnes:
Gaf3 milljónir til
dvalarheimilisins
í Hafnarfirði
FIMM fulltrúar bæjarstjórnar
Seltjarnarness gengu á fund
stjórnar Sjómannadagsráðs að
Hrafnistu í Revkjavfk sl. föstu-
dag og afhentu þar að gjöf 3
milljónir króna frá bænum til
hinnar nýju Hrafnistubygg-
ingar í Hafnarfirði.
Við afhendingu gjafarinnar
flutti Karl B. Guðmundsson,
forseti bæjarstjórnar, ávarp,
þar sem hann rakti slakan að-
búnað aldraðs fólks í húsnæðis-
málum en þó væri svo fyrir að
þakka að í landinu væru til
geysi öflug samtök, sjómanna-
samtökin, sem hefðu látið mál-
efni aldraðra til sin taka af fá-
dæma dugnaði og framsýni.
Væri fjárhæðin afhent i virð-
ingar- og þakklætisskyni fyrir
lofsvert framtak. Jafnframt gat
hann þess, að Seltirningar
hefðu gert áætlun um byggingu
elliheimilis í tengslum við
hjúkrunarheimili og heilsu-
gæzlustöð, en hins vegar
myndu allmörg ár liða þar til
þeirri áætlun yrði hrundið í
framkvæmd.
Pétur Sigurðsson, formaður
sjómannadagsráðs, tók við gjöf-
inni og þakkaði hana. Hann gat
þess i ávarpi sinu, að honum
þætti vænst um þann skilning
sem fram kæmi hjá þeim Sel-
tirningum, er þeir gæfu þessa
gjöf án skilyrða. Eftirtektar-
vert væri að Seltirningar væru
sjálfir að undirbúa byggingar-
framkvæmdir fyrir aldraða og
sjúka, en langur tími myndi
líða uns þeim yrði lokið og á
meðan styddu þeir nú þegar við
bak sjómannadagssamtakanna,
þar sem þeir vissu að þörfin
væri brýn. Pétur gat þess, að
Seltjarnarnes væri þriðja
sveitarfélagið — ásamt Garða-
bæ og Hafnarfjarðarkaupstað,
sem sýndi í verki stuðning við
dvalarheimilið í Hafnarfirði.
Ennfremur hefðu Grindvík-
ingar óskað eftir því frá byrjun
að vera með en auk þeirra væru
mörg sveitarfélög í nágrenninu
og lengra burtu, sem gætu leyst
hluta sinna vandamála með
stuðningi við byggingu þessa.
Deilur í bæjarstjórn Vestmannaeyja:
Tveir fulltrúar Sjálfstœðis-
Féll útbyrðis af
trillu og drukknaði fl°kksins oska eftir lausn
Ekkert verður fullyrt um það að almeimt
verðlag sé hærra en spár gerðu ráð fyrir
— segir Ólafur Davíðsson, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun