Morgunblaðið - 30.03.1976, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1976.
Slippsbryggjan f Kcflavtk. Ungmcnnin segja f framburði sinum að þaðan hafi verið iagt upp í hina
örlagarfku bátsferð, þar sem þau segja að Geirfinnur hafi látið lffið af mannavöldum.
númeri og svaraði lýsing hans
til leirmyndarinnar og klæðn-
aðurinn var sá sami og manns-
ins, sem kom í Hafnarbúðina.
Laugardaginn 7. desember
var enn auglýst eftir tveimur
mönnum vegna málsins. I
fyrsta lagi var um að ræða
mann, sem kom f Hafnarbúðina
kl. 18.30 daginn, sem Geirfinn-
ur hvarf, og fékk að hringja.
Var hann á ljósum Mercedes
Benz sendibíl. I öðru lagi var
auglýst eftir manni um tvitugt
sem hafði farið úr landi daginn
eftir að Geirfinnur hvarf, undir
fölsku nafni. Kvaðst hann heita
Jón Guðmundsson, Ketilsbraut
20, Húsavik, þegar hann keypti
farmiða til Kaupmannahafnar
hjá Utsýn i Reykjavík. Reynd-
ist nafn og heimilisfang falsað,
og aðrar upplýsingar sem hann
gaf, reyndust rangar.
Þeir komu á slaginu sex
Hvarf Guðmundar Einarssonar leiddi til
nýrrar rannsóknar á máli Geirfinns
GEIRFINNSMÁLIÐ er nú mjög í sviðsljósinu eftir
biaðamannafund rannsóknarlögreglunnar s.l. föstu-
dag, þar sem rækilega var skýrt frá framburði þriggja
ungmenna um afdrif Geirfinns Einarssonar, en fram-
burður þeirra leiddi til þess að fjórir menn voru
hnepptir í gæzluvarðhald, grunaðir um að vera valdir
að hvarfi Geirfinns. Fullyrða má, að fá mál hafi vakið
jafn almenna athygli og Geirfinnsmálið. Hér á eftir
verður gangur málsins stuttlega rakinn, fyrri rann-
sókn málsins, sem ekki bar árangur, og sfðan hvað
gerst hefur eftir að rannsókn Geirfinnsmálsins hófst
að nýju þegar upplýsingarnar lágu fyrir frá fyrr-
nefndum ungmennum.
Rannsóknin beindist fyrst að
því að kanria ævi Geirfinns og
allt það, sem honum við kom,
svo og kanna hvað gerðist dag-
inn, sem hann hvarf. I því sam-
bandi voru mjög margir yfir-
heyrðir, fjölskyldumeðiimir,
vinir, vinnufélagar, afgreiðslu-
stúlkurnar f Hafnarbúðinni og
fl. og fl. Samkvæmt framburði
vinnufélaga Geirfinns ætluðu
þeir saman í bió þetta umrædda
kvöld. Geirfinnur var einn
heima hjá sér milli kl. 18 og 20,
og á þessu tímabili er talið, að
hann hafi fengið símhringingu,
sem breytti þessum áformum,
því þegar vinnufélaginn kemur
ki. 21, segist Geirfinnur ekki
hafa tök á því að fara i bióið því
hann eigi stefnumót við óþekkt-
an aðila i Hafnarbúðinni kl. 22.
Kvaðst hann ekki vita hver það
væri, aðeins það, að hann ætti
að koma einn og fótgangandi.
Hafði hann á orði að þetta væri
eitthvað dularfullt mál og
kannski væri vissara að fara
vopnaður á stefnumótið. Ók
vinnufélagi Geirfinns honum á
stefnumótið. Hann hitti engan í
þeirri ferð og sneri heim kl.
22,15 og er nýkominn heim
þegar hann fær hringingu og
segir. „Ég er búinn að koma" og
stuttu síðar „ég kem“ og heldur
til stefnumótsins á ný, nú á
sinum eigin bil. Siðan hefur
ekkert til hans spurzt.
LEIRMYNDIN
Um sama leyti og Geirfinnur
fær hringinguna kemur karl-
maður inn í Hafnarbúðina,
gengur stutta stund um gólf en
fær svo að hringja. Ef þessi
maður hefur hringt i Geirfinn
eins og talið er, hefur hann
þekkt símanúmerið, þvi nafn
Geirfinns var ekki að finna í
simaskrá. Lögreglan fékk strax
augastað á þessum manni og
auglýstu eftir honum i fjölmiðl-
um. Ekki bar það árangur og
var þá gerð af honum mynd að
fyrirsögn sjónarvotta og siðan
leirmynd, sem birt var í fjöl-
miðlum þriðjudaginn 26.
nóvember, viku eftir hvarf
Geirfinns. Jafnframt var gefin
út lýsing á manni þessum.
Hann var sagður rúmlega
meðalmaður á hæð, ljós yfir-
litum með skollitað hár, sem
náði niður fyrir eyru. Hann var
klæddur Ijósbrúnum leður- eða
leðurlikisjakka, nokkuð síðum,
með lausu belti og var í ljósum
tveedbuxum. Talið var, að hann
væri um þrítugt. Strax og leir-
myndin hafði verið birt i fjöl-
miðlum, fóru upplýsingar að
berast lögreglustöðvum víða
um land, flestar til lögreglu-
stöðva á höfuðborgarsvæðinu.
Upphringingarnar urðu hátt á
annað hundrað og um 70 nöfn
voru nefnd.
Þrátt fyrir allar þessar
ábendingar fannst ekki maður
sá, sem leirmyndin var mótuð
af. Sum nöfn voru nefnd af
mörgum aðilum, sem samband
höfðu við lögregluna, m.a. nafn
eins manns, sem nú situr í
gæzluvarðhaldi vegna Geir-
finnsmálsins. Ef framburður
ungmennanna stenzt er úti-
lokað að sá maður hafi hringt
úr Hafnarbúðinni, því ung-
mennin segja að umræddur
maður hafi ekið þeim frá
Klúbbnum til Keflavíkur
kvöldið, sem Geirfinnur hvarf,
og hafi hann farið rakleitt
niður að slippnum þar 1 bæ.
Afgreiðslustúlkurnar tvær í
Hafnarbúðinni voru látnar líta
á mennina, sem sitja inni vegna
málsins. önnur þeirra taldi sig f
fyrstu þekkja einn mannanna,
en dró það síðan til baka. Hefur
því við nýja rannsókn Geir-
finnsmálsins ekki tekizt að
varpa ljósí á hinar dularfullu
hrirrgingar á heimili Geirfinns,
sem tengdar hafa verið Hafnar-
búðinni, ekki ennþá a.m.k.
LYST eftir
MÖNNUM
Víða var leitað upplýsinga
m.a. upp við Sigöldu, þar sem
Geirfinnur vann og austur á
Héraði, þar sem hann dvaldi
nokkur sumur.
Miðvikudaginn 4. desember
lét lögreglan auglýsa eftir
tveimur mönnum vegna hvarfs
Geirfinns. Annar þeirra hafði
sézt á tali við Geirfinn í veit-
ingahúsinu Klúbbnum sunnu-
daginn áður en hann hvarf, en
hinn hafði komið á smurstöð á
Akureyri undir kvöld þann
dag, sem myndin af leirstytt-
unni var birt, þ.e. 26. nóv. Var
sá maður á Flatbíl með G-
Leirmyndin, sem mðtuð var af
manni þeim, sem talið var að
hringt hefði f Geirfinn úr
Hafnarbúðinni. Enn f dag er
ósannað hver maðurinn er.
Siðar kom I Ijós, að um var að
ræða mann nokkurn, sem hafði
farið úr landi undir fölsku
nafni, enda maðurinn I ólögleg-
um erindum, þ.e. ætlaði að
kaupa fíkniefni. Komst upp um
athæfið, líklega fyrst og fremst
vegna þess að maðurinn fór
utan einmitt á þeim tíma er
eftirgrennslan vegna Geirfinns-
málsins stóð sem hæst.
Enginn þeirra manna sem
auglýst var eftir I sambandi við
Geirfinnsmálið gáfu sig fram.
Hins vegar bárust viðbótar-
upplýsingar m.a. um mennina á
Mercedes Benz bílnum og Fiat-
bílnum. Samkvæmt þeim benti
margt til þess að sá sem kom f
Hafnarbúðina kl. 18.30 og sá
sem kom í þessa sömu búð kl.
22.30 hafi verið einn og sami
maðurinn. Hafi hann f fyrra
skiptið hringt heim til Geir-
finns, sem þá var einn heima,
og boðað hann á stefnumótið og
síðan hringt i Geirfinn eftir að
hann var búinn að koma og
boðað hann aftur. Kemur þá
Fangelsið við Sfðumúla í Reykjavfk. Þar eru f gæzluvarðhaldi mennirnir fjðrir, sem grunaðir eru um
að vera valdir að hvarfi Geirfinns og þar eru einnig þrfr banamenn Guðmundar Einarssonar, en tveir
þeirra segjast hafa farið f bátsferðina margumtöluðu og orðið vitni að þvf þegar Geirfinni var banað.
tvennt til greina, að mati
ýmissa, að maðurinn hafi orðið
seinn fyrir á stefnumótið kl. 22,
eða þá að hann hafi viljað
kanna hvort Geirfinnur færi
nákvæmlega eftir þeim fyrir-
mælum, sem honum voru gefin
og hann var búinn að segja
vinnufélaga sfnum frá, þ.e. að
koma einn og fótgangandi til
stefnumótsins. Þegar hann
hafði verið búinn að ganga úr
skugga um að Geirfinnur fór f
einu og öllu eftir fyrir-
mælunum, hafi hann boðað
hann að nýju til stefnumóts i
Hafnarbúðinni kl. 22.30.
RANNSÖKN HEFST
AÐ NYJU
Fyrri rannsókn Geirfinns-
málsins lauk formlega sumarið
1975, en þá hafði ekkert það
komið fram við rannsóknina,
sem leiddi til lausnar á málinu,
þrátt fyrir umfangsmestu eftir-
grennslan eftir nokkrum manni
hérlendis.
Það var svo í janúarmánuði
s.l. að skriður komst á málið á
ný, og var það í tengslum við
annað óhugnanlegt mál, hvarf
Guðmundar Einarssonar í jan-
úar 1974. Kom það rækilega
fram f frásögn Mbl. I laugar-
dagsblaðinu frá fundi rann-
sóknarlögreglunnar um Geir-
finnsmálið hver var aðdragand-
inn að því að Geirfinnsmálið
komst á skrið á nýjan leik og er
ekki ástæða til að endurtaka
það. Þegar framburður hinna
þriggja ungmenna lá fyrir voru
þrír menn um og yfir þrftugt
hnepptir f gæzluvarðhald. Fóru
rannsóknarlögreglumenn heim
til þeirra að morgni 26. janúar.
Var bankað upp hjá þeim öllum
þremur á slaginu kl. 6 um
morguninn og farið með þá í
fangelsið við Síðumúla, þar sem
þeir hafa verið í haldi sfðan. Að
kvöldi 10. febr. bættist
fjórði maðurinn i gæzluvarð-
hald vegna málsins, fimmtugur
að aldri. Menn þessir hafa allir
kært gæzluvarðhaldsúrskurði
sina, en Hæstiréttur hefur vís-
ar kærunum á bug. Mennirnir
voru fyrst úrskurðaðir í 45 daga
gæzluvarðhald en sfðan f 30
daga gæzluvarðhald, þegar
fyrri gæzluvarðhaldstíminn
rann út. Þeir hafa verið yfir-
heyrðir margsinnis og jafn-
framt verið unnið að gagna-
söfnun í málinu. 1 dag hefst svo
dómsrannsókn f málinu. Eins
og komið hefur fram, hefur
rannsóknarlögreglan ekki vilj-
að gefa upp viðbrögð mann-
anna fjögurra við hinum alvar-
lega vitnisburði ungmennanna,
sem frá var greint á blaða-
mannafundi rannsóknarlög-
reglunnar.
STÖRFELLD
________SKATTSVIK________
Tiltekið veitingahús hefur
mjög borið á bóma í sambandi
við rannsókn Geirfinnsmálsins,
veitingahúsið Klúbburinn, og
tveir forráðamenn þess sitja
nú f gæzluvarðhaldi vegna
málsins. 1 lok febrúarmán-
aðar s.l. gaf rfkissaksókn-
ari út ákæruskjal og
höfðaði opinbert mál á hendur
þessum mönnum fyrir marg-
visleg lögbrot í sambandi
við rekstur veitingahúsanna
Klúbbsins og Glaumbæjar.
Voru menn þessir ákærðir fyrir
vanskil að upphæð samtals tæp-
ar 38 millj. króna með því að
brjóta lög um söluskatt, tekju-
skatt, eignarskatt og bókhaid.
Er málið til meðferðar hjá
Sakadómi Reykjavíkur og er
þess krafizt af hálfu ákæru-
valdsins, að ákærðu verði
dæmdir til refsingar, sviptir
leyfum til vínveitinga og veit-
ingasölu og til greiðslu alls sak-
arkosnaðar.