Morgunblaðið - 30.03.1976, Qupperneq 30
38
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1976.
Ný sókn IRA
á Englandi?
London, 29. marz. Reuter.
FLEIRI sprengjur, sem
ætlað er að trufla daglegt
líf í London og öðrum
borgum Englands, munu
springa á næstunni, að því
er heimildir meðal skæru-
liða írska lýðveldishersins
hermdu í dag. Samkvæmt
heimildum þessum mun
þessi sprengjuherferð
sennilega verða fremur
„hófsöm“ og einkum
miðast við eyðileggingu
eigna, en Lundúnabúar
eru enn að jafna sig
eftir síðasta sprengju-
áfallið í Olympíusýn-
ingarmiðstöðinni s.l.
laugardag, þar sem 85
manns særðust. Hermdar-
verkin hafa nýlega beinzt
frá súrstaklega völdurn
skotmörkum á borð við
dýrustu veitingastaðina og
hermannakrár að tillits-
lausum árásum á mann-
marga samkomustaði alls
aimennings, — eins og sýn-
ingarmiðstöðina og neðan-
jarðarbrautirnar.
Blöð hafa bollalagt i þessu sam-
bandi að hermdarverkamenn eigi
í alvarlegum erfiðleíkum vegna
ásóknar og fangeisana lögregl-
unnar og hefðu þess vegna gripið
til enn örvæntingarfyllri aðgerða.
En yfirmaður þeirrar deildar
Scotland Yard sem berst gegn
hermdarverkastarfsemi sagði í
dag að fráleitt væri að búið væri
að knésetja hermdarverkastarf-
semi IRA á Englandi, þótt lögregl-
unni hefði gengið vel að undan-
förnu við handtökur á allnokkr-
um meintum félögum IRA.
Áreiðanlegar heimildir sem
standa nærri IRA í Dublin segja
að hermdarverkakerfi IRA hafi
ekki orðið fyrir alvarlegu áfalli og
þeir sem handteknir hefðu verið
væru aðeins „stuðningsmenn" og
„aðstoðarmenn" hermdarverka-
mannanna, en örfáir virkir fé-
lagar i IRA væru þarna á meðal.
AP-mynd.
ISINN OG KARTÖFLURNAR — Þessir jakar eru á
Vistula-ánni við Varsjá, höfuðborg Póllands, en sem
kunnugt er munu mikil frost þar um slóðir hafa valdið
því að íslendingar búa við kartöfluskort.
Minni ásókn innan banda-
rísku 200 mílna markanna
ERLENT
WashinRton 29. marz—AP
BANDARlKJASTJÖRN sagði í
gær að ásókn erlendra fiskiskipa
innan 200 mílna frá Atlantshafs-
strönd Bandarfkjanna hefði auk-
izt f febrúarmánuði en væri samt
enn minni en á sama tfma f
fyrra. Embættismenn í fiskveði-
deild viðskiptaráðuneytisins túlk-
uðu tölur um ásóknina sem merki
þess að aðrar fiskveiðiþjöðir
kunni að vera að draga saman
fiskveiðar sfnar á þessu svæði
vegna væntanlegrar útfærslu
bandarfsku fiskveiðilögsögunnar
f 200 mflur, en Bandarfkjaþing er
nú í þann veginn að samþykkja
ný lög sem gera ráð fyrir slfkri
útfærslu 1. marz á næsta ári. Öld-
ungadeildin á að taka frumvarpið
til meðferðar f dag. Þá berjast
Bandarfkin einnig fyrir alþjóð-
legum sáttmála um 200 mflna
efnahagslögsögu.
I skýrslu viðskiptaráðuneytis-
ins kemur fram að 505 erlend
fiskiskip hafi verið innan 200
mílnanna I febrúarmánuði, en
birting slíkrar skýrslu er nýmæli
f starfi ráðuneytisins. Talsmaður
þess sagði að framvegis yrði birt
mánaðarlega yfirlit yfir veiðar er-
lendra fiskiskipa innan 200 mílna
markanna. Sé þetta gert til að
koma til móts við mikinn áhuga á
málinu.
Tölur í skýrslunni sýna að hin
venjubundna aukna ásókn
snemma árs á miðin við Atlants-
hafsströndina er þegar byrjuð.
174 fiskiskip voru að veiðum und-
an strönd Nýja-Englands og 117
voru undan miðbiki strandlengj-
unnar. Skip þessi voru frá um 12
Iöndum, en mikill meirihluti allra
skipanna var sovézkur eða 159.
Kanadísk fiskiskip eru ekki með-
talin „vegna hefðbundinnar sam-
vinnu fiskimanna landanna
tveggja". Japönsk skip voru 82 og
spænsk 63, en aðrar þjóðir áttu
færri skip. Undan Atlantshafs-
ströndinni allri voru 294 skip að
veiðum, samanborið við 266 í jan-
úar og 334 I febrúar fyrir einu ári.
LoninRrud 29. marz — Rcutcr
SOVEZKUR fræðimaður, dr.
Yuri Knorosov, 53 ára að aldri,
sem starfar við safn eitt f
Leningrad, hefur nú komið
fram með lausn á einu mesta
tungumálaleyndarmáli sög-
unnar þar sem er þýðing á
myndletri Mayanna í Mið-
Amerfku. Þýðingin, sem komin
er út hjá sovézku vfsindaaka-
demfunni, er ávöxtur 25 ára
starfs dr. Knorosovs, en mynd-
mál Mayanna — Indfánaætt-
bálks sem byggði háþróað
menningarrfki f suðurhluta
Mexfco, Guatemala og
Honduras fyrir um 1500 árum
— hefur valdið fræðimönnum
miklum heilabrotum f meir en
öld.
Öll þekking um hvernig lesa
bæri letur þetta glataðist er
Spánverjar brutu landsvæði
þetta undir sig á 16. öld og
MAYA-MENNINGIN — EI Castillo-pframfdinn en efst á honum er
Kukuleanmusterið. Kukulcan var guð vinds og regns. Þessar rústir
May-menningarinnar eru f Chichén f Itzá f Yucután.
Sovézkur fræðimaður hefur
ráðið í myndletur May anna
prestar Mayanna, sem virðast
hafa verið eina stétt þjóðar-
innar sem var læs, urðu fyrir
ofsóknum og bækur þeirra
eyðilagðar. En á 18. og 19. öld
skutu upp kollinum i Evrópu
þrjú handrit sem ekki urðu eld-
um ofsækjendanna að bráð.
Það voru þessi handrit sem
vöktú áhuga dr. Knorosovs á aó
reyna að ráða i myndletur May-
anna.
Knorosov vann út frá útgefn-
um ljósprentunum þessara
handrita, en upprunalegu
handritin eru í söfnum í
Dresden, París og Madrid.
Fyrsta fræðirit sitt um efnið
gaf hann út árið 1963, og kom
það síðar út í Bandarikjunum á
ensku. Þá tóku bandariskir og
mexikanskir Mayafræðingar
niðurstöðum hans með tor-
tryggni, en síðan — eftir að
hann fór að beita þeim við þýð-
inguna — hefur þeim vaxið
fylgi.
Dr. Knorosov hefur aldrei til
Mið-Ameríku komið, en hann
lærði spænsku upp á eigin spýt-
ur, svo og þá nútímaútgáfu af
Maya-mállýzkunni sem töluð er
á Yucatan-skaganum, þar sem
hin forna menning átti sitt
siðasta blómaskeið og hrun á
níundu öldinni e.Kr., og önnur
afbrigði hennar, sem til eru á
Framhaid á bls. 39
Þessi fækkun er talin vera í sam-
bandi við alþjóðlegt samkomulag
sem gert var í fyrra um minnkun
veiðanna vegna of mikillar ásókn-
ar. Fiskiskip erlendra þjóða veiða
venjulega á þessu svæði fyrri
hluta árs en fara svo á önnur mið
síðar. Ráðuneytið sagði að á öðr-
um miðum hefðu veiðar verið til-
tölulega litlar I síðasta mánuði.
196 skip voru undan strönd
Alaska, —þar af 121 sovézkt og 70
japönsk, en I maí og júní tvöfald-
ast þessi tala vegna laxveiðitíma-
bilsins.
r
Italskir leyni-
þjónustufor-
ingjar hand-
teknir
Róm, 29. marz. AP.
HERSHÖFÐINGI einn
sem verið hefur yfirmaður
einnar deildar í ítölsku
leyniþjónustunni og kaf-
teinn nokkur við þá deild
voru í gær handteknir í
sambandi við rannsókn á
sprengingu sem hermdar-
verkamenn gerðu í Mílanó
árið 1969 og varð 16 manns
að bana og særði 100 aðra,
að því er heimildir innan
lögreglunnar sögðu í dag.
Mennirnir tveir eru
Gianadelio Maletti, sem
verið hefur yfirmaður svo-
kallaðrar „B“-deildar
leyniþjónustunnar frá
árinu 1967 og Antonio La
Drcna kafteinn. Tveir hóp-
ar hafa verið ákærðir fyrir
að bera ábyrgð á spreng-
ingunni, — annars vegar
anarkistar og hins vegar
hægri sinnaðir öfgamenn.
ítalska leyniþjónustan hef-
ur orðið illa úti í hneykslis-
máli áður, er Vito Miceli,
æðsti yfirmaður hennar,
var handtekinn árið 1974
vegna gruns um að hafa
þaggað niður undirróður-
starfsemi og byltingar-
áform hægri manna.
Engiim vandi að afla
sér atómsprengju
— segja bandarískir vísindamenn
London, 29. marz. Reuter.
KJARNORKUVOPN gætu f nán-
ustu framtfð dreifzt til landa á
borð við Lfbýu eða Uganda eða
jafnvel til einstakra skæruiiða-
flokka, að þvf er fimm bandarfsk-
ir vfsindamenn sögðu f sjónvarpi
f Bretlandi f gær. Einn þessara
vfsindamanna, dr. George
Rathjens, sem er prófessor f
st jórnmálavfsindum við Massa-
chusetts Institute of Technologi
(M.I.T.) sagði að hann væri þeirr-
ar skoðunar að kjarnorkustyrjöld
væri lfkleg og sennilegast væri að
hún yrði hafin af innilokuðum
löndum eins og tsrael, Taiwan
eða Suður-Afrfku.
Vísindamennirnir fimm, sem
allir hafa starfað að kjarnorku-
málum fyrir Bandaríkjastjórn,
töldu að kjarnorkuvopnatæknin
gæti dreifzt vegna sölu á kjarn-
orkuverum og plútóníumfram-
leiðslu þeirra til landa þriðja
heimsins. Dr. Rathjens sagði:
„Það er hryllilegur möguleiki að
rfkisleiðtogar sem eru jafn óút-
reiknanlegir og Gaddafi,.ofursti í
Líbýu, og haldnir órökrænni
Nefnd rann-
sakí mútumál
Washington, 29. marz. Reuter.
FORD Bandarfkjaforseti hefur
tilkynnt að hann muni setja á fót
nefnd til að rannsaka mútustarf-
semi bandariskra fyrirtækja er-
lendis. „Við getum ekki þolað að
fyrirtæki brjóti okkar eigin lög,
og þessi fyrirtæki verða einnig að
lúta þeim lögum sem gilda f þeim
löndum sem þau eiga viðskipti
við,“ sagði Ford í ræðu í gær.
Hann gat ekki um með hvaða
hætti nefndin myndi starfa en
kvað formann hennar verða Elli-
ott Richardson viðskiptaráðherra.
árásarhneigð eins og Amin
Ugandaforseti geti ógnað heim-
inum með kjarnorkusprengjum.“
1 sjónvarpsþættinum var lesin
yfirlýsing frá dr. Bernard Feld,
sem vann við kjarnorkusprengju-
áætlanir Bandarikjanna f síðari
heimsstyrjöldinni og er nú yfir-
maður kjarnorkudeildar M.I.T.,
og sagði hann þar að innan næstu
tíu ára myndu kjarnorkuver
framleiða nægilegt magn af
plútóníum til að framleiða 10.000
atómsprengjur á borð við þá sem
varpað var á Nagasaki. Og ekkert
yrði auðveldara fyrir einbeittan
hóp manna en að verða sér út um
Framhald á bls. 39
Flóá
skinni
London, 29. marz. Reuter.
KATTAFLÆR herja nú á
Breta. Þessum litlu skordýrum
hefur fjölgað mjög á undan-
förnum 25 árum og þau herja
nú á milljónir brezkra heimila,
að því er heilbrigðissérfræð-
ingur einn, John Maunder,
segir. Einkum eru það heimili
auðugri fjölskyldna með sfn-
um vel upphituðu herbergjum
og teppalögðu gólfum sem eru
gróðrarstía flónna og afleið-
ingarnar eru ofnæmi af ýmsu
tagi, sýkingar og sársaukafull-
ur kláði fyrir íbúana. Katta-
flóaduft er það eina sem dugir
við þessari ásókn, segir John
Maunder, en þvi verður að
dreifa um allt hús. Ekki bara á
heimilisköttinn. „Fyrir hverja
fló á kettinum eru 100 annars
staðar," segir hann.