Morgunblaðið - 31.03.1976, Síða 14

Morgunblaðið - 31.03.1976, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1976 Miklar umræður um landhelgismál: Ákvörðun Bandaríkjanna um 200 m auðlindalögsögu 1977 mikilvægasti stuðningurinn Bandaríkin athuga beiðni okkar í alvöru MIKLAR umræður urðu í sameinuðu þingi í gær í tilefni átakanna á tslandsmiðum sl. föstudag. Þar komu fram eftirfarandi efnisatriði: 0 — Að ákvörðun Bandaríkjanna um 200 mílna fisk- veiðilandhelgi á næsta ári er mikilvægur stuðningur við íslenzk sjónarmið í hafréttarmálum. % — Að Bandaríkjamenn íhuga nú möguleika á því að verða við tilmælum tslendinga um hraðskreitt gæzlu- skip. # — Að samningar við Breta eru útilokaðir, að dómi ríkisstjórnarinnar, meðan á herskipafhlutun þeirra stendur. 0 — Að íslenzkur þingmaður telur Breta nýta Færeyjar til að auðvelda rányrkju sína á tslandsmiðum. % — Að viss hættumerki um hefðbundin rétt eða gjörðardóm eru til staðar á hafréttarráðstefnu S.Þ. — og að hugsanleg tilfærsla ákvarðanatöku um fiskveiðimál einstaka aðildarríkjum EBE til aðalstöðvanna í Brússel skapar ný vandamál, tengd fiskveiðihagsmunum okkar og afurðasölu. Breytt afstaða ríkisstjórnar? Lúðvik Jósepsson (K) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár i sam- einuðu þingi í gær vegna ásigl- ingar brezkrar freigátu á lög- gæzluskipið Baidur sl. föstudag. Tuttugu ásigiingartilraunir, sem leitt hafí til fjögurra árekstra, sem og sú grófa hótun, er fælist i því að manna byssur freigátn- anna, hefðu fært landhelgisátök- um við Breta á enn frekara hættu- stig en fyrr, svo nú dygðu ekki formleg mótmæli ein, heldur þyrfti að gripa til meir afgerandi mótaðgerða. Þá taldi Lúðvík að Bretar nýttu Færeyjar sem áningar- og viðgerðarstað, til að stytta sér siglingar og skapa sér rýmri tíma við rányrkju á Isiandsmíðum. Taldi Lúðvík að ræða þyrfti við Færeyinga um þessar nytjar og fá þá til að taka fyrir slík afnot. Önnur atriði, sem Lúðvík lagði áherzlu á, vóru þessi: 1) Efla þyrfti gæzluna með 'tveimur til þremur stórum togurum og hrað- skreiðu leiguskipi erlendis frá, 2) ráðaskiptiáhöfn á gæzluskipin, 3) efla tekjur gæzlunnar með innflutningstolli á brezkar vörur, 4) fá Færeyinga til að taka fyrir alla þjónustu við brezk rányrkju- skip, 5) auka á pólitískan þrýst- ing með því að kalla heim sendi- herra Islands hjá Nató. Ef það dyggði ekki, þá að ioka varnar- stöðvum Bandaríkjanna; og ganga úr Atlantshafsbandalaginu ef Bretar færu ekki með her- skipin út úr landhelginni innan takmarkaðs frests, sem þeím ætti að gefa. Þá spurðist Lúðvík fyrir um eftirfarandi: I fyrsta lagi hvort breytt væri afstaða núverandi rikisstjórnar til samnings við Breta, en ástæða væri til að spyrja slíks í tiiefni af leiðara í Morgunblaðinu í dag (þ.e. gær). I öðru lagi, hvers vegna alfriðað svæði út af Suð- austurlandi, þar sem smáufsi héldi sig, hefðí verið skert nýverið; hvort slíkt hefði verið gert að kröfu eða ósk V- Þjóðverja? Efnahagsbandalagið og staðan á haf- réttarráðstefnunni Benedikt Gröndai (A) kvað dúnalogn yfir landhelgisátökum i brezkum fréttamiðlum og í að- gerðum brezkra stjórnvalda, enda hefðu þau öðrum hnöppum að hneppa og um að þrasa heima fyrir. Verra væri að sama dúna- lognið ríkti í þessu máli hjá ís- lenzku ríkisstjórninni, hvort sem það stafaði af sams konar heima- vanda og hjá Bretum eða öðru. Rétt væri að glöggva sig á þeim breytingum á stöðu landhelgis- málsins, sem gætu verið að gerast á afgerandi stöðum. Fregnir af þróun mála á hafréttarráðstefn- unni væru ekki uppörvandi, þar sem svo virtist, að Islendingar stæðu höllum fæti og undir ámæl- um, og skilyrðisbundin ákvæði fyrir 200 mílum ættu formæl- endur. Horfur væru og á því að Efnahagsbandalagið væri að draga til sín vald f iandhelgismál- veiðilögsögu. Yrði breyting á í þvi efni hlyti afstaða okkar til samn- inga að byggjast á þeim fiski- fræðilegu staðreyndum og hags- munaatriðum, sem fyrir lægju. Forsætisráðherra gat þess að könnun færi nú fram á útvegun hraðskreiðs leiguskips. Ákvörðun ættu að máli, yrði málstað okkar til framdráttar. Varðandi ummæli Lúðvíks um Færeyjar yrði að undirstrika, að ákvörðun i þessum efnum gætu Færeyingar einir tekið sem sjálf- stæð þjóð að þessu leyti, og af eigin hvötum. Þeir hefðu áður Ólafur Jóhannesson, dómsmáia- ráðherra, þakkaði þann einhuga stuðning við eflingu landhelgis- gæzlunnar, sem þessar umræður leiddu í ljós. Hann rakti þróun landhelgisflota okkar á síðustu árum; byggingu Týs, gagngerðar endurbætur á Þór, tilkomu Baldurs í gæzluflotann og ákvörð- un um að bæta við systurskipi hans nú, ákvörðun um kaup nýrr- ar gæzluflugvélar, ákvörðun um ráðningu viðbótarstarfsliðs til af- leysinga, og viðleitni stjórnvalda til að útvega hraðskeitt leiguskip, m.a. með utanför tveggja skip- herra, sem því miður hefði þó ekki leitt til jákvæðrar niður- stöðu, að því er sér virtist, en skýrsla skipherranna væri þó ókomin í sínar hendur. Ölafur gat þess að ftr. Alþýðu- bandalagsins í landhelgisnefnd hefði fyrst í janúar sl. flutt tillögu um togara til landhelgisgæzlu, en hann myndi enga tillögugerð frá Alþýðufiokknum um það efni. Auk Baldurs, sem hefði reynzt vel, yrði í dag gerður samningur um leigu annars togara til gæzl- unnar, sem gæti haldið á miðin með svo til engum fyrirvara. Hins vegar væri þess að geta, að mót- mæli hefðu borizt frá iandverka- fólki yfir því að togarar væru teknir frá hráefnisöflun til gæzlu- starfa. Þá gat ráðherra þess að sér hefði borizt skeyti fró sendiherra Geir Hallgrímsson Ólafur Jóhannesson Matthfas Bjarnason Lúðvfk Jósepsson. Engir samningar við Breta meðan á herskipaíhlutun þeirra stendur um og samningum þar að iútandi, frá einstökum aðildarríkjum sínum. Þetta veikti stöðu okkar enn, þar sem þá myndu einvörð- ungu hörð viðskiptasjónarmið ráða ferð og ákvörðunum. Astæða. væri til að hyggja að veiðihags- munum okkar í Norðursjó og við A-Grænland í þessu sambandi. Ef mál þróuðust á hinn verri veg, bæði á héimamiðum og út á við, væri rik ástæða til að leita svara við ýmsum spurningum hjá „hinni þöglu" ríkisstjórn okkar. Vökul og virk ríkisstjórn Geir Hallgrímsson, forsætisráð- herra, sagði, að ekki væri látið sitja við formleg og hörð mótmæli vegna síendurtekinna ofbeldisað- gerða Breta. Sífellt væri unnið að kynningu málstaðar okkar á þeim vettvangi, sem mál myndu að lok- um þokast í rétta átt. Nefndi hann þar til samþykktir Norðurlanda- ráðs og utanríkisráðherrafundar Norðurlanda, vökult kynningar- starf meðal aðildarríkja Nato og hjá þeim stofnunum Sameinuðu þjóðanna, sem um hafréttarmál fjölluðu. Að gefnu tilefni vildi hann árétta þá stjórnarstefnu, að samn- ingar við Breta kæmu ekki til greina meðan þeir héldu herskip- um sínum innan íslenzkrar fisk- hefði verið tekin um leigu tveggja viðbótar togara; annar færi tii löggæzlustarfa en hinn til fiski- leitar og rannsókna. Ráðinn yrði aukinn starfskraftur til gæzl- unnar, m.a. til afleysinga. Nýtt gæzluskip, Týr, hefði komið rétt U\i ''^0* AIÞinCI fyrir útfærsluna, og gagngerð endurbót hefði farið fram á Þór. Akvörðun hefði verið tekin um kaup á nýrri gæzluvél (Fokker) og heimild gefin til leigu á hlið- stæðri vél unz sú nýja kæmi. Þá ræddi forsætisráðherra um stöðu mála á hafréttarráðstefn- unni og þá hættu, sem vera kynni á hugsanlegum skilyrðisbundnum ákvæðum fyrir 200 mílna alþjóða- reglu. Landhelgisátökin væru nýtt til að knýjafram slík ákvæði, andstæð okkur, en sú staðreynd, að við hefðum samið við allar þjóðir aðrar en Breta, sem hlut staðið myndarlega í stykkinu með okkur og jafnan sýnt málstað okkar samúð. Svæðið úti af Suðausturlandi Matthfas Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, svaraði fyrirspurn Lúðvíks vegna skerðingar á frið- uðu svæði úti af Suðausturlandi. Ákvörðun um friðun þessa svæðis hefði verið tekin í framhaldi af tilmælum togaraskipstjóra eystra og umsögn Hafrannsóknastofn- unar. Hafrannsóknastofnunin hafi ekki talið þetta svæði nægi lega kannað, en friðun þess þó þjóna skynsamlegum tilgang vegna ástands fiskistofna al mennt. Svæði þetta væri enn könnun, en nýleg sky ndirannsókn hefði leitt í ljós, að þar væri lítið um fisk, einkum um þorsk, en nokkuð af ufsa á hluta þess. Þessi skyndikönnun væri fyrst og fremst forsenda þrengingar svæðisins, þar sem skerðing þess komi ekki við þorskstofninn, en framhaldsákvarðanir yrðu að sjálfsögðu byggðar á niðurstöðum frekari kannana Ráðuneytið væri staðráðið í að fylgja fast fram nauðsynlegum aðgerðum til friðunar veiðisvæða, þegar og þar sem fiskifræðilegar athuganir leiddu nauðsyn slíkra aðgerða í ljós. tslands ( Bandarikjunum, þess efnis, að hann hefði verið kall- aður á fund aðstoðarutanríkisráð- herra Bandarikjanna, þar sem undirstrikað hefði verið, að Bandarikin vildu athuga mögu- leika á því að verða við tilmælum Islendinga um hraðskreitt leigu- skip. Lyktir þessa máls lægju að vísu ekki fyrir — en fordæmi um slíkt væru fyrir hendi hjá þeim. Það væri jafn eðlilegt að Island færi þessa á leit við Bandaríkin, vegna sérstæðs sambands þessara landa, og það væri óeðlilegt að fara slíks á leit víð nokkra aðra þjóð. Ráðherra sagði framferði Breta allt óverjandi, en allir gætu leitt líkur að því, í ljósi framkomu þeirra, og i ljósi sögunnar, hvern veg þeir hefðu hagað sér, ef við hefðum verið fyrir utan Atlants- hafsbandalagið, og einskis þrýst- ings þaðan gætt. Sigur er ekki unninn, sagði Ölafur, og hans kann að þurfa að bíða enn um sinn, en hann er i nánd. Þar um ræður, auk góðs málstaðar, þróun hafréttarmála, og ekki síður ákvörðun Banda- ríkjaþings um útfærslu í 200 milur á næsta ári. Sú ákvörðun er máske lykillausnin að þeim mark- miðum, sem við höfum stefnt að og mikilvægur stuðningur við sjónarmið okkar í fiskveiðilög- sögumálum. Meðai annarra þingmanna sem tóku til máls vóru Karvei Pálma- son og Ragnar Arnalds.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.