Morgunblaðið - 01.08.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.08.1976, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR 167. tbl. 63. árg. SUNNUDAGUR 1. ÁGUST 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sænskur læknir í Tel al-Zaatar: „Verðum öll dauð innan þriggja daga” Beirút, 31. júlí. AP. KRISTNIR hægri menn f Beirút settu f dag ný skilyrði fyrir tak- mörkuðu vopnahléi til að leyfa brottflutning særðra úr Tel Al- Zaatarflóttamannabúðunum og varð alþjóða Rauði krossinn að hætta við að senda lest sjúkrabfla inn f búðirnar á sfðustu stundu. Ekki var f morgun ljóst hvaða skilyrði var um að ræða, en þau voru eitthvað f sambandi við tak- mörkun á ferðum sjúkrabflanna. Sænskur læknir, sem hefur starfað innan flóttamannabúð- anna, sagði í símtali við frétta- mann i morgun, að um 30 þúsund manns væru í búðunum þar af 4000 særðir og sjúkir. Sagði læknirinn að ef hjálp bærist ekki yrðu allir dauðir innan þriggja sólarhinga. Vatnslaust hefur ver- ið í búðunum um 3 vikna skeið og ástandið ógnvænlegt. Járnsýringur eða mýrrarrauŒ á Mars Með flesta borgabúa út og suður njóta þeir sem eftir eru að hvilast í kyrrð og ró. Ljósm. RAX Pasadena, 31. júlf. Reuter. VÍSINDAMENN f Pasadena segja að fyrstu niðurstöður rann- sókna á jarðvegssýnum frá Vfk- ingi I útiloki ekki þann mögu- leika að Iff f einhverri mynd fyrirfinnist á Mars. Dr. Gerald Soffen, einn vísinda- mannanna, sagði blaðamönnum: „Mars er lituð eyðimörk." Dr. Priestley Toulmin sagði að helztu efnin í jarðveginum væru járn, kalsium, kisill, títanium og ál. Jarðveginum lýstu þeir þannig að hann væri annað hvort mýrar- rauði eða þakinn þunnu ryðbrúnu lagi af járnsýringi, það er efna- sambandi járns og súrefnis. Dr. Benton Clark sagði að tæki Víkings hefðu ekki fundið efni eins og vanadium og molyden sem Framhald á bls. 43 Óttast nýjan risa- skjálfta um helgina Peking, 31. júlí. AP. UTANRlKISRAÐUNEYTIÐ f Peking varaði f dag við að nýr jarðskjálfti allt að 7 á Richter- kvarða væri yfirvofandi og gæti Rússar hóta að hætta Montreal, 31. júlf. AP. ER Mbl. fór I prentun siðdegis I gær var ekki ljóst hvort Sovét- menn ætluðu að gera alvöru úr þeirri hótun sinni að hætta þátt- töku f Ólympíuleikunum, ef Kanadamenn skiluðu ekki aftur 17 ára dýfingamanni, sem baðst f gær hælis sem þólitfskur flótta- maður í Kanada. Sökuðu Sovét- Framhald á bls. 43 komið innan 48 klst. með upptök sfn f námunda við borgina Tang- shan, sem er f rústum eftir skjálftana fyrr f vikunni. f þessu sambandi má benda á að Kfnverj- ar mældu stóra skjálftann 7.2 á Richterkvarða, en jarðskjálfta- fræðingar á vesturlöndum mældu hann 8.2. Hafa kfnverskir ráðamenn var- að milljónir manna, sem búa á og í grennd við jarðskjálftasvæðið að halda sig utan dyra. Kfnverjum hefur á undanförnum árum tekist einstaklega vel að segja fyrir um jarðskjálfta þótt þeir hafi ekki átt von . á stóra skjálftanum svo snemma, sem raun bar vitni, en vísindamenn þar f landi höfðu spáð stórum skjálfta fyrir 1980. Sérfræðingar á Vesturlöndum telja nú, að jarðskjálftinn á mið- vikudag, sem lagði Tangshan f rústir hafi verið mestu og mann- Framhald á bls. 43 Tokyo dýrasta borg í heimi Genf. 31. júlf. AP. . MATUR er dýrari f Tokyo en f nokkurri annarri borg f heim- inum og dýrari f Stokkhólmi og Genf en f nokkurri annarri borg f Evrópu samkvæmt rann- sókn sem hefur verið gerð á vegum ráðgefandi kaupsýslu- fyrirtækis f Genf. New York er f sjöunda sæti og Róm og Lond- on næst á eftir. í Tokyo kostar 46,368 fsl. krónur að kaupa 50 dæmigerð- ar matartegundir til heimilis- neyzlu, 33.672 krónur í Stokk- hólmi, 32.200 í Genf, 30.544 í Ólsó, 28.152 f Frankfurt, 26,128 í Parfs, 21.528 í New York, 20.056 f Róm og í London. Samkvæmt vfsitölu sem er 100 stig f New York er matar- kaupavfsitalan f Tokyo 180.8, samgönguvísitala 134,6 og vfsi- tala skemmtana- og afþreyfing- arkostnaðar 153,7 stig. Það eina sem er ódýrara í Tokyo en i New York er föt: vísitala fatn- aðarkostnaðar er 93.5 stig f Tokyo. Föt eru dýrust f Genf: 20.4% dýrari en í New York og tæp- lega 40% dýrari en í Stokk- hólmi. Samgöngur eru dýrastar f Aþenu þótt hún sé annars ódýr borg á mörgum sviðum. Verðlag f veitingahúsum er hæst í Stokkhólmi og Genf. Þriggja rétta máltíð fyrir fjóra á ffnu veitingahúsi með léttum vínum, kaffi og sterkari drykkj- um kostar frá 33.488 krónum til 39.744 í Stokkhólmi og 25.576 til 32.200 í Genf. Framhald á bls. 43 Hafréttarráðstefnan hefst á ný á morgun London 31. júlí AP — Reuter. AREIÐANLEGAR heimildir í London hermdu f dag, að þegar Hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst á ný f New York á morgun verði lögð fyrir fulltrúa uppkast að samkomulagi f 4 lið- um, sem muni verða grundvöllur nýrra og flókinna samningavið- ræðna um nýjan hafréttarsátt- mála. Heimildirnar töldu ólfklegt að þessi fundur ráðstefnunnar, sem standa á til 17. september, næði lokasamkomulagi, en vonast til að árangur yrði það mikill að öruggt yrði, að nýr hafréttarsátt- máli yrði undirritaður f sfðasta lagi á næsta ári. Um 1500 fulltrúar frá 156 lönd- um sitja þennan fund og er verk- efni þeirra að fullvinna 397 grein- ar nýs hafréttarsáttmála, sem fjallar um 200 mílna auðlindalög- sögu, rannsóknir og nýtingu náttúruauðæfa á hafsbotni meng- un og kerfi til að setja niður deil- ur, sem kunna að rfsa vegna 'sátt- málans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.