Morgunblaðið - 01.08.1976, Blaðsíða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. AGUST 1976
Pálína Þ. Waage við búðarborðið í verzlun sinni
„Byrjaði
ósköp
smátt”
• ! GÖMLU HUSI á Seyðisfirði
er verzlun og hefur svo verið um
árabil. Vezlunin, sem ber nafn
EJÍ. Waage, er ef til vill merkileg-
ust vegna þess, að hún mun vera
elst allra verzlana á Seyðisfirði og
jafnvel á öllum Austfjörðum, en
hún var stofnuð árið 1907. Húsið,
sem verzlunin hefur verið 1 frá
upphafi, ber aldurs sfns merki, og
á leið okkar um Seyðisfjörð nú
nýverið litum við þar inn og
spjölluðum við núverandi eig-
anda, Pálfnu Þ. Waage:
— „Þetta byrjaði nú ósköp
smátt,“ sagði Pálína. — „Stofn-
andinn E.J. Waage, var sjómaður
hér á Seyðisfirði og hóf hann
þennan verzlunarrekstur í hjá-
verkum. Hann byrjaði hér í hús-
inu, sem var jafnframt íbúðarhús
og með verzluninni rak hann ein-
hvers konar kaffihús. Seinna var
húsið svo stækkað og umsvifin
smájukust."
Við spurðum Pálfnu um rekst-
urinn og hvers konar vörur hefðu
aðallega verið á boðstólunum í
gegnum árin:
— „1 byrjun voru þetta alls
konar vörur en smátt og smátt
þróaðist það upp í að vera vefnað-
arvörur nær eingöngu. Viðskiptin
hafa gengið svona og svona, en
ekki kvarta ég,“ sagði Pálína.
Nú kom viðskiptavinur inn í
verzlunina og Pálína þurfti að
bregða sé að bak við efnisstrang-
ana sem þarna voru í öltum stærð-
um og gerðum upp um alla veggi.
Verzlað
með blóm
undir ber-
um himni
• A FIMMTUDAGINN sl. gat að
!íta sjaldgæfa sjón á einni aðal-
götunni í Neskaupstað, — blóma-
búð undir berum himni.
Við nánari athugun kom f ljós £
að þarna var á ferðinni Finnbogi .g
Hermannsson eigandi blómabúð- '3
arinnar Míru í Reykjavík, en
Finnbogi var í þriggja vikna sölu-
túr um Austfirði. Aðspurður
kvaðst Finnbogi hafa selt vel á
Austfjörðum og mjög vel á Vest-
fjörðum er hann var þar á ferð
fyrr í sumar. Var ekki annað að
sjá en Norðfirðingar kynnu vel að
meta blómin hans Finnboga,
a.m.k. var örtröó við afgreiðslu-
borðið þann stutta tíma sem við Finnbogi Hermannsson við afgreiðsluborðið og bílinn sem
stöldruðum við. hann notar á söluferðum sínum um landið.
m
DAGUR
VERZLUNAR-
FÚLKS
„í upphafi
var það
krambúð”
% RÉTT VIÐ símstöðina í Nes-
kaupstað stendur Utið hús og sér-
kennilegt. Þar verzlar Sigurður
Armannsson með nýlenduvörur
og þegar við litum inn hjá honum
var hann önnum kafinn við að
afgreiða eina húsmóðurina f bæn-
um um helztu vörur til heimilis-
haldsins. Við spjölluðum við Sig-
urð um viðskiptin, verzlunina
sjálfa og spurðum hann hversu
lengi hann hefði rekið þar við-
skipti:
— „Ég er tiltölulega nýbyrjað-
ur með þessa búð,“ — sagði Sig-
urður, „en að því er ég best veit
mun þetta vera ein elsta verzlun
bæjarins. Pétur L. Waldorf stofn-
aði hana en ég þori ekki að fara
með ártalið. Ég held örugglega að
þetta hafi verið krambúð í upp-
hafi og sjálfsagt hefur verið verzl-
að með ýmislegt hér í gegnum
árin en ég er eingöngu með ný-
lenduvörur."
Við gátum ekki tafið Sigurð
lengur frá afgreiðslustörfunum,
en áður en við fórum leysti hann
okkur út með fullum poka af
súkkulaði harðfiski, tómötum og
öðru góðgæti sem kom sér vel á
leiðinni i áætlunarbílnum frá
Neskaupstað til Egilsstaða.
Sigurður að afgreiða einn af
viðskiptavinum sínum.