Morgunblaðið - 01.08.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. ÁGUST 1976
Verkamannabústaðir í Reykjavík:
Flutt inn í fyrstu
íbúðirnar í ágúst
I NÆSTA mánuði, nánar
tiltekið 19. ágúst klukkan
þrjú er áformað að af-
henda fyrstu fbúðina í
hinni nýju áætlun um
Verkamannabústaði í
Eyjaskipstjórinn
játar brot sitt
SKIPSTJÓRINN á togbátnum
Þórunni Sveinsdóttur VE játaði
við réttarhöld í fyrrinótt að hafa
verið á ólöglegum veiðum I land-
helginni grunnt útaf Ingólfs-
höfða, 3,1 sjómílu innan fjögurra
mílna markanna. Eins og kom
fram í blaðinu í gær, kom varð-
skipið Óðinn að bátnum laust eft-
ir miðnætti aðfararnótt s.l. föstu-
dags.
Dóms í málinu var að vænta
síðdegis I gær, en dómsforseti er
Allan Magnússon, fulltrúi bæjar-
fógetans I Vestmannaeyjum.
Þetta er annað málið, sem dæmt
er eftir samkvæmt nýjum lögum
um veiðar í fiskveiðilandhelgi Is-
lands nr. 81 frá 1976, en þau
gengu I gildi 1. júlí s.I.
Reykjavík. Alls eru íbúð-
irnar í þessum fyrsta
áfanga 308, en fbúðirnar
eru í Seljahverfi. Borgar-
stjórinn í Reykjavfk, Birg-
ir tsleifur Gunnarsson,
mun afhenda fbúðina.
Eyjólfur K. Sigurjóns-
son, formaður stjórnar
Verkamannabústaða, sagði
í samtali við Mbl. að greini-
leg þörf væri fyrir bygg-
ingu slíkra íbúða sem lág-
launafólk gæti fengið með
hagstæðum kjörum. Um-
sóknir um íbúðirnar 308
sýndu það bezt, en þær
voru 1021 að tölu. Þeir,
sem íbúðirnar hljóta, fá um
það tilkynningu á allra
næstu dögum. Verða þeir
að greiða fljótlega 10%
kaupverðsins og önnur
10% þegar flutt er inn, en
eftirstöðvarnar dreifast á
ákveðinn tíma. Stefnt er að
þvi að flutt verði í 124 íbúð-
ir fyrir 1. október n.k.
Loðnuveiðarnar:
Tveir á leið til lands
Humarafli Hornafjarð-
arbáta var 155 lestir
Homafirði, 30. júlí.
VEGNA sumarfría sjó-
manna á Hornafjarðarbát-
um lauk humarvertfð hér
23. júlf. Heildarhumarafl-
inn var í ár rétt tæpar 155
lestir hjá 15 bátum en var í
fyrra 133,8 lestir hjá 13
bátum.
í fyrsta flokk fóru nú
62,3% aflans en í fyrra
60%. Bezt var útkoman i
júní en þá fóru 71% aflans
í 1. flokk. Heildarverðmæti
humars var 134 milljónir.
Annar afli bátanna á
þessu tímabili var 938 lest-
ir og afli togarans Skinn-
eyjar var 423 lestir. Afla-
verðmæti hjá togaranum
var rúm 21 milljón en hjá
bátum, öðrum en þeim sem
voru á humarveiðum 55
milljónir. Heildarverð-
mæti er þvi samanlagt
rúmar 209 milljónir króna.
Sumarfrí sjómanna
standa til 10. ágúst en um
miðjan ágúst munu nær
allir Hornafjarðarbátar
hefja reknetaveiðar.
Skaftafell lestar 200 lestir
eða 11 þúsund kassa á
Ameríku í dag.
— Gunnar.
TVEIR loðnubátar höfðu
tilkynnt loðnunefnd um
afla fyrir hádegi í gær. Að
sögn dr. Björns Dagbjarts-
sonar, forstjóra Rann-
sóknastofnunnar fisk-
iðnaðarins, en hann var á
skrifstofu loðnunefndar f
gær, voru Sigurður og Eld-
borg á leið til Siglufjarðar
með 300 lestir hvort skip.
Björn sagði að engar fréttir
hefðu borizt af öðrum loðnubát-
um, en þeir væru nú við veiðar
um 120 mílur norður af landinu.
Þó væri vitað að illa hefði gengið
að ná loðnunni og virtist hún
bæði standa djúpt og vera dreifð.
Sagði hann, að komið hefði í ljós,
að þegar afli væri tregur hjá
bátunum virtust þeir fá verri
loðnu en þegar sæmileg köst
fengjust, hvernig sem á því stæði.
Þegar tregt væri færi fituinni-
hald loðnunnar allt niður í 9%, en
fyrr í vikunni, þegar sæmileg
2 meiddust
aróhappi 1
Akureyri, 31. júlí.
UMFERÐARÓHAPP varð við
vestustu Eyjafjarðarárbrúna um
kl. 00.30 I nótt. Bfll úr Þingeyjar-
sýslu var á austurleið þegar öku-
maður missti vald á honum f
lausamöl rétt vestan við brúna og
hemlaði snöggt, en við það snerist
bfllinn og lenti á öðrum brúar-
stólpanum. Tveir farþegar meidd-
Héraðsmót Sjálfstæðisflokksins um næstu
helgi í Höfn, Egilsstöðum og Eskifírði
UM NÆSTU helgi verða haldin
3 héraðsmót Sjálfstæðisflokks-
ins:
Höfn f Hornafirði föstudaginn
6. ágúst kl. 21. Ávörp flytja
Matthías Á. Mathiesen, fjár-
málaráðherra og Guðmundur
H. Garðarsson, alþingismaður.
Egilsstöðum, laugardaginn 7.
ágúst kl. 21. Ávörp flytja
Matthfas Á. Mathiesen, fjár-
málaráðherra og Pétur Blöndal,
forstjóri.
Eskifirði, sunnudaginn 8. ágúst
kl. 21. Ávörp flytja Matthías Á.
Mathiesen, fjármálaráðherra
og Pétur Blöndal, forstjóri.
Skemmtiatriði á héraðsmót-
unum annast hljómsveitin
Næturgalar ásamt óperusöngv-
urunum Kristni Hallssyni og
Magnúsi Jónssyni, Jörundi og
Matthfas
Guðmundur
Pétur
Ágúst Atlasyni. Hljómsveitina
skipa Skúli K. Gfslason, Einar
Hólm, Birgir Karlsson og Ágúst
Atlason.
Efnt verður til ókeypis happ-
drættis og eru vinningar tvær
sólarlandaferðir til Kanarfeyja
með Flugleiðum. Verður dregið
í happdrættinu að héraðsmót-
unum loknum, þ.e. 18.' ágúst
n.k.
Að ioknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur til
kl. 2 eftir miðnætti, þar sem
Næturgalar og Ágúst Atlason
syngja og leika fyrir dansi.
veiði var hjá bátunum, reyndist
fistuinnihaldið vera um 14%.
Björn sagði, að feitasta loðna,
sem borizt hefði til rannsóknar
hefði verið yfir 16% feit, en ekki
væri vitað hvort loðnan ætti al-
mennt eftir að ná þvf fituinni-
haldi að þessu sinni.
Morgunblaðið spurði Björn
hvert fituinnihald loðnunnar
væri þegar hún kæmi upp að
Framhald á bls. 43
í umferð-
Eyjafirði
ust við höggið og voru fluttir f
sjúkrahús, en annar fékk að fara
heim að skoðun lokínni. Hinn far-
þeginn sem var stúlka var hins
vegar lögð inn f sjúkrahúsið og
var talin hafa fengið heilahrist-
ing og hlotið einhver fleiri minni-
háttar meiðsli. ökuma-ur mcidd-
ist ekki.
SvP.
Þjóöhátíðin í Eyjum:
Brúðkaup undir
berum himni
ÞJÓÐHÁTÍÐ Vestmannaeyja
verður haldin um næstu helgi,
6.—8. ágúst. Að þessu sinni sér
fþróttafélagið Þór um hátfðina
og verður aðalhátfðarsvæðið á
Breiðabakka, þvf gróður f
Herjólfsdal hinu gamla móts-
svæði, hefur ekki enn náð sér
eftir skemmdir, sem urðu á
honum f gosinu 1973. Að vanda
er dagskrá þjóðhátfðarinnar
fjölbreytt, en það forvitnileg-
asta er vafalaust brúðkaup,
undir berum himni á Breiða-
bakka við guðþjónustu föstu-
daginn 6. ágúst. Þá gefur sókn-
arpresturinn, sr. Kjartan örn
Sigurbergsson, saman f hjóan-
band Hörpu Rútsdóttur og
Georg Þór Kristjánsson.
Hátfðin verður sett klukkan
14 á föstudeginum af Sigurgeir
Ólafssyni formanni Þórs. Sfðan
verður guðsþjónusta. Á dag-
skránni kennir margra grasa,
fþróttir og skemmtanir ýmiss
konar bæði fyrir unga sem
aldna. A skemmtunum og dans-
leikjum koma m.a. fram Lúðra-
sveit Vestmannaeyja, undir
stjórn Björns Leifssonar,
hljómsveitin Vfr, Scheving
Brothers, Spilverk þjóðanna,
Logar, Þorvaldur Halldórsson,
Karl Einarsson, Árni Johnsen,
Hjálmar Guðnason, Leikfélag
Vestmannaeyja, Hljómsveit
Þorsteins Guðmundssonar,
Halli og Laddi, Arnþór og Gísli
Helgasynir.
JBoDumálinii” k)kið
Ekki ástæða til frekari aðgerða, segir saksóknari
EINS OG lesendur Mbl. rekur
e.t.v. minni til urðu töluverð
blaðaskrif út af svokölluðu
„bollumáli" f Háskóla Islands á
sl. vetri, en það var þannig til-
komið, að hópur stúdenta f Há-
skólanum kærði menn þá sem
verið höfðu f stjórn Stúdentafé-
lags Háskóla Isiands 1974—75
fyrir að hafa stolið afgangi af
„bollu" sem drukkin er árlega á
rússagildi f skólanum. Mál þetta
hefur nú verið rannsakað hjá
Sakadómi Reykjavfkur og m.a. yf-
irheyrðir þar 23 menn. Málið var
sfðan sent embætti Saksóknara
ríkisins til umfjöllunar og hefur
embættið nú tilkynnt að það telji,
að lokinni athugun, ekki ástæðu
til frekari aðgerða f málinu. Er
máii þessu þvf lokið.
Hér fer á eftir bréf embættis
ríkissaksóknara um málið, undir-
ritað af Hallvarði Einvarðssýni
vararíkissaksóknara;
„Með bréfum sakadóms Reykja-
víkur, dagsettum 11. marz s.l. og
12. þ.m., bárust embætti rfkissak-
sóknara skýrslur lögreglurann-
sóknar ásamt fylgiskjölum varð-
andi kæru á hendur stjórn Stúd-
entafélags Háskóla tslands
1974—1975 fyrir ætlað misferli
með fjármuni félagsins, einkum
meðferð stjórnarinnar á eftir-
stöðvum vínfanga, „bollu", frá
rússagildi 1974.
Rannsóknargögn máls þessa
þykja eigi veita efni til frekari
aðgerða í máli þessu af hálfu
ákæruvalds.
F.h.r.
Hallvarður Einvarðsson (sign.)“
Karl Breta-
prins til Islands
í næstu viku
KARL Bretaprins er væntan-
legur til tslands f næstu viku f
einkaheimsókn. Prinsinn mun
verða við laxveiðar f Hofsá f
Vopnafirði, en þangað kom
hann einnig f fyrra og veiddi f
fjóra og hálfan dag. Prinsinn
veiddi 28 laxa f fyrra, á flugu,
og lét þess getið þegar hann
hélt heim á leið að sig fýsti að
koma híngað aftur og veiða.