Morgunblaðið - 01.08.1976, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. AGUST 1976
11
Hrefna Tynes:
Norðurlandamót St. Georgs
gilda — hið 13. f röðinni var
haldið að hótel Nyborg Strand á
Fjóni, dagana 28. júní—2. júlf.
Þátttakendur voru: Frá
Finnlandi 31 — frá Noregi 42 —
frá Svfþjóð 22 — frá tslandi 10 og
frá Danmörku 40, auk fjölda
danskra gildisvina, sem tóku þátt
f varðeldinum og hátfðarkvöldinu
ásamt þeim, sem unnu við mótið.
Þarna var einnig form.
alþjóðabandalagsins, Phillippe
Tossyju frá Belgiu. Þetta sama ár
hafa 3 önnur svæðismót verið
haldin: Á Nýja-Sjálandi — 1
frakklandi og á Irlandi.
Svæðismót eru haldin það ár,
sem ekki er alþjóðamót.
S.l. ár stóðu Danir fyrir
alþjóðamóti, sem haldið var f
Aalborg. Næsta alþjóðamót
Verður f ágúst 1977 f Montreaux f
Sviss. Árið 1979 verður
alþjóðamót haidið f Bergen.
Næsta Norðurlandamót verður í
Svíþjóð 1978 og sfðan á Islandi
1980. Hjá okkur var
Norðurlandamót 1970.
J. Erik Christensen, Noregi, Marta Normann, Svfþjóð, Saga Bach, Finnlandi, Hrefna Tynes, lslandi, Edmund Kjeldsen, Danmörku og
Bente Jul Jensen, sem afhenti blómin frá Odense.
Norðurlanda-
mót St.
Georgs gilda
HVERS VEGNA
ÖLL ÞESSI MÓT?
Jú — gildishreyfingin byggir á
bræðralagi eins og
skátahreyfingin, enda hafa flestir
gildisvinir áður verið skátar, þó
ekki sé það inntökuskilyrði.
Mótin eru fyrst og fremst
kynningarmót. Gamlir vinir
hittast og ný vináttubönd eru
tengd. Maður talar um starfið —
fær nýjar hugmyndir.
Utbreiðslumöguleikar eru ræddir
af miklum áhuga, þvf öllum er
ljóst, að til þess að geta haft áhrif
á samfélagið, sem maður lifir í,
verða fleiri og fleiri að bætast í
hópinn — eða eins og form.
alþjóðasamtakanna kemst að orði
í bréfi sínu til mótsins í Nýborg:
„Það er nauðsynlegt að efla
kynningu og auka áhugann fyrir
gildisstarfinu og fá á þann hátt
fleiri og fleiri til að vinna fyrir
málefnið. Það er ósk okkar og
von, að við getum f vaxandi mæli
látið hugsjónir skáta — og
gildishreyfingarinnar ná að festa
rætur f þvf þjóðfélagi, sem við
lifum í.“ — Gildisstarfinu mætti
lfkja við 3 þrep:
1. Stuðningur við skátastarfið.
2. Þjónusta við almenning
umhverfisins.
3. Þjónusta og áhrif á þjóðfélagið.
Til þess að ná þessu takmarki
þarf sjálfsþroska — sjálfsaga —
hjálpar- og þjónustulund.
Enginn er þó þvingaöur til
neins, hvorki með boðum né
bönnum. Hvað viltu? Það er þinn
innri maðyr, sem segir til um það.
Danirnir, sem kynntu starf sitt á
mjög athyglisverðan og „lifandi"
hátt, virðast hafa náð langt á
þessu sviði. Það voru þeir, sem
fyrst hófu gildisstarf, og gáfu
hreyfingunni nafnið „St. Georgs
gildi“. S:gan af St. Georg, sem
vann sigur á drekanum þ.e. hinu
illa afli — var tekin sem
fyrirmynd að lífi þeirra, sem vilja
berjast gegn hinu illa f eigin sál.
ENGINN ER UTLENDINGUR
Það var ekki einungis svo, að
við vorum I hátíðarskapi, og
fögnuðum góðum vinum. —
Náttúran skartaði sínu fegursta
— sól og aftur sól; hiti að jafnaði
um 30° og þar yfir.
Það átti svo sannarlega að
„bræða“ mannskapinn saman.
Það heppnaðist meira að segja svo
vel, að málfar margra var farið að
bera keim af „skandinavisku".
Það voru ekki bara
íslendingarnir, sem brugðu henni
fyrir sig. Það er sannarlega ekki
hægt að segja að nokkur sé
útlendingur i svona hóp. Við
erum bara hlekkirnir i
Norðurlandakeðjunni.
Gildisvinir eru fjölmennastir í
Danmörku, en þar eru 205 gildi
með samtals 8340 meðlimum. Þar
næst kemur Noregur með 72 gildi
samt. 1539 meðl. þá Svíþjóð með
23 gildi — 675 meðl., Finnland
með 22 gildi — 534 meðl. og þá
ísland með 5 gildi — 297 meðl.
Hreyfingin fer stöðugt vaxandi,
en þó virðist ennþá vera sami
örðugleikinn við að berjast hjá
öllum nema þá Danmörku, en
hann er sá, að enn gætir nokkurs
misskilnings hjá fólki, hvað gildi
sé í raun og veru, og að „gamlir
skátar" virðast ekki hafa þann
áhuga, sem þó mætti vænta til
þess að halda áfram að starfa á
gildisgrundvelli.
Hafa þeir orðið uppgefnir á
skátastarfinu — eða hefur
skátahugsjónin aldrei gripið þá
verulega? Hefur skátastarfið
aldrei gefið þeim það mikið í aðra
hönd, að þeir finni sig knúða til
að leggja eitthvað af mörkum
fyrir yngri kynslóðina eða
þjóðfélagið í heild? Þessu verður
hver að svara fyrir sig. Ef tii vill
finnst mörgum, að þeir hafi
fundið hina réttu leið, en þá verða
þeir, sem vilja hafa bætandi áhrif
að taka höndum saman. Þess
hefur aldrei verið meiri þörf en
nú.
Þó margt væri rætt í alvöru og
af ábyrgð, þá var prógrammið
haganlega samansett, og léttur
blær yfir öllu. Danir kunnu
sannarlega að skipuleggja þessa
daga þannig, að alvöru og gamni
var hæfilega blandað.
Það voru flutt fróðleg erindi
eins og t.d. það sem fyrrv.
ráðherra Svend Horn flutti um
norræn málefni, en hann er nú
form. „Foreningen Norden". Að
erindi hans loknu var hópvinna,
og menn gerðu grein fyrir slnum
sjónarmiðum.
Einnig var flutt
kynningarerindi með
litskuggamyndum um Danmörku.
Það flutti Tove Jensen kennari.
En það sem vakti sérstaklega
athygli okkar var erindi það, sem
flutt var um dönsku
gildishreyfinguna, og hét
aðferðin og hjálparjpgnin — það
má segja, að það hafi verið alveg
einstakt.
Það var mikið sungið og mikið
hlegið — orlogskapteinninn,
hann Per, var þarna mættur í
gömlu skátaskyrtunni sinni og sló
gítarinn af mikilli leikni.
Farið var I margar smáferðir og
eina dagferð, og þá komið við I
Odense — bæ H.C. Andersens.
María
Það var haldinn varðeldur, þar
sem hver þjóð kom fram með sína
kynningu og dagskrárlið.
Síðasta kvöldið hófst með
hátiðarverði, þar sem allir voru i
sinu bezta skarti og í
hátíðarskapi. Það var auðfundið,
að gleðin og vináttan réðu ríkjum.
Meðal skemmtikrafta voru
gamanvisnasöngvari, — leikari
frá leikhúsinu í Odense og
ballettflokkur þaðan. Dansaði
hann menuett úr „Elverhöj" úti i
garði upplýstum með
skrautblysum. Búningar og
Framhald á bls. 42.
ÓVENJULEGA ÓVENJULEGUR
Það er alveg sama hvernig litið er
á BBLJF, þá er hann óvenjuleg-
ur bíll. — Þó hann sé aðeins 3.70
m á lengd, þá er hann rúmgóður
fimm manna bíll. — Þetta er
mögulegt vegna þess, að hjólhafið
er langt og vélin er staðsett þvers-
um. Ennfremur vegna þess, að
hann er óvenjulega breiður eða
1.60 m.
er fáanlegur þriggja eða
fimm dyra, að meðtalinni stórri
afturhurð. 350 lítra farangursrými,
sem er hægt að stækka í 698 lítra
með einu handtaki.
Það er ekki einungis í farþega- og
farangursrými sem BBLF býð-
ur upp á óvenjulega kosti heldur
einnig undir vélarlokinu. Þar er
vélin sem liggur þversum með
yfirliggjandi kambás, tvær stærðir
50 ha — eða 70 ha sem eyðir 8
lítrum á 100 km. — Aflið sem
vélin framleiðir svo auðveldlega
kemur að fullum notum í akstri.
BBMJF hefur óvenjulega mikla
sporvídd og hjólhaf. Hann er fram-
hjóladrifinn.
BBL/Fer með;
Óvenjulega stórar dyr.
Óvenjulega örugg og aflmikil vél.
Óvenjulegt rými inni.
Óvenjuleg sporvídd og hjólhaf.
Óvenjulega hagkvæmur í rekstri.
Óvenjulega vel fjaðrandi.
^ Óvenjulega auðveldur
í hleðslu og afhleðslu.
FYRIRLIGGJANDI
rVESTUR-ÞÝZK GÆÐAFRAMLEIÐSLA
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240