Morgunblaðið - 01.08.1976, Síða 20

Morgunblaðið - 01.08.1976, Síða 20
standa skil á verki mínu” 0 FRtÐA Sæmundsdóttir, kaup- kona ( Markaðnum á Akureyri, er Vestfirðingur, fædd i Bolungar- vfk, en ættuð úr Djúpi og af Ströndum. Hún hefir þetta að segja um störf sfn við verslunar- rekstur: — Ég vann fyrst við verslun Þórðar Sveinssonar & Co. f Siglufirði, þegar ég var ungling- ur, en þar var Hafliði bróðir minn verslunarstjóri. Þetta var útibú, aðeins opið á sumrin, en þarna fékk ég fyrstu kynni mfn af versl- unarstörfum. Eftir það fór ég ví Verslunarskólann f Reykjavfk og tók próf þaðan 1927. Þá vorum við tvær stúlkurnar f hópnum sem útskrifaðist. Eg vann svo eitt ár f Reykjavfk, en fór svo hingað norður og vann við verslun Óskars bróður mfns, þangað til ég giftist. — Ég missti manninn minn 1951 og þremur árum seinna gerð- ist ég verslunarstjóri við útibúið hér frá Markaðnum i Reykjavik. Við þetta vann ég í 5 ár eða þang- að til ég keypti verslunina og fór að reka hana sjálf. Það hef ég gert til þessa dags og alltaf unnið sjálf í búðinni. Annars erum við tvær og stundum þrjár við afgreiðslu. — Það sem vakti fyrir mér með því að fara út í eigin verslunar- rekstur, var, að börnin mín gætu fengið góða menntun eftir eigin óskum og löngun, og það hefur mér tekist að veita þeim. — Ég hef ekki orðið þess vör, að mér gengi ver í starfi af því að ég er kona, öðru nær. Ég kann vel við að vera ein við það og engum öðrum háð, en tel þó lærdómsríkt að hafa unnið hjá öðrum og þurft að standa mig og standa skil á verki mínu og þvf, sem mér var trúað fyrir. Ef til vill er það þess vegna, sem mér finnst ég þurfa að standa skil á þessu öllu eins og ég eigi það ekki sjálf og að ég vinn með þvi hugarfari. Kannski er þetta rétt, þegar öllu er á botninn hvolft, og kannski er þetta bara ein af þessum gömlu dyggðum. — Það er á margan hátt við ýmsa örðugleika að etja f versl- unarrekstri nú. Rekstrarkostnað- ur er orðinn fjarska mikill, en hitt er annað mál, að þetta getur vel gengið fyrir þá, sem eru nægju- samir og gæta þess að taka ekki of mikið fé út úr rekstrinum til ann- arra hluta. Það hefur verið mér kappsmál að haga rekstri gæti- lega og gera ekki háar kröfur. Ég hef verið svo heppin að hafa aldrei þurft á yfirdrætti í banka að halda, og ég hef ekki skuldað annað en það, sem nauðsynlegt hefir verið. Mér hefur alltaf verið metnaðarmál að standa f skilum og tekist það. Friða Sæmundsdóttir í verzlun sinni. Sjá nœstu síður A

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.