Morgunblaðið - 01.08.1976, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. ÁGUST 1976
29
Norðurlandamót í lyftingum
FYRIR rúmu ári stóð til að halda
Norðurlandamðt f lyftingum f
Reykjavfk, en af þvf varð ekki þar
sem frændþjóðirnar á Norður-
löndum hættu við tslandsferðina
á sfðustu stundu og héldu mótið f
staðínn f Svfþjóð. Ástæðurnar
sem gefnar voru fyrir þvf að
lyftingamennirnir norrænu komu
ekki til Reykjavfkur voru þær, að
verkfall hafði verið yfirvofandi
og einnig að þeir treystu ts-
lendingum tæplega til að halda
mótið. Hafði lyftingasambandið
lagt f nokkurn kostnað vegna
undirbúnings fyrir mótið, sem
aldrei varð, og krafðist það þess
að fá það fé endurgreitt frá hin-
um samböndunum. Eru greiðslur
nú farnar að berast frá þeim og
þegar komnar um 150 þúsund
krónur. Á sú upphæð eftir að
hækka talsvert áður en allur
kostnaður verður greiddur.
Norðurlandamót f lyftingum
verður haldið á tslandi næsta vor
og koma þessir peningar f góðar
þarfir við að undirbúa það. Hefur
komið til tals að mótið verði hald-
ið f Vestmannaeyjum, en ekkert
er ákveðið f þeim efnum.
ÚSKAR SNÝR SÉR
AÐ KRINGLUKASTINU
Frá Agústi I. Jónssyni í
Montreal:
ÖSKAR Jakbosson sm keppti f
spjótkasti hér f Montreal á dögun-
um mun nú vera ákveðinn f að
einbeita sér að kringlukasti f
framtfðinni, en setja spjótið f
annað sætið. Hefur Óskar þegar
náð athyglisverðum árangri f
spjótkasti og á Islandsmet f grein-
inni, en samt sem áður telur hann
og t.d. þeir sænsku þjálfarar, sem
hann var hjá f sumar, að kringlu-
kastið eigi betur við hann. Óskar
hefur kastað um 55 metra f
kringlukasti og á sjálfsagt eftir
að bæta þann árangur mjög er
hann fer að leggja aukna áherzlu
á þá grein.
Rifist um búningana
Frá Ágústi I. Jónssyni
f Montreal:
íslenzka sundfólkið, júdómenn-
irnir og Guðmundur Sigurðsson
lyftingamaður eru ekki sérlega
hress þessa dagana með þá
ákvörðun ólympfunefndarinnar
að ætla að selja Frjálsfþróttasam-
bandinu æfingabúninga íslenzka
hópsins að keppninni lokinni hér
f Montreal. Vilja þau fá að halda
sínum búningum og hafa hótað að
skila þeim alls ekki.
Guðmundur fær tilboð
Frá Ágústi I. Jónssyni í
Montreal:
GUÐMUNDUR Þ. Harðarson
þjálfari Ægis og fslenzka sund-
landsliðsins fhugar þessa dagana
tilboð sem honum hafa borizt frá
Bandarfkjunum, Kanada og Dan-
mörku um að gerast sundþjálfari
f þessum löndum. Sagði Guð-
mundur f viðtali við Morgunblað-
ið að þessi tilboð væru mjög
freistandi og þvf væri ekki að
neita að hann væri orðinn hálf-
þreyttur á að þjálfa heima. Að-
stæðurnar væru erfiðar, peningar
væru ekki fyrir hendi til að gera
nokkurn skapaðan hlut og auk
þjálfunarinnar ynni bæði hann
og sundfólkið fullan vinnudag.
Guðmundur dvaldi sem kunnugt
er f tvö ár f Bandarfkjunum við
þjálfun og þá sem aðstoðarmaður
Don Gambrill, sem er hér f
Montreal sem einn af þjálfurum
bandarfska sundlandsliðsins.
14 í AÐALKEPPNINA
ALLS tókst fjórtán hástökkvur-
um að fara yfir 2,16 metra og
tryggja sér rétt til þess að taka
þátt f lokakeppninni f hástökki á
Ólympfuleikunum f Montreal, en
sú keppni fór fram f gærkvöldi.
Meðal þeirra voru heimsmethaf-
inn Dwight Stones frá Banda-
rfkjunum og Evrópumeistarinn,
Jesper Törring frá Danmörku.
Dwight Stones byrjaði ekki að
stökkva fyrr en komið var að lág-
markshæðinni 2,16 metrum.
Felldi hann þá hæð í fyrstu til-
raun, en var síðan hátt yfir í ann-
arri. Þeir sem komust f aðal-
keppnina voru eftirtaldir:
Jacek Wszola (Póliandi) James
Barrineau (Bandarfkjunum),
Sergey Seniukov (Sovétríkjun-
um), Rofl Beilschmidt (A-
Þýzkalandi), Sergey Budalow
(Sovétríkjunum), Greg Joy (Kan-
ada), Rodolfo Bergamo (ítalíu),
Rune Almen ( Svfþjóð), William
Jankunis (Bandaríkjunum), Leif
Roar Falkum (Noregi), Terje
Totland (Noregi), Dwight Stones
(Bandarfkjunum) og Jesper
Törring (Danmörku).
Sovétmenn hlutu
knattspyrnubronsið
SOVÉTRlKIN — liðið sem sló
tsland út f undankeppni Ólym-
pfuleikanna f knattspyrnu,
hreppti bronsverðlaun f þeirri
grein, er liðið sigraði Brasilfu f
leik sem fram fór f Montreal f
fyrrakvöld með tveimur mörkum
gegn engu. Mörkin voru skoruð f
upphafi fyrri hálfleiks og byrjun
seinni hálfleiks. Kom fyrra mark-
ið á 5. mfnútu er Oleg Blokhin lék
á hvern Brasilfumanninn af öðr-
um og sendi sfðan knöttinn til
Vladimir Onichenko sem átti auð-
velt með að skora. Á 4. mfnútu
seinni hálfleiks bætti Leonid
Nazarenko öðru marki við með
skoti af um 16 metra færi.
Sovjétmenn voru f nær stanz-
lausri sokn í leiknum í fyrra-
kvöld, en Brasilíumennirnir með
markvörðin Carlos sem bezta
mann vörðust mjög vel. Carlos
varði t.d. vítaspyrnu á 20. minútu,
en þá höfðu Brasilíumenn orðið
að stöðva Blokhin með þvf að fella
hann innan vftateigs.
Pólland og Austur-Þýzkaland
leika úrslitaleik ^'knattspyrnu-
keppninnar og er hann fram í
Montreal í dag.
Anna Bretaprinsessa var meðal þátttakenda f hestamennsku á Ólympfuleikunum f Montreal, en þegar
keppnin var um það bil háifnuð varð hún fyrir þvf óhappi að hestur hennar, Goowill, datt um eina
hindrunina. Skrámaðist hennar hátign nokkuð, svo og hrossið, en þó ekki meira en svo að prinsessan gat
lokið keppni. En aftarlega varð hún á merinni. Enn er þvf ekki komið eins og á Ólympfuleikunum til
forna þegar stjórnmálamenn og þjóðhöfðingjar voru meðal keppenda og fengu sér dæmdan sigurinn,
hvar svo sem þeir voru f röðinni. En sennilega er ekki langt að bfða að sú staða komi aftur upp á
teninginn, ef svo heldur sem horfir.
Margur er knár þótt hann sé smár. Það sannaði Mexikaninn, Daniel Bautista f 20 kflómetra göngunni á
Ólympfuleikunum f Montreal. Þótt hann væri minnstur allra keppenda og eftir þvf skrefstuttur tifaði
hann fyrstur allra f markið og tryggði sér Ólympfugull. Attu Austur-Þjóðverjar sem búnir voru að reikna
sér gull, silfur og brons f þessari keppni eiga ákaflega erfitt með að sætta sig við þessi úrslit, en málið var
ósköp einfalt. Mexfkaninn var bara betri en þeir.
Fyrsti sigurvegarinn f frjálsfþróttakeppni Ólympfuleikanna var austur-þýzka stúlkan Angela Voigt sem
stökk 6,72 metra. Vann hún þar með fyrsta gullið af mörgum sem austur-þýzkar stúlkur hrepptu f
frjálsfþróttakeppni Ólympfuleikanna. Margir velta þvf nú fyrir sér hver sé ástæða þess að stúlkur frá
Austur-Evrópu eru jafn framúrskarandi f frjálsum fþróttum og raun ber vitni og eru flestir á þvf máli, að
þar komi til lyfjagjafir og hormónalyf. „Þær eru skeggjaðar og dimmraddaðar", varð einum fslenzka
kvenkeppandanum á ólympfuleikunum að orði, þegar hún hafði æft með nokkrum Áustur-
Evrópu„konum“.