Morgunblaðið - 10.09.1976, Side 7

Morgunblaðið - 10.09.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976 7 Framboðsraunir l Alþýðuflokks Þjóðviljinn fjallar I gær | um framboðsmál Alþýðu- ■ flokksins, sem virðast vera komin á ákvörðunar I stig og alla vega til alvar- | legrar umræðu I sumum | kjördæmum landsins, • enda þótt tvö ár séu til þingkosninga. Um stöð- I una I framboðsmálum Al- | þýðuflokksins segir Þjóð- | viljinn I gær: „Alþýðu- , flokkurinn hefur að und- j anförnu verið að undirbúa I framboðsmál sln. Mun | ætlunin. að Finnur Torfi | Stefánsson, lögfræðingur, I skipi fyrsta sæti á lista Alþýðuflokksins I Norður- I landi vestra, Magnús | Magnússon, fyrrverandi | bæjarstjóri, efsta sæti á ■ Suðurlandi. Benedikt Gröndal þorir ekki aftur I I framboð á Vesturland og þangað á að senda Vil- | mund Gylfason. Benedikt ætlar sér fyrsta sæti I Reykjavlk. en Gylfa annað sæti. Kjartan Jóhannsson | ætlar að sparka Jóni Ar- | manni Héðinssyni úr | fyrsta sætinu á Reykja- nesi. Það ætlar Karl I Steinar Guðnason llka að I gera og báðir telja þeir | Kjartan og Karl Steinar sig sjálfkjörna I sætið. Jón Ármann vill sitja sem fast- ast. Þessum framboðs- raunum fylgja mikil innri átök I flokknum. Þing- flokkurinn, sem er fimm manna, er klofinn I nokk- urn veginn jafn marga hluta I þessum málum. Jón Ármann rær einn á báti, Benedikt einn, Gylfi einn, Sighvatpr einn, en Eggert hvergi." Stefnuleysi Benedikts í efnahagsmálum Alþýðublaðinu þykir að vonum mikið til þess koma. að Morgunblaðið hefur varið tveimur rit- stjórnargreinum til þess að ræða við Benedikt Gröndal, formann Alþýðu- flokksins, um það hver stefna hans I efnahags- málum kunni að vera. Svo mikið verður Alþýðublað- inu um, að sérstaklega er til þess tekið i forystu- grein I gær og er það út af fyrir sig skiljanlegt. Þaðer þvi miður allt of sjaldgæft nú orðið, að menn eigi orðastað við forystumenn Alþýðuflokksins um al- menn þjóðmál og er það kannski nokkur visbend- ing um það lággengi, sem á flokknum er um þessar mundir og hefur verið um nokkurt skeið. í þessum umræðum Morgunblaðs- ins og Alþýðublaðsins hef- ur eftirfarandi komið glögglega fram. i fyrsta lagi hefur Benedikt Gröndal borið af sér, að skrif hans um efnahags- stefnu rikisstjórnarinnar megi túlka á þann veg, að hann hafi viljað gripa til sömu ráða og jafnaðar- mannastjórnir I Dan- mörku, Þýzkalandi og Bretlandi og framkalla stórfellt atvinnuleysi til að ná meiri árangri i bar- áttunni gegn verðbólg- unni. I öðru lagi hefur Benedikt Gröndal reynzt ófáanlegur til að lýsa hvaða leið hann hefði vilj- að fara I efnahagsmálum á siðustu tveimur árum, þótt hann gagnrýni þann kost sem islenzka rikis- stjórnin hefur valið en ber af sér, að hann hefði vilj- að fara þá leið, sem jafn- aðarmannastjómir til- greindra nágrannalanda fóru. Þar með liggur fyrir, i þriðja lagi, að Alþýðu- flokkurinn hefur enga stefnu i efnahagsmálum og atvinnumálum þjóðar innar og kemur engum á óvart. í forystugrein Alþýðu blaðsins i gær, segir: „Sjálft sýnir Morgunblað- ið manndómsleysi að endurtaka sömu atriði, sem hnekkt hefur verið. Það segir að jafnaðar menn i Danmörku, Þýzka- landi og Bretlandi hafi vis- vitandi kallað yfir þjóðir sinar atvinnuleysi til þess að vinna bug á verðbólg- unni. Benedikt Gröndal hefur þó bent á, að I Bret- landi, Danmörku og öðr- um atvinnuleysislöndum Evrópu hafi verðhækkanir verið svo miklar á þessu ári, að þar hafi verðbólgu alls ekki verið haldið i skefjum með atvinnu- leysi. Vandamál Breta og Dana rista miklu dýpra og verða ekki leyst með at- vinnuleysi. i Þýzkalandi er hagvöxt- ur nú mestur allra Evrópu- rikja og enn eru þar hundruð þúsunda af er- lendum verkamönnum. svo að ekki er heldur rétt að miða við það. Morgun- blaðið fæst ekki til að ræða efnahagsstjórn jafn- aðarmanna i Noregi og Sviþjóð, þar sem bæði at- vinnuleysi og verðbólgu er haldið i lágmarki." Allt er þetta tóm vit- leysa. Þótt verðbólgu hafi ekki verið útrýmt i þeim löndum, sem jafnaðar- menn stjórna, sem Morgunblaðið hefur bent á. er það engu að siður staðreynd, að þar hefur á siðustu árum tekizt að draga geysilega mikið úr verðbólgunni, á kostnað atvinnuástandsins. Auðvitað verða efnahags- vandamál þessara rikja ekki leyst eingöngu með þvi að skapa atvinnuleysi. en öllum er þó Ijóst. að á það lagið hafa jafnaðar mannastjórnir i þessum löndum gengið til þess að draga mjög verulega úr verðbólgunni og náð árangri i þeirri baráttu. en keypt þann árangur dýru verði. Ástandið i Noregi og Sviþjóð er hins vegar ekki sambærilegt við efnahagsástandið i þess- um löndum og á íslandi, eins og Morgunblaðið hef- ur raunar bent á. Þannig hafa Norðmenn leyst sin efnahagsvandamál á undanförnum árum með stórfelldri skuldasöfnun erlendis, sem þeir hafa hins vegar engar áhyggj- um af, vegna þess mikla oliugróða, sem þeim mun hlotnast á næstu árum og verður notaður til þess að greiða niður þessa er- lendu skuldasöfnun. Það þýðir ekkert fyrir formann Alþýðuflokksins á islandi að leita skjóls I náðar- faðmi jafnaðarmanna i Noregi og Sviþjóð, eftir að hafa hafnað skoðana- bræðrum sinum i Dan- mörku, Þýzkalandi og Bretlandi. Hann hlýtur að standa fyrir máli sinu hér heima fyrir og hefur reyndar nú þegar gert það á þann veg að gefast upp við að gera grein fyrir þvi i hverju stefna flokks hans I efnahags- og atvinnu- málum þjóðarinnar er fólgin. A miðri myndinni er fyrirhugað glerhýsi. Vinstra megin neðst sést I hið nýja bankahús Búnaðarbankans, þar fyrir ofan hús Egils Vil- hjálmssonar h.f. Efst fyrir miðju er hús Sveins Egilssonar. Hægra megin á myndinni er nýja lögreglustöðin. Valdimar Kristinsson: Strætisvagnarnir og farþegaskýlin Reykjavík er orðin nokkuð stór og svo dreifð, að borgarbúar þurfa mjög á samgöngutækjum að halda. Farartækin eru fyrst og fremst fólksbílar og strætisvagn- ar. Þrátt fyrir alla einkabílana hefur tekist að halda uppi víð- tæku kerfi strætisvagna í borg- inni, en að vísu með miklum styrk af almannafé. Þessi þjónusta batnaði mjög þegar nýtt leiða- kerfi var tekið upp vorið 1970. Þrátt fyrir tiltölulega gott skipulag gengur reksturinn ekki vel, eins og sjá má af þvl, að talið er nauðsynlegt að greiða að jafn- aði niður um helming kostnaðar fyrirtækisins. Farþegar þyrftu að vera verulega fleiri til þess að útkoman batnaði. Einkabllar eru að sjálfsögðu skæðustu keppinautar strætis- vagnanna, en þeir geta þó aldrei komið alveg I stað þeirra. Talið er, að um þriðjungur íbúa vestrænna borga sé að miklu leyti háður strætisvögnum. Það eru börn, gamalmenni, öryrkjar og heima- vinnandi konur, sem ekki hafa yfir bílum að ráða. En þessi fjöldi dugir ekki til að halda uppi stræt- isvagnarekstri með bærilegri fjár- hagsafkomu. Þess vegna þarf að laða fleiri að strætisvögnunum og minnka umferóarálagið á götun- um um leið. Rysjótt veðrátta hér vinnur þarna mest á móti. Fólk veigrar sér við að bíða eftir vögnum, oft í roki og rigningu, ef það á annarra kosta völ. Fjölgun og endurbætur á biðskýlum skipta þvl meginmáli til úrbóta. Viðkomustaðir í borginni munu vera um þrjúhundruð og biðskýli um eitt hundrað. Víða er erfitt að koma þeim fyrir, en allviða er dágóð aðstaða til að bíða I skjóli við hús. Augljóst er, að biðskýlum þarf að fjölga mjög og þau, sem eru mikið notuð, ættu að hafa rafmagnsupphitun (geislalampa) til að hlýja fólki í vetrarnæðingn- um. Þyrfti það ekki að verða mjög dýrt fyrir rafmagnsveituna nema skemmdarskríllinn eyðilegði þæg- indin. Þá gæti verið við ramman reip að draga. Vlðast hvar duga tiltölulega einföld skýli, þótt þau væru sums staðar búin nokkrum þægindum, eins og að framan getur. En á helstu skiptistöðvunum þarf að gera miklu betur, enda bíður fólk þar eftir öðrum vögnum, jafn- framt þvf sem það hittist þar af margvíslegustu ástæðum. Helstu umferðarstöðvarnar eru Hlemm- ur, Lækjartorg og i minna mæli Grensásstöð. Strætisvagnafarþega, sem dag- lega eiga leið um Hlemm og Lækj- artorg, má telja ekki aðeins i þús- undum heldur I tugum þúsunda. Þrátt fyrir það hefur þessum fjölda ekki verið boðið upp á skjól fyrir veðri og vindum fyrr en á siðustu árum, eftir að tekin hafa verið i notkun heldur óhrjáleg smáhýsi miðað við þarfirnar á þessum stöðum. Hvað haldið þið að jafnstór hópur „íþróttaáhuga- manna“ væri búinn að fá reistar margar hallir yfir sig á undan- förnum áratugum? Stundum er litið á það sem gott dæmi um velferðarstig borgar- búa, hvernig búið er að farþegum almenningsfarartækja. Forráða- menn borga aka um í einkabílum og hafa þvi litla persónulega reynslu af aðstöðu hinna. Það sýn- ir því vakandi áhuga forystu- manna, ef borgin þeirra stendur framarlega á þessu sviði. Reykja- vík hefur aðstöðu til að verða hér í fremstu röð, jafngóðan vagnkost og SVR ræður yfirleitt yfir, enda er til mikils að vinna að stuðla að auknum strætisvagnaferðum fólks. Lengi hefur staðið til að reisa myndarlegan áningarstað með ýmiss konar þjónustu á Hlemmi, þótt ár eftir ár hafi ekkert orðið Framhald á bls. 25 SÉRLEGA HAGSTÆTT VERÐ * TIMBURVERZLUNIN VðLUNDUR hf. Klapparstíg 1. Skeifan 19. Simar 18430 — 85244 Vélarnar eru með ollum nauðsynlegum fylgihlutum ásamt skrúfubúnaði. Auk þess höfum við á lager 3 hestafla Petter fyrir rafal eða gír VÉLAR og SKIP hf. Grandagarði 1b simi 27544. Eru komnir aftur — vinsælu kuldaskórnir sem ná upp á miðja fótleggi— gerðir úr ekta anilín skinnimeð hrágúmmísólum, hlýfóðraðir og fótlaga Pantanir óskast sóttar sem allra fyrst. Einnig ný komnar margar gerðir af fótlagaskóm háum og lágum hlýfóðraðir og án fóðurs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.