Morgunblaðið - 10.09.1976, Side 8

Morgunblaðið - 10.09.1976, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976 Bættur rekstur Eddu-hótela vegna skipulagsbreytinga Undanfarin sumur hafa verið gerðar ýmsar merkilegar breyt- ingar á rekstrarskipulagi nokk- urra Eddu-hðteia, sem rekin eru á sumrin á vegum Ferða- skrifstofu rikisins. Þessi hðtei hafa síðast iiðin tfu ár ekki farið varhluta af þeim eftið- leikum, sem fylgja rekstri af þessu tagi úti á landsbyggðinni og þar til f fyrra hefur reyndin verið sú að gjöfd hafa verið tafsvert umfram tekjur á flest- um þeirra staða, þar sem Ferða- skrifstofan hefur rekið sumar- hðtel. Árið 1975 varð hins vegar fyrsta rekstrarárið sem hðtel- rekstur fyrirtækisins varð hallaalus, en það sumar varð gjörbreyting á afkomu nokk- urra hðtela, og raunar ári fyrr á einu þeirra. Hér er um að ræða áhrif rekstrarbreytinga, sem Ingölfur Pétursson veitinga- maður, er nú starfar hjá Ferða- skrifstofunni, hefur unnið að. Sem dæmi um bætta afkomu nokkurra hótela, þar sem rekstrarformi hefur verið breytt, má nefna að á Eddu- hótelinu á Krikjubæjarklaustri voru gjöld umfram tekjur á sumrinu 1973 um 650 þúsund krónur, en það sumar var hótel- ið rekið á hefðbundinn hátt. Arið eftir, þegar rekstrarformi þess hafðí verið breytt, urðu tekjur umfram gjöld tæplega 2.4 milljónir króna. Gætir hér vafalaust að einhverju aukinn- ar umferðar á Krikjubæjar- klaustri vegna opnunar hring- vegarins sumarið 1974, en sum- arið 1975 varð afkoman á þessu hóteli einnig góð, en þá urðu tekjur umfram gjöld rúmlega 1.4 milljónir. Á Eddu-hótelinu í Skógum var hið nýja rekstrarfyrirkomu- lag tekið upp sumarið 1975. A því hóteli urðu gjöld umfram tekjur sumarið 1974, siðasta ár- ið, sem hótelið var rekið með hefðbundnum hætti, samtals 1,07 milljónir, en árið eftir, þegar búið var að breyta rekstr- inum, urðu tekjur umfram gjöld alls 1,74 milljónir. Af- komusvjflan nemur þvi 2,7 milljunum króna milli þessara tveggja ára. Sumarið 1975 var rekstri Eddu-hótelsins í menntaskólan- um á Laugarvatni einnig breytt. Afkoma hótelsins sum- arið 1974 varð sú að gjöld um- fram tekjur námu alls tæplega 950 þúsund krónum. Árið eftir uðru tekjur umfram gjöld sam- tals tæplega 2,3 milljónir króna og er afkomusveiflan á þessu hóteli því um 3,25 milljónir króna milli ára. Ofannefndar tölur hefur blaðið fengið hjá Kjartani Lárussyni aðstoðarforstjóra Ferðaskrifstofu ríkisins og eru þær úr reikningum hótelanna fyrir þau rekstrarár, sem til- greind eru. Þess er rétt að geta að starfs- fólk hótelanna, þar sem um- ræddar breytingar hafa verið gerðar á rekstri, er yfirleitt mjög ánægt með sinn hlut, enda hafa launatekjur þeirra sem við hótelin vinna aukizt verulega með hinni breyttu til- högun. Þá mun það nokkuð samdóma álit viðskiptavina, að þjónusta hafi batnað með hinni nýju skipan. í sumar var hið nýja rekstrar- form tekið upp á Eddu- hótelunum í Reykholti, á Eið- um og í nýja hótelinu á Isafirði og er þá búið að breyta rekstri sex Eddu-hótela af tíu í hið nýja form. Það sem af er þessu sumri hefur afkoma þessara sex hótela verið góð. Til að forvitnast frekar um þennan breytta hótelrekstur sneri Mbl. sér til Ingólfs Péturssonar veitingamanns, en hann varð ráðgjafi um hótel- “eksturinn á árinu 1974 fyrir tilstilli Sigurðar Magnússonar, sem þá var forstjóri fyrirtækis- ins. Áður hafði Ingólfur annazt •ekstur veitingahússins á Flúð- um og þar áður rekið City hótel I Reykjavík og Hótel Borgar- nes. STARFSFÓLKIÐ BEINN AÐILI AÐ REKSTRINUM „Þetta nýja rekstrarform byggist á því að hver aðili að rekstrinum fær ákveöinn hundraðshluta af heildartekj- um viðkomandi hótels fyrir sinn skerf,“ sagði Ingólfur. „Þannig fer viss hundraðshluti til starfsfólksins, sem síðan skiptir honum á milli sín eftir nánara samkomulagi, viss hluti rennur beint til Ferðaskrif- stofu ríkisins, annar er ætlaður til hráefnisöflunar, enn annar II ■ .......... ] ■ ..........._ Kirkjubæjarklaustur til greiðslu launa- og söluskatts o.s.frv. Með þessu hefur tekizt að gera starfsfólkið sjálft bein- an aðila að rekstrinum, þannig að það á sjálft hagsmuna að gæta í því, að þjónusta sé sem bezt og viðskiptin sem mest. Þetta hefur orðið til þess, að þeir sem að rekstrinum starfa eru reiðubúnir til að haga vinnutíma sinum og fríum þannig að ekki komi illa við reksturinn. Með þessu móti hef- ur viðast hvar tekizt að fækka starfsliði um 35—40% frá þvi sem áður var og að sama skapi auka tekjur þeirra sem eftir eru til mikilla muna, en þó þannig að eigandinn, þ.e. Ferðaskrifstofan, hefur einnig fengið stórlega aukinn hlut. Ég held það megi segja að allir þeir sem við þetta hafa starfað taki þetta nýja fyrirkomulag fram yfir hið eldra, a.m.k. hafa ekki komið fram óskir um að snúa aftur til hins eldra forms eða breyta þeim hundraðshluta sem miðað er við að renni til hvers rekstrarþáttar. Við höf- um líka haft það þannig að ef innkaup til hótelanna eru gerð af það mikilli hagsýni, að nýt- ingin verður góð og umfram- eyðsla lítil, kemur það starfs- fólkinu sjálfu til góða að hálfu, þegar gert er upp á haustin. Fær fólkið þá launauppbót, sem hefur numið frá 10—25% af sumarlaunum þess.“ NVJA kerfið FYRST REYNT A FLUÐUM „Upphaf þess að ég fór að beina huganum að því hvernig bæta mætti rekstur af þessu tagi má rekja til þess er sam- starf hófst milli veitingahúss- ins á Flúðum og Loftleiða um veitingasölu til viðdvalarfar- þega félagsins sem voru I skoð- unarferðum sunnan lands. Þetta var sumarið 1968, en Sig- urður Magnússon sem þá var hjá Loftleiðum hafði áhuga á þvf að þessir farþegar gætu fengið hádegisverð í ferðum sinum til Gullfoss og Geysis á viðunandi kjörum. Þessir föstu hópar skiptu miklu um afkomu staðarins og þá var farið út í að ráða starfsfólk til vinnu hluta úr degi, þegar annir voru mest- ar, upp á prósentur, en fast starfslið var fátt. Síðan hefur þetta þróazt smátt og smátt, en ég man enn þá eftir því að sumarið 1968 urðu heildar- tekjurnar á Flúðum 575 þúsund krónur, en hagnaðurinn varð 149 þúsund og reksturinn hefur verið fjárhagslega öruggur síð- an.“ NAUÐSYNLEGT AÐ HAFA VAKANDI AUGA FYRIR NYJUM MÖGULEIKUM „Ég hef aldrei getað séð að nokkrum væri greiði gerður með því að halda endalaust úti taprekstri á sumarveitingastöð- um úti á landi, hvorki eigend- um, sem oft eru hreppsfélög, starfsfólkinu né viðskiptavin- unum. Það var orðið nauðsyn- legt að finna leið til að bæta hag allra þessara aðila. Hið nýja rekstrarform hefur skapað meira aðhald í rekstrinum og það er jafnan vinsælt að tala um aðhald f opinberum rekstri, en minna er um það í fram- kvæmd. Eddu-hótelin eru rekin af ríkinu og þetta aukna aðhald í rekstrinum kemur því til góða jafnt sem starfsfólkinu. En auð- vitað er þetta kerfi sem við höfum notaö í sambandi við rekstur Eddu-hótelanna ekki nein endanleg lausn á öllum vanda f svona rekstri. Það er nauðsynlegt að vera alltaf á verði og endurskoða alla rekstrarþætti með aukna hag- ræðingu í huga, þannig að bæði rekstraraðilar og viðskiptavinir fái notið þess sparnaðar sem af henni leiðir." HÖTELÞJÓNUSTA HÉRLENDIS að verða OFDÝR FYRIR ALMENNING „Verðlag á hótelþjónustu hér innan lands er að verða of hátt miðað við kaupgetu almenn- ings. Eins og málum er nú kom- ið er það alveg á mörkunum að almenningur geti veitt sér að gista á hótelum úti á landi eða f Reykjavfk, enda eru gestirnir flestir erlendir ferðamenn eða þeir, sem starfs sin vegna verða að gista á hótelum á ferðalög- um. Ég tel að það sé hættulegt fyrir þessi fyrir tæki að fjar- lægjast svo markaðinn með háu verðlagi að Islendingar geti ekki notfært sér hótelin I land- inu. Við verðum að stefna að þvf hérlendis að verðlag á hótelþjónustu fari hlutfallslega lækkandi á næstu árum,“ sagði Ingólfur Pétursson að lokum. 1 x 2 — 1 x 2 2. leikvika — leikir 4. sept. 1976 Vinningsröð: X 11 —1X1—211 —1 IX 1. VINNINGUR: 11 réttir — kr. 37.000.00 4483 30635 31125 31173 40077 2. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 1.800.00 76 + 1941 30175+ 30963 + 31169 + 31560 + 40077 483 3111 30415 30971 + 31366 31778+ 40077 978 3672 30525 30995 31405 40006 40077 1108 3874 30649 + 31073 31441 40056 40206 1281 4781 30682 31087 31481 40059 40437 1315 5304 30731 31125 31483 40077 40470+ 1409 5694 + nafnlaus Kærufrestur er til 27. sept. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni. Vínningsupphæðir geta lækkað ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 2. leikviku verða póstlagðir eftir 28. sept. Handhafar nafnlausra seðla verða að framvfsa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga. Ath. A getraunaseðli nr. 3 hefur misritast leikur nr. 8 (Norwich — Manch.utd.) og fellur sá leikur út af seðlinum. GETRAUNIR — tþróttamidstöðin — REYKJAVtK Simar Einbýlishús til sölu á Suðureyri. Uppl. í síma 94-6120 milli kl. 7 —10 á kvöldin. Byggingaréttur Til sölu er réttur til að byggja 600 ferm. hæð á mjög góðum stað í iðnaðar- og verzlunarhverfi í Reykjavík. Iðnaðar- eða skrifstofuhúsnæði. Öll gatnagerðagjöld greidd. Tilboð merkt „Bygg- ingaréttur — 2148" sendist Morgunblaðinu fyrir 1 8. sept. n.k. Blaðburðarfólk óskast í eftirtalin hverfi: VESTURBÆR Garðastræti, Grenimelur, Barðaströnd, Reynimelur 1 —56, Ásvallagata hærri tölur. AUSTURBÆR Bergstaðastræti, Laufásveg 58 — 79. Skip- holt 1—50, Ingólfsstræti. ÚTHVERFI Breiðagerði, Teigasel, Akrasel, Álfheimar 43— Langholtsvegur 71—108. Hraun- teigur, Sólheimar, Álfheimar 2—42. Aust- urbrún 1, Blesugróf, Akurgerði, Kambsveg- ur, Safamýri 11—95, Laugarnesvegur 34—85, Ármúli, Rauðagerði. Uppl. í síma 35408 SÍMAR 21150 - 21370 til sölu og sýnis m.a.: Rishæð við Bólstaðarhlíð 4ra herb. rúmir 90 fm. Góð samþykkt. Eldhús og bað endurnýjað. Svalir. Útsýni í Kópavogi 4ra herb. nýleg og góð íbúð á 1 hæð við Efstahjalla um 100fm. Sameign innanhúss fullgerð. Útsýni. Þurfum að útvega góða 4ra herb. íbúð með bllskúr f Kópavogi. * I Laugarneshverfi góð 5 herb. íbúð á 3. hæð um 1 18 fm. Góð fullgerð sameign. Mikið útsýni. Lausstrax. Þurfum að útvega 3ja herb. fbúð f Laugarneshverfi eða nágrenni. Einstaklingsíbúð í Túnunum 2ja herb. séríbúð fremur lítil en góð Teppalögð með góðu sturtubaði og geymslurisi. Laus strax. Einbýlishús við Lágafell úrvals eign 1 70 fm ein hæð með 6 herb. ibúð. Stór bílskúr. Glæsilegur trjá og blómagarður. Útsýni. 2ja herb. íbúð gegn útb. helst við Háaleitisbraut, Stóragerði eða i nágrenni óskast 2ja herb. íbúð verður borguð út. Ný söluskrá heimsend ALMENNA FASTEIGNASALAM LAUGAVEGI49 SIMAR 2T150 - 21370 L.Þ.V. SÖLUM JÓHANN Þ0RÐARS0N H0L.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.