Morgunblaðið - 10.09.1976, Page 17

Morgunblaðið - 10.09.1976, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976 17 „Geisli hugsuðar er slokknaður” að horfa á fregnir af láti Maos f sjðnvarpi. Símamynd AF „Lát Maos breytir ekki stefnu Bandaríkjanna” Washington 9. september — Reuter. LEIÐTOGAR Bandaríkjanna lof- uðu Mao Tse-tung á fimmtudag og kváðust vona að andlát hans hefði ekki áhrif á sambúð Klna og Bandarfkjanna. Sagði Henry Kissinger, utanríkisráðherra, að lát Maos hefði engin áhrif á þá stefnu Bandarfkjastjórnar að bæta sambúðina við Kfnverja. Ford, forseti, lýsti Mao sem miklum manni, sem hafði „fram- sýni og hugmyndaflug til að opna dyrnar fyrir samstarfi Kína og Bandaríkjanna." Kissinger, sem vann, undir Nix- on forseta, mest að því að koma sambúð landanna tveggja í eðli- legt horf hældi Mao sem stórkost- legum manni. Hann sagði við fréttamenn að það væri of snemmt að segja fyrir um áhrif láts Maos á stefnu Pekingstjórnarinnar, en hann kvaðst álíta að engin grundvallar- breyting yrði á afstöðu hennar til Bandaríkjanna né Sovétríkjanna. En hann bætti því við að hann efaðist um að einu sinni Kinverj- ar sjálfir vissu hvaða áhrif lát Maos hefði fyrir þá og því væri ómögulegt fyrir hann að segja fyrir um vilja eftirmanna hans. Kissinger endurtók það álit sitt, sem hann hefur látið í ljós marg- sinnis, að sambúð Kfna og Banda- ríkjanna mundi stjórnast af sam- eiginlegum hagsmunamálum en ekki einstaklingum. Kissinger sagði Mao hafa verið „eitt af stórmennum vorra tíma, sem olli meiri breytingum en nokkur annar samtíðarmaður okkar“. Sagði hann að eins og margir byltingarsinnar hefði Mao unnið mörg afrek, jafnframt því sem hann skapaði þjáningar. Dauði Maos er talinn auka á óvissuna um hvernig sambúð Bandaríkjanna og Kína muni þró- ast. Margir Bandaríkjamenn, sem komið hafa til Kfna að undan- förnu, þar á meðal öldunga- deildarþingmaðurinn Hugh Scott, segja að kínverjar séu orðnir óþolinihóðir yfir hvað hægt geng- ur að koma á stjórnmálasambandi milli landanna. Kínverskir leið- togar hafa einnig gefið í skyn í samtölum við Bandaríkjamenn hugsanlega frelsun Formósu með hervaldi. Það hefur lengi verið eitt af stefnumálum kínverska kommúnistaflokksins og erfitt er að segja hvort þeirri stefnu kann að vaxa ásmegin í yfirstandandi átökum á milli róttækra og hæg- fara afla. New York, Moskvu, London og vfðar 9. september — AP, Reuter LÁT Mao Tse-tungs, formanns kfnverska kommúnistaflokksins, er um allan heim álitið marka endalok skeiðs og byrjun óvissrar framtfðar fyrir 800 milljónir fbúa Kfna. Formannsins hefur verið minnzt vfða um lönd, bæði af leið- togum og alþýðu manna. Ford, Bandarfkjaforseti, kallaði Mao merkilegan og mikinn mann. Moskvustjórnin hefur ekki birt opinber ummæli um andlát Maos, sem hún hefur lengi álitið vera sinn versta óvin. Sovézki kommúnistaflokkurinn sendi þó samúðarskeyti f dag til kfnverska kommúnistaflokksins, að sögn Tass-fréttastofunnar. Hljóðaði skeytið svo: „Vinsamlegast takið við djúpum samúðarkveðjum okkar á andlátsdegi formanns miðstjórnar kínverska kommúnistaflokksins. Við lýsum einnig samúð okkar með fjöl- skyldu og vandamönnum hins látna.“ Skeytið var sent i nafni miðstjórnar kommúnistaflokks- ins, án undirritunar einstakra meðlima hennar. Hvorki Kreml- arstjórn né miðstjórn flokksins gaf út umsagnir um Mao. Að sögn AP-fréttastofunnar vantaði aftur á móti ekki umsagn- ir almennings á götum Moskvu og voru þær flestar á einn veg: „Það var tími til kominn" og „Guði sé lof“. Með tilkynningu sovézkra fjölmiðla um lát Maos fylgdi sú athugasemd að núverandi stefna Pekingstjórnarinnar endur- speglaði á engan hátt vonir og áhugamál kínversku þjóðarinnar. „Þessari döpru síðu í sögu Kína verður óhjákvæmilega flett af kínversku þjóðinni sjálfri." Embættismenn i utanríkisráðu- neyti Suður-Kóreu, sem skýrði ekki frá opinberum viðbrögðum voru órólegir yfir að nánara sam- band á milli Kina og Sovét- ríkjanna gæti styrkt Norður- Kóreu. Háttsettur embættis- maður í Seoul sagði að landar hans gætu aldrei gleymt því að það var með hjálp kinverskra her- manna, sem Norður-Kóreumenn gerðu innrás I Suður-Kóreu 1950, og sem kostaði hundruð þúsunda manna lífið. I Indlandi, sem reynt hefur að koma á eðlilegu sambandi við Kína eftir landamærabardaga þeirra 1962, sagði Indira Gandhi, forsætisráðherra, að Mao hefði verið mikill stjórnmálamaður, sem hefði staðið í fararbroddi fyr- ir endurreisn og framförum kinversku þjóðarinnar. Mao lézt daginn áður en fyrsti kínverski sendiherrann i Indlandi i 15 ár átti að komatil Nýju-Delhi. Italski kommúnistaflokkurinn sem löngum var gagnrýndur af kínverjum, lýsti sinni dýpstu samúð. I Taipei, höfuðborg Formósu urðu fagnaðarlæti á götum úti þegar fréttin um lát Maos barst. Venjuleg dagskrá útvarps og sjón- varps var rofin og löng ræða flutt um Mao þar sem hann var for- Maos yfirleitt minnzt sem eins mesta manns sögunnar, en léttir í Moskvu og Taipei dæmdur sem „mesti glæpamaður sögunnar". Mobuto Sese Seko, forseti Zaire, sagði að hann hefði orðið snortinn af andlegri snerpu og greind Maos og sagði að frelsi þjóða sem enn væru undir oki nýlendustefnu og kynþátta- haturs, hefði verið hans mesta áhugamál. Forsætisráðherra Japans, Takeo Miki, sendi samúðarskeyti til ekkju Maos, Chiang Ching, kínverska forsætisráðherrans, Hua Kuo-fengs og heimsótti kínverska sendiráðið í Tokyo til að lýsa samúð stjórnar sinnar. Fyrrverandi forsætisráðherra Japans, Kakuei Tanaka, þakkaði Mao það að Japan og Klna tóku aftur upp stjórnmálasamband 1972 og sagði að með þeirri ákvörðun hans hefði hann stofnað eilífan frið milli landanna tveggja. Forseti Vestur-Þýzkalands sendi skeyti, þar sem sagði meðal annars, að Mao Tse-tung hefði átt mikinn þátt í að skapa sögu vorrar aldar. Willy Brandt, fyrr- um kanslari sagði Mao hafa verið „sögulega mikilvæga persónu, sem hefði leitt Kínverja úr efna- hagslegri eymd og gert þá að einni áhrifamestu þjóð veraldar". Forseti Frakklands Valery Giscard d’Estaing, sagði að með láti Maos „slokknaði geisli hugsuðar". Mao dró Kína upp úr fortíðinni „með styrk gerða sinna og dirfsku hugsana sinna.“ Leiðtogi franska kommúnista- flokksins, Georges Marchais, sem beint hefur flokknum undan áhrifum sovétstjórnarinnar, sagði I að Mao hefði „dregið meir en 800 milljónir upp úr eymd, ungri og vanþekkingu" og haft mikil áhrif á þróun heimsins. Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði Mao hafa verið einn „mesta leiðtoga frá upphafi vega. Nafn hans og gerðir verða alltaf tengd baráttu kínversku þjóðarinnar fyrir frelsi. Undir leiðsögn hans var þjóðinni lyft upp úr niðurlægingu nýlendu- stefnu og átthagafjötra. Áhrif Maos eru ekki bundin við Kína. Hugsanir hans um getu mannlegs vilja til að breyta lifsskilyrðum okkar hafa áhrif á fólk um allan heim“. Danski forsætisráðherrann, Anker Jörgensen, sagði að liklega væri það mesta afrek Maos að hann hefði getað boðað allri kin- versku þjóðinni hugsanir sínar og skapað þannig þjóðarmeðvitund og samstöðu. Malcolm Fraser, forsætisráð- herra Ástraliu, sagði Mao hafa verið arkitekt og innblástur end- urreisnar fjölmennustu þjóðar heims sem legið hefði í sárum eftir innrásarheri og strið. Við aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna i New York blöktu fán- ar i hálfa stöng vegna andláts kinverska leiðtogans. Talsmaður samtakanna sagði að Kurt Wald- heim, aðalritari þeirra, hefði hringt til sendiherra Kína hjá S.Þ. og vottað honum samúð. Rússar gera sér litlar vonir um skiótar sættir Tókíó, Moskvu og London 9. september AP—NTB—Reuter. ÓLÍKLEGT er talið að nokkur breyting verði á næstunni f samskiptum Kína og Sovétríkjanna eft- ir fráfall Maos Tse-tungs, hver sem kann að bera sig- ur úr býtum í baráttunni um sæti hans í kínverskum stjórnmálum. Rússar hafa bundið vonir sfnar við, að þeir, sem taki við af Mao, endurskoði ástæðurnar, sem leiddu til þess að sam- búð rfkjanna fór stöðugt versnandi árið 1956! Stjórnmálafréttaritarar segja að ólfklegt sé að svo verði því að bæði róttæku og hægfara öflin innan kfn- verska kommúnistaflokks- ins séu svo andstæð Sovét- ríkjunum, að hugsanlegt sé að það djúp verði aldrei brúað. Hins vegar hafa dyrnar alltaf verið opnar fyrir einhvers konar sam- skiptum á rfkisstjórnar- grundvelli. Hiki Banda- ríkjamenn við að efla tengsl við Sovétríkin geti það orðið til þess að Kfn- verjar gefi Rússum undir fótin til að minna á að þeir geti einnig tekið þátt f pólitfsku valdatafli. A 20 árum féll Mao Tse-tung úr sessi hjá Rússum sem einhver fremsti postuli kommúnismans niður í djúp djöfuls hugsjóna- legra svika. Það sem valdamenn í Kreml velta nú mest fyrir sér er að hve miklu leyti Mao tókst að móta skoðandir hugsanlegra eftir- manna sinna. Talið er að það muni taka sovézka ráðamenn marga mánuði ef ekki ár að skipu- leggja stefnu sina gagnvart Kína að nýju, að Mao látnum. Sovézkir fjölmiðlar hafa frá þvi að Chou En-lai lézt I janúar látið í ljós þá von við almenning í Sovétrikjun- um að einhvern tíma muni „sann- ir kinverskir föðurlandsvinir" endurvekja vináttu Sovétrikj- anna og Kina. Hafa sovézkir fjöl- miðlar túlkað fréttir að ókyrrð og andófi í Peking og öðrum borgum sem ákvörðun um að brjóta á bak aftur veldi Maos og snúa aftur á braut „vísindalegs sósíalisma" og áherzla er lögð á að Mao hafa verið helzta hindrunin í vegi fyrir sáttum milli þessara stórvelda kommúnismans. Fréttamenn I Moskvu, sem rætt hafa nýlega við helztu Kinasér- fræðinga Sovétrikjanna, segja að Rússar geri sér litlar vonir um skjótar sættir I nánustu framtíð. ERLENT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.