Morgunblaðið - 10.09.1976, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976
— Skákin
Framhald af bls. 40
tókst honum þó að villa svo um
fyrir Tukmakov að hann náði að
komast inn í taflið á ný með því að
vinna upp tapaðan mann. Þess er
skemmst að minnast að svipaðir
atburðir áttu sér einnig stað þeg-
ar Friðrik og Tukmakov tefldu
slðast saman hérlendis, en það
var á árinu 1972. Þá fórnaði Friðr-
ik einnig manni og komst út úr
vandræðum eftir mikinn darrað-
ardans tímaskort og tókst að
sigra.
Spennan í mótinu er nú alger-
lega í hámarki því eftir 12 um-
ferðir eru þeir Friðrik, Najforf,
Timman og Tukmakov jafnir og
efstir með S'A vinning. Enginn
þeirra á biðskák, en Najdorf gaf
skák sína gegn Friðrik áður en 12.
umferðin hófst í gær. Hér kemur
skák Tukmakovs og Friðriks, en
skýringar verða i blaðinu á morg-
un:
Hvftt: V. Tukmakov
Svart: F. Ólafsson
1. Rf3 — d5, 2. g3 — g6, 3. Bg2 —
Bg7, 4. 0-0 — Rf6, 5. d3 — 0-0, 6.
c3 — b6, 7. Da4 — h6, 8. e4 —
dxe4, 9. dxe4 — Bb7, 10. e5 —
Re4, 11. Hdl — Dc8, 12. Be3 —
Ra6, 13. Dc2 — Rac5, 14. b4 —
Re6, 15. Rh4 — R6g5, 16. f3 —
Rh3+, 17. Bxh3 — Dxh3, 18. Rxe4
— Bxe5 19. Bxh6 — Hfd8, 20.
Hxd8+ — Hxd8, 21. Rd2 — Bf6,
22. Rdf3 — Dg4, 23. e5 — Bxh4,
24. Rxh4 — g5, 25. Df5 — Hdl+,
26. Hxdl — Dxdl +, 27. Dfl —
Dxfl+, 28. Kxfl — gxh4, 29. gxh4
— Bd5, 30. a3 — a5, 31. Bg5 —
axb4, 32. cxb4 — b5, jafntefli.
Staðan í mótinu er nú þessi:
1.—4. Friðrik, Najdorf,
Timman og Tukmakov: 8'/5
vinningur. 5. Westerinen: 7
vinningar, 6. Antoshin, 6'A vinn.
+ 2 biðskákir, 7.—8. Guðmundur
og Keene: 6'A vinn. 9. Ingi R.: 6
vinn. + 2 biðskákir 10.—11.
Matera og Vukcevic: 5'A vinn. 12.
Haukur: 4'A vinn. 13. Helgi: 3'A
vinn. 14.—15. Björn og Margeir: 3
vinn. + biðskák. 16. Gunnar: l'A
vinningur.
— Samræmdir
kjara-
samningar
Framhald af bls. 40
Þetta er algjörlega mál sjó-
mannasamtakanna og aðildar-
félaga vinnuveitenda. Jafn-
framt var það ekki ætlunin að
þeir sem ekki samþykktu samn-
ingana nytu þeirra hagstæðu
kjara, sem sjóðakerfið veitti.
Þarna varð að vera um sam-
ræmdar aðgerðir að ræða.“
Sjávarútvegsráðherra sagði
að bráðabirgðalögin væru
þannig úr garði gerð að þau
bönnuðu sjómönnum og útvegs-
mönnum ekki að halda áfram
samningsgerð. Menn gætu sam-
ið þrátt fyrir lögin. Þau bönn-
uðu aðeins verkföll, en skertu
ekki hinn frjálsa samningsrétt.
Lögfest er síðasta sáttatillagan,
þannig að þeir, sem þegar
höfðu samið og nutu viðbótar-
kjara, geta notið þeirra áfram.
Tregara hjá
reknetabátum
VEIÐI reknetabáta frá Höfn i
Hcrnafirði var með tregara móti í
gær. Þá komu bátarnir aðeins
með um 700 tunnur að landi og
var Skógey með langmestan afla,
200 tunnur. Aðrir bátar voru með
frekar lítið.
Síldin sem barst að landi i gær
fór svo til öll í salt og nú er búið
að salta nokkuð á sjötta þúsund
tunnur á Höfn.
tfeultiurik / 2 3 Y 0 7 $ 9 /2 fíti /2 ti tf ttl /inn
1 Helgi ölafsson X 'b- % % ‘k o 0 'k D % o! o [k
2 Gunnar Gunnarsson X 0 0 O 0 1 Q 0 V o\ 0 0
3 Ingi H. Jóhannsson •h- i X I 0 >k 'k % 0 1 1
y Margeir Pétursson <k i 0 X fL Jl O Vz 0 V •h
f M. R. Vukcevie 'k / I I X 1(l 0 0 0 ‘h ‘k 0 %
6 H. Westerinen I i 'h ! % I '/* 0 ‘k o •h % 1
7 R. D. Keene I 0 ‘Iz i ! X 1 0 'h 0 ‘h ‘tz
ft S. Matera ‘lz I ‘Iz ‘lz 1 X ‘U l 0 'k 0 0 0
9 V. S. Antoshin I I 'L X !k\ ‘h 'lz !k 'Ll Vz 1
/ó Björn Porsteinsson % I 0 0 ‘Iz X % 0 0 •k 0 0
f/ J. H. Timman l ! 1 1 / ‘h 'k X / •/z O 0 1
/2 Guðm. Sigurjónsson I / 'k ‘h 'k •fl I 0 X ‘h 0 'íz 'h
/3 Priórik Ólafsson 'lz 'lz 1 1 1 'h. i % ‘k X h ‘k
ty Miguel Najdorf I 1 ‘k >/z >lz 1 Vz Vz 1 1 X /
ts V. Tukmakov / 0 í 1 ‘íz Vz 1 % / ! lk ’/z X
ÍL Haukur Angantýsson !L / 0 ‘Jz Vz 0 O / 0 'h A 0 X
— Mikil óvissa
Framhald af bls. 1
kommúnistaflokksins í kvöld
sagði að engum erlendum þjóð-
höfðingja yrði boðið að vera við
útför Maos, sem fram fer laugar-
daginn 18. þessa mánaðar. Á með-
an hefur verið fyrirskipuð þjóðar-
sorg í Kína. Einnig hefur verið
fyrirskipað, að er útförin hefst
skuli allir Kínverjar hvar sem
þeir eru standa kyrrir og þögulir í
þrjár minútur og þangað til skuli
öll tómstundaiðkun í landinu
liggja niðri. Lík Maos mun liggja
á viðhafnarbörum í Höll þjóðar-
innar í Peking frá morgundegin-
um til föstudagsins 17.
Ekki hefur verið gefið upp hver
dánarorsök Maos var, en erlendir
sérfræðingar telja mjög margir að
Mao hafi þjáðst af Parkinson-
veiki, auk þess, sem hann hafi
fengið nokkrar aðkenningar að
heilablóðfalli. Síðasti erlendi
þjóðarleiðtoginn, sem hitti Mao,
var Bhutto, forseti Pakistans, og
sagði hann þá að Mao hefði verið
illa haldinn af kvefi og veikburða,
en virzt halda andlegum kröftum
óskertum.
MIKIL STJÖRNMÁLALEG
ÓVISSA FRAMUNDAN
Fráfall Maos er mikið áfall fyr-
ir kínversku þjóðina og mun
mörgum finnast nær óhugsandi
að takast megi að fylla upp í það
skarð, sem hann skilur eftir sig. í
yfirlýsingu miðstjórnarinnar um
lát hans er loforð um að stefnu
Maos verði áfram fylgt í hvívetna
og jafnframt hvatt til einingar
meðal þjóðarinnar. Núverandi
forsa-tisráðherra og varaformað-
ur flokksins, Hua Kuo-feng, sem
skipaður var i embætti, er Teng
Hsiao-ping, varaforsætisráðherra,
var sviptur embætti fyri á þessu
ári, er talinn hugsanleg málamiðl-
un milii róttækra afla flokksins,
sem Chiang Ching, ekkja Maos,
veitir forystu, og hægfara afl
anna, sem Chou En-Iai heitinn,
fyrrum forsætisráðherra, veitti
forystu, en Teng var einn nánasti
samstarfsmaður Chous. Það vakti
athygli í tilkynningunni um lát
Maos að miðstjórnin hvatti kín-
versku þjóðina til að herða og
dýpka gagnrýni sína á Teng.
Vmislegt hefur á undanförnum
mánuðum bent til þess að inn-
byrðis deilur hafi valdið kín-
verskum ráðamönnum áhyggjum.
I ritstjórnargrein í Dagblaði al-
þýðunnar á mánudag var fjallað
um slíkar deilur á mjög óljósan
hátt, m.a. talað um að gera upp
gamlar sakir og vopnaða baráttu.
Þá hefur einnig í ritstjórnargrein-
um verið varað við skemmdar-
verkum „stéttaróvinanna", en
aldrei talað um nein ákveðin at-
vik og engar skýringar gefnar. 1
tilkynningu miðstjórnarinnar i
dag var einnig sagt að ekki mætti
trufla járnbrautarsamgöngur í
iandinu, en þessu var sleppt, er
kínverska fréttastofan Hsinhua
útvarpaði tilkynningunni á
ensku. Finnst mörgum stjórn-
málafréttariturum hið einkenni-
lega orðalag benda til þess að
einhvers staðar sé ekki allt með
felldu.
AUKIN GAGNRVNI
A TENG
Lát Maos ber að á þeim tíma,
sem kínversk blöð eru i óða önn
við að auka gagnrýni sína á Teng
Hsiao-ping og fregnir hafa borizt
af því að ýmsir hópar hafi notað
gagnrýnisherferðina á hendur
Teng til að ráðast á sína óvini.
Þegar litið er á það, að Hua hefur
aðeins verið við völd í 5 mánuði
og raunar ekki markað nein spor í
kínverskum stjórnmálum, og að
keppinautar hans um starfið eru
margir og framgjarnir, er ekki
fjarri lagi að ætla að baráttan um
formannsstarfið geti orðið hörð
og löng. Ein ábending um þetta er
ofbeldisaldan, sem fór um Peking
og aðrar stórborgir í landinu í
april, er Mao rak Teng úr
embætti.
Stjórnarskrá Kína kveður svo á
um að miðstjórn kommúnista-
flokksins, sem skipuð er 195
mönnum, skuli velja formanninn,
en að öðru leyti er ekkert, sem
gefur ákveðna vísbendingu um
hver kunni að hljóta valdamesta
embætti Kína. Hua, sem er 57 ára,
var öllum á óvart gerður að for-
sætisráðherra og hann er alger-
lega óþekkt mynd í kínverskum
stjórnmálum. Hann var fyrrum
öryggismálaráðherra, er nokkuð
vel að sér í landbúnaðarmálum,
en var algerlega óþekktur er Mao
varpaði honum fremst í sviðsljós
kínverskra stjórnmála. Hann er
talinn vera miðja vegu milli
róttækra og hægfara afla, en
menn efast um að honum hafi
gefizt nægilegur timi til að hasla
sér öruggan völl.
HÖRÐUSTU
KEPPINAUTARNIR
Meðal annarra keppinauta um
sæti Maos er ekkja hans, Chiang
Ching, sem er 62 ára og á sæti í
framkvæmdastjórn flokksins,
þrir af nánustu samstarfs-
mönnum hennar í róttækari armi
flokksins, þeir Wang Hung-wen,
40 ára, sem Mao tók úr færibanda-
vinnu í Shanghai og setti í
fremstu röð stjórnmála, Chang
Chun-chiao, 58 ára, fyrsti að-
stoðarforsætisráðherra og einn af
varaformönnum flokksins, og Yao
Wen-yuan, 51 árs, meðlimur fram-
kvæmdastjórnarinnar og harður
gagnrýnandi, en bitur gagnrýní
hans á kerfið hratt af stað
menningarbyltingunni 1966. Ur
hópi hægfara afla má nefna Yeh
Chien-ying, 78 ára sem er varafor-
maður og varnamálaráðherra og
einn nánasti vinur Chou En-lais,
Li Hsien-min, aðstoðarforsætis-
ráðherra, og Chen Hsi-lien, yfir-
maður Pekingdeildar kínverska
hersins. Þeir Yeh og Chen eru
taldir hafa mikinn stuðning innan
hersins, en aldur þeirra og slæm
heilsa minnkar möguleika þeirra.
Mao er þriðji maðurinn af
stofnendum kínverska alþýðulýð-
veldisins, sem fellur frá á þessu
ári. Cho En-lai lézt í janúar sl. og
Chu Teh, sem stofnaði Rauða
herinn, lézt í júlí. Yeh Chien-ying
er nú sá einn, sem eftir lifir af
leiðtogunum, sem stjórnuðu strið-
inu gegn Kuomintang árið 1949.
Nú eru aðeins 4 meðlimir eftir af
10 í fastanefnd framkvæmda-
stjórnar flokksins, en þeir eru
Hua, Wang, Yeh og Chang. Auk
Maos, Chous og Chus áttu sæti þar
Teng Hsiao-ping sem var rekinn,
Li Teh-sheng, sem einnig mun
hafa verið rekinn, og Tung Pi-wu,
sem lézt í apríl 1975. Sézt á þessu
hve mikil skörð hafa myndazt í
leiðtogahóp landsins á undanförn-
um tveimur árum og þessi skörð
gera óvissuna um framtíðarskip-
un stjórnmálaforystunnar ennþá
alvarlegri. Baráttan um sæti hans
getur einnig orðið til að skera úr
um hvort hans útgáfa á
kommúnisma heldur velli i Kína.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
áætlun væri i smiðum um orku-
sparnað á öllum sviðum.
Upphaflega átti Soares að flytja
þessa ræðu í fyrrakvöld, en hann
varð að fresta henni vegna póli-
tískrar ólgu innan flokks sins.
Var sagt að Soares gæti ekki flutt
ræðuna, þar sem hann væri hálf
lasinn. Heimildir í Lissabon
herma, að Soares eigi í erfiðleik-
um innan flokksins og að jafnað-
armenn óttist að ef efnahagsað-
gerðirnar komi of mikið við hinar
vinnandi stéttir kunni Soares að
verða sakaður um að hafa brugð-
izt baráttu vinstrimanna sl. 2 ár
og þeim áföngum, sem náðst hafa
á því tímabili. Slíkt gæti skapað
óróa meðal þeirra 25% kjósenda,
sem styðja kommúnista og rót-
tæka vinstriflokka. 1 ræðu sinni
lofaði Soares að koma á aga meðal
iðnverkafólks og sagði að verkföll
mætti ekki nota nema sem neyð-
arúrræði og að verkamenn, sem
færu í verkföll, gætu ekki fengið
laun. Talið er að framleiðni í iðn-
aði hafi minnkað um 35% vegna
lélegra afkasta og mikilla fjar-
vista verkafólks.
— Bjargráða-
sjóður
Framhald af bls. 2
búnaðardeildinni verða þær i ár á
bilinu 83 til 93 milljónir. Heildar-
ráðstöfunartekjur beggja deilda
sjóðsins 1976 eru þvi áætlaðar 111
til 121 milljón króna.
Á tímabilinu frá 1. janúar til
ágústloka hafa styrkir og lánveit-
ingar úr sjóðnum verið úr al-
mennri deild 625.000 krónur í
styrki og 24.835.000 krónur í lán-
veitingar eða samtals 25.460.000
krónur. Styrkir og lán til 56 aðila
nema 24.875.000 krónum, þar af
til 49 aðila vegna óveðurstjóns að
upphæð 22.270.000 krónur. Ur
búnaðardeildinni eru styrkir og
lán 87.232.000 krónur. Vegna bú-
fjártjóns fóru I styrki og lán
41.282.000 krónur og I uppskeru-
tjón á kartöflum fóru 25.650.000
og i óþurrkalán 20.300.000 krón-
ur. AIls eru þvi styrkir og lán úr
báðum deildum á timabilinu frá
1. janúar til 2. september 1976
122.871.788 krónur.
Af þessu sést að þegar er búið
að ráðstafa öllum áætluðum ráð-
stöfunartekjum almennu deildar
sjóðsins til næstu áramóta og
raunar hefur verið gengið á vara-
sjóð hans, séreignadeild, um 30"
milljónir króna. Tekjur sjóðsins
hafa innheimzt illa.
Af framangreindu er ljóst að
sjóðurinn er fjárvana og þess ekki
megnugur af eigin fé að veita
aðstoð vegna tjóns af völdum
óþurrkanna í sumar. Ekki er ljóst
enn, hve mikil þörf er fyrir hendi
í landbúnaði, þar sem umsóknir
um styrki og lán hafa ekki borizt
sjóðnum.
Hlutverk bjargráðasjóðs skipt-
ist i tvennt eins og deildaskipting
hans gefur til kynna. Hlutverk
almennu deildarinnar er að veita
einstaklingum, fyrirtækjum og
sveitarfélögum fjárhagsaðstoð til
þess að bæta meiriháttar tjón á
fasteignum og lausafé af völdum
náttúruhamfara, óveðurs, flóða,
vatnavaxta, skriðufalla, snjóflóða
jarðskjálfta og eldgosa. 1 huga
verður að hafa að um er að ræða
lög sjóðsins, þegar rætt er um
hlutverk hans og var viðlaga-
trygging ekki til, þegar þau voru
samin 1972. Hlutverk búnaðar-
deildarinnar er að veita einstakl-
ingum og sveitarfélögum fjár-
hagsaðstoð til að bæta meiri hátt-
ar tjón vegna búfjárdauða, af
völdum sjúkdoma eða af slysum
— verði gáleysi eigenda ekki um
kennt. 1 öðru lagi vegna fóður-
kaupa vegna grasbrests af völd-
um kulda, kals eða óþurrka til að
afstýra óeðlilega mikilli slátrun
búfjár. Einnig er sjóðnum ætlað
að bæta uppskerubrest á garð-
ávöxtum og loks að veita fjárhags-
aðstoð vegna verulegs afurðatjóns
á sauðfé og nautgripum.
Fjárhagsaðstoð sjóðsins, þ.e.
beggja deilda, getur falizt í styrk-
veitingum eða veitingu vaxta-
lausra lána, þar sem lánstíminn
er að jafnaði 5 ár.
— Form. L.I.U.
Framhald af bls. 5
sæta með tilliti til þess sem að
framan er rakið.
Illa fyndist mér ég þekkja
sveitunga mina af Vestf jörðum,
ef þeir hafa ætlazt'til þess, einir
sjómanna á landinu, að fá notið
sjóðakerfisbreytinganna án
þess að taka þátt í þeim breyt-
ingum á hlutaskiptum, sem
óumflýjanlega fylgdu I kjölfar
breytingarinnar.
Að lokum vil ég taka fram, að
með sjóðakerfisbreytingunni
var hægt að bæta launakjör sjó-
manna umfrám launabreyting-
ar annarra stétta og voru þeir
vel að þvi komnir vegna sinna
þýðingarmiklu starfa fyrir
þjóðarskútuna.
— Rækja
Framhald af bls. 40
tíma og 12 manns hafa unnið við
vinnslu aflans í Rækjuveri hf.
Frá þvi í september i fyrra hefur
engin vinna verið á Bildudal
nema við rækjuvinnslu hjá
Rækjuveri fram eftir vetri og um
nokkurt skeið við vinnslu á
hörpudiski, en frá 15. júlí sl. hef-
ur ekkert verið að gera þar til nú.
Hannes sagði að miðin, sem Vis-
ir hefði veitt á i Tálknafirði, virt-
ust vera mjög góð, en sjávarút-
vegsráðuneytið hefði ekki enn
tekið ákvörðun um áframhald-
andi veiði. Sagðist hann vita um
tvo báta frá Patreksfirði og tvo
frá Tálknafirði, sem búnir væru
að sækja um leyfi til þessara
veiða, ef þeir fengju veiðiheimild
mætti búast við að einhverjir
þeirra eða allir myndu landa á
Bíldudal.
— Það sem veldur þessu mikla
atvinnuleysi hér, sagði Hannes, er
hvað uppbyggingu frystihússins
miðar hægt áfram, það er í sífellu
verið að tala um að það sé að
verða tilbúið en ekkert gengur, og
rekstur þess virðist ekki í sjón-
máli enn. Héðan eru gerðir út
margir bátar, en verða allir að
landa annars staðar, þar sem ekki
er hægt að taka á móti fiskinum
hér.
Hann sagði að aðalatvinna
manna á Bíldudal hefði I sumar
og einnig í fyrrasumar verið bygg-
ingavinna. Þar hefðu verið byggð
10 hús í fyrra og annað eins i
sumar.
— Því er ekki að neita að nú er
kominn uggur i fólk, þar sem eng-
in atvinna virðist vera á næstunni
eða ekki fyrr en frystihut.