Morgunblaðið - 05.10.1976, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKT0BER 1976
21
JÚDÓMENN HELGUÐU
VINUM Á NORÐUR-
LÖNDUNUM MÓT SITT
„VINÁTTUMÓT Norðurlanda f
júdó“ nefndist júdómót sem júdó-
samband Islands efndi til f Laug-
ardalshöllinni á sunnudaginn og
var mót þetta haldið f stað Norð-
urlandameistaramóts unglinga,
sem fram átti að fara f Laugar-
dalshölfinni á þessum tfma, en
varð að aflýsa sökum þess að
Finnar og Svfar afboðuðu þátt-
töku sfna á mótið og báru við
peningaleysi. Gerðist það aðeins
10 dögum áður en mótið átti að
hefjast.
Á mótinu á sunnudaginn var
keppt f tveimur aldursflokkum,
eins og gera átti á Norðurlanda-
mótinu. Annars vegar kepptu
unglingar 15—17 ára og hins veg-
ar piltar 18—20 ára. í sfðarnefnda
flokknum fengu einnig að keppa
karlar sem ekki höfðu hærri
gráðu en 4. kyu.
(Jrslit f mótinu urðu þau að f
yngri flokki, 15—17 ára, sigraði
Egill Ragnarsson, JFR, I þyngri
flokknum. Þar varð Stefán
Högnason frá Isafirði annar og
Sigurður Hauksson, UMFK þriðji.
I léttari flokknum urðu úrslit þau
að Þórarinn Ólafsson, UMFK,
varð sigurvegari, Ketilbjörn
Tryggvason, JFR, varð annar og
Rúnar Guðjónsson, JFR, þriðji.
i eldri flokknum var keppt f
þremur þyngdarflokkum. 1 flokki
þeirra sem eru 88 kg eða þyngri
sigraði Jóhann Guðmundsson,
JFR. Kristmundur Baldursson,
UMFK, varð annar og Karl H.
Gfslason, JFR, þriðji. 1 flokki
80—88 kg sigraði Viðar Guðjohn-
sen, Á. Finnur M. Finnsson frá
Isafirði varð annar og Jón B.
Bjarnason, JFR, varð þriðji. 1
flokki þeirra sem eru undir 80 kg
sigraði Jónas Jónasson, A, Guðni
Georgsson, UMFK, varð annar og
Hilmar Jónsson, Á, varð þriðji.
Mynd þessi var tekin á júdómótinu f Laugardalshöllinni og hefur sá er
horfir til Ijósmyndarans greinilega náð góðu taki á andstæðing sfnum.
ISLANDSMOTIÐ HAFIÐ
Islandsmótið f handknatteik hófst með fjórum
leikjum f 1. deildar keppni karla á sunnudags-
kvöldið og var þá bæði leikið f Iþróttahúsinu f
Hafnarfirði og f Laugardalshöllinni. Mótið sem
hófst með þessum leikjum er fjölmennasta
lslandsmót f handknattleik sem fram hefur farið
til þessa, en áætlaður fjöldi keppenda er um 3800.
Alls verða leikir f mótum á vegum HSI f vetur um
670 talsins. Meðfylgjandi mynd er úr leik Vals og
Þróttar f fslandsmótinu en þann ieik vann Valur
21—16 og skipaðist þvf fljótt veður f Iofti hjá
Þrótturum sem á föstudagskvöldið hlutu sinn
fyrsta Reykjavfkurmeistaratitil f handknattleik.
Það er Steindór Gunnarsson, Valsmaður sem þarna
skorar framhjá Kristjáni markverði Þróttar, en
aðrir leikmenn sem á myndinni sjást eru
Þróttararnir Gunnar Gunnarsson og Konráð
Jónsson. Sjá umsagnir um leiki helgarinnar á bls.
23, 24 og 25.
Vilmundur jafnaði íslandsmetið
í 200 m hlaupi - hljóp á 21,3 sek.
„ÞAÐ býr vafalaust meira f Vil-
mundi en þetta og þvf leitt til
þess að vita að hann skuli ekki
geta keppt meir. Nú er hann
búinn að brjóta fsinn svo það má
búast við verulegri framför þegar
næsta sumar ef allt gengur að
óskum f vetur hjá honum." Þetta
sagði Jón Diðriksson þegar við
ræddum við hann f gær.
Þeir félagarnir kepptu á frjáls-
íþróttamóti f Menden í V-
Þýskalandi á laugardaginn, og
þar gerði Vilmundur sér litið
fyrir og jafnaði íslandsmet Hauks
Clausen og Hilmars Þorbjörns-
sonar f 200 m hlaupi. Hljóp
Vilmundur á 21,3 sekúndum, en á
þeim tíma hljóp Haukur árið
1950, og Hilmar 1956.
Jón Diðriksson jafnaði svo sinn
bezta árangur f 1500 m hlaupi
með því að hlaupa á 3:52,1. alveg
keppnislaust. Sigraði hann með
nokkrum yfirburðum í því hlaupi,
þar sem næsti maður fékk um
3:55 mín., en Jón leiddi hlaupið
frá upphafi.
„Þegar mótið fór fram var
ágætisveður, næstum logn og um
20 stiga hiti en það hafði þó rignt
um daginn og þvf voru brautirnar
nokkuð blautar. Það hefur þó
sennilega ekki haft nokkur áhrif
á árangur," sagði Jón. Jón sagði
okkur að mótstaða Vilmundar
hefði verið fremur lítil, sérstak-
lega í 200 m. „Villi hljóp 100 m á
undan og vann það á 10,5 sek., og
næsti maður var þar með 10,6
1 200 metrunum var hann langt
á undan þegar komið var út úr
beygjunni og því ekki um neina
keppni að ræða þar, sem var
nokkuð bagalegt því með ein-
hverri keppni hefði hann kannski
getað pressað sig neðar. Það var
Islandsvinurinn Hanno Rheineck
sem varð f öðru sæti í þessu
hlaupi, en hann fékk 21,9 sek.“
Það má með sanni segja að
þetta hafi verið góður endir á
keppnistímabili Vilmundar. Eftir
að það hafðí verið frekar hljótt
um hann fyrrihluta sumars hefur
honum farið stöðugt fram og er
hann með langbezta árangur
Islendings í 100, 200 og 400 m
hlaupum í ár og hefur slfkum
árangri ekki verið náð um árabil.
Hann hefur nú hlaupið
umræddar vegalegndir á
10,4—21,3 og 47,3 sek., en hans
besti árangur frá fyrri árum var
10,6—21,7 og 48,5.
Fastlega má gera ráð fyrir að
Vilmundur bæti þennan árangur
þegar næsta sumar, því hann
hefur verið í stöðugri framför.
Ætli hann sér þó að verða
hlaupari á heimsvfsu verður hann
að fara að gera upp við sig hvort
hann einbeiti sér að 100 og 200
metrum eða þá miði sinn undir-
buning við 400 m fyrst og fremst.
Menn hafa þó engu að kvíða f
þessu sambandi þvf vafalaust
getur Vilmundur náð stóraf-
rekum hvort sem er f styttri vega-
lengdunum eða lengri.
Með þennan árangur að baki
hlýtur Vilmundur að setja markið
hátt og stefna á Ólympíuleikana í
Moskvu 1980, en með sama áfram-
haldi ætti hann að geta náð fram-
bærilegum árangri þar.
OVIÐURKVÆMILEG FRAMKOMA LEIK-
MANNA OG STUÐNINGSMANNA FH
AGANEFND sú sem stjórn
Handknattleikssambands
Islands ætlar sér að skipa á
næstunni þarf ekki iengi að
bfða eftir sfnu fyrsta verkefni.
Það liggur þegar fyrir. Eftir
leik Víkings og Hauka f 1.
deildar keppninni á tsunnu-
daginn lenti einn leikmanna
Vfkingsiiðsins, Viggó Sigurðs-
son, f orðaskaki við dómarana
og bókuðu þeir f leikskýrslu að
„Viggó Sigurðsson hefði verið
útilokaður f lok leiksins." Ekki
liggur fyrir hvort Viggó hlýtur
refsingu né þá heldur hver hún
verður, þar sem aganefnd mun
ekki enn hafa ákveðnar reglur
til að vinna eftir.
Og aganefndin hefði raunar
átt á fá annað verkefni eftir
leikina i Hafnarfirði á sunnu-
dagskvöldið. Framkoma leik-
manna FH eftir tapleik þeirra
við IR bar ekki mikilli íþrótta-
mennsku vott. Einstakir leik-
menn gerðu sig líklega til þess
að ráðast á annan dómara
leiksins, Björn Kristjánsson, og
sýndu honum fádæma ókurteisi
og þeirri venju að hrópa húrra
fyrir andstæðingnum f leikslok
var líka sleppt. Það er ákaflega
auðskilið að sárt var fyrir FH-
inga að tapa þessum leik, en
jafnvel þótt þeir kenni dómur-
unum um ófarir sinar eiga leik-
menn þessa liðs að vera það
leikreyndir og miklir íþrótta-
menn að þeir eiga að kunna að
taka þvf sem að höndum ber.
Líta í eigin barm og leita þar
orsaka ósigursins.
Framkoma leikmannanna
virtist svo æsa upp áhorfendur,
sem gerðu hróp að dómurunum
og köstuðu í þá smápeningum.
Eina svarið við slíkri fram-
komu ætti að vera að heima-
leikir væru teknir af FH í
óákveðinn tfma, en það mun því
miður ekki hægt vegna hinna
miklu húsnæðisvandræða. Yfir-
leitt eru áhorfendur í Hafnar-
firði hinir skemmtilegustu og
taka virkari þátt í leiknum og
styðja sfna menn betur en
gerist og gengur annars staðar.
Er því leitt að nokkrir menn
sem gleyma sér f hita leiksins
og vonbrigðanna skuli setja
leikðinlegan stimpil á fylgis-
menn FH.
Unglingalandsleikur
við Noreg á Laugar-
dalsvellinum í dag
KL. 17.00 í dag hefst á Laugar-
dalsvellinum landsleikur ungl-
inga 16—18 ára í knattspyrnu
milli Islendinga og Norðmanna og
er leikur þessi liður i Evrópumóti
unglinga. Má ætla að leikur þessi
geti orðið hinn skemmtilegasti,
þar sem bæði liðin hafa búið sig
af kostgæfni undir hann. Þjálfar-
ar fslenzka liðsins eru þeir Lárus
Loftsson og Theódor Guðmunds-
son og sáu þeir einnig um val
liðsins. Verður það þannig skip-
að:
Markverðir:
Rúnar Sverrisson, Þrótti
Guðmundur Baidursson, Fram
Aðrir leikmenn:
Guðmundur Kjartansson, Val
Börkur Ingvarsson, KR
Ottó Hreinsson, Þrótti
Sverrir Einarsson, Þrótti
(Jlfar Hróarsson, Val
Rafn Rafnsson, Fram
Sigurður Björgvinsson, IBK
Þórir Sigfússon, ÍBK
Hilmar Hilmarsson, Val
Einar Ólafsson, IBK
Jón Orri Guðmundsson UBK
Pétur Pétursson, lA
Magnús Jónsson, KR
Helgi Helgason, Völsung.