Morgunblaðið - 05.11.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1976
15
Afmæliskveðja
frá Dómkirkjusöfnuðinum
Sr. Óskar J. Þorláksson dóm-
prófastur er sjötugur í dag.
Hann fæddist 5. nóvember árið
1906 í Skálmarbæ í Álftaveri,
sonur hjónanna Sigrfðar Jóns-
dóttur og Þorláks Sverrissonar
síðar kaupmanns í Vfk í Mýrdal
og Vestmannaeyjum.
Sr. Óskar ólst að mestu upp í
Vík, en þaðan lá leið hans hing-
að til Reykjavíkur til náms,
fyrst við Menntaskólann, en
síðan hóf hann guðfræðinám f
Háskóla tslands og lauk kandf-
datsprófi vorið 1930. Þá var
haldið til framhaldsnáms um
nokkurt skeið á Bretlandi og
Norðurlöndum.
Hér heima liggur svo að baki
honum 45 ára prestsþjónusta,
fyrst á Kirkjubæjarklaustri, þá
á Siglufirði, en loks við Dóm-
kirkjuna sfðasta aldarfjórðung-
inn.
H:nn kvaddi söfnuð sinn þar
við guðsþjónustu 24. október
s.l. að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Ég veit, að þá hafa vfða
vaknað minningar f hugum
sóknarbarnanna um hlýleik og
drengilega framkomu, um vin-
sælan fermingarföður og
traustan sálusorgara.
t starfi Dómkirkjunnar má
víða sjá spor sr. Óskars þennan
sfðasta aldarfjórðung, og þau
eru öll jákvæð, sýna einlægan
vilja hans til að beina kirkju-
legu starfi á jákvæðar brautir.
Sr. Óskar hefur einnig unnið
vel á félagslegum vettvangi..
Hann hefur verið einn af frum-
herjum og framámönnum
Rotaryhreyfingarinnar á ts-
landi og einnig unnið mikið að
slysavörnum og bindindismál-
um.
En sr. Óskar hefur ekki stað-
ið einn í lífinu. Eiginkona hans,
frú Elísabet Árnadóttir, hefur
verið honum ágætur lífsföru-
nautur. Með skörungsskap hef-
ur hún rækt hlutverk prests-
konunnar. Hún hefur búið hon-
um og börnum þeirrr myndar-
legt og fallegt heimili, þar sem
öllum hefur þótt gott að koma.
Rotarymenn eiga hlut, sem
þeir nefna Fjórprófið. Það er
fólgið í fjórum spurningum, og
þeir segja, að ef maður er í
vanda staddur gagnvart þvf,
hvernig hann eigi að koma
fram f einhverju tilviki, þá eigi
hann að spyrja sjálfan sig þess-
ara spurninga allra. Fái hann
alltaf jákvætt svar, þá sé hon-
um óhætt að framkvæma ætlun
sína.
Spurningar Fjórprófsins eru
þessar:
Er það satt og rétt?
Er það drengilegt?
Eykur það velvild og vinar-
hug?
Er það öllum til góðs?
1 samskiptum okkar sr.
Óskars hef ég fundið svo vel
þann Rótaryanda, sem viðleitni
til lífs eftir þessari leiðsögn.
Með slfkum manni er gott að
vinna, og ég vil f dag þakka
samstarfið, um leið og ég færi
honum hugheilar þakkir og
blessunaróskir Dómkirkju-
safnaðarins f heild.
Þórir Stephensen.
Frá kveðjuguðsþjónustu sr. Óskars J. Þorlákssonar f Dómkirkjunni.
ég gerðist eftirmaður hans f
Kirkjubæjarklausturprestakalli á
Sfðu. Þá voru að vfsu liðin rúm-
lega tvö ár frá þvf hann hvarf
þaðan norður í Siglufjörð. En það
var auðfundið, að söfnuðunum
hafði verið að þeim hjónum mikil
eftirsjá. Svo vel höfðu þau kynnt
sig þar. Svo kennimannlega, i
þess orðs beztu og innstu merk-
ingu, hafði hann komið fram f
öllu sfnu starfi og lífi, að þangað
var gott að sækja fyrirmynd.
Hvernig það tókst, er önnur saga.
Það átti ekki fyrir sr. Óskari að
liggja að vinna sitt merkilega og
mannbætandi lífsstarf í heima-
byggðum sfnum, Vestur-
Skaftafellssýslu. En lengi mun
hans og þeirra hjóna minnst þar
eystra fyrir þann tfma, sem þau
dvöldu þar á fystu prestskaparár-
um sr. Óskars 1931—35. Þá var
hann jafnframt héraðsprófastur.
Síðan opnuðust honum „víðar
dyr og verkmiklar" f starfi sínu
bæði á Siglufirði og síðar hér í
Reykjavík, bæði sem prestur og
dómprófastur. Meðan hann var
prestur eystra sendi hann lands-
mönnum þaðan góða kveðju þar
sem Árbók Ferðafélags Islands
1935 með fáorðri lýsingu á hverri
sveit sýslunnar og helstu ferða-
leiðum. Þetta var áttunda ferða-
bók félagsins. Hún seldist fljótt
og var sfðan ljósprentuð. Þetta rit
sr. Óskars lýsir bæði ást hans á
átthögunum og ber gott vitni um
hinn iátlausa en greinagóða fram-
setningarmáta höfundar, sem ein-
kennt hefur allan málflutning
hans í ræðu og riti.
Þess gerist í raun og veru ekki
þörf að fara mörgum orðum um
þjóðkunn störf sr. Óskars bæði
innan kirkju og utan, s.s. að slysa-
varnarmálum, bindindismálum
og á ýmsum sviðum félagsmála.
Öll hafa þau störf. einkennst af
prúðmennsku hans, vandvirkni
og skyldurækni.
I janúarhefti Akureyrar-
timaritsins Heima er bezt, árið
1969, skrifaði undirritaður for-
ystugrein um sr. Óskar. Eru þar
birt nokkur svipleiftur úr lffi
hans og þeirra hjóna í stuttu máli
og nokkrum myndum. Þar sem
ætla má, að margir sem minnast
sr. Óskars á þessum tímamótum í
lffi hans, hafi ekki Heima er bezt
við hendina, skulu hér tilfærð
niðurlagsorð þeirrar greinar:
Það er gott að vera f kirkju hjá
sr. Óskari. Þeirri stund sunnu-
dagsins er vel varið. Sálmasöngur -
og altarisþjónusta hvetur til lotn-
ingar og tilbeiðslu. Kenningin er
ljós og skýr, framsetningin glögg
og greinargóð, ræðan „ljúfleg og
salti krydduð" (Kol. 4.6) Hver
maður finnur hvert er aðalinni-
hald boðunarinnar. Megin
áherzlan er lögð á hina ríku
ábyrgð, sem maðurinn ber á lífi
sfnu og breytni. — En jafnframt
er minnst á fagnaðarerindi kær-
leikans — Guðs fyrirgefandi náð f
Jesú Kristi, drottni vorum og
frelsara, Guðssyninum, sem send-
ur var til að vera okkur mönnun-
um vegurinn, sannleikurinn og
lífið. —
Þetta var skrifað fyrir 8 árum.
En ég hygg þessi orð lýsa vel
viðhorfi almenns kirkjugests hjá
sr. Óskari i hans langa og giftu-
ríka prestsstarfi. Fyrir það skal
nú þakkað um leið og minnst er
með hlýju og þökk langra og
góðra kynna við þau hjónin og
þeim beðið blessunar Guðs á ár-
unum sem framundan eru að
loknu starfi á löngum og farsæl-
um embættisferli.
I almanaki mínu er ritningar-
orðið á 5. degi mánaðarins tekið
úr Filippibréfinu, svohljóðandi:
„En Guð minn mun uppfylla
sérhverja þörf yðar eftir auðlegð
sinni með dýrð fyrir samfélagið
við Krist Jesúm."
Megi þetta fagra fyrirheit ræt-
ast í dag og bregða birtu trúar og
vonar á framtfðarveginn. G.Br.
1 dag er séra Óskar J. Þorláks-
son dómprófastur sjötugur. Af
því tilefni langar mig að senda
honum og konu hans, frú Elísabet
Árnadóttur, einlægar árnaðarósk-
ir frá okkur hjónum.
Séra Óskar hefur nýlega látið af
prestskap eftir 45 ára þjónustu.
Það er langur starfstfmi prests og
segir okkur, að séra Óskar hefur
helgað lff sitt allt þjónustu við
Guð. Allir þeir, sem hafa kynnzt
séra Óskari þekkja, að hann er
heill og traustur í þjónustu sinni.
Honum er það hjartans mál að
leiða menn til trúar og trausts á
Frelsarann. Hann veit, að heill og
hamingja manna er fyrst og
fremst reist á boðskap kristinnar
trúar, og á það hefur hann bent
bæði í orði og verki.
Um sér Óskar má segja, að hann
hefur verið einn traustasti þjónn
kirkju vorrar. öll embættisverk
sfn hefur hann unnið af kærleika
og trúmennsku. Allar stundir
með honum hafa einkennzt af trú-
artrausti og hátfðleika. Þetta
þekkir allt það fjölmarga fólk,
sem hefur haft kynni af starfi
séra Óskars og átt með honum
dýrmætar stundir, hvort sem
var í gleði eða sorg. Þess vegna er
séra Öskar elskaður og virtur af
sóknarfólki Dómkirkjunnar og
fjölda annarra hér f borg.
Séra Óskar hefur verið gæfu-
maður í lífi sínu. Hann á góða og
trausta konu, og þau hjónin hafa
staðið saman sem einn maður í
starfinu og hinni daglegu önn lífs-
ins. Þau eru traustar og góðar
manneskjur og hollir og góðir vin-
ir. Séra Óskar er umhyggjusamur
heimilisfaðir og lætur sér mjög
annt um þá, sem hann á samskipti
við. Hann er hlýr og samúðarrík-
ur á alvarlegum stundum', en
hann á líka til kæti og glaðværð
og góða kimnigáfu.
Séra Óskar hefur nú kvatt söfn-
uð sinn við Dómkirkjuna eftir
rúmlega 25 ára þjónustu þar. Ég
veit, að sóknarfólkið þakkar hon-
um nú á þessum tfmamótum og
biður honum og fjölskyldu hans
blessunar Guðs.
Guð gefi þeim hjónum báðum
góða heilsu, heill og hamingju á
komandi árum.
Hjalti Guðmundsson.
1 dag á séra Óskar J. Þorláksson
dómprófastur 70 ára afmæli.
Fæddur að Skálmarbæ f Álftaveri
5. nóvember 1906, sonur hjón-
anna Þorláks Sverrissonar bónda
þar, sfðar kaupmanns f Vest-
mannaeyjum og konu hans Sigríð-
ar Jónsdóttur.
Hann gekk menntaveginn eins
og sagt var um þá, sem til lang-
skólanáms héldu. Stúdentsprófi
lauk hann frá Menntaskólanum f
Reykjavík 1926 og guðfræðiprófi
frá Háskóla íslands 1930. Stund-
aði framhaldsnám f Oxford
1930—1931. Námsferðir fór hann
til Oxford 1947 og til Norðurlanda
1931 og 1961. Vfgðist sóknarprest-
ur til Kirkjubæjarklausturs 1931
og gegndi þar embætti til 1935
ásamt prófastsembætti f Vestur-
Skaftafellssýslu 1934—1935. Kos-
inn prestur í Siglufirði 1935, og
gegndi þvf til 1951. Það ár var
hann kosinn dómkirkjuprestur í
Reykjavík og gegndi því embætti
til 1. okt. sl. er hann sagði því
starfi af sér, enda, þá kominn að
aldurstakmarki embættismanna.
Auk þess, sem hér er talið gegndi
hann á þessu tímabili fjölda
trúnaðar- og mannúðarstarfa. í
Siglufirði er hann stundakennari
við barna- og gagnfræðaskólann. 1
stjórn Sjómanna og gestaheimilis-
ins. Formaður búnaðarfélagsins á
staðnum. I stjórn Sögufélags
Siglufjarðar, f skattanefnd o.fl.
o.fl.
Eftir að til Reykjavíkur kemur
liggja spor hans víða, auk anna-
samra embættisstarfa við Dóm-
kirkjuna. Sem einlægur
bindindisvinur situr hann f fram-
kvæmdanefnd Stórstúkiu Islands
1952—1953. Formaður Slysa-
varnadeildarinnar Ingólfs í
Reykjavík 1953—1965. í stjórn
Vetrarhjálparinnar f Reykjavík
1954—1964. 1 stjórn hins islenska
biblíufélags frá 1954. Rotary-
félagi er hann af lífi og sál og
hefur sótt mörg alþjóðleg Rotary-
þing og fundi bæði i Ameríku og
Evrópu. Umdæmisstjóri Rotary-
klúbba íslands var, hann
1948—1950.
Nokkuð hefur hann fengist við
ritstörf. Skráði Árbók Ferða-
félags islands 1935 um Vestur-
Skaftafellssýslu, greinargott rit.
Fjölda ritgerða f blöð og tímárit
auk margra útvarpserinda. Rit-
stjóri og útgefandi ýmissa and-
legra verka hefur hann verið.
Þessi upptalning svnir að af-
mælisbarnið hefur ekki alltaf set-
ið auðum höndum um dagana og
ólfkt er það honum ef svo verður
meðan heilsan endist. Öll störf sín
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi frá lláteigssöfnuði:
Séra Jón Þorvarðsson sóknar-
prestur Háteigskirkju kvaddi
söfnuð sinn við hátíðlega guðs-
þjónustu sunnudaginn 31. okt. s.l.
eftir 24 ára gifturíkt starf. Hann
verður sjötugur miðvikudagipn
10. nóv. n.k. Í tilefni þessa hefur
sóknarnefnd og Kvenfélag
Háteigssóknar ákveðið að gangast
fyrir samsæti prestshjónunum til
heiðurs.
rækir séra Óskar af stakri kost-
gæfni og kastar ekki til þeirra
höndunum.
Okkur leikmönnum hættir til
að dæma störf presta á ýmsa vegu
og þá ekki alltaf af of mikilli
sanngirni. Að vfsu eru þeir mann-
lgir og misjafnir eins og við öll.
Af einlægri vissu og kunnuleika
veit ég að séra Óskar hefur gegnt
starfi sínu af mikilli kostgæfni,
lagt i það sál sína bæði f gleði og
sorgum. Hógværð hans og hjarta-
hlýja verkar áreiðanlega sem
græðanda smyrsl á sorgarstund-
um. Léttleiki hans er örvandi á
gleðistundum og gamansgmi, sem
þá bregður fyrir, eykur á gleðina.
Af löngum og góðum kynnum, þar
sem við erum bundnir fjölskyldu-
böndum, fullyrði ég aðeinlægari
maður og hrekklausari heldur en
hann er, mun vandfundinn. Að
sjálfsögðu hafa fundir okkar inn-
an fjölskyldunnar verið margir
bæði á gleði- og sorgarstundum
Þar hefr. hann ávallt verið hun
óumdeilanlegi foringi og lyfti-
stöng hvernig sem á hefur staðið,
ljósið í sorginni. Lyftistöngin i
gleðinni.
Hann hefur ekki staðið einn í
lífsbaráttunni. Kona hans, Elisa-
bet Árnadóttir, hefur staðið styrk
við hlið hans. Einlægt trúartraust
hennar, viljastyrkur og dugnaður
hafa létt honum störfin, enda
samheldni þeirra og samstarf með
ágætum. Langvinn veikindi henn-
ar hafa aldrei drepið kjark henn-
ar, þvert á móti magnað styrk
hennar. í veikandum hennar kom
gleggst í ljós hvern mann séra
Óskar geymir. Má óefað þakka því
m.a. hve heilsa hennar hefur far-
ið batnandi með fjölgandi árum.
Heimili þeirra er fallegt. Þar
rikir heiðríkja, gestrisni og góður
andi.
Ég veit að séra Óskar hefur
notið vinsælda og virðingar safn-
aða, sem hann hefur þjónað nú
um 45 ára skeið. Kom það og fram
við hátíðlega kveðjuguðsþjónustu
hans í Dómkirkjunni hinn 24.
október s.l. Kirkjan var fullskip-
uð. Klerkur flutti mál sitt og þjón-
ustu alla af smekkvísi og virðu-
leik og var ekki að sjá né heyra,
að þar væri prestur með hæsta
starfsaldur innan þjóðkirkjunn-
ar, að kveðja og hverfa af starfs-
vettvangi. Við það tækifæri flutti
hr. biskupinn Sigurbjörn Einars-
son kveðju og þakkarorð og fór
mjög lofsamlegum orðum um séra
Óskar og störf hans. Einnig þakk-
aði starfsbróðir hans við Dóm-
kirkjuna séra Þórir Stephensen,
samstarfið ásamt góðum fram-
tíðaróskum. Þór Magnússon, for-
maður sóknarnefndar, flutti
kveðjur og þakkir sóknarbarna og
færði honum veglega gjöf frá
söfnuðinum.
Ég, kona mín, börn okkar og
tengdabörn færum afmælisbarn-
inu bestu árnaðaróskir. Hann hef-
ur veríð sálusorgari okkar. Skírt,
fermt og gift og heldur því von-
andi áfram enn um langan tima.
Elli kerling hefur enn ekki sett
svip sinn á hann að nokkru marki.
Heilsan yfirleitt verið góð, nema
hvað skugga bar á litinn tíma á
þessu ári, en ástæða virðist til að
ætla að það sé yfirstigið. Þessar
óskir tel ég mig mega flytja frá
fjölskyldunni allri, þvi hið sama
hefur yfir okkur öll gengið. i
þessum mánuði á frú Elisabet
einnig merkisafmæli og beinum
við þessum óskum einnig til henn-
ar í tilefni beggja afmælanna.
Lifi þau heil og lengi.
Þorgr. St. Eyjólfsson.
Samsa'tið verður haldið í Súlna-
sal Hótel Sögu á afmælisdaginn
og hefst kl. 8.30 e.h. Allt safnaðar-
fólk og aðrir vinir óg vandamenn
prestshjónanna er velkomið með-
an húsrúm leyfir.
Áriðandi er, að þátttaka verði
tilkynnt eigi siðar en mánudaginn
8. nóv. n.k. í einhvern af eftirfar-
andi símum: 11834, 13767, 16917
og 82959.
Samsæti til heið-
urs prestshjónum