Morgunblaðið - 05.11.1976, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. NÖVEMBER 1976
31
Rauðir undir
rauða strikið
Þann 16. október hófst flug Cargolux með 20 risastóra
Ijósastaura sem nota á við hátíðarhöld pilagrima i Mecca. Alls
þarf að fljúga 8 ferðir með staurana. Þeir eru settir saman úr
þrem hlutum og verða 36 metra háir. Þeim er ætlað að lýsa
upp hliðarnar i kringum hina helgu borg múhameðstrúar-
manna. Staurarnir eru smiðaðir i Frakklandi en Cargolux
flýgur méð þá í CL-44 flugvélum til Jiddah. Þaðan eru þeir
keyrðir til Mecca. Einstakir hlutar stauranna eru 12 metra
langir og mest ummál þeirra er 1.95 metrar. Stærstu stykkin
vega 8 tonn hvert.
Verðbólga og
arabísk olía
VERÐBÓLGAN í heimin-
um réttlætir ekki nema
7.8% verðhækkun á hrá-
oláu frá aðildarrikjum
OPEC á fundi samtakanna
í desember, samkvæmt at-
hugun, sem olíurannsókna-
sjóður i New York hefur
gert. Er það niðurstaða
skýrslu sjóðsins, The
Petroleum Industry
Research Foundation, að
verðhækkun á innflutn-
ingsvörum OPEC-ríkjanna
réttlæti 2.7 til 7.8% hækk-
un á olíu. Leiðtogar OPEC
landa hafa gefið í skyn að
olíuverð verði hækkað um
10—15%, sem á næsta ári
mundi veita þeim 12
milljarða dollara í tekju-
aukningu. í skýrslunni seg-
ir að verð á innflutnings-
vörum OPEC-landanna
hafi ekki hækkað um meir
en 2.7%, frá þvi í október
1975 til október 76. Styrk-
ur dollarans (olíuverð er
reiknað í dollurum) hefur
verndað OPEC löndin gegn
innfluttri verðbólgu.
HEILDARVIÐSKIPTAHALLI
kommúnistarfkja ( Evrópu og
Asfu hefur á einu ári rokið upp
úr 4 milljörðum Bandarfkjadala
1974 f 10 milfjarða 1975, sam-
kvæmt skýrslu Almenna tofla- og
viðskiptasambandsins, GATT,
sem birt var á miðvikudag. Inn-
flutningur kommúnistarlkjanna
jókst um 23% f fyrra en útflutn-
ingur um 16%. Ef aðeins er litið á
viðskiptahalla Sovétrfkjanna og
Austur-Evrópuríkja gagnvart
Vesturlöndum, þá varð hann 11
milljarðir dala f fyrra en var 4.8
milljarðir 1974.
Námskeið um fjár-
mál fyrirtækja
A MÁNUDAGINN hefst nám-
skeið Stjórnunarfélagsins um
fjármál fyrirtækja og er það fyrra
námskeiðið af tveim hliðstæðum.
Markmið námskeiðsins er að veita
þjálfun í að meta afkomu og fjár-
hagslega stöðu fyrirtækis og að
auki að kynna gerð fjárhagsáætl-
ana, þ.e.a.s. áætlana um rekstrar-
afkomu, um sjóðshreyfingar og
um þróun efnahags í þeirri trú að
hægt sé á tiltölulega skömmum
tíma að ná tökum á mjög gagn-
legri tækni við stjórnun fyrir-
tækja. Leiðbeinandi á námskeið-
inu, sem stendur í sex daga, sam-
tals 24 klukkustundir, er Árni
Vilhjálmsson prófessor.
Eins árs ábyrgd
— ekki minna
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ hefur átt viðræður við full-
trúa Verzlunarráðs íslands, Félags Isl. stórkaupmanna,
Kaupmannasamtaka Islands og Félags islenzkra iðnrek-
enda um ábyrgðartima vara. Hafa þessi samtök fallist á
að beita sér fyrir því við félagsmenn sína að ábyrgðar-
timi varanlegra neyzluvara verði ekki skemmri en eitt ár
i samræmi við ákvæði laga um lausafjárkaup. Ákvæðum
þeirra laga skal þó aðeins beita, þegar ekki er um annað
samið. Styttri ábyrgðartími hefur því tíðkast í ýmsum
tilvikum og hefur ósamræmis gætt. Samkomulag ráðu-
neytisins við samtökin að ofan á einkum að ná til
varnings eins og húsgagna, heimilistækja og annarra
rafmagnsvara, teppa, úra og skartgripa. Samkomulagið
nær hins vegar ekki til bíla.
Arne Lund
En tekjustefna er erfið við-
fangs. Vinnulaun eru mikilvæg-
asti þáttur tekna í okkar þjóðfé-
lagi og mikill áhrifaliður í efna-
hagskerfinu. Hækkun vinnutekna
leiðir til hækkunar annarra
tekna, þannig að ef laun hækka
um 10% hækka aðrar tekjur um
10%. Um það bil 80% heildar-
tekna í þjóðfélagi eins og okkar
eru vinnutekjur og til að geta
stýrt þeim þarf að búa til tekju-
kerfi.
Það var fyrst gert í Danmörku í
marz 1975, þegar kjarasamninga-
viðræður aðila vinnumarkaðarins
voru farnar út um þúf ur. Lagt var
fram á þingi frumvarp um launa-
stýringu, sem varð að lögum. 1
kjölfar þeirra laga féll árlegur
launastígandi úr 20% á ári í 12%.
Sambærilegur launastlgandi I
Vestur-Þýzkalandi var þá 6%.
1 ágúst sfðast liðnum voru ný
úrræði f efnahagsmálum lögð
fram í þinginu, sem fólu í sér að
fyrrgreind launastýring, sem á að
falla úr gildi næsta vor, héldi
áfram f 2 ár og að launastígandi
yrði helmingaður niður í 6% og
þar í eru innifalin 2% vegna vísi-
töluhækkana.
I Danmörku hafa aðilar vinnu-
markaðarins fallizt að,,tnestu á
launastefnu, þar sem litið hefur
verið á hana sem neyðarúrræði
vegna alvarlegra vandamála. Hins
vegar höfum Við ekki ennþá feng-
ið að sjá beinan árangur stefn-
unnar, þvf hann er lengi að koma
í ljós.
Ein afleiðing launastefnu er að
eðli samtaka launþega og vinnu-
veitenda breytist. Hún krefst
samstarfs og kallar fram sam-
vinnuvilja hjá samtökunum. önn-
ur vandamál eru að launastefna
jaðrar við korporatisma, sem
skapar þá hættu að kaup og kjara-
ákvarðanir verði aðallega í hönd-
um stjórnmálamanna en ekki
samtaka launþega og vinnuveit-
enda. Annað vandamál er hættan
á að laun og verðlag f þjóðfélag-
inu læsist föst. Launa- og verð-
lagskerfið verða að vera hreyfan-
leg ef frjálslynd efnahagsstefna á
ekki að líða undir lok.
En launastefna getur virkað ef
samtök vinnumarkaðarins fallast
á hana og virða hana. Það hefur
eiginlega verið mesta vandamálið
í Danmörku og það hefur ekki
tekizt að koma f veg fyrir launa-
skrið, þ.e. launahækkanir á ein-
staka vinnustöðum eða hjá ein-
stökum stéttum framyfir almenna
samninga f gegnum sérsamninga.
Það eru agavandamál hjá báðum
hliðum," sagði Arne Lund.
Helgafell,
Unuhúsi, Veghúsastig 7
(Simi 16837).
Rétt
fjárfesting
skilar margföldum arði
Góð bók (Helgafellsbók) er
í senn hvati andlegrar
þjálfunar, skemmtilestur
og grjótharðir peningar,
sem aldrei gengisfalla.
Eigum til nokkur sett af
verkum Halldórs Laxness,
skáldsögur, Ijóð, leikrit og
ritgerðir.
Allar 10 Ijóðabækur
Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi, i fjórum bind-
um, mjög fallegu bandi.
ir Stein Steinar, Ljóðasafn
Tómasar Guðmundssonar,
Ritsafn Magnúsar Ásgeirs-
sonar, Þyrnar o<_' Eiðurinn
Þorsteins Erlingssonar,
Þuriður formaður og
Kambsránsmenn, Sjálfs-
ævisaga Jóns Steingríms-
sonar, eldprests, Ljóða-
safn Steingríms Thor-
steinssonar, Ritsafn Jóns
Sigurðssonar frá Kaldað-
arnesi, Ljóðmæli Páls
Ólafssonar, Ritsafn Jónas-
ar Hallgrimssonar, Ljóð og
laust mál Hannesar Haf-
stein, lllgresi, Arnar Arnar-
son.
Öll framangreind verk seld
með mjög hagkvæmum
af borgunarkjörum.
Þaðpassarfiá
Lee
lnQotfté
-passar á þig
LAUGAVEGI 47