Morgunblaðið - 05.11.1976, Blaðsíða 41
MOBGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1976
41
83? S\G€A V/öGA £ *Í/LVE&4W
vAV Y/£NN/ WBtf9/'S/
, tóx \iB^ _
(sfwaw AvfY&souR]
AV n'AVVBTTA
ttí o? w/tt
vHRlR ViAA/A
/2-9
VlÓK
'
‘dÍEN9(JR
ST0N9orí VA^LA
\ LtömmZVBMW
V/V TROVf A9
^TTA A
VLYlEF SmuW
vwy^ójuR AF VFl
vo \TvW Y/óAl VAV/
VKK/ OKW
Velvakandi svarar f síma 10-
100 klt. ly^JLl f.J^. frá mánu-
degi til föstudags. *
% Loft til sölu.
Maður nokkur sem er við-
riðinn mótlöku ferðamanna hér á
landi kom eftirfarandi pistli á
framfæri við Velvakanda og er
hann úr erlendu blaði. Þar er
fjallað um sölu andrúmsloftsins
til ferðamanna og er þetta laus-
lega þýtt hér:
„Tvær ferðaskrifstofur í Þýzka-
landi hafa nú á boðstólum eina af
náttúruauðlindum landsins,
ferskt loft. I minjagripaverzlun-
um í Berlin geta ferðamenn keypt
litlar niðursuðudósir með lofti og
á miða á dösunum stendur „Berl-
iner Luft“. Þessi setning, sem
þýðir Berlínar-loft, er tekin úr
söng i óperettunni „Frau Luna“
eftir Paul Lincke og bendir ekki
aðeins á hið hreina loft heldur
minnir og á metnað borgarinnar,
eins og Ferðaskrifstofa þýzka
ríkisins segir. Verð dósarinnar
með hreina loftinu er 80 cent eða
rúmlega 150 krónur. í smábænum
Neuenkirchen í Norður-Rín eru
til sölu hjá ferðaskrifstofu dósir
með hreinu lofti fyrir um 1 doll-
ara, 189,- kr. Þetta uppátæki í
Neuenkirchen byrjaði sem apríl-
gabb, en eftir auglýsingu í dag-
blaði var ákveðið að hefja þessa
sölu í alvöru. Ef einhverjir hafa
áhuga er heimilisfangið Tourist
Office, D-3041 Neuenkirchen,
Luneburger Heath, í Þýzkalandi.“
Hugmyndin um að selja hreint
og ómengað loft til annarra landa
er því kannski ekki eins fjarri
lagi og mætti ímynda sér hér á
landi og nú er þess að bíða og sjá
hvort einhver ferðaskrifstofan
tekur ekki að sér að standa fyrir
slíkri sölu. Gæti þetta ekki verið
einn þáttur í léttum iðnaði sem
talað er um að vanti svo mjög hér
í byggðarlögum þar sem atvinna
er lítil. Það ætti a.m.k. að vera
nög af þessu hreina lofti. Það
væri ekki úr vegi að heyra um-
ra'ður alvarlega þenkjandi
manna út af þessu máli.
^ Sjónvarpið er
tímaþjófur.
Oft hefur málefni sjón-
varpsins borið á göma hér og þá
hefur aðallega verið um að ræða
skoðanaskipti um ágæti dagskrár
þess. Um daginn urðu einnig
miklar umræður um aðgerðir
sjónvarpsmanna í launamálunum
en nú eru aðgerðirnar um garð
gengnar og umræðan um þær
einnig.
Einn sjónvarpsáhorfenda hefur
haft samband við Velvakanda og
hafði hann ýmislegt að segja um
sjönvarpið og sagði hann m.a., að
það væri tímaþjófur. Ekki vildi
hann þó skella neinni skuld á
starfsmenn sjónvarpsins því mál-
ið væri þeim algerlega óskylt. Það
væri tímaþjófur fyrir þeim sem
gætu ekki annað gert á kvöldin en
sitja fyrir framan tækin og horfa
og horfa hvað sem á dynur og
hvað sem í boði er, hvort sem það
eru fræðsluþættir sem þeir hafa
mikinn áhuga á eða kvikmyndir
sem eru skemmtilegar eða bara
einhver hundleiðinlegur þáttur
sem þeir hafa ekkert gagn eða
gaman af, alltaf skal setið við
tækin og horft. Þessum viðmæl-
anda Velvakanda fannst því
engin furða þó að menn gætu
röflað yfir dagskránni. Það væri
ekki nema eðlilegt að þeir fyndu
ekki alltaf eitthvað við sitt hæfi,
ef þeir sætu allan útsendingar-
tímann. Það virtist vera fjöldi
fólks sem kynni ekki að notfæra
sér dagskrána, það kynni ekki að
velja eða hafna, heldur væri þetta
„kækur“ sem fólk hefði tamið sér
fyrir tiu árum og gæti ekki losnað
við.
Það var líka altalað, hélt maður-
inn áfram, að þegar sjónvarp féll
niður i nokkra daga um daginn,
að kvikmyndahúsin fylltust og
fólk tók upp á því að fara í heim-
sókn til kunningjanna. Slíkt hef-
ur heyrt til undantekninga, það
hefur varla þekkzt að fólk líti inn
til náungans, bara til að athuga
hvernig hann hefur það og hvað
er að frétta hjá honum og hans
nánustu. Sennilega er síminn
aðallega notaður í þessu sam-
bandi núna, sagði hann og þá
kemur jafnframt að einu um-
kvörtunarefninu enn hjá mörg-
um, en það eru háir símareikning-
ar.
Að lokum sagði hann þetta: Við
getum slegið hér tvær flugur i
einu höggi. Hættum að horfa á
allt í sjónvarpinu, þ.e. veljum úr
og höfnum eftir áhuga okkar og
notum hin kvöldin til að fara út á
meðal fólks, fara í kvikmyndahús,
leikhús, heimsóknir til kunningja
(þá má kannski enginn koma
öboðinn í heimsókn lengur) eða
gerum eitthvað annað, sem getur
verið skemmtilegra en að horfa
sifellt á sjónvarp og spörum jafn-
framt simann um leið þar sem
ekki þyrfti lengur að nota hann
sem fréttamiðil fyrir fjölskyld-
una.
Svo mörg voru þau orð. Þetta
geta þeir tekið til sín sem vilja og
kannski opnast augu einhverra
fyrir þvi, að of miklum tima er
varið fyrir framan sjónvarpstæk-
in, sem hægt væri að nota til
einhvers annars.
HÖGNI HREKKVÍSI
Það er vonlaust að reyna að sannfæra hann.
Rýmingarsalan
í tullum gangi
Barnaskór
TZTTTö 1990-690
Dömusokkar.
Dæmi um verð
4.900- 2490
Pils síð og hálfsíð.
Dæmi um verð 3990-990
Ullarvesti barna.
Dæmi um verð bjb 190
L/
m
SKEIFUNN115 ISIMI 86566
Svo tók hann klukkuna slna
upp úr vestisvasanum, varp önd-
inni mæðulega og spurði:
— Þér komuð hingað þegar
klukkan var kortér yfir tíu, að þvf
er þér segið. Hvernig getið þér
sagt svona nákvæmlega til um
það?
Hæðnisbros lék um varir ungu
stúlkunnar.
— Komið og sjáið, sagði hún.
Og þegar hann gekk til hennar
benti hún inn f bakherbergið sem
var sýnilega eldhús kaupmanns-
frúarinnar. t hálfrökkrinu sá
hann körfustól þar sem köttur lá
á rauðum púða og rétt við stólinn
var vekjaraklukka á borði sem
sýndi 10.17.
Felicie hafði lög að mæla. Allar
stundir virtist hún hafa lög að
mæla. Kaupmannskonan var
sjálfsagt farin að velta fyrir sér
hvað þessar manneskjur væru
eiginlega að vilja til hennar.
— Hvað keyptuð þér?
— Hálft kfló af smöri... látið
mig fá hálft kfló af smjöri frú
Choichoi. Lögregluforinginn vill
að ég geri nákvæmlega það sem
ég gerði hér f fyrradag.... Og svo
léttsaltaðan rjómaost, ekki satt...
Við skulum sjá... látið mig fá
Iftinn poka af pipar, eina dós af
x 2 — 1 x 2
10. lelkvika — leikir 30. okt. 1976.
VlnnlngsröO: 1 21 —112—2 12 —XI-X
1. VINNINGUR: 11 réttlr — kr. 380.500.00
30277
2. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 18.100.00
5937 30277 30480 31195 31405+ 40148 40419+ 7455 30277 + nafnlaus
Kerufrestur er til 22. n6v. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skrlflegar. Kærueyðublöð
fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað ef
kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 10. leikviku verða póstlagðir eftir 23.
nðv.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvfsa stofni eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimllisfang tll Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR
Iþróttamiðstöðin
REYKJAVIK
VELV4CVKAIMDI