Morgunblaðið - 09.11.1976, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÖVEMBER 1976
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1976
25
í STUHU MÁLI
FH - Grótta
GANGURLÉIK3INS
Mtn FH Grótta
1. (■uðmundur S 1:0
3. Vfðar 2:0
5. Sæmundur 3:0
7. Geir 4:0
8. (iefr 5:0
9. Þórarinn 6:0
11. 6:1 Þór
11. Þórarinn 7:1
12. Júlfus ‘ 8:2
13. 8:3 Arni (v)
13. (íeir 9:3
15. Janus 10:3
16. Stemundur 11:3
17. 11:4 Þór
18. Geir 12:4
19. Þórarinn (v) 13:4
19. 13:5 Arni
20. Geir 14:5
24. Geir 15:5
25. 15:6 Magnús
26. Helgi 16:6
26. 29. Júlfus 17:7 16:7 Arni
30. Lcikhlé 17:8 Grétar
33. Geir 18:8
33. Sæmundur 19:8
36. Þórarinn 20:8
37: 38. Sæmundur Guðmundur M 21:8
(v)
38.
40.
40. Geir
41. Geir (v)
42.
44.
48.
49.
50. Þórarinn (v)
51. Þórarinn(v)
52.
53. Geir
53.
53.
54. Geir
55.
57.
58. Janus
Mörk FH: Geir Hallsteinsson 11. Þórar-
inn Ragnarsson 6, Sæmundur Stefánsson
4, ianus Gudlaugsson 2, Júlfus Pðlsson 2,
Guðmundur A. Stefánsson 1, Viðar Slmon*
arson 1. Helgi Ragnarsson 1. Guðmundur
Magnússon 1.
MÖRK GRÓTTU: Þór Ottesen 7. Arni
Indriðason 3, Grftar Vilmundarson 3,
Hörður Kristjánsson 2, Magnús Sigurðs-
son 1, Halldór Kristjánsson 1, Gunnar
Lúðvfksson I, Axel Friðriksson 1.
MISHEPPNUÐ VlTAKÖST: Birgir
Finnbogason og lljalti Einarsson vörðu
sitt hvort vftakastið frá Arna Indriðasyni.
RROTTVfSANIR AF LEIKVELLI: Þór-
arni Ragnarssyni og Arna Indriðasyni var
viklð af vellí f 2 mfnútur hvorum.
DOMARAR: Gunnar Kjartansson og
ötafur Steingrfmsson dæmdu leikinn
ágætlega. sem reyndar var auðdæmdur.
Haukar - Þróttur
GANGUR LEIKSINS:
Mfn. Haukar Þróttur
1. Ingimar 1:0
3. Svavar 2:0
4. 2:1 flalldór
6. Olafur 3:1
6. 3:2 Konráð
8. 3:3 Bjami
9. Ólafur 4:3
11. Ingimar 5:3
12. 5:4 Bjarni
16. Hörður (v) 6:4
18. Jón 7:4
22. Hörður(v) 8:4
23. 8:5 Trausti
24. Hörður 9:5
26. Sturla 10:5
27. Frostí 11:5
28. Hörður (v) 12:5
30. Hörður 13:5
Leikhló
33. 13:6 Sveinlaugur
38. 13:7 Sveinlaugur
38. Hörður 14:7
40. 14:8 Ifalldór (v)
45. 14:9 Gunnar
47. Jón 15:9
48. Jón 16:9
51. Þorgeir 17:9
54. Hörður (v) 18:9
55. 18:10 Konráð
56. Hörður (v) 19:10
57. 19:11 Konráð
58. Jón 20:11
60. Hörður (v) 21:11
60. Hörður (v) 22:11
MÖRK HAUKA: Hörður Sigmarsson 10.
Jðn Hauksson 4. Ingimar Haraldsson 2,
ölafur ölafsson 2. Svavar Geirsson 1.
Frosti Sæmundsson 1. Þorgeir Haraldsson
I. Sturla Haraldsson 1.
MÖRK ÞRÖTTAR: Konráð Jónsson 3,
Halldór Bragason 2, Bjarni Jónsson 2.
Sveinlaugur Krist jánsson 2 Gunnar Arna-
son 1. Trausti Þorgrfmsson 1.
BROTTVfSANIR AF LEIKVELLI:
Frosti Sæmundsson Haukum f 7 mfnútur
Konráð Jónsson Þrótti og Stefán Jónsson
Haukum f 2 mfnútur hvor.
VARIN VlTAKÖST: Gunnar Einarsson
varði vftaköst frá Halldóri Bragasyni og
Konráði Jónssyni.
DÖMARAR: Björn Kristjánsson og
Hannes Þ. Sigurðsson dæmdu þennan leik
og hefur maður oft séð betri frammistöðu
af þeirra hálfu.
Víkingur - Valur
Gangur leiksins:
Mfn. Vfkingur Valur
1. ÓlafurE 1—0
5. ólafur E 2—0
7. 2—1 Jóhannes
7. ólafurE 3—1
9. 3—2 Jón P.
10. 3—3 Jón P.
12. 3—4 Jón K.
17. 3—5 Jón K.
18. 3—6 Bjami
19. 3—7 Þorbjörn
19. Björgvin 4—7
21. 4—8 Þorbjörn (v)
21. óiafur J. 5—8
22. 5—9 Þorbjörn
25. 5—10 Jón P.
26. Björgvin 6—10
29. Ólafur E (v) 7—10
29. Viggó 8—10
3o. 8—11 Þorbjöm
Háiffeikur
32. Jón 9—11
33. 9—12 Þorbjorn
33. Björgvin 10—12
35. Björgvin 11—12
35. 11—13 Jón P.
36. 11—14 Jóhannes
37. Magnús 12—14
37. Ólafur E 13—14
38. Björgvin 14—14
40. 14—15 Þorbjörn(v)
42. 14—16 Þorbjörn(v)
43. Þorbergur 15—16
43. 15—17 Jóhannes
46. Viggó 16—17
47. 16—18 Björn
48. ólafur J. 17—18
49. Björgvin 18—18
51. ÓlafurE 19—18
52. Björgvin 20—18
57. 20—19 Þorbjörn(v)
58. Þorbergur 21—19
59. 21—20 Jón K.
59. ÓlafurE. 22—20
60. 22—21 Bjami
60. ólafur J. 23—21
60. 23—22 JÓn P.
MÖRK VtKINGS: Björgvin Björgvinsson
7, Öiafur Einarsson 7. Ölafur Jónsson 3.
Þorbergur Aðaisteinsson 2. Viggó Sig-
urðsson 2, Magnús Guðmundsson 1. Jðn
Sigurðsson 1.
MÖRK VALS: Þorbjörn Guðmundsson 8,
Jón Pétur Jónsson 5, Jón Karlsson 3,
Jóhannes Stefðnsson 3, Bjami Guðmunds-
son 2, Björn Bjömsson 1.
BROTTVlSANIR AF VELLI: Viggó Sig-
urðsson í 2. og 5. mln., Þorbergur Aðal-
steinsson. Jón Sigurðsson og Ölafur Ein-
arsson f 2 mfn. Steindór Gunnarsson I 2
mfn.
MISHKPPNUÐ VtTAKÖST: Rósmundur
Jónsson varði vftakast Jóns Karlssonar á
2. mfn, Þorbjörn Guðmundsson ógilti vfta-
kast meó þvf að stfga á Ifnu á 15. mín. og
ölafur Benediktsson varði vftakast Ölafs
Eii.arssonar á 39. mfn.
DÓMARAR: Kristján örn Ingibergsson
og Kjartan Steinbech. Þeir dæmdu yflr-
leítt affvel, en samt var ekki nógu mikið
samræmi f dómum þeirra, sérstaklega
ekki víð útafreksturinn. Vírtist þar ekki
hið sama yfir Vfkinga og Valsraenn
ganga.
ÍR - Fram
Gangur leiksins:
Mfn lRFram
2. Hörður H. 1—0
4. Brynjólfur 2—0
4. 2—1 Sigurbergur
7. Brynjólfur 3—1
7. 3—2 PáJmi
9. SigurðurSv. 4—2
10. 4—3 Aroi
10. Hörður HL 5—3
11. Brynjólfur 6—3
12. 6—4 Páimi (v)
12. 6—5 Sigurbergur
16. BjamíB. 7—5
17. Agúsl 8—5
18. 8—6 Sigurbergur
18 Agúst 9—6
18. 9—7 Sigurbergur
23. 9—8 Amar
24. 9—9 Jens
25. SigurðurG. 10—9
30. Agúst 11—9
Hálfleikur
32. 11—10 Arnar
32. Sigurður G 12—10
33. Bjarni B. 13—10
34. 13—11 Pálmi (v)
34. Brynjólfur 14—11
35. 14—12 Jens
38. Brynjólfur 15—12
39. 15—13 Jón
40. 15—14 Jón
42. Bjarni H. 16—14
43. Agúst 17—14
44. Hörður 18—14
45. 18—15 Jens
47. Sigurður Sv. 19—15
49. Bjarni B. 20—15
52. Vilhjálmur (v) 21—15
55. Agúst 22—15
56. 22—16 Arnar (v)
57. 22—17 Arnar (v)
57. 22—18 Birgfr
58. SigurðurSv. 23—18.
60. 23—19 Gústaf
MÖRK IR: Agúst Svavarsson 5,
Brynjóifur Markússon 5. Bjamí Bessason
3, Hörður Hákonarson 3, Sigurður
Svavarsson 3, Sigurður Gfslason 2, Vil-
hjálmur Sigurgeirsson I. Bjamí Hákonar-
son I.MÖRK FRAM: Arnar Guðlaugsson
4, Sigurbergur Sigsteinsson 4, Jens Jens-
son 3, Pálmi Páimason 3, Jón Aroi
Rúnarsson 2, Arni Sverrisson 1, Gústaf
Bjömsson 1, Birgir Jóhannesson 1.
BROTTVlSANIR AF VELLI: Sígurður
Svavarsson og Siguróur Gfslason, IR f 2
mín.
MISHEPPNUÐ VITAKÖST: Jón Slg
urðsson varði vftakast Vilhjálms Sigur-
geirssonar á 6. mfn, Guðjón Erlendsson
varði vftakast Brynjólfs Markússonar á
53. mfn. og Pálmi Páimason skaut f stöng
á 53. mín.
DÖMARAR: Björn Krfstjánsson og óli
Oisen og dæmdu yfirleitt vel.
22:8
22:9 Þór
22:10 Þór
23:10
24:10
24:11 Grétar
24:12 Þór
24:13 Hörður
24:14 Halldór
25:14
26:14
26:15 Hörður
27:15
27:16 Gunnar
27:17 Asel
28:17
28:18 Grétar
28:19 Grétar
29:19
Haukar helmingi
betri en Þróttur
ÞAÐ var varla heil brú f
leik Þróttarliðsins er það
mætti Haukum í Hafnar-
firði á sunnudaginn. Að-
eins fyrstu mínúturnar
héldu Þróttarar í við Hauk-
ana, en eftir það fof að
draga f sundur með lið-
unum og í lokin höfðu
Haukar skorað helmingi
fleiri mörk en andstæðing-
arnir. (Jrslitin urðu 22:11.
Haukar áttu alls engan stjörnu-
leik að þessu inni og til að sigra
Þróttarliðið eins og það lék á
sunnudaginn þurfti heldur ekki
að sýna neina snilli. Aðeins einn
maður i Haukaliðinu lék eins og
hann bezt getur, markvörðurinn
Gunnar Einarsson, sem stóð í
markinu allan tímann og fékk
aðeins á sig 11 mörk.
Varnarleikur Haukanna var
mjög sterkur að þessu sinni,
góður hreyfanleiki og komið vel
út á móti skyttum Þróttaranna. I
sókninni var skipulagsleysið hins
vegar minna og var Hörður Sig-
marsson tekinn úr umferð allan
leikinn. Hann skoraði þó 11 mörk
I leiknum, en átta þeirra úr víta-
köstum, sem félagar hans
fiskuðu.
Þróttarliðið á mjög misjafna
leiki um þessar mundir og reynd-
ar eru sveiflurnar ekki endilega á
milli leikja. I leik þeirra við Fram
á dögunum voru þeir eins og byrj-
endur í fyrri hálfleiknum, en I
þeim seinni börðust þeir af krafti
og spiluðu mjög vel. A sunnudag-
inn voru þeir í hlutverki byrjend-
anna. Það voru reyndar helztu
máttarstólpar liðsins, sem helzt
brugðust i þessum leik. Þeir
Halldór Bragason, Konráð Jóns-
son og Bjarni Jónsson gerðu
ljótar vitleysur I leiknum og náðu
sér aldrei á strik.
Öþarft er að hafa mörg fleiri
orð um þennan leik. Gangur hans
var I stuttu máli sá að Haukarnir
tóku forystu strax I upphafi með
tveimur mörkum af linu, en
Þrótti tókst aö jafna 3:3.Var það I
siðasta skiptið I leiknum sem liðin
voru jöfn. Haukar tóku nú öll
völd og breyttu stöðunni i 13:5
fyrir leikhlé og gerðu þar með út
um leikinn,. Misnotuðu Þróttarar
á þessu tímabili hvert dauðafærið
öðru betra.
—AIJ
Geir Hallsteinsson var sannarlega I essinu slnu I leiknum á móti Gróttu og er þarna að skora eitt
marka sinna.
FH-ingar létu 10 marka mun
duga gegn slöku Gróttuliði
Björgvin Björgvinsson var maðurinn á bak við sigur Vfkings yfir Val á sunnudagskvöldið. Þarna svffur hann inn f teiginn og
skorar, án þess að Þorbjörn og Jón Pétur fái að gert.
GEIR Hallsteinsson var ( aðal-
hlutverkinu er FH-ingar sigruðu
Gróttu f 1. deildinni i handknatt-
leik með 29 mörkum gegn 19.
Skoraði Geir sjálfur 11 mörk og
átti auk þess fjöldann allan af
sendingum á samherja í dauða-
færum. Sýndi Geir allar sínar
beztu hliðar 1 þessum leik, and-
stæðingurinn var það máttlaus að
Geir gat leyft sér að sýna brellur
og kúnstir, sem vöktu kátfnu
áhorfenda í þessum annars held-
ur slaka leik.
Sóknarleikur F'H-liðsins var
mjög skemmtilegur i þessum leik,
en vörnina lék liðið hins vegar
ekki eins vel. Meðan FH-ingarnir
voru að ná yfirburðastöðu í leikn-
um unnu þeir þó vel saman bæði í
sókn og vörn, en eftir að sigurinn
var í rauninni tryggður var það
aðeins sóknin sem skipti liðið
máli.
Gróttuliðið var hvorki fugl né
fiskur í þessum leik og það var
aðeins Þór Ottesen sem stóö upp
úr lognmollunni. Gerði Þór 7
mörk í leiknum og hefur ekki
leikið eins vel í langan tima. Leik-
ur Gróttuliðsins má mikið breyt-
ast ef liðið á ekki að vera á botni
1. deildarinnar í allan vetur.
1 upphafi leiksins varð Viðar
Simonarson fyrir því óhappi að fá
högg í andlitið og meiddist það
illa á kinnbeini að hann gat ekki
ltikið meira með. Kom það i hlut
Geirs Hallsteinssonar og ungu
mannanna að bera spil liðsins
uppi. Þáttar Geirs er áður getið,
en auk hans áttu leikmenn eins og
Sæmundur Stefánsson og knatt-
spyinukapparnir Janus Guðlaugs-
son og Helgi Ragnarsson allir
góðan leik. Júlíus Pálsson er
einnig sterkur leikmaður, en
hann fellur ekki eins vel inn í létt
spil FH-liðsins og
þremenningarnir.
Svo vikið sé að gangi leiksins þá
skoruðu FH-ingar 6 fyrstu mörk
leiksins og leiddu 17:8 í leikhléi. I
byrjun seinni hálfleiksins var
sami gállinn á FH-ingum og í
byrjun leiksins og skoraði liðið 5
fyrstu mörk hálfleiksins og stað-
an varð 22:8. Þar með var leikur-
ínn í rauninni búinn og kæruleys-
ið var alls ráðandi það sem eftir
var. Héldu leikmenn Gróttu
reyndar jöfnu í seinni hálfleikn-
um, sem lauk 11:11, en leiknum
með stórsigri FH 29:19.
— AlJ
Bjarni Hákonarson og Jens Jensson 1 baráttu um knöttinn f leik Fram
og lR ásunnudagskvöldið.
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ BUNDU BARÁTTUGLAÐIR
VÍKINGAR ENDA Á SIGURGÖNGU VALSMANNA
SEM sönnum vlkingum sæmir
tókst handknattleiksliði Vlkings
á sunnudagskvöldið að koma 1 veg
fyrir að Valur „stingi af“ 1 1.
deildar keppni lslandsmótsins 1
handknattleik, en það bar sigur-
orð af Valsmönnum 1 hörðum og
skemmtilegum leik sem fram fðr
í Laugardaishöllinni. Urslit leiks-
ins urðu 23—22 fyrir Víking, sem
lengst af átti þð undir högg að
sækja 1 ieiknum og var um tíma
allt upp I 5 mörk undir. Það var
fyrst og fremst baráttuþrek Vlk-
inganna og klókindi þjálfara
þeirra, Karls Benediktssonar,
sem færði liðinu sigur 1 leiknum,
og eftir þetta er vfst óhætt að
segja að Vfkingar séu til alls vfsir
— eins og reynar margir áttu von
á.
1 fyrstu virtist svo sem Vals-
menn myndu leika Víkinga sund-
ur og saman eins og þeir hafa gert
við aðra mótherja sína i deildinni
til þessa. Víkingar höfðu reyndar
betur á upphafsmínútunum og
börðust þá með kjafti og klóm f
vörninni. Dómararnir, Kristján
örn og Kjartan Steinbech, tóku
hins vegar nokkuð strangt á brot-
um þeirra og áður en fyrri hálf-
leikur var hálfnaður höfðu þrfr
Víkingar verið sendir útaf til kæl-
ingar. Kunnu Valsmenn vel að
notfæra sér að vera einum fleiri
— galopnuðu vörn Víkings hvað
eftir annað og skoruðu auðveld
mörk.
Víkingar brugðu snemma á það
ráð að taka Jón Karlsson úr
umferð, og virtist það i fyrstu
ekki ætla að bera tilætlaðan ár-
angur, því rétt eins og í leik Vals-
manna við Hauka á dögunum,
losnaði þá um Þorbjörn Guð-
mundsson og Jón Pétur Jónsson. í
seinni hálfleiknum gjörbreyttu
Víkingar hins vegar um varnarað-
ferð sína. Þeir tóku engan ákveð-
ið úr umferð, en sóttu mjög langt
út á völlinn til þess aö trufla
„keyrslur“ Valsmanna. Heppnað-
ist þetta mjög vel — svo vel að
Valsmenn voru hvað eftír annað f
hinum mestu '-andræðum i sókn
sinni. Hjálpaði það þeim heldur
ekki að skiptingar Hilmars
Björnssonar þjálfara þeirra voru
tæpast nógu góðar — hélt hann
t.d. einum bezta manni liðsins,
Steindóri Gunnarssyni, um of ut-
an vallar í seinni hálfleiknum.
1 sóknarleik sínum voru Víking-
ar svo í miklum ham og þá sér-
staklega Björgvin Björgvinsson,
sem Valsmenn réðu hreinlega
ekkert við. Skoraði Björgvin
nokkur sérstaklega glæsileg mörk
I þessum leik — eitt þó öðru freur
er hann „kringlaði" sig inn úr
bláhorninu og skoraði með
þrumuskoti. Slíkt og þvilíkt er
honum einum fslenzkra hand-
knattleiksmanna lagið.
Mjög mikil barátta var í leikn-
um þegar líða tók á seinni hálf-
leikinn og Víkingarnir fóru að
stfga á. Þar kom þó að einum
þeirra, Viggó SigurðsSyni, var vís-
að af leikvelli í 5 minútur og var
það nokkuð strangur dómur. Þeg-
ar svo var komið átti maður von á
að Valur myndi leika sama leik-
inn og liðið hafði gert með góðum
árangri í fyrri hálfleik. En Vík-
ingarnir héldu áfram að taka
áhættuna og koma langt út á móti.
Mynduðust oft hrikalegar glomp-
ur f vörn þeirra, en Valsmenn
reyndust ekki hafa kjark eða
snerpu til þess að notfæra sér þær
veilur. Var furðulegur tauga-
slappleiki ríkjandi hjá Valsmönn-
um þegar Víkingar fóru að sækja
á — fæstir leikmannanna „héldu
höfðu," en slfkt kann vitanlega
ekki góðri lukku að stýra.
Undir lok leiksins náðu Víking
ar svo forystunni, og þótt Vals-
menn reyndu 1 örvæntingu að
leika „maður á mann“ undir lokin
bar það síður en svo tilætlaðan
árangur. Þeir skoruðu að vfsu
mörk, en fengu líka jafnmörg á
sig I staðinn.
Ekki er vafi á þvf að Vlkingarn-
ir náðu þarna sfnum bezta leik í
vetur, og var allur annar bragur á
stjórn liðsins og skipulagi leiks
þess en var til að byrja með I
vetur. Mátti þar kenna yfirbragð
Karls Benediktssonar.
NÝLIÐARNIR ENN í TOPPBARÁTTUNNI
- ÍR vann Fram 23-19
ÍR-INGAR — nýliðarnir í 1.
deild — halda sig enn við
toppinn f deildinni, og eru nú
f öðru sæti, einu stigi á eftir
Valsmönnum sem eru í
forystu. Á sunnudagskvöldið
unnu fR-ingar fremur að-
veldan sigur yfir daufu Fram-
liði, 23—19, og gefa þær tölur
ágæta hugmynd um hvernig
leikurinn var og eru mög
réttlát niðurstaða. IVlega
Framarar, sem nú hafa aðeins
hlotið 3 stig í mótinu, vissu-
Iega muna sinn fffil fegurri.
Ólíklegt verður að teljast að þeir
blandi sér í baráttuna um Islands-
meistartitilinn I ár og raunar senni-
legra, ef ekki verður töluverð breyt-
ing á til batnaðar hjá þeim, að fall-
barátta verði hlutskipti þeirra. Galli
Framliðsins liggur raunar algjörlega
í augum uppi. Liðið vantar, fleiri af-
gerandi leikmenn sérstaklega í
sóknarleikinn, en þar eru aðeins einn
eða tveir leikmenn sem eitthvað geta
skotið.
Auðséð er að töluverð breyting er
að verða á IR-Iiðinu um þessar
mundir. 1 ótalin ár hefur verið fjallað
um IR sem mjög efnilegt lið og þau
ummæli hafa fylgt liðinu alla leið
niður í 2. deild. Nú eru hins vegar að
koma inn I liðið ungir piltar sem eru
að leysa þá af hólmi sem tóku ef til
vill ekki íþróttina alltof hátiðlega og
komust aldrei lengra en að verða
efnilegir. Þessir ungu piltar hafa
fært IR-Iiðinu nýjan svip, og í vetur
verður liðið að teljast stóra spurning-
in í 1. deildar keppninni. Með svolítið
meiri festu og bættum varnarleik
ætti IR að geta orðið mjög ofarlega 1
deildinni á vetur og raunar unnið
hvaða 1. deildarlið sem er.
í leiknum á sunnudaginn tóku IR-
ingar þegar forystu og héldu henni
sfðan til leiksloka, með þeirri undan-
tekningu að Fram tókst að jafna einu
sinni þegar skammt var til loka fyrri
hálfleiksins. Markamunurinn var þó
sjaldan mikill, en einhvern veginn
var það þannig að maður hafði það
alltaf á tilfinningunni að iR-ingar
myndu vinna nokkuð öruggan sigur i
þessum leik — þeir voru einfaldlega
betri en Framararnir.
Pálmi Pálmason lék nú aftur með
Framliðinu eftir að hafa verið all-
lengi frá vegna veikinda. Var hann
aðeins skuggi af sjálfum sér, en gleði-
legt er þó til þess að vita að hann er
að ná sér og er kominn í slaginn að
nýju. Mun varla líða á löngu unz
Pálmi verður sá er mest kveður að í
Framliðinu. Illutverkið sem bfður
hans er þó engan veginn auðvelt né
öfundsvert, þar sem hann er nánast
eini leikmaðurinn í Framliðiiju sem
getur ógnað verulega að utaú, a.m.k.
ef Guðmundur Sveinsson er ekki með
í myndinni, en Guðmundur mun hafa
mætt litið á æfingar að undanförnu
og lék ekki með Fram á sunnudags-
kvöldið.
í Framliðinu voru það Sigurbergur
Sigsteinsson og Arnar Guðlaugsson
sem komu einna bezt frá leiknum við
iR-inga, einkum þó Sigurbergur sem
jafnan er mjög traustur varnarleik-
maður og hættulegur í hornunum í
sókninni. Þó kom það of oft fyrir
Sigurberg í leik þessum að hann lét
loka sig af.
Góð ógnun var i sóknarleik iR-inga
á sunnudagskvöldið, en hins vegar oft
farið herfilega með góð tækifæri, og
eins notuð of mikil vettlingatök i
vörninni. Kostaði það liðið mörg
fremur ódýr mörk. Beztu menn ÍR
voru þeir Brynjólfur Markússon,
Hörður Hákonarson og Bjarni Bessa-
son. Sá síðarnefndi er greinilega að
komast vel upp á lagið með að fara
inn úr hornunum og teygði hann oft
vel á vörn Framliðsins, auk þess sem
hann hefur ágætt auga fyrir varnar-
leik og sleppir ekki miklu í gegnum
sig.
— stjl.
Undirritaður er varla 1 vafa um að Víkingar eiga
eftir að blanda sér alvarlega í baráttuna um Islands-
meistaratitilinn 1 vetur, þrátt fyrir hina slæmu byrjun
sína — enda mætti fyrr vera ef svo yrði ekki. Fá lið
hér hafa yfir eins góðum mannskap og mikilli breidd
að ráða og Víkingarnir.
Sjálfsagt verður þetta tap Valsmönnum holl lexla.
Það sannar þeim að það má ekkert eftir gefa og það
sem unnt er að komast upp með f leikjum við slakari
liðin gildir ekki þegar hraustlega er tekið á móti.
Öneitanlega gerðu Valsmenn margt fallegt f þessum
leik, en það var lfka stundum heldur nöturlegt að sjá
tilburði leikmannanna þegar taugaveiklunin hafði náð
heljartökum á þeim. Hafði hún jafnt að segja 1 sókn og
vörn, — það er f það minnsta ekki oft sem Valsmenn
hafa látið fara jafn illa með sig 1 vörninni 1 vetur og
þeir gerðu f þessum leik. Halldór Bragason reynir þarna markskot, en eins og oft áður 1 leiknum
— stjl. varði Gunnar Einarsson, Haukamarkvörður.
HINGAÐ EN EKKILENGRA